Vísir - 19.12.1964, Blaðsíða 8

Vísir - 19.12.1964, Blaðsíða 8
8 V í S I R . Laugardagur 19. desember 1964 VÍSIR Otgefandl: BlaSaútgáfan VISIR Ritstjóri: Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjórl: Axel Thorsteinson Fréttastjóran Þorsteinn 0. Thorarensen Björgvin Guðmundsson Ritstjómarskrifstofur Laugavegj 178 Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald er 80 kr. & mánuði 1 lausasölu 5 kr. eint. — Sími 11660 (5 linur) Prentsmiðja Vfsis — Edda h.t Framsóknarhagfræði og hentistefna J>að mátti svo sem nærri geta, að stjórr randstaðan mundi snúast öndverð út af hækkuninni á söluskatt- inum. Mennimir, sem sátu í vinstri stjórninni frægu og lögðu þyngri skattabyrðar á almenning en nokkur önnur stjórn hefur gert, hafa svo sem ráð á því, að for- dæma skattahækkanir hjá öðmm. En hvort almenn- ingur tekur gagnrýni slíkra manna alvarlega, er annað mál. Tíminn sló stórt upp á forsíðu í fyrradag ræðu Ólafs Jóhannessonar á Alþingi um hækkun söluskattsins. Ól- afur hefur hingað til verið talinn einn gætnasti og sann gjamasti þingmaður Framsóknar, þeirra, sem nú eiga sæti á Alþingi. En furðuleg voru sum rök hans í þetta sinn. Eftir því sem Ríkisútvarpið skýrði frá í fréttum, á hann t. d. að hafa sagt, að hækkun söluskattsins væri. til þess gerð, að draga úr neyzlu og aíiká^a^M^^efö5-^; bólguna. — Þetta er nú hagfræðikenning í lági! Hvað skyldu hagfræðingar almennt segja um hana? Annað atriði í ræðu prófessorsins var einnig mjög athyglisvert, með hliðsjón af fortíð Framsóknarflokks- ins í því máli, sem þar var tekið til meðferðar. Hann sagði að sveitarfélögin væru illa sett, helzti tekjustofn þeirra væru útsvörin, en þau þyrftu að lækka og því yrði að sjá sveitarfélögunum fyrir öðrum tekjustofn- um, m. a. með því að meira af söluskattinum yrði látið renna til þeirra. Þetta er ekki ný hugmynd, en það er nýtt að Fram- sóknarmaður beri hana fram. Síðast þegar Sjálfstæð- ismenn voru með Framsókn í ríkisstjóm, beitti núver- andi fjármálaráðherra sér fyrir því á Alþingi, að sveit- arfélögin fengju hluta af söluskattinum. Þá var núver- andi formaður Framsóknarflokksins fjármálaráðherra. Jann hafði þá ekki betri skilning á fjárhagsvandamál- ím sveitarfélaganna en svo, að hann hótaði að segja af ér, ef tillaga Gunnars Thoroddsens hlyti samþykki ingsins! Það er ekki ofsögum sagt, að erfitt sé að átta ig á „stefnu“ Framsóknarflokksins frá ári til árs, hvað á um lengri tímabil. Hækkunin er nauðsynleg ^unnar Thoroddsen færði fyrir því fullgild rök á Al- þingi, að hækkun söluskattsins er nauðsynleg, til þess ð geta staðið straum af niðurgreiðslunum, sem ekki var gert ráð fyrir í fjárlögum 1964. Ríkisstjórnin telur ótækt að afgreiða fjárlög með greiðsluhalla og vill ekki því efni fremur en öðrum fara að dæmi Eysteins Jóns- sonar. Framsóknarmenn verða að sætta sig við það, að oeirra fordæmi í landsstjóm er ekki talið eftirbreytnis- vert af núverandi stjómarvöldum. Hugleiðingar um fagra bók JJið litla þjóðfélag íslendinga á fjariægri kaldri eyju í Norðurhöfum lagði vissulega stóran skerf til heimsmenning- arinnar með fornbókmenntum sínum. En samt er það ekki nema eðlilegt, að hún hefur ver- ið miklu meira þiggjandi en veit andi í samskiptum sínum við aðrar þjóðir á menningarsvið- inu. Sem þátttakandi í evrópska menningarsamfélaginu hafa ís- lendingar alitaf verið opnir fyr- ir þeim stóru og voldugu menn- ingarstraumum, sem komið hafa sunnan úr álfu. Þjóðin hefur jafnan reynt að aðlaga þessi út- lendu áhrif að eigin þjóðtungu og siðum. Sum þeirra hafa ver- ið æskileg og miðað til framfara, önnur valdið henni böli. En það er fjarstæðukennt, að ætla sér að loka fyrir slík erlend áhrif. Við erum einu sinni evrópsk þjóð og það er óhjákvæmilegt að við fylgjum tímanum. Saga íslendinga er í rauninni ekkert annað en frásögn af því, hvemig erlend áhrif héldu stöð- ugt áfram að streyma inn í land- ið, hvernig þau ollu gerbylting- um hvað eftir annað, hvernig íslendingar brugðust gegn þeim og gerðu þau að sínum. Þannig má rekja hvern þátt sögunnar af öðrum, gengi kaþólsku kirkj- unnar, siðbótina, einvaldsskipu- iagið, hreintrúarstefiyma, síðan húmanismann og verzlunarfrels. ið og þjóðfrelsisbaráttuna. Það er því mjög mikill misskilning- ur, þegar ýmsir lýðskrumarar eru að þruma um þaðaðviðverð um að berjast gegn erlendum menningaráhrifum. Þáð er fjar- . stæðukennt að við gætum af- . lokað okkur frá umheiminum, hitt er þýðingarmeira að við eigum til menn með gáfum og hæfileikum til að endurfæða hin erlendu áhrif í nýjum sköpunar- krafti. JTg set hér á blaðið þessar hug- leiðingar í tilefni þess, að ég hef nú síðustu daga verið að glugga nokkuð í frábærlega vönduðu og skemmtilegu verki, sem Almenna bókafélagið hefur gefið út og kallast Kvæði og dansleikir. Bók þessi er samin af Jóni Samsonarsyni magister. Er hún í tveimur bindum og er þar bæði að finna ritgerð höf- undarins um fslenzka dansleiki á miðöldum og síðan er birt hér heildarsafn þessa merkilega miðaldaskáldskapar. Einhvern tíma á 13. öld eða í kringum aldamótin 1300 varð ein stórfelldasta menningarbylt- ing, sem orðið hefur með þjóð okkar. Það sem þá gerist er að hinn forni skáldskapur og sagna gerð er að líða undir lok. Áhrif- in frá eriendum menningarstefn um streyma inn í landið. Það má segja, að þessi breyting hafi verið sorgleg og hörmuleg fyrir okkur, því að þar með lýkur gullöld íslenzkra bómennta. — Hafcí þetta geysivíðtæk áhrif, n. a. misstu íslenzk skáld, sem verið höfðu hirðskáld í öðrum löndum, áhrif sín og aðstöðu og útilokast fslendingar með öll- um þessum breytingum frá þeirri forustu sem þeir höfðu haft á menningarsviðinu. '|?n við verðum líka að gera okkur ljóst, að hin íslenzka sagnritun gat ekki staðið óbreytt til eilífðarnóns, Svo virðist sem smekkur og tízka hafi breytzt svo við áhrifin frá hinum er- lendu menningarstraumum að um tíma hafi jafnvel lítið þótt koma til íslenzku sagnagerðar- Jón Samsonarson innar, hún þótt fornfáieg og gamaldags. Annars er einkennilega lítið vitað um það, hvernig þessi nýja list breiddist út um ísland. Get- ur jafnvel verið að það stafi af því að sagnaritararnir hafi haft ímugust á þessum keppi- nautum sínum og viljað sem minnst um þá tala. Það er t. d. víst, að þessari nýju listastefnu fylgdi dans, en þó er ekki með öllu ljóst, hvort ísland var áður danslaust þjóðfélag. Hitt er jafnvel ennþá þýðing armeira, að það sem fylgdi nýja timanum var tónlist. dans arnir voru sungnir við raust. Aður hafði kaþólsk kirkjutón- Iist komizt inn í landið en samt er það tónlistin, sem er að ryðja sér til rúms í allri Evrópu og fyrir þeim krafti fær ekkert staðizt. Þó er lítið vitað um lög þau sem fylgdu dönsunum á ís- landi. En það eru kvæðin, hin svokölluðu fornkvæði og dans- ar, sem hafa margir varðveitzt. Vist hafa margir tekið þess- um skáldskap fálega í fyrstu, talið hann herfilag arland áhrif. En hið gamla varð sem ætíð að lúta og svo fór, að þessi nýja skáldskapargrein varð ekki síð- ur að tilfinningu íslenzkrar menningar. Það finnur maður glöggt þegar maður les yndis- fögur og hugljúf kvæði í þessari bók. Þau eru fyrir löngu orðin hjartslög okkar þjóðar. Þannig gat það sem illt var talið færzt okkur til blessunar. Og einkenni legt er það t. d., að þegar ungt skáld tók nú á þessari öld að slá hörpu sína, þá mátti heyra í lagi hans þessa sömu hljóma, svo sterkt er þetta lag enn, að hljómur þess er e. t. v. það sem sterkustu áhrifin hefur í skáld- skap Davíðs Stefánssonar. Jþetta áttu aðeins að vera fá- ein orð, hugleiðing yfir einni fegurstu og beztu bókinni, sem komið hefur út fyrir þessi jól. En út frá þessu Ieiðist hug- urinn til þeirrar nýju og raunar gömlu baráttu, sem sumir eru enn að berjast, — gegn „erlend- um áhrifum". Er þetta ekki eins og alltaf, bardagi við vindmyll- ur. Er það ekki barnalegt hjá okkar menningarboðberum, að vera að berjast gegn sjónvarpi. Væri ekki nær fyrir þá að skilja tímanna tákn og gera sjálfa sig færa um að nota þessa nýju tækni, fara og Iæra tökin við matreiðslu efnis til sjónvörpun- ar. í áratugi hefur annað verk tækninnar hljóðalaust tekið hér völdin það er grammófónninn, sem hefur valdið því að það hallast á klakknum og tónlistin orðin svo mikil að hún er farin að æra okkur. Gegn þessu hafa orðsins menn staðið varnarlaus- ir. En er eki líklegt að sjónvarp- ið eigi eftir að jafna metin þar. ef menntáfrömuðumir fást ein- hvern tíma til að gera eitthvað gagnlegra en jarma sinn and- mælasöng gegn framþróuninni. Þorsteinn Thorarensen. Minning Magnúsar skáids Stefánssonar Kristinn Ólafsson: Örn Arnarson. Bókaútgáfa Menningarsjóðs Reykjavík 1964. Þetta er ekki stór bók, enda gefin út sem ein af smábókum Menningarsjóðs, en bókin er samt næsta kærkomin öllum þeim, sem áhuga hafa á skáldskap og eru ekki þannig farnir, að um þá megi segja, eins og kerlingin sagði um sjálfa sig: „Ég er stein blind á öðru auganu og fjandinn hafi þá glætuna ég sé með hinu.“ Kristinn Óiafsson sem leng' var fulltrúi bæjarfógetins í Vest- mannaeyjum og síðan í Hafnar- firði. var mikfll vinur Magnúsar Stefánssonar og átti unptök að því, að Illgresi kom út, hann kast aði jafnvel útgáfu þeirrar bókar Hann mat skáldið og manninn meira en aðra menn og þekkti hann betur en flestir eða máske allir aðrir. Að skáldinu látnu hafði Kristinn aðgang að ýmsum ærið fróðlegum gögnum um lff hans og skáldskap. Kristinn flutti útvarpsfyrirlestra um Örn Arnar- son árið 1951, og eru þeir aðal- uppistaða þessarar bókar, sem Hannes skáld Pétursson hefur bú- ið til prentunar af nærfærni og smekkvísi. Hannes hefur skrifa? formála fyrir kveriu í því kynnast menn ævi skálds- ins furðú mikið, og einnig gerð Framh á bls. 6 a

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.