Vísir - 19.12.1964, Blaðsíða 1

Vísir - 19.12.1964, Blaðsíða 1
VÍSIR Tryggingastofnimm greiSir 100 milli. kr. í bætur í des. Það hefur verið miMð að gera bæturnar en það er ávallt svo, í afgreiðslu Tryggingastofnun- að mest er greitt út í desember. ar rikisins síðustu daga. Fólk Mun láta nærri, að um 100 hefur verið að sækja trygginga- milljónir verði greiddar út í tryggingabótum í þessum mán- uði. Sverrir Þorbjörnsson forstjóri Framh. á bls. 6. Kl'EPp5SKfiFT; 1 SUNDAHÖFN . YFlRUTSUPPDRhTTUR t.ÁFANd - fí/SS AF HUCSANLCCR! STÆKKUN [Wj FYLCIRIT / NR. S RIKISSTJORNIN LíGGUR TIL AÐ SOLU- SKA TTURINN VERÐI 7,5% ÍSTAÐ 8% Breytingatilloga við frumvarpið var lögð fram í gær 1 gper við 2. umræðu um sölu- skattsfrumvarpið í efri deild tók forsætisráðherra Bjarni Bene- djktsson til máls og lýsti yfir þVí, að ríkisstjómin hefði ákVeð ið, að skattheimtan, sem ráð- gerð var með frumvarpinu verði lækkuð um l/2% verði 7,5% í stað 8% eins og ráð var fyrir gert. Svarar þetta tii þeirrar upp- hæðar sem um sé deilt þ. e. þeirrar upphæðar, sem verja átti til aukinna niðurgreiðslna. Sé þetta gert til að koma í veg fyrir, að reynt yrði að notfæra sér misskilning, sem hér virðist hafa átt sér stað og á það er lögð áherzla, að enginn telji sig hafa verið hlunnfarinn. Fer hér á eftir úrdráttur úr ræðu forsætisráðherra. Við fyrstu umræðu þessa máls þá lýsti Björn Jónsson yfir því, að af hálfu samningsaðila vegna Alþýðusambandsins hefði það verið skilið svo, samkomu- lagið sem gert var i júní í sum- ar, að ef niðurgreiðslur yrðu auknar á árinu til þess að halda verðlagi niðri, þá yrði það gert án þess að nýir skattar yrðu lagðir á þess vegna. En það er skýrt tekið fram af honum, að það var einungis um niður- greiðslur á þessu ári, sem nú er að líða. Ég lýsti því þá þegar yfir, að af hálfu ríkisstjómar- innar hefði engin slík yfirlýsing verið gefin né teldi ég, að samn ingsaðilar af hálfu Alþýðusam- bandsins hefðu átt ástæðu til þess að skilje yfirlýsingar mín- ar eða annarra, sem ég vissi um, á þann veg heldur hefði þvert á móti af minni hálfu verið gefin yfirlýsing, sem hefði átt að aðvara þá um, að þessi þeirra skilningur fengi ekki stað izt. Nú hef ég átt frekari viðræð ur við þá þingmenn sem voru í þessum samningum af hálfu Alþýðusambandsins í sumar os ég hef af þeim viðræðum fylli- lega sannfærzt um, að þeir eru í góðri trú um sinn skilning. •Tafnframt því, sem ég legg á- herzlu á, að ríkisstjórnin telur, að sinn skilningur og sá, sem kemur fram í þessu frv. sé rétt- ur frá hennar sjónarmiði, þ. e. a. s. hún er í góðri trú um sinn skiining Hér hefur því orðið einhver misskilningur, og þar sem ég tel það vera höfuðnauð- syn, að hvorugur aðili hafi nokkra ástæðu til að ætla, að reynt sé að hlunnfara hann í þessu máli eða nota sér mis- skilning, sem á sér stað i góðri trú þá hef ég lagt tii við rfkis- stjórnina, að hún fallist á, að skattheimtan, sem hér um ræðir verði Iækkuð þ. e. a. s. í stað 8%, þá verði farið fram á 7>/2% söluskatt. Það svarar nokkum veginn til þeirrar fjárhæðar, sem hér er um deilt. Að lokum sagði forsætisráð- herra, að hann áliti, að þótt menn greindi á um lausn þess vanda, sem nú lægi fyrir og yrði að leysa, þá sé það frumskii- yrði, að menn geti í góðri trú átt viðræður og unnið eftir beztu vitund að leysa þann vanda, sem framundan er, og með þeirri sannfæringu sé þessi tillaga fram lögð. SUNDAHÖFN BOÐIN ÚT EFTtR ARAMÓT Gert róð fyrir 380 m. löngum bólvirkjum í Vatnagörðum Á síðasta fundi hafnarstjórn- ar Reykjavíkur var lögð fram skýrsla um nýja höfn fyrir Reykjavík svonefnda Sunda- höfn, en teikningum og útboðs- lýsingum að fyrsta áfanga henn ar er nú lokið. Skýrslan er nú til meðferðar hjá hafnarstjóra, en síðan kemur til kasta borgar- stjómar um ákvarðanir um framkvæmdir. Ef allt gengur að óskum, má reikna með, að út- boð verði gert í byrjun næsta árs og framkvæmdir hefjist fyr ir næsta numar, en áætlað er, að þessi áfangi sé um tveggja ára verk. Vísir átti í gær tal við Valgeir Björnsson hafnarstjóra. Hann sagði, að skýrslan hefði verið lögð fram á síðasta hafnar- stjórnarfundi og yrði hún í athug un hjá stjórnarmönnum fram yfir jólin. I skýrslunni er ná- kvæm lýsing á fyrsta áfanga Sundahafnar og einnig útboðs- lýsing. Gert er ráð fyrir tveim ur bólvirkjum, samtals um 380 metra löngum, þar sem nú eru Vatnagarðar. Þessi bólvirki mynda vinkil, þannig að garður verður gerður út í Viðeyjarsund við Vatnagarða og fyllt upp í Vatnagörðum austan við garð- inn en vestan við Kleppsskaft. Er vinkillinn f skjóli fyrir haf- átt.. Valgeir sagði. að Almenna byggingarfélagið hefði haft all- an veg og vanda af undirbún- ingsframkvæmdunum, sem hóf- ust fyrir fjórum árum. Fyrst í stað var rannsakað allt svæðið utan frá Laugarnesi og inn í Grafarvog, en síðan beindist rannsóknin einkum að svæðinu við Vatnagarða, en þá hafði ver ið gerð bráðabirgðaáætlun um byggingu Sundahafnar í mörg- um áföngum. í sambandi við rannsóknimar hefur svæðið -ver ið mælt mjög ýtarlega og fram- kvæmdar botnrannsöknir, bæði með bergmálsmælum og með tvenns konar borum. Önundur Jónsson verkfræðingur hefur mest starfað að þessu en einnig aðrir verkfræðingar hjá AB. I sumar ^’oru einkum framkvæmd ar miklar boranir á Viðeyjar- sundi og kannaðir sjávarstraum ar. Þessum ransóknum hefur AB nú lokið og einnig þeirri út- boðslýsingu, sem fylgdi í kjöl- farið. Á þessum slóðum hefur þegar myndazt vísir að iðnaðarhverfi sem mun, þegar tímar líða fram, ná alveg utan frá Laugar nesi inn alla voga allt austur í Keldnaholt. Verður höfnin einn- ig smám saman færð út, eftir því sem þörf krefur. Samkvæmt bráðabirgðaáætlun verður sá hluti, sem nú á að byggja í Vatnagörðum, rétt vestan við miðju framtíðarhafnarinnar, sem þarna rís á næstu áratug- um. Kortið er af Vatnagörðum og nágrenni og sést þar olfustöð B. P., Klettsverksmiðjan, Vatna garðar og Kleppsskaft. 1. áfangi Sundahafnar er teiknaður inn á kortið hægra megin á myndinni og sömuleiðis, með grönnu striki, vinstra megin, tillaga að öðrum áfanga Sundahafnar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.