Vísir - 26.06.1964, Síða 5
VlSlR . Föstudagur 26. Júnf 1964.
Pekingstjórnin skildi boðskapinn
rétt, er Johnson Bandaríkjaforseti
skipaði Maxwell Taylor yfirmann
sameinaðs herforingjaráðs Banda-
ríkjan 'a, ambassador í Saigon, S.-
Vietnam —, þ. e. að Bandaríkin
vœru reiðubúin að leggja út í
styrjöld, ef í það færi, til þess að
hindra frekari kommúnistiska út-
þenslu í Suðaustur-Asíu.
Á þessa leið ritar einn af kunn-
ustu fréttariturum, sem nú starfa
Tsjonibe
útlönd. £ mörguí^
útlönd í rnorgun ; útlönd í morgun útlönd í mo.rgmi
STJÓRNMÁLAMAÐUR FER
- HERMAÐUR KEMUR
BEÐIÐ EFTIR SÍLDINNI 138 luku gagnfræ
prófi á Akranesi
Þannig er umhorfs á söltunai-
stöðvunum á Siglufirði. Tómir
síldarkassar, engar sfldarstúlk-
ur, engin síld. — Starfsmenn
söltunarstöðvanna eru látnir
dunda við ýmislegt á meðan beð
Ið er eftir að söltunarleyfi verði
gefið. Tunnumar sem ekki var
hægt salta í sl. sumar, eru
þvegnar með sterkum sápum og
síðan er sprautað á þær vatni
til þess að hreinsa sápuna nl-
veg úr þeim. Maðurinn á mynd
inni sést vinna að því að þvo
eina slíka tunnu. Á Slglufirði
hefur verið mjög gott veður
undanfarið og ekkert vantað
nema síldina. Og nú spyrja
menn: Verður síld fyrir norðan
eða ekki? — Á því veltur fram-
tíð staðarins. Myndina tók Jón
ás Ragnarsson.
j AKUREYRI
Tjaldstæðið á
Akureyri girt
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykktl á fundi sínum fyrir nokkru
að láta girða tjaldstæðið fyrir sunn
an Sundlaugina og skipuleggia
tjaldstæði. Þá var ákveðið að setja
upp nýtt skýli þar og ráða sér-
stakan vörzlumann yfir mánuðina
júní-ágúst. Til þess að mæta þess
um kostnaði var ákveðið að taka
25 króna gjald fyrir sólarhringinn.
Án efa verður þetta til mikilla þ;eg
inda fyrir ferðamenn, enda hefur
tjaldstæðið verið mikið notað á
undanförnum árum.
AKRANES
Gagnfræðaskólanum á Akranesi
var slitið mánudaginn 1. júnf kl.
5 síðdegis í Akraneskirkju. — Sr.
Jón M. Guðjónsson fltitti bæn, en
skólastjóri, Ólafur Haukur Árnason
skólaslitaræðu. Sagði hann frá
vetrarstarfinu og skýrði frá próf-
um. í skólanum voru 282 nemend-
ur og skiptust þeir f 12 bekkjar-
deildir. Kennarar voru 12, auk
skólastjóra og 7 stundakennara.
Gagnfræðapróf stóðust 38 nein-
endur. Hæsta einkunn hlaut Ingi
Steinar Gunnlaugsson, 8.47. Lands-
próf miðskóla stóðust 13 nemend-
ur, þar af 9 með framhaldseink-
unn. Hæsta einkunn hlaut Stem-
unn Jóhannesdóttir, 9,22, og er það
í jafnframt hæsta einkunn, sem gef-
irí hefir verið við landspróf mið-
skóia í skólanum. — Unglingaprðfi
luku 90 nemendur. Hæsta éinkunn
hlaut Helga Viðarsdóttir, 9,32.
Þröngt er orðið um skólann, og
taldi skólastjóri aðkallandi að haf-
izt yrði handa um að reisa 2. og
3. áfanga skólabyggingarinnar, en
fyrsta áfanga er nú að fullu iokið.
Barnaskóla Akraness var slitið
laugardaginn 30. maí í kirkjunni.
Skólastjóri, Njáll Guðmundsson,
flutti skólaslitaræðu og lýsti starf-
Framh. á bls. 6
104 hvalir
komnir á
land
í dag voru komnir 104 hialir
á Iand í Hvalstöðinni og hval-
veiðibátarnir voru á leiðinni inn
með fimm hvali. Á sama tima
í fyrra höfðu veiðzt alls 115
hvalir, en þá hófst veiði fiinm
dögum fyrr en í ár. Loftur
Bjarnarson framkvæmdastjóri
skýrði Vísi frá því í morgun, að
veiði hefði verið fremur treg
upp ,á slðkastið og verða bát-
arnir að sækja mjög langt út,
eða 200—240 mílur.
við brezk blöð, en hann starfar nú
f Washington. Blað hans birtir
frétt frá honum um þetta, þar sem
segir, að forsetinn hafi falið Max-
well Taylor hershöfðingja „umsjá
Suður-Vietnam“, en það hafi hann
gert til þess að ítreka margend-
urteknar aðvaranir um, að Banda-
ríkin ætluðu sér ekki að horfa á
það án aðgerða, að kommúnistar
legðu undir sig Suðaústur-Asíu. Og
í Washington, segir hann, efast
enginn stjórnmálamaður um, að í
Hanoi og Peking hafi stjórnmála-
forsprakkar og aðrir skilið hver
tilgangurinn var með því að skipa
Maxwell Taylor ambassador.
Fréttaritarinn hefir eftir Johnson
forseta:
Við höfum á tilfinningunni, að
í Peking og Hanoi séu menn ekki
lengur í vafa um hvað við ætlum
okkur, hver staða okkar er og
stefna. Sú hætta vofir yfir, að til
styrjaldar komi í Suðaustur-Asíu,
en sú hætta er til komin vegna
ofbeldis og hryðjuverka kommún-
ista, sem greinilega er stjórnað frá
Hanoi, þótt reynt sé að halda því
leyndu.
— Við óskum ekki víðtækari
styrjaldar, en við erum staðráðnir
í að beita kröftum okkar af alefli
til hjálpar þeim, sem eiga við kúg-
un og ofbeldi að búa.
Kommúnistar sem hafa haldið
uppi árásum á Krukkusléttu í Laos
með stuðningi Kína og Norður Viet
nam og reglulegum og óreglu’eg-
um hermönnum þaðan, kvarta nú
yfir loftárásum, en þær hafa þegar
haft þau áhrif, að Pathet Laos þor
ir ekki lengur að flytja lið og birgð
ir í björtu, fara þessir flutningar
nú fram f skjóli myrkurs.
Tsjombe í Leopoldvi! Se:
Fréttamönnum og Ijósmynd-
urum bægt frá með valdi
Vopnaðir verðir hindruðu frétta
menn í að tala við Moise Tsjombe,
er hann kom til Leopoldville I morg
un. Lögðu þeir hendur á þá og
fréttaljósmyndara, en þegar eftir
komu flugvélarinnar var Tsjombe
ekið til einhvers leynilegs dvalar-
staðar.
Hann er nú kominn heim af
frjálsum vilja eftir árs útlegð og
hefur Iengstum dvalizt í Madrid.
Hann kveðst hafa fengið tilmæli
frá sambandsstjórninni um að
koma heim til þess að hjálpa til að
ná þjóðareiningu í landinu, en þar
er nú ólga mikil, heilir landshlut-
ar að meira eða minna leyti á valdi
uppreisnarmanna (í Norður-Kat- I
anga og Kivu) og sambandsstjórnin
völt í sessi.
Tsjombe, sém var forsætisráð-
herra Katanga, en kallaði sig for-
seta og reyndi að stofna þar sér-
stakt ríki, kom við í BrUssel á
leiðinni nú og ræddi við Paul Henri
Spaak utanríkisráðherra Belgíu.
Tsjombe kemur til Leopoldville
Lodge
degi fyrir þjóðaratkvæði um
uppkast að nýrri stjórnarskrá, en
verði hún samþykkt, fara fram
þingkosningar í samræmi vlð á-
kvæði hennar.
Leifar gæzluliðs Sameinuðu þjóð
anna eru nú á förum frá Kongo
og það getur verið undir árangr-
inum af heimför Tsjombe komið,
hvort tekst að hindra borgarastyrj-
öld í landinu.