Vísir


Vísir - 24.07.1964, Qupperneq 15

Vísir - 24.07.1964, Qupperneq 15
VÍSIR . Föstudagur 24. júlí 1964. 15 McKINLEY KANTON: * • • GROF Hann hafði heitstrengt, að koma fram hefndum á manninum, sem myrt hafði föður hans og bróður, en það Iiðu 60 ár þar til hann komst á slóðina... Það var ekki nema svo sem tveggja mínútna akstur frá aðal- götunni að húsi Eli Goble. Ljós skein í öllum gluggum. Gamli maðurinn lá. Hann — horfði á okkur augum, sem voru eins og hálfsokkin inn í augna- tóftimar og virtust því kannski dekkri en þau voru, og þau voru rauðþrútin. Honum veittist erfitt að draga andann. — Jæja, Eli, hvernig líður þér? Það er Patterson læknir, sem með mér er. Gamli maðurinn hnyklaði brýmar, er hann horfði á mig. - Ekki sem bezt, sagði hann, nú held ég að hjartaskömmin sé alveg að bila. — Vertu nú ekki áhyggjufull- ur, Eli, sagði læknirinn, þetta líður hjá eins og vanalega og þú verður 100 ára, vertu viss. Hann tók hlustunartæki upp úr tösku sinni. Hann hlustaði hann og var fljótur að því. — Hafðu engar áhyggjur, Eli, ég held þú verðir betri á morg- un Taktu meðalið eins og ég mælti fyrir um og þér mun sofn ast vel í nótt. Gamli maðurinn tautaði eitt- hvað og heyrðist í honum dálít ið hóstakjöltur um leið og við fórum. Ég veitti því athygli er við vorum að fara, að allt of mikið var af húsgögnum í anddyrinu svo að vel gæti farið og var ein hver skuggabragur þarna á þrátt fyrir að ljósin loguðu. Klukkan 16 daginn eftir hitt umst við Martindale læknir og í lækningastofu hans og vorum við þá að koma úr sjúkravitjun- um. Blaðið Cottonwood Herald lá á borðinu út breitt og í ramma á forsíðu stóð eftirfarandi: Eli Goble gefur bænum skemmtigerð. Kaupsýslumaður og land- nemi velur minnismerki. — Breytt áætlun hátíðahald- anna á morgun. Á bæjarráðsfundi síðdegis í dag var einróma samþykkt, að þiggja gjöf sem Eli Goble bauð fram. Hinn mikllsmetni og virti uppgjafahermaður úr Borgarastyrjöldinni, maður- inn, sem mest hefir byggt í Cottonwood, hefir boðist til I að gefa Cottonwood 30 ekru j skóglendi, sem framvegis á að ! bera heitið Goble Memorial | Park. Kunnugt er, að dráttur varð á, að hann gerði viðvart um þessi áform af völdum veikinda. Öldungurinn, elztur virðing armanna í Cottonwood, setti sem skilyrði fyrir gjöf sinni, að minnismerkið yrði i lundi álmtrjáa í hinum nýja skemmtigarði. Af þessu leiddi nauðsynlega breytingu. Hætt j var við að gróðursetja álmtré á Norðurhæð (North Hill) á j búgarði Louis Wilsons hand- j an Coonárinnar, og verða þau j þess í stað gróðursett í jaðri Austurhæðar, sem eru á 30 ekra spildunni, sem Goble gaf. Menn safnast saman til skrúðgöngu á Ráðhústorginu og verður gengið yfir Austur brú til hins nýja skemmti- garðs, þar sem hátíðahöld Skógræktardagsins hefjast. J. Medley Williams hefir ákveð j ið, að hljómsveit Cottonwodd j bæjar ... Læknirinn benti á blaðið. — Það mun einhver segja, að j þetta sé í fyrsta skipti, sem heyrst hafi að Eli Goble hafi gefið eitthvað - það er að minnsta kosti það fyrsta, sem hann hefir ekki eitthvað upp úr peningalega. Ég get ekki séð að hann hafi neitt upp úr þessu nema heiðurinn — og til þessa hefir Eli Gobi aldrei hirt um að vera heiðraður. Allt hefir snú ist um að nurla saman. Já, Noll ins ritstjóri kallaði hann elztan virðingarmanna í Cottonwood. Eli Goble á líka í rauninni Herald-bygginguna . . . Klukkan hálfsex næsta morg- un barði læknirinn að dyrum hjá mér. Ég vaknaði upp með and- fælum. Mér datt ekki í hug, að neitt hefði getað knúið hann til þess að fara á fætur og vekja mig svona snemma dags, nema mikil alvara væri á ferðum, svo sem að gera yrði keisaraskurð á konu, sem gæti ekki fætt . . . Ég bauð honum inn í gistihús- herbergi mitt og hann beið þar meðan ég klæddi mig. - Hvað er að? spurði ég um leið og ég vætti andlitið með köldu vatni. — Ég ætla að biðja yður að hjálpa mér - við gröft. - Og ég hélt, að það væri keisaraskurður. - Það er miklu alvarlegra en nokkur uppskurður - í mín- um augum. Ég sá nú, að það var eldlegur áhugi í augum læknisins, og þó leit hann út eins og hann hefði legið andvaka alla nóttina, en ég var sannast að segja ekki al- mennilega vakandi, og spurði einskis frekar. Þegar við komum út sá ég, að tvær rekur voru í bflnum og haki og öxi. Læknirinn ók eftir aðalgötu bæj arins og út úr bænum til norð- urs. Tveimur mínútum síðar ók- um við yfir brúna á Coon-ánni. — Þama er búgarður Louis Wilsons, sagði hann. Við fórum út úr bifreiðinni við fjarlægari enda maísekru og tókum rekumar og exina með okkur. Læknirinn dró andann nokkuð þungt, en allur drungi var úr hinum athugulu augum hans. Við gengum fram hjá eik- arskógi og tveimur giljum, þar sem var mikill runnagróður, og komum loks að kræklóttu eikar tré sem stóð eitt sér í hlíðar- slakka. Það var mjúkt safamikið gras undir fótum okkar, sprott ið up úr feitri preríumoldinni. — Þetta er Norðurhæð, sagði læknirinn. Og hér fyrir neðan er bærinn. Fyrir neðan okkur bugðaðist Coon-áin. Á bökkum hennar og upp eftir hlíðunum uxu Ijósblá blóm með fremur loðnum leggj- um og fannst mér mikið til um fegurð þeirra. - En hvað þau eru falleg, sagði ég. Hvað heita þau? Ég hefi aldrei séð þau fyrr. - Þetta eru eins konar anemónur, sagði læknirinn, sem menn kalla „bláa vorblómið", — þau koma nefnilega eins og vorboði hér . . . en nú verðum við að taka til höndum. Dynacolor Corporation/9gYl A SUBSIDIARY OF BJcomPANY Dynachrome * FILMAN Á MARKAÐNUM 25 A.SA HEILDSÖLUBIRGÐIR J. P. Guðjónsson h.f., Skúlagötu 26. Sími 11740 ÚTSÖLUSTAÐIR 1 Reykjavík: Filmur & vélar, Skólavörðustíg 41. Björn & Ingvar, Aðalstræti 6. Amatörverzlunin, Laugavegi 55. ÚTI A LANDI: Verzl. Kyndill, Keflavik. Gullsmiðir Sigtryggur & Pétur, Akureyri. Bókaverzlun Þórarins Stefánssonar, Húsavík. AÐ RAFKERFINU TVentun ? 1 prxntsmlðja & gúmmistimplager& Elnhollf 2 - Slmi 20960 t T A R Z A N 041 6<76Z TNE COKRECTEZ TREATV1 NOW SAYS TMAT WE E0NS0S WILL 0WKI THE , LAN7TRANSFEKZEÍ7 , , TOUS BY BATUSIS.BUT, SIK.,/.SEE TWO WOitE , VTOZFS WE SH0UL7 CHANSE. .. j—’ Biu Eooir C’.WíO THE TREATY SAYS WE MUST PAY BATUSIS EACH YEAR ONE-FIFTH OF THE LAN7'S PR07UCE OR PROFITS. MY FATHEIt CANNOT PUT HIS THUMSPRIHT TO THOSE TWO W0R7S: ^BECAUSE ,5IKiSOME YEAKS THE^Y WHY WOT, N LOCUSTS PESTR0Y 0UKCR0PS,0K'A ABUZZl? J\YEAR WITH0UT K.A1N SIVES US NO v PZOPUCE. SHOULP KIOT THE [ TKF" • V VVE BONGOS WILL PAY \PAY L.. TH 0F EVEM HARVESTi < Samningurin segir nú að við munum EIGA það land sem við ræktum, segir Abuzzi. En ÉG sé tvo galla aðra sem við þurfum að breyta. í samningnum segir að við verðum að greiða Batusun- um einn fimmta hluta af fram- leiðslu okkar ár hvert. Þetta get- um við ekki samþykkt. Og af hverju ekki? spyr Tarzan. Vegna þess að stundum verðum við fyrir skakkaföllum af völdum veðurs eða skordýra þannig að fram- leiðslan er mjög lítil. Þá megum við ekki við þvi að greiða Batus- unum einn fimmta. Ég held að við verðum að breyta samningn um þannig að þar segi að við greiðum þeim þetta eftir hvern góðan uppskerutfma. .V.V.V.V.V.V.W.VV.V.W. =■ 5 ií DÚN- OG FIÐURHREINSUN vatnsstíg 3. Sfmi 18740 SÆNGUR REST BEZ1 -koddar. Endumýjum gömlu sænguraar, eigum dún- og fiðurheld vei. Seljum æSardúns- og gæsadúnssængur — og kodda af ýmsum stærðum. v.v 2 herb. risíbúð við Efstasund 2 herb. kjallaraíbúð við Shellvég 2-3 herb. íbúð við Nesveg, litið nðurgrafin, fín íbúð í góðu standi. Bílskúrsréttur 4 herb. íbúð við Hátún, harðviðar- hurðir og innréttingar 4 herb. íbúð við Seljaveg. Nýstand sett og máluð 4 herb. íbúð við Ránargötu Einbmýlishús (lítið) við Bergþóru- götu Raðhús við Hvassaléiti á tveimur hæðum 6 herb. íbúð í heimunum tilbúin undir tréverk Ibúðin er 155 ferm á II. hæð 2 stofur 4 svefnherb. bað, snyrtiherb. fyrir gesti, e'.d- hús stórt, búr, þvottahús, allt á sömu hæð. Bílskúrsréttur. JÓN INGIMARSSON, lögmaður, Hafnarstræti 4. Sími 20555. SöíumaCur: Sigurgeir Magnússon. Kvöldsími 34940. Volkswagen 58, ’62, ’63 Comet 63 Opel Kadet ’63 og ’64 SAAB ’63. Rússajeppi ’62, lúxus hús. Simca ’63. Skipti á Diesel. Taunus M 17 ’63. Treiter vörubíll ’61. Herrosokkar creoe-nylon kr 29.00 Miklatorgi

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.