Vísir - 26.06.1964, Síða 10
10
LU.itmiÆ
V í S I R . Föstudagur 26. júní 1964.
TÚNÞÖKUR
Seljum góðar túnþökur, flytjum heim ef ósk-
að er. Sími 15624.
MÓSAIKLAGNIR
Annast mosaiklagnir og ráðlegg fólki um
litaval o. fl. á böð og eldhús. Pantið í tíma í
síma 37272.
HANDRIÐAPLAST
Tökum að okkur plasthandlista-ásetningu.
Útvegum efni ef óskað er. — Höfum til 1,5
tommu og 2 tommu plast.
MÁLMIÐJAN s/f 1
Njörvasundi 18 Símar 16193 og 36026
- VINNA -
VÉLHREINGERNING
, -* ■ Vanlr
menn.
Þægileg.
Fljótleg.
Vönduð
vinna.
ÞRIF —
Sími 21857
Rangæingafélngið ætiar að
reisa gisti- og samkomuhtís
Rangæingafélagið í Reykjavík er
á .amt skógræktarféiagi Rangæinga
að hefja framkvæmdir við bygg-
ingu nokkurs konar samkomustað-
ar fyrir þá í Hamragörðum undir
Eyjafjöllum. Rangæingafélagið hef-
ur lengi haft hug á að eignast að-
setursstað fyrir Rangæinga, sem
eru brottfluttir úr sveitinni, en sem
myndi langa til að eyða þar sum-
arleyfum sínum.
Og þegar Erlendur Guðjónsson
bóndi gaf skógræktarfélagi Rangæ
inga jörðina, ákváðu félögin tvö að
reisa þar snotran gististað, þar sem
sveitungar myndu sitja fyrir um
gistingu. Teikningar hafa þegar ver
ið gerðar — af Kjartani Sveins-
syni — af gisti- og veitingahúsi
með 20 herbergjum. Eins og gera
má ráð fyrir hindrar fjárskortur
allar bráðar framkvæmdir, og til
þess að kljúfa hann að einhverju
leyti, hefur Rangæingafélagið á-
kveðið að hrinda af stað happ-
drætti. Vinningar verða sex vetra
móalóttur gæðingur frá Ártúnum á
Rangárvöllum og glæsileg Opel bif
reið. Mikil áherzla verður lögð á
að þessi gististaður verði allur hinn
vistlegasti, og að þeir sem þar
dveljist fái frið og geti notið sveita
sælunnar í sem ríkustum mæli.
Þeir, sem þekkja til staðhátta
þarna, vita, að útsýni er afburða
fagurt og býður upp á dásamlegar
gönguferðir, og er m.a. auðfarið
upp á Eyjafjallajökul.
Svo sem fyrr segir verður gisti-
húsið reist í Hamragörðum, neðan
hamra, en ofan hamra mun skóg-
ræktarfélagið vinna að gróðursetn-
ingu. Gert er ráð fyrir að það verði
tilbúið e.ftir 1—2 ár.
Sögulegur útof-akstur
Aðfaranótt þriðjudags var bif-
reið ekið út af á gatnamótum Grens
ásvegar og Bústaðavegar. f bif-
reiðinni voru 6 manns, 3 stúlkur og
3 piltar, og var flest flutt f Slysa-
varðstofuna vegna meiðsla, sem
það hlaut. Þau reyndust bó ekki al
varleg.
Vegna missagna hjá viðkomandi
fólki, þegar lögreglan tók af þvf
skýrslu um nóttina, var þremur
stungið inn f fangageymslu. þ.
e. tveim piltanna og einni stúlk-
unni. Hafði stúlkan skrökvað til
nafns ng gefið upp nafn frænku
sinnar. Við yfirheyrslu hjá rann-
sóknarlögreglunni daginn eftir ját-
aði hún samt brot sitt og gaf upp
hið rétta nafn.
A götunni, þar sem billinn lenti
út af, lá stór steinn og töldu bfl-
verjar hann hafa verið orsök til
útafakstursins. Lögreglunni fannst
þetta grunsamlegt, og við nánari
yfirhéyrslu hjá rannsóltnarlögregl-
unni játaði einn farþeganna að
hafa borið steininn upp á götuna
eftir að bfllinn lenti út af, beinlínis
í þvf skyni að kenna steininum um
óhappið.
Fólkið reyndist allt drukkið í
bílnum að undantekinni einni
stúlku, sem ók bifreiðinni. Hafði
hún tekið bflpróf fyrir fáum vikum
og var ekki sem öruggust við akst-
urinn. M. a. hafði hún ekið utan í
vegfaranda nokkru áður. Hann var
síðan tekinn upp í bílinn og var
hann meðal farþega þegar óhappið
vildi til. Ástæðan fyrir útafakstr-
inum mun hafa verið sú, að stúlk-
an ók of hratt inn á beygjuna og
náði henni ekki.
Meðal farþega í bifreiðinni var
eigandi hennar, en hann hafði verið
sviptur ökuréttindum fyrir skömmu
íþréffcsnámskeið
Kvenfélag Grensássóknar beit
ir sér fyrir 6 vikna íþróttanám-
skeiði fyrir unglinga 12 ára og
eldri, á Golfvellinum, f knatt-
spyrnu og handknattleik. Nám-
skeiðin verða á þriðjudags- og
föstudagskvöldum kl. 8,30 og
hófust sl. þriðjud. Knattspyriu
félagið Fram hefur góðfúslega
útvegað kennarana.
Tepþo-
hreinsun
húsgagnahreinsun
Sími 37389
Teppa. og húsgagnahreinsunin
NÝJA TEPPAHREINSUNIN
Fullkomnustu
vélar ásamt
þurrkara.
iíi'5
;á»í
Nýía teppa- og
húsgagna-
i’ hreinsunin.
Sími 37434.
Vélahreingerning
Vanlr og
vandvirkir
menn.
Ódýr og
örugg
þjónusta.
ÞVEGILLINN, sfmi 36281
KÓPAVOGS-
8ÚAR!
Ylálið sjálf, við
lögum fyrir ykk
ur litina. Full-
icomin þjónusta.
LITAVAL
Alfhólsvegi 9
Kópavogi
Sími 41585.
l®4 [iSAVIÐnrqiiiR*
Laugavegi 30. Sími 10260.
Gerum við og járnklæðum pök.
Setjum I einfalt og tvöfalt gler
o.fl. — Útvegum allt efni.
TVcntim p
prentsmlöja & gúmmlstfmplagerö
Efnholtl Z - Slmi 20?í0
Slysavarðstofan
Opið allan sólarhringinn. Sími
21230. Nætur og helgidagslæknir
í sama síma
Næturvakt I Reykjavfk vikuna
20.-27. júní verður í I.auga"egs-
apóteki.
Næturlæknir 1 Hafnarfirði frá
kl. 17 í kvöld: Kristján Jóhannes-
son, Mjósundi 15, sími 50056.
Utvarpið
Föstudagur 26. júní
Fastir liðir eins óg venjulega
15.00 Síðdegisútvarp
18.30 Harmonikulög
20.00 Erindi: Um jarðskjálfta og
gerð jarðarinnar. Hlynur
Sigtryggsson veðurstofu-
stjóri.
20.25 Blásarasveit Lundúna leik-
ur tvö verk eftir Mozart
20.45 Sumardvalarstarfsemi
Mæðrastyrksnefndarinnar
í Reykjavík: Þar koma fram
Jónína Guðmundsdóttir for-
maður nefndarinnar, Aðal-
björg Sigurðardóttir og
tvær konur, Helga Bjarna-
dóttir og Valdís Valdimars
dóttir, sem segja frá
hvíldardvöl af eigin raun.
21.10 Grfsk þjóðlög: Litsa Liotsi
og Zoi Vlahopoulou syngja
21.30 Útvarpssagan: „Málsvari
myrkrahöfðingjans,“ eftir
i Morris West XVIII.
22.10 Kvöldsagan: „Augun S
myrkrinu," síðari hluti smá
sögu eftir séra Sigurð Ein-
arsson.
22.40 Næturhljómleikar: Sinfónia
nr. 5 í B-dúr óp. 100 eftir
Serge Prokofjeff.
23.20 Dagskrárlok.
Sjónvarpið
Föstudagur 26. júni
18.00 Language in Action
18.30 Encyclopedia Britannica
19.00 Afrts news
19.15 The Teienews Weekly
19.30 Current Events
20.00 Rawhide
21.00 The Jack Paar show
22.00 The Fight of the Week.
23.00 Final Editions news
23.15 Northern Light Playhouse
„Terror Street."
Áheit og gjafir
Strandakirkja: Frá gömlum sjó-
manni kr. 100. Frá Línu kr. 50.
Orðsending
Kvenfélag Háteigssóknar fer 1
skemmtiferð fimmtudaginn 2. júll
n.k. Farið verður um Borgar-
fjarðarhérað. Uppl. í sfmum
11813, 17659 og 37300.
W£NNALLdao4M6
BLÖÐUM FLETT
<y
Nú líður óðum langt á nótt,
nú Iykur svefninn flestra brá.
Og blærinn sjálfur blundar rótt.
Það bærist ekki nokkurt strá.
Og sólin blessuð sígur rjóð,
hún slðla gengur hvflu til.
Hún stráði um loftið gullinglóð.
Hún gyllir snemma bæjarþil.
Stefán frá Hvítadal.
Fleiri eru breyzkir . . .
Hvinnsku Ingimundar Króks var mjög á iofti haldið, og ýmsum
svörum hans, er sýna hina mestu óskammfeilni. Þegar af honum hafði
verið tekið það ,sem hann hafði hnuplað, var hann vanur að segja:
„Þú varst heppinn að hafa það“. Einu sinni sem oftar var Ingimund-
ur settur í svartholið fyrir drykkjuslark. Var hann þá með brennivins-
flösku, sem ekki var að fullu tæmd, og tók fangavörður hana af
honum. Morguninn eftir sleppir fangavörður Ingimundi og afhendir
honum flöskuna. Tók hann við henni með þessum ummælum: „Fleiri
eru breyzkir en Ingimundur, en þetta var svosem guðvelkomið". Með
þessu var hann að gefa I skyn, að lækkað hefði í flöskunni.
Héraðssaga Borgarfjarðar, I. bindi.
Fámennur var hópurinn
sem fór um nesjahraun,
afturgöngur afturgöngu
ýmsa gerðu raun.
STRÆTIS-
VAGNHNOÐ
VIÐLAG:
Sagt hefur það verið
að Suðurnesjamenn
sæju fleira en aðrir —
og sjái það enn,
Margt er það á kreiki
um útnesjar enn,
sem ekki mega líta
nema einstaka menn.
Áður fyrr á Stapanum
ýmsum þótti reimt.
Nú hafa menn draugsa
eða draugsi mönnum gleymt.
Þótt enginn trúi á almættið
né afturgöngur nú,
ganga ýmsir aftur
fyrir annarlega trú.
Afturgöngur myrtra
og aftekin hró,
með heilsan frá Stalín,
krússa og. kó.
Glingruðu þær hlekkjum
við göngumanna hlið,
svo ýmsum virtist fjölmennt
afturgöngulið.
Aðrir voru sjóndaprari
suður á Strönd,
litu ei Jússoff hengdan
leiða Jónas undir hönd ...
Smátt hundrað ilsárir
afturgöngumenn,
með hlekkjuðum afturgöngum
hundruð tvenn og þrenn ..
Sagt hefur það verið
að Suðurnesjamenn
sæiu fleira en aðrir
m