Vísir - 14.11.1964, Qupperneq 1
VtSIB
54. árg. — Laugardagur 14. nóvember 1964. - 252. tbl.
Vísindamenn / afmælis■
heimsókn til Surtseyjar
Þannig lítur Surtsey út eftir eitt ár. Myndin var tekin úr flugvél yfir eynni í gærdag og gefur hún vel til kynna hversu geysistór
Surtsey er orðin. (Ljósm. V. Linden.)
1963, sem skipverjar á
vélbátnum ísleifi II. frá
Vestmannaeyjum, veittu
gosinu fyrstir manna at-
hygtí. í tilefni af afmæli
Surtseyjar fór leiðangur
íslenzkra vísindamanna
út í Surtsey í gær, og
ætla vísindamennirnir
að dvelja úti í eyjunni á
afmælisdaginn m. a. við
vísindastörf.
í þessum leiðangri eru: Þor-
leifur Einarsson, Guðmundur
Kjartansson, Jens Tómasson,
Gretar Guðbergsson og Ósvald
ur Knudsen, kvikmyndatökumað
ur. Fóru þeir með varðskipi frá
Reykjavík kl. 2 í gær. Ætlunin
er m.a. að vinna að ýmsum vís-
'indastörfum og taka kvikmynd
úti í eyjunni.
Frá því Surtur tók að
gjósa, hefur hann gosið hvorki
meira né minna en 750 milljór.-
um rúmmetra af gosefni. Sam-
kvæmt síðustu mælingum er
eyjan 2,4 ferkm. að stærð, þar
er helmingur hrauni þak’inn.
Eyjan er um 2100 m. löng og
1500 m. á breidd. Hæsti tindur
hennar er 173 m. Surtsey er nú
önnur stærsta eyjan í Vest-
mannaeyjaklasanum. Frá því
gosið byrjaði hafa fjölmargir
íslenzkir vísindamenn unnið að
vfs'indastörfum varðandi gosið
og eyna sjálfa, og auk þess
hafa erlendir vísindamenn sýnt
Surtsey mikinn áhuga. Efnt
hefur verið til fjölmargra ferða
til þess að skoða gosið og eyj-
una, bæði með skipum og flug-
vélum, og allmargir hafa stigið
þar á land. Ennþá er gos í Surti
og eflaust verður hann í góðu
skapi 1 dag — á sjálfan af-
mælisdaginn.
EKKIN0G SILD VESTRA
FYRIRALLAN FLOTANN
— segir Jakob Jakobsson. Síldin er stygg og stendur djúpt
Tiltölulega fá skip eru byrjuð
á sfldarvertíð haustsins og veldur
þar mestu 'tin langa sumarsíldar-
vertið. Skipin, sem hafa verið úti,
BLA-íÐHÐ 1 DAG
BIs. 2 Laugardagskross-
gáta Vísis.
— 3 Myndsjá frá spila-
kvöldi Varðar.
— 4 Æskulýðsslða
Heimdallar.
— 5 Þingfréttir og
erlendar fréttir
— 7 Kurt Zier ritar um
sýningu Ásgerðar
Búadóttur.
— 9 Kirkjan og þjóðin.
hafa fengið dágóðan afla, en síld-
in er ekki auðveld viðfangs. Er
blaðið hafði samband við Jakob
Jakobsson fiskifræðing í gær-
kveldi, var hann ekki sérstaklega
bjartsýnn.
— Ég hef ekki athugað þetta
nógu vel, enda getur varla heitið,
að vertíðin sé byrjuð, sagði Jakob
Sumarvertíðin var svo löng og nú
eru mörg skipanna I Viðgérðum.
Ég talaði um það snemma í haust
og er enn þeirrar skoðunar, að
Framhald á bls. 6
Flóð í barnaheimili
í Kópavogi í gær
Þegar starfsstúlkur Barna-
heimilisins við Hábraut í Kópa-
vogi komu tll vinnu f morgun
rétt fyrir átta flæddi allt I vatni.
Orsökin reyndist vera sú, að
uppþvottavél hafði bilað. Börnin,
sem komu á tilskildum tfma um
áttaleytið voru eðiilega send
heim þar sem ekki var hægt
að Iáta þau ösla vatnið og ekki
var annað húsnæði við hendina
fyrir þau.
Þetta er fyrsta barnaheimilið í
Kópavogi og tók bað til starfa 8.
september síðastllðinn. Er búið
Framh á hls 6.
Breyting á tollmati notaira bifreiSa
Fjármálaráðuneytið gaf f fyrra
dag út nýja reglugerð um mat á
tollverði notaðra bíla. Helzta ný
mælið í hinni nýju reglugerð er
það, að veittur er ákveðinn af-
sláttur af tolli á notuðum bflum,
nákvæmlega eftir þvi hvað þeir
eru gamlir. Verður því ekki leng
ur metið eftir útliti og ástandi,
eins og verið hefur
Tollskrárnefnd hefur fjallað um
málið að undanförnu og eins og
fyrr segir gaf fjármálaráðuneyt-
ið út reglugerðina f fyrradag. Til
þess að fyrirbyggja misskilning,
þá skal það tekið fram að hér
er ekki um að ræða reglugerð
um frjálsan innflutning á not-
uðum bílum, eins og margir hafa
haldið, og er því innflutningur
háður leyfi, eins og áður. Hins
vegar er aðalbreyting, sú að nú
verða notaðir bflar, sem fluttir
eru inn ekki metnir lengur af toll
mönnum, og ekkert tillit tekið
til útlits, en í stað þess kemur
ákveðin flokkun eftir aldri bfl-
anna og er viss afsláttur, eftir
því hvað bílarnir eru gamlir.
Enginn afsláttur er veittur ef
bílinn er yngri en eins árs, en
hins vegar 15% afsláttur frá
verði nýs bfls, ef hann er 1—2
ára gamall. Ef bíllinn er 2—3 ára
gamall er veittur 23% afsláttur
og ef bíllinn er 3 ára og þar yfir,
er veittur 35% afsláttur.