Vísir - 26.06.1964, Blaðsíða 7
VÍSIR . Föstudagur 26. júnf
1964.
«ra
I
Dómur Hæstaréttur:
Sigurbjörn greiði 160 t>ús-
und í málskostnað
Fyrir nokkru gekk dómur
Hæstarétti í einkamáli mill
Landsbanka íslands og Sigur
bjöms Eiríkssonar, veitinga
manns vegna innheimtu Lands
bankans á innistæðulausum á
vfsunum, að upphæð 1.9 millj
sem Sigurbjörn gaf út. Dómur
féll á þá leið, aö Hæstiréttur
staðfesti áður genginn dóm í
bæjarþingi Reykjavíkur og var
Sigurbirni gert að greiða allan
málskostnað kr. 160 þús.
Eins og fyrr segir höfðaði
Landsbankinn einkamál gegn
Sigurbirni til innheimtu inni-
stæðulausra ávísana að upphæð
1.9 millj. kr. Dómur gekk í mál
inu í bæjarþingi Reykjavikur og
var Sigurbirni gert að grciða
þessa upphæð og málsko;tnað
kr. 60 þús. að auki.
Eftir að dómur féll í uæjar-
þingi hóf Landsbankinn fjár-
, námsaðgerðir I eignum Sigur-
björns, þar á meðal Álfsnesi á
Kjalarnesi og krafðist síðan upp
boðs. Sigurbjörn áfrýjaði fjár-
náminu í Álfsnesi til Hæstarétt
ar, en Landsbankinn gagnáfrýj-
aði. Stuttu síðar áfrýjaði Sigur
björn dómi bæjarþings í heild
og öllum þeim fjárnámum sem
gerð höfðu verið, til Hæstarétt-
ar.
Hæstiréttur hefur nú fel't
dóm í málinu. Var dómur bæjar
þings Reykjavíkur staðfestur og
ennfremur fjárnámsaðgerðirnar.
Var Sigurbjörn dæmdur til að
greiða málskostnað fyrir Kæsta
rétti og undirrétti samtals kr.
160 þús.
íslenzka ullin gerð
verðmeiri ?
1 dag verður haldinn í
Osló fundur í nefnd Islendinga
og Norðmanna, sem skipuð var
til þess að finna nýja aðferð
til þess að skilja að þel og tog
en talið er víst, að fyndist slík
ný aðferð, mundi verðmæti ull-
arinnar stóraukast.
Fyrri hluta árs 1963 dvaldi hér
á landi Arne Haarr, deildarstj.
í norska iðnaðarmálaráðuneyt-
inu. Hann var hingað kominn á
vegum OECD, Efnahags- og"
framfarastofnunar Evrópu, fyrir
milligöngu Efnahagsstofnunar
íslands, sem sérfræðingur í iðn-
aðarmálum. Arne Haarr dvaldist
hér um nokkurra mánaða skeið
og kannaði ýmis málefni varð-
andi íslenzkan iðnað, í samstaifi
við ýmsa innlenda aðila, þ. á m,-
Iðnaðarmálastofnun íslands.
Meðal þeirra iðnaðárgreina,
sem athuganir Arne Haarr beind i
ust að, var hinn íslenzki uliar-
iðnaður. Kunnugt var áður, að
skapa mætti þeim iðnaði stór-
um betri starfsgrundvöll, með
því að nýta íslenzku ullina á
annan og betri hátt en nú er
gert. Slíkt væri unnt, ef taka.-<t
mætti að finna upp aðferð til
þess að skilja að þá þræði, sem
ullin er mynduð af, þ. e. þel og
tog, á stórvirkan og ódýran
hátt.
Er talið fullvíst að ef slík
vinnsla ullarinnar tækist, myndi
verðmæti hennar stóraukast og
opnast nýir möguleikar til fram-
leiðslu á iðnaðarvörum úr ull
fyrir erlenda markaði.
Þar sem kunnugt er, að ull
nokkurs hluta norska sauðfjár-
stofnsins hefur sömu eiginleika
og íslenzka ullin, og hér var
því einnig um hagsmunamál
Norðmanna að ræða, leitaði iðn-
aðarmálaráðuneytið, samkvæmt
tillögu hins norska sérfræðings
og Efnahagsstofnunar íslands,
eftir því við norsk stjórnarvöld,
að stofnað yrði til samvinnu
milli Norðmanna og íslendinga
er að því miðuðu að finna að-
ferð til þess að leysa það verk-
efni, sem áður er á minnzt. í
framhaldi af þessu beittu iðnað
armálaráðuneytið og landbúnað
arráðuneytið sér fyrir ,að veitt
var fjárveiting, hálf milljón
króna, á fjárlögum yfirstandand
andi árs, 1 því skyni.
I apríl s. 1 lá afstaða Norð-
manna fyrir og var hún jákvæð.
Hefur því orðið að ráði að Norð
menn og íslendingar skipi fimrn
manna samstarfsnefnd, er fái
það hlutverk að gera sér grein
fyrir tæknilegum og hagrænum
forsendum þeirra aðferða, sem
til greina koma til lausnar þessa
verkefnis.
Af íslands hálfu skipaði iðn-
aðarmálaráðherra í nefndina þá
Pétur Sigurjónss., verkfræðing,
sérfræðing í tóvinnu og vefnaði,
og Stefán Aðalsteinsson, búfræð
ing.
Kjolvegur uð
verðu fær
Unnið er þessa dagana að lag-
færinguni á Kjalvegi og er vinnu-
flokkur frá Vegagerðinni þeirra er-
inda nú inni á Kili.
ICvaðst vegamálastjóri búast við,
að lagfæringum þessum yrði lokið
um helgina og ætti þá Kjalvegur
að vera fær öllum bílum. Skafl var
Iengi á veginu á há Kiii, e,n hann
mun væntanlega vera þiðnaðu1*,
og ef ekki þá verður hann mok-
aður.
Þá skýrði vegamálastjóri enn-
fremur frá því að ur.nið væri iát-
laust að bilakláfnum yfir Tungnaá
og bjóst við að hann mundi verða
tekinn í notkun í kringum miðjan
næsta mánuð. Má búast við að úr
því hefjist meiri umferð um
Sprengisand en nokkru sinni áður.
Fyrir dyrum stendur að me.-kja
leiðina, þar sem þess gerist þörf.
Leikfélaginu
vel tekið í
Færeyjum
Leikflokkur Leikfélags Reykja-
víkur er kominn heim úr leikför
sinni til Færeyja. Tókst förin mjög
vel og leikflokkurinn fékk góðar
móttökur í Færeyjum.
Leikfé'agi.ð sýndi „Hart í þak"
eftir Jökul Jakobsson 5 kvöíd í
röð í Þórshöfn. — Fékk leikurinn
mjög góða blaðadóma í færeyskum
blöðum.
Rætt um breytt náms-
efni í menntaskólum
Próf við Hóskólu íslunds
í maí og júní 1964
í maí og júní hafa eftirtaldir
stúdentar’ lokið prófum við Háskóla
Islands:
Embættispróf í læknisfræði:
Aðalsteinn Pétursson
Anna Katrín Emilsdóttir
Gísli G. Auðunsson
Helgi Þ, Valdimarsson
Kári Sigurbergsson
Matthías Kjeld
Páll Þórhallsson
Sverrir Bergmann
Kandídatspróf í tannlækningum:
Halla Sigurjóns
Haukur Þorsteinsson
Jóhann Georg Möller
Kjartan O. Þorbergsson
Þórir Gíslason
Embættispróf í lögfræði:
Benedikt Sveinsson
Haraldur Henrysson
Hólmfríður Snæbjörnsdóttir
Skúli Jón Pálmason
Stefán Már Stefánsson
Þorsteinn Júlíusson
Kandídatspróf í viðskiptafræð-
um:
Gunnar S. Ragnars
Haraldur Magnússon
Jón Hjartarson
Már Egilsson
-Sigurbergur Sveinsson
Sveinn Jónsson
Kandídatspróf í Islenzkum fræð-
um:
Davíð Eriingsson
B.A-próf:
Auður Torfadóttir
Ásmundur Jónsson
Eyvindur P. Eiríksson
Finnbogi Pálmason
Gunnlaugur Sigurðsson
Halldór G. Ólafsson
Pálmar Magnússon
Solveig Jónsdóttir
Svanlaug Baldursdóttir
Fyrri hluti lyfjafræði Iyfsala:
Erna Jakobsdóttir
Erna Kristjánsdóttir
Kristín Einarsdóttir
Fyrri hluti verkfræði:
Ari Ólafsson
Ásgeir Leifsson
Edgar Guðmundsson
Elías B. Elíasson
Guðni G. Sigurðsson
Hilmar M. R. Knudsen
Jón G. Skúlason
Rúnar G. Sigmarsson
Sveinn Valfells
Þorkell Erlingsson
Guðmundur M. Bjarnason
“^Athyglisverðar hugmyndir
Jóhanns Hannessonar
skólameistara
Á nýafstöðnum aðalfundi Félags
menntaskólakennara, sem haldinn
var að Laugarvatni, flutti Jóhann
Hannesson skólameistari erindi um
breytt námsefni menntaskólanna,
m.a. auklð valfrelsi milli náms-
greina.
Hinar nýju hugmyndir skóla-
meistara vöktu mikla athygli, enda
í þeim gert ráð fyrir töluverðu val-
frelsi milli námsgreina, a.m.k. í
tveim efstu bekkjurrf skólanna.
Eins og kunnugt er situr nú stjórn
skipuð nefnd undir forsæti Krist'rs
Ármannssonar rektors, og er henni
ætlað að gera tillögur um brevting
ar á menntaskólakerfinu. Þess má
loks geta, að á fundi að Laugar-
vatni 1958 I Félagi menntaskóla-
kennara kom fram mjög eindregin
áskorun til menntanjálaráðherra
um stofnun nýrrar deildar (mið-
deildar) við menntaskólana og
vöktu þær tillögur mikla og al-
menna athygli á sínum tíma. Er
þess nú vænzt að skriður komizt
á þetta mikilsverða mál.
Ýmsar ályktanir voru gerðar á
fundinum, t.d. áskorun til rekfo>-s
og skólameistara um að láta leggja
niður latínukennslu í 4. bekk stærð
fræðadeildar, og tillaga um stytt-
ingu próftíma í menntaskóhi'ium.
Stjórn Félags menntaskólakenn-
ara var endurkjörin, en hana skipa:
Gunnar Norland form., Guðni Guð-
mundsson ritari og Guðmur.d ir
rnlaugsson gjaldkeri.
Í^TUNDUM verður íslenzk
biaðamennska örlítið skringi
leg og satt að segja ekki þeim
beinlínis til sóma, sem í blöðin
rita. Gott dæmi um þetta eru
skrif Tímans undanfarið um af
komu ríkjssjóðs þegar vinstri
stjórnin fór frá völdum. Það
ætti þó að vera auðvelt mál
að komast til botns í því hver
afkoman var vegna þess að
fyrir liggja reikningar bank-
anna sem öllum eru opnir. En
Tíminn fer eins og köttur í
kringum heitan graut og viður
kennir alls ekki að vinstri
stjórnin hafi skilið við gjald-
eyrissjóðina galtóma — og
reyndar gjaldþrota. Skulu nú
færðar á það sönnur.
© Sjóðirnir tæmdir.
Þegar vinstri stjórnin fór frá
völdum voru sáralitlir gjald-
eyrissjóðir eftir í landinu eða
aðeins rúmar 200 milljónir,
reiknað á núverandi gengi.
Vinstri stjórnin hafði stjórnað
landinu þannig, og skildi þanrt-
ig við, að árið eftir voru allir'
sjóðir tæmdir og gjaldeyris-
skuld bankanna var orðin
143 milljónir króna. Ástandið
var 'með öðrum orðum mjög
ískyggilegt, Engir varasjóðír
voru upþ á að hraupa 'til kaupa
á vörum og íífknáúSsynjum og
mjög var þr1 verz 1 un
landsmanna og öllum gjaldeyr-
isviðskiptum vegna þessa
slæma viðskilnaðar vin.stri
stjórnarinnar.
9 Birtir til.
Á öðru ári tók strax að birta
í lofti, þegar tekizt hafði að
greiða að nokkru úr þeim ó-
göngum sem vinstri stjórnin
hafði komið efnahag lands-
manna í. Eftir fyrsta ár við-
reisnarinnar hafði gjaldeyris-
staðan batnað um 300 milljón
ir og var orðin hagstæð um
151 millj. króna. Sfðan hefir
ástandið farið batnandi ár frá
ári. Og nú f lok sfðasta árs
voru gjaideyrissjóðirnir 1.311
millj. króna, eða nokkuð á ann
an milljarð króna. Sýnir það
hve gjörsamlega hefir skipt
um frá óstjórn vinstri átjórnar
innar f þessum efnum sem
fleirum.
9 Lán til fram-
kvæmda.
En þótt Tíminn þegi sem
vandlegast um gjaldeyrisstöð-
una, er hann kampakátur yrfir
skuldum ríkissjóðs. Þær eru
nú 350 millj. kr. hærri en í árs-
lok 1958 — eða fyrir sex ár-
um. Fjarri Iagi er að þessi
skuldaaukning sé alvarlegs eðl
is, enda er skýring hennar sú
að lán hafa verið tekin til
stórframkvæmda og atvinnu
tækjakaupa. Aukningin er því
eðlileg og ber ekki vott usti
neina óstjórn. Allar þjóðir
vinna stórframkvæmdir fyrir
erlent lánsfé.
Niðurstaðan verður því sú
að tfmamót voru í efnahags-
viðskiptum þjóðarinnar við út-
lönd þegar viðreisnin tók við
völdum. Þá fyrst fór að rofa
til.