Vísir - 26.06.1964, Blaðsíða 3
☆
Það er engum vandkvæðum
bundið að fá efni í Myndsjá
frá stöðubrotum í miðbænum.
Aðeins i sjálfum miðbænum,
þar sem umferðin er mest og
margar götur þröngar, er dag-
3
Það er ekki sjaldgæf sjóo að sjá umferðarhnút, svipaðan þessum. Vörubifreiðinni er lagt á gatnamótum og uppi á gangstétt svo að
segja béint undlr skilti, sem þýðir bifreiðastöður bannaðar. Þegar vörubifreiðinni er Tagt þarna v'ð gatnamótin ieita svo ---------mirnlr út
á hægri vegarbrún og ekki líður löng stund, þar tii umferðarhnútur myndast.
lega framið mikið af stöðubrot-
um. Þó að ökumenn þessara
bifreiða fái aðeins eitt hundrað
krónur í sekt, ef lögregluþjónn
á leið framhjá og veitir brotinu
athygli, er það ekki aðalatriðið,
heldur sú hætta og þau óþæg-
indi fyrir alla vegfarendur, sem
þessir kærulausu ökumenn
valda.
Á undanförnum árum hefur
orðið hér i Reykjavík og á öllu
landinu geysileg fjölgun á bif-
reiöum, og umferðin hefur auk-
izt að sama skapi. Þessi aukna
umferð kallar á meiri tillits-
semi og ábyrgðartilfinningu hjá
öllum vegfarendum, jafnt gang
andi sem akandi.
☆ '
Hér eru alltof margir öku-
menn, sem eru svo kærulausir,
að það skiptir þá næstum engu
máli, hvar þeir Ieggja bifreið-
um sínum. Þessir menn leggja
þeim upp á gangbrautir, öfugt
við aksturstefnujágatnamótum,
á akreinum,. hlaupa jafnvel frá
þeim úti á miðri götu, og þann-
ig mætti lengi telja. Ekki má
heldur gleyma að minnast á
hvernig ökumenn oft á tiðum
yfirgefa farartækl sín. Fjöl-
margir Iæsa aldrei bifreiðun-
um, sumir gleyma að slökkva
Ijósin, og svo eru enn aðrir,
sem hlaupa frá bifreiðunum án
þess einu sinni að stöðva vél-
ina. Samkvæmt umferðarlögun-
um er hverjum ökumanni skylt
að ganga svo frá farartæki
sínu, að enginn óviðkomandi
geti fært það úr stað.
V
Ein bezta leiðin til þess að
venja ökumenn af því að ganga
kæruleysislega frá bifreiðum
sínum, er að lögreglan fjarlægi
þær. Síðan geta þá eigendurn-
ir komið og sótt þær til lögregl-
unnar, um leið og þeir fá af-
hentan sektarmiða.
Sennilega hefur ökumaðurinn á þessum glæsilega MercedesBenz hugsað: — Ja, þetta hlýtur að vera allt i
lagi, að skilja bilinn eftir hérna, ég ætla bara rétt að skreppa inn. Sem sagt hann Iokar heilli umferðar-
götu f nágrcnni miðbæjarins.
1. Þarna eru bifreiðastöður bannaðar og akreinar málaðar. 2. Bifreiðin stendur á gatna
mótum og skyggir auk þess á gangbraut. 3. Stefnuljósið er á vinstra megin. 4. Bifreiðin
er í gangi 5. Bifreiðin er ólæst.
Ökumaður þessarar bifreiðar hefur einnig verið að flýta sér mikið. Bifreiðinni er lagt
upp á gangstétt, og eins og sjá má á myndinni truflar hún bæði þá, sem um gang-
brautina fara og þá sem um götuna fara. Allar myndirnar tók Ijósm. Vísis I. M.