Vísir - 19.12.1964, Blaðsíða 16

Vísir - 19.12.1964, Blaðsíða 16
Tollpóststofan INNLEND STALSKIPASMIÐI BYGGD UPP Á NÆSTU ÁRUM? ifnahagsstofnunin hefur lokið könnun á þörf fyrir drátturbrautir og skipasmíðastöðvar er opin í dag Mjög mikið hefur borizt af er- lendum bögglapósti til Tollpóststof annar undanfarið. Til þess að greiða fyrir afgreiðslu, verður Toll póststofan í Hafnarhúsinu opin í dag tíl kL 5 síðdegis. Efnahagsstofnunin hefur ný- lega lokið bráðabirgðaskýrslu á vegum ríkisstjórnarínnar um þörfina á dráttarbrautum og skipasmíðastöðvum i Iandinu á næstu árum. Er mál þetta nú í athugun hjá rikisstjórninni og Seðlabankanum og má búast við níðurstöðum i næstu fram- kvæmdaáætlun, sem væntanleg er í byrjun næsta árs. Blaðið átti í gær tal við Jó- hann Hafstein iðnaðarmálaráð- herra. Hann sagði, að komið hefðu fram óskir frá ýmsum skipasmíðastöðvum um miklar stækkanir, sem væru þeim fjár- hagslega ofviða án fyrirgreiðslu ríkisstjómarinnar eða bankanna. Þróunin í stærð fiskiskipaflot- ans hefur valdið því, að stöðv- amar eru orðnar allt of litlar; þær eru miðaðar við 50—100 lesta skip, en ráða ekkert við nýju 300—350 lesta skipin. Þá er og nauðsynlegt fyrir skipa- smíðastöðvamar að hafa skip í smfðum samhliða viðgerðunum til þess að vinna við, þegar litið er að gera við viðgerðirnar, sem koma í skorpum á vissum árs- tímum. Til þess að skipasmíða- stöðvarnar geti smíðað og gert við skip eins og þau gerast nú, þurfa þær geysilegt fjármagn til stækkunar. Jóhann Hafstein sagði, að rík- isstjórnin teldi þessi mál meðal hinna stærri mála og hún hefði tekið vel í beiðni skipasmíða- Jóhann Hafstein. stöðva um fyrirgreiðslu, og vildi hún reyna að finna úrlausn I lánsfjárvandamálum þeirra og leggja grundvöll að nútíma skipasmíði í landinu. Framh. á bls. 6. Á nýju skrifstofunni hjá bæjarfógetanum í Kópavogi. DAGAR TIL JÓLA BÆJA RFÓGETA EMBÆTTIÐ ÍKÓPA Sigurgeir Jónsson, bæjarfógeti. ALLIR MÆTTIR í STÖÐ VIÐ HEIMINN... geti £ stuttu viðtali við Vísi I gær. „Hér höfðum við 180 ferm. hæð fyrir skrifstofur og geymslur og starfsskilyrði lögreglunnar stór- batna, þegar hún flytur hingað, enda stendur nú til að fjölga lög- regluþjónunum úr níu I fjórtán," sagði bæjarfógetinn. Nú starfa níu manns á skrifstofu bæjarfógeta, þar á meðal tveir full- trúar, þeir Ólafur Stefánsson, að- alfulltrúi, og Haraldur Heijryson. Einnig er starfrækt þar umboð fyrir Tryggingastofnun ríkisins. Kópavogslögreglan flytur um næstu mánaðamót £ nýja húsnæð- ið og verður lögreglustöðin 1 kjall- aranum. Verður þar almenn varð- stofa og einnig varðstjóraherbergi, sérstakt herbergi til skýrslugerðar og geymslur. Þá verður þar og herbergi þar sem hægt verður að vinna ljósmyndir. Á miðhæðinni verður svo Spari- sjóður Kópavogs og er unnið að þvf að innrétta húsnæðið um þess ar mundir. orðið mjög hrifinn af honum enda hefði uppsetningin verið með þeim ágætum að Ivo Cramér, sem sá um hana hlaut menningarverðlaun Stokkhólms. borgar fyrir. Söngleikurinn Stöðvið heim- inn, hefur alls staðar þar sem hann hefur verið sýndur hlotið miklar vinsældir. Alls koma fram 14 manns í honum og eru aðalhlutverkin en þau eru tvö, leikin af þeim Bessa Bjarnasyni og Völu Kristjánsson. Er Bessi á sviðinu nærri allan tímann sem Litli karl en Vala leikur konu hans. Auk þeirra kemur fram kór. Undirleikinn annast 16 manna hljómsveit meðlima Sinfóníuhljómsveitarinnar, og eru blásturshljóðfæri mikið notuð. Þýðingu leiksins gerði Þor- steinn Valdimarsson með mikl um ágætum að sögn þjóðleik. hússtjóra. V0GIINÝJU HÚSNÆDI Um þessar mundir er starfslið i mánaðamót. Bæjarfógetaembætt bæjarfógetans í Kópavogi að ið hefur flutt að Digranesvegi koma sér fyrir í nýju húsnæði, 10 I hús það sem Sparisjóður sem embættið flutti inn í um sl. I Kópavogs hefur byggt. Húsið er tvær hæðir og kjallari. Á efri hæðinni eru skrifstofur bæjarfó geta, en á neðri hæðinni verður Sparisjóður Kópavogs. Kjallar- anum skipta þessir tveir aðilar síðan á milli sín, en þar verður lögreglustöðin m. a. til húsa og er áætlað að lögreglan flytji þangað inn um áramótin. Frá vinstrí á myndinni eru stjómendur „Stöðvið heiminn“, þeir Benedikt Árnason, aðstoðarleikstjóri, Eckert-Lundin, sænskur hljómsveitarstjóri, og Ivo Cramér, leikstjóri, einnig Svíi. Á fundi, sem þjóðleikhús. stjóri hafði með blaðamönnum f gær kjmnti hann fyrir þeim hljómsveitarstjóra jólaleikrits Þjóðleikhússins, Stöðvið heim- inn, hér fer ég út. Er það Sví- inn. E. Eckert-Lundin, sem á- samt Ivo Cramér, leikstjóra setti söngleikinn á svið I Stokkhólmi. Þjóðleikhússtjóri skýrði frá þvf að hann hefði séð sýningu á leiknum í Stokkhólmi fyrir hálfu öðru ári og strax „Húsnæðið, sem við höfðum áð- ur, var orðið alltof lítið og nauð- synlegt er að fjölga starfsfólki," sagði Sigurgeir Jónsson bæjarfó-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.