Vísir - 19.12.1964, Síða 6
6
V1SIR . Laugardagur 19. desember 1964
Bókadómur —
Firamh. af bls. 8
hans og háttum nánar en margra
annarra, sem meira hefur þó verið
um skrifað. Er 811 sú vitneskja
næsta forvitnileg ungum sem
öldnum, og á stjórn Bókaútgáfu
Menningarsjóðs þakkir skildar
fyrir útgáfu bókarinnar. Þetta á
ekki að vera ritdómur, og verð
ég því ærið stuttorður. Það, sem
kom mér til að skrifa þessar lín-
ur, var þetta: Mér virðist, sem
rík ástæða sé til að gefa út nýja
útgáfu af Illgresi — með öllum
þeim upplýsingum um skáldið,
sem unnt er að fá og erindi eiga
til íslenzkra lesenda. Ennfremur
mun vafalaust, að í syrpum
Magnúsar Stefánssonar sé margt
kvæða, sem ekki aðeins þoli dags
ins ljós, heldur séu merkileg,
bæði sem skáldskapur og sem
gögn til kynningar á þroskaferli
vinnubrögðum og lífi skáldsins.
Mundi ekki Bókaútgáfa Menning-
arsjóðs telja sér það kærkomið
verkefni, að gefa út þá bók,
sem gerði skáldskap og ævi
Magnúsar Stefánssonar skálds
nt*kum veginn þau skil, sem vert
mundi.
Guðmundur Gíslason Hagalin.
Stólskip
Framh. at bls. 16
STÆKKUNARÁÆTLANIR
í Tímariti iðnaðarmanna, sem
nýlega er komið út, segir frá
miklum áhuga skipasmíðastöðv-
anna á stækkunum. Skipasmíða
stöð Marsellíusar Bernharðsson-
ar á ísafirði hefur þegar verið
stækkuð svo, að hún tekur 400
lesta skip í dráttarbraut, og
stækkunarframkvæmdir eru
hafnar hjá dráttarbraut Akra-
'ness. Þá segir í blaðinu frá á-
ætlunum Slippstöðvarinnar á Ak
ureyri, Dráttarbrautar Seyðis-
fjarðar og Skipasmíðastöðvar
Njarðvíkur um stækkun.
Vísir hefur frétt, að Slippstöð
in á Akureyri hafi látið gera
áætlun um stálskipasmíðastöð
og slipp, sem taki 400—500
lesta skip og hefur gert útboðs-
lýsingu á fyrsta áfanga verks-
ins. Hefur stöðin haft samband
við nokkra aðila, innlenda og
erlenda, sem líklegir eru til að
vilja bjóða í framkvæmdir við
slíka stækkun. Þessar fram-
kvæmdir munu taka eitt ár, ef
lánsfé fæst.
Skipasmíðastöð Njarðvíkur
hefur um nokkurt skéið staðið
í samningum við pólskt ríkis-
fyrirtæki, sem smíðar dráttar-
brautir og skipasmíðastöðvar,
og hefur fengið tilboð í smíði
stöðvar, sem taki 400 tonna
skip. Samkomulag hefur tekizt
við Pólverja á þeim forsend-
um, að lánsfé fáist, en gert er
ráð fyrir að stöðin kosti um
70 milljónir króna og hafi 400
manna starfslið, þegar full af-
köst nást. Er ráðgert að byggja
stöðina í þremur áföngum og
yrði fyrsti hlutinn dráttarbraut
með hliðarfærslum, og á þeim
hluta að ljúka f maí 1966. Ann-
ar hlutinn er viðgerðaþjónusta
fyrir stálskip, svo að gera megi
við um 220 fiskiskip á ári, og
þriðji hlutinn er nýsmíði stál-
skipa, og er áætlað, að þeim
hluta ljúki árið 1969.
Pólverjarnir, sem sömdu við
Njarðvíkingana, eru um þessar
mundir hér á landi á vegum
íslenzk-erlenda verzlunarfélags-
ins, sem hefur umboð fyrir þá,
og hafa þeir ferðazt talsvert um
iandið og talað við eigendur
skipasmíðastöðva.
LÍTIL AFKASTAGETA
Fyrir utan skipasmíðastöð
Marsellíusar munu aðeins vera
hér þrjár skipasmfðastöðvar,
sem geta smíðað stærri stálskip
en 200 lesta. Það er Stálvík í
Arnarvogi, Stálskipasmiðjan í
Kópavogi og Stálsmiðjan í
Reykjavík. Árleg afkastageta
þeirra er mjög óveruleg, en um
síðustu áramót voru 38 stálskip
í smíðum erlendis fyrir íslend-
inga. Til októberloka hafa verið
flutt inn á þessu ári fiskiskip
fyrir 245 milljónir króna, svo
hér er um mikinn gjaldeyri að
ræða.
En það er fleira en fjármagn-
ið, sem innlendu stöðvamar
skortir til þess að geta annazt
allar viðgerðir fiskiskipa og til
að auka innlenda nýsmíði fiski-
skipa. Vinnuafl er einnig af
mjög skornum skammti, og er
einkum mikill skortur á fag-
mönnum.
Útvarpsumræður
ú mónudagskvöld
Ákveðið hefur verið, að útvarps-
umræður um söluskattsfrv. fari
fram næsta mánudagskvöld, 21.
des.
Sennilegt er, að það verði 3.
umræða í neðri deild. Hver þing-
flokkur hefur 45 mínútur til um-
ráða, sem skiptast I tvær umferðir,
30 mín. og 15 mín.
Af hálfu Sjálfstæðisflokksins tala
þeir forsætisráðherra Bjarni Bene-
diktsson og fjármálaráðherra,
Gunnar Thoroddsen.
Höfum úrval af ýmiss konar verkfærum til iðnaðar og
alls konar smíða. Einkar hentugar jólagjafir fyrir iðn-
aðarmenn, handlagna menn og unglinga.
Höfum einnig mikið úrval af vörum til heimilisprýði
fyrir jólin, í baðherbergi, eldhús og forstofur.
Gjörið svo vel að líta inn og athuga hvað bezt hentar
yður.
b
yggingavörur h.t
Laugavegi 176
TILVALIN
JÓLAGJÖF
Hinir vinsælu
sparibaukar
okkar fóst nú
í þrem gerðum
BÍMÐARBANKI
ISLANDS
INNBROT
í fyrrinótt var brotizt inn í sæl-
gætissölu að Búðagerði 9.
Hafði verið brotin rúða í lúgu
og síðan seilzt eftir vindlingapökk-
um og þeir hafðir á brott.
Öðru var ekki stolið.
Jóloölið
Vegna frásagnar í myndsjá blaðs
ins í gær um „jólaölið", skal það
tekið fram til þess að forða mis-
skilningi, að eina ölgerðin sem
bruggar jólaöl, er Ölgerðin Egill
Skallagrímsson.
100 millj. —
tramh. at Dls 1.
Tryggingastofnunar ríkisins
skýrði Visi svo frá í gær, að
greiddar yrðu út 40 milljónir
króna í tryggingabætur í Rvik
í desember. 60 milljónir hefðu
verið sendar út á land til um-
boðsmanna, en ekki væri vitað
nákvæmlega, hversu mikið af
þeirri upphæð yrði greitt út.
Það yrði þó meginhlutinn. —
Sverrir sagði, að ekki hefði ver-
ið um neina hækkun að ræða
í desember eins og oft áður en
samt væri upphæðin þetta há
sem greidd yrði. Venjulega er
greitt út í Reykjavík í mánuði
hverjum 25—33 milljónir. Sam-
kvæmt frumvarpi ríkisstjórnar-
innar um hækkun söluskattsins
er gert ráð fyrir, að trygginga-
bætur hækki um 3 prs. og mun
sú hækkun koma til fram-
kvæmda á næsta ári.
Technicolor
8 mm litfilmur 2 x 25 fet
„Type A“
Fökus Lækjargöfu
KÁPA ÓSKAST
Kúpa óskast ú
10 úra telpu.
Upplísíma 41361
Seamaster
Þetta er úrið, sem þolir
bókstaflega hvaða meðferð
sem er — þetta er úrið
handa íþróttamanninum,
fjallagarpinum og sjósókn-
aranum. Þetta er úrið, sem
karlmenni geta treyst.
SEAMASTER er sterkt,
fallegt og nákvæmt — sama
á hverju gengur.
Gjöf, sem
karlmaður
gleymir ekki
Magnús E.
Baldvinsson,
Laugavegi 12.
Hárkollur til sölu Til sölu nokkrar fallegar hárkollur úr ekta mannshári. Upplýsingar í síma 33721
Næsta ferð m.s. „Gullfoss" frá Reykjavík verður 2. janúar til Gauf mannahafnar og Leith. Farmiðar eru til í þessari ferð og í öðrui ins í janúar og febrúar. — Munið hin stórlækkuðu vetrs H.F. EIMSKIPAFÉLAG
aborgar, Kaup- n ferðum skips- irfargjöld — ÍSLANDS