Vísir - 29.12.1964, Síða 4

Vísir - 29.12.1964, Síða 4
4 V í S IR . Þriðjudagur 29. desember 1964. ■ WpiiiiSijiil • Bitlaaðdáendur í Bretlandi og raunar um allan heim eru nú mjög áhyggjufuilir yfir líðan bítil-söngvarans Ringo Starr. í síðustu viku varð hann að leggj ast inn á sjúkrahús í London til þess að láta taka úr sér háls- kirtla. Höfðnjjpieir valdið honum miklum óþt^indum og þjáðist hann einkum af þungum höfuð- verk, sem gerði honum lífið leitt. Voru kirtlarnir illa farnir og sáu læknar enga aðra leið en að taka þá úr honum. Aðgerðin var framkvæmd á Háskólasjúkrahúsinu í London. Tókst hún vel að því er læknar segja enda er þetta einföld og hættulaus aðgerð. En það versta við þetta og það sem veldur bítil-aðdáendum mestum áhyggj um er, hvort rödd Ringo breytist ekki við þetta. Það er alkunna að söngrödd manna getur ger- breytzt við það að hálskirtlarnir eru teknir úr þvi og í þessu til- felli getur það skipt miklu máli, því að Ringo hefur verið bezti söngvarinn í Bítil-hópnum og hinn sérkennilegi raddhreimur hans hefur sett mjög sérstæðan svip á sönglö^ Bítlanna. Það er hann sem skapað hefur hinn sér staka millihljóm sem hefur gert söng þeirra frábrugðinn öllum öðrum söng og bítlahljómsveitir um allan heim hafa átt svo erfitt með að stæla. Þegar Ringo var útskrifaður af sjúkrahúsinu nú um síðustu helgi og gekk út á götuna, hafði múgur og margmenni safnazt saman fyrir utan anddyrið til þess að sjá átrúnaðargoð sitt. Þurfti að ryðja honum braut í gegnum mannssöfnuðinn. Blaða- menn sem voru viðstaddir reyndu að ná tali af honum og höfðu eins og eðlilegt er mtStan áhuga á að spyrja hann hvort hann héldi að hann fengi rödd- ina aftur. Ringo svaraði því ekki neinu Hér kemur Ringo út af sjúkrahúsinu og aðdáendur og blaðamenn hópast i kringum hann, Bítiar um allan heim dhyggjufullir ákveðnu, aðeins hristi loðinn kollinn og var ósegjanlega dapur og niðurdreginn á svipinn. Voru myndirnar, sem hér birtast tekn 'atd við' það tækifæri' ög sýna þær glöggt vohleysissvipinn á andliti hans. Bítil-unnendurnir um allan heim vona þó að þetta sé ekkert alvarlegt og að svipbrigðið sé aðeins látalæti, þeir vita sem er að Ringo er hið mesta ólíkinda- tól * En.svo mikið er víst, að næsta mánuðinn geta Bítlarnir ekki komið fram opinberlega, þvi að þann tíma má Ringo ekki reyna á raddböndin. • • SKELEGG DONSK RODD í HANDRITAMÁLINU Ur grein J. Schleimann i Perspektiv gá danski blaðamaður, sem hvað bezt þekkir til manna og málefna hér á landi er Jörgen Schleimann. Hann starfar í Kaupmannahöfn, og er m. a. ritstjóri danska tíma- ritsins Perspektiv, sem er eitt vandaðasta menningar- málatímarit Danmerkur. í síð asta hefti þess rits birtist grein eftir Schleimann um handritamálið. Kveður þar mjög við annan tón en í skrif um margra danskra fræði- og menntamanna. — Er greinin mjög hliðholl íslendingum og í henni felst jafnframt hörð ádeila á málfærslu dönsku fræðimannanna og röksemd- ir þeirra í handritamálinu. Engin lagakrafa. í upphafi greinarinnar, sem ber nafnið „Haandskrifter og Lidenskabsmænd", segir Schlei- mann að oft hafi verið að stjórn málamönnunum vegið I ritinu. Það gerist hins vegar ekki í þetta sinn, því I handritamál- inu hafi þing og stjórn sýnt miklu meiri víðsýni og skilning heldur en fræðimenn og stúdent- ar landsins. Þá fer Schleimann nokkrum orðum um lagalegu hlið málsins. Bendir hann á að það sé eitt af ráðum andstæðinga afhendingar að hengja hatt sinn á lagalega réttinn. Það sé gert til þess að flækja málið Um lögfræðideilu sé hér enga að ræða. íslending ar setji ekki neina lagakröfu fram I málinu. Hér sé einungis um það að ræða að handritin verf afhent af Dana hálfu sem gjöf. Fyrir okkur Dani eru tvö meginatriði þessa máls. 1 fyrsta lagi er það sú spurning hvort unnt verði að halda áfram rann- sóknum á handritum í Reykja- vík. Og I öðru lagi er það spurn ingin um hvort ástæða sé til þess að ætla að I framtíðinni muni Islendingar hafa verri tæknileg rannsóknartæki undir höndum en Danir, Vera má að I dag séu ekki jafn góð skilyrði til handritarannsókna í Reykja- vík, og í öðru lagi er það spurn- það liggur hins vegar ljóst fyrir, segir höfundurinn, að handrita- rannsóknir fara fram á íslandi I dag og þvl er unnt að fram- kvæma þær á norðlægari breidd argráðu en i Kaupmannahöfn. íslenzk vísindastarfsemi Halda hinir mótmælandi vls- indamenn að heimurinn standi kyrr? spyr Schleimann síðan. Er þeim ekki ljóst að stöðugt er verið að stofna nýjar vísinda- stofnanir um heim allan, þar Framh. á bls. 10 Ringo var mjög dapur og áhyggjufullur húsinu. er hann kom út úr sjúkra- l

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.