Vísir - 19.12.1964, Síða 2
2
V í SIR . Laugardagur 19. desember 1964
BIFMIBAS
Finnið hentugt bifreiðastæði, skiljið
þar vel við bifreiðirnar og gangið
á milli verzlana
í dag er annar mesti um
ferðardagur ársins. Þús-
undir ökutækja aka um
hinar þröngu götur mið-
borgarinnar og gangstétt-
imar margar hverjar rúma
ekki allan þann f jölda gang
andi fólks, sem fer um mið
borgina í verzlunarerind-
um. Mörg undanfarin ár
íiefur lögreglustjórinn í
Reykjavík auglýst sér-
staka takmörkun á um-
ferð, sem miðar að því að
gera alla umferð í jólaös-
inni greiðari og að koma í
veg fyrir slys og önnur um
"erðaróhöpp.
Umferðarnefnd Reykjavíkur-
borgar cg lögreglan vilja vekja at-
hygli ökumanna á bifreiðastæðum
í og við miðbæinn. Auk aimennra
bifreiðastæða hefur umferðar-
nefnd ' .gið bifreiðastæði Sam-
bands íslenzkra samvinnufélaga
við Sölvhólsgötu og bifreiðastæði
Bílasölu H.S. við Ingólfsstræti 11,
ti! . notkunar fyrir almenning í
dag frá kl. 13,00 og á Þorláks-
messu 23. des. frá kl. 17.00.
Ökumenn eru hvattir til að velja
greiðfarnari ^ötur að miðborg-
inni og bifreiðastæðunum, og aka
sem minnst um Laugaveginn og
Hverfisgötu Þess í stað er öku-
mönnum bent á að aka um Skúla-
götu eða Hringbraut og Sóleyjar-
götu og síðan þvergötur þær sem
liggja að verzlunargötunum.
Aðalreglan ætti að vera sú, að
velja heppilegar og greiðfærar göt-
ur til þess að komast niður í mið-
borgina. Síðan að finna þar heppi-
légt bifreiðastæði, leggja bifreið-
inni skipulega þar og ganga á
milli verzlana.
Sérstök athygli skal vakin á því,
að samkvæmt stöðumælareglugerð
inni er óheimilt að láta bifreið
standa Iengur í stöðumælareit en
30 mín. og varðar misnotkun sekt.
Vegna hinnar miklu umferðar
hefur lögreglustjórinn í Reykjavík
mikinn viðbúnað til þess að mæta
þessari miklu umferð. I dag og á
Þorláksmessu verður nær allt lög-
reglulið borgarinnar við Iöggæzlu
og umferðarstjórn víðs vegar um
borgina, einkum þó í miðborginni
og nágrenn, hennar.
Einstefnuakstur er í Pósthús
stræti frr Hafnarstræti til suðurs.
Á Vatnsstíg frá Laugavegi til
norðurs. Á Frakkastig frá Hverfis-
götu að Lindargötu.
Hægri beygia er — bönnuð af
þremur götum. Úr Tryggvagötu í
Kalkofnsv . Úr Lækjargötu í
Skólabrú. Úr Snorrabraut í Njáls-
götu.
í dag milli kl. 20,00 og 22,00
verður öll bifreiðaumferð bönnuð
um Austurstræti, Aðalstræti og
Hafnarstræti og einnig á Þorláks-
messu. en þá frá kl. 20,00 til 24.00.
Hér hafa "ðeins verið nefndir
tveir liðir takmörkuninnar sem
gilda til 24. desember, en að öðru
leyti skal fólki ráðlagt að lesa aug-
lýsingu um takmörkun á jólaum-
ferð, sem birzt hefur í öllum
dagblöðunum í Reykjavík.
Og að lokum:
Sýnið kurteisi og lipurð í um-
ferðinni. Virðið tímann, notið bif-
reiðastæðin, akið umferðaræðar
sem flytja umferðina fljótt milli
austurs og vesturs, um leið stuðlið
þér að betri og öruggari umferð.
(Frá umferðardeild lögreglunnar).
ALLT 9 J0LAMAT9
Svínakótelettur, steikur, bógar, hamborgara-
hryggir, nautabuff og gúllas.
Lambakjöt, kótelettur, sneiðar, læri, hryggir
heilir, úrbeinuð læri, fyllt læri.
Úrvals hangikjöt, saltkjöt og svið.
Útlent grænmeti, púrrur, sellery, hvítkál.
Nýir og niðursoðnir ávextir.
iORGARKJÖR
Borgargerði 6 . Sími 34408.