Vísir - 29.12.1964, Síða 5

Vísir - 29.12.1964, Síða 5
V í SI R . Þriðjudagur 29. dese...uer 1964. 5 utlönd í.morgun utlönd í morgun ut.l'Önd , í morgun utlönd SARAGAT VAR KJORINN RÍKISFORSETÍ ÍTALÍU Kaldasta nótt vetrar í Noregi Saragat, utanríkisráðherra, var í gær kjörinn rlkisforseti Italíu — í 21. atkvæðagreiðsl- unni á þjóðþinginu, og tók 13 da'»a að fá löglega kjörinn for- sr‘a. Eru þess engin dæmi, að þ r sagt var í brezka útvarp- i- ■ f morgun, að svo erfiðlega hah gengið að kjósa rikisfor- seta í nokkru landi álfunnar. Nenn'i var búinn að taka forustuna, studdur af kommún- istum, en það dugði honum ekki, og er hann dró sig í hlé var Saragat sigurinn vís, því að kommúnistar tóku þá ákvörðun um að styðja hann, en hann var einnig studdur af þingmönnum úr Kristilega lýðræðisflokknum, sem var klofinn frá upphafi um forsetaefni. Saragat er 66 ára. Hann tók sæti f stjórn Aldo Morro fyrir einu ári. — Hann hefir komið mjög við sögu. Hann var einn rammasti andstæðingur fasista, varð að flýja land, en kom aft- ur heim 1943. Nazistar handtóku hann, en honum var hjálpað til að flýja. Saragat var kjörinn með yfir gnæfandi meirihluta atkvæða. Kuldabylgjunni slotar í Bretlandi Kuldabylgjunni á Bretlandi er nú að slota. Víða var frost allt að 13 stig, og fannfergi geysi mikið, og mest í Dorset, þar sem snjórinn hlóðst í allt að tveggja metra háa skafla, og heilar bílalestir voru í hálfu kafi í snjó og meir en það. Óttazt er, að fólk hafi orðið úti, en það er ekki að fullu kannað. Bjargað hefir verið fólki, sem hafði hafzt við í bílnum sólarhring eða lengur, og m.a. manni, sem ekið hafði út í skurð. Var honum bjarg- að eftir rúmar 50 klukkustundir, mjög þjökuðum. •fc Yfir 40 manns hafa farizt í flóð- um í Bandaríkjunum vestanverðum, en tugir þúsunda fólks heimilislaus. Tjón mvn nema yfir milljarð doll- ara. Skólavörðústíg 41. Sími 20235. HAFIRÐU KEYPT GÓÐAN HLUT ÞÁ MANSTU HVAR ÞÚ FÉKKST HANN. ATH. Höfum kvikmyndaljós fyrir innitökur. | INNI OG ÚTI FILMUR. L.tíiðbeinum meðhöndl- töku og synmgarvélum. FULL AUTOMATIC RAFDRIFIN TÖKUVÉL MEÐ ZOOM LINZU. Giuseppe Saragat Eldgos I nótt Þúsundir manna þustu út í nótt og leituðu sér skjóls á eynni Oshima, er Mihara-eld- fjallið tók skyndilega að gjósa. Spúði það glóðheitri ösku yfir alla eyna, sem er fremur Iftil. Hún er 320 km. suðaustur af Tokio. * ★ Blaðið New York Times segir að þrátt fyrir andúð Bandaríkja stjórnar á Nasser muni Egypta- land fá matvælabirgðir fyrir 35 milljónir dollara af umframbirgð um Bandaríkjanna. En frá ára- mótum verða Egyptar sjálfir að standa straum af flutningskostn aðinum, sem Bandaríkin hafa greitt til þessa. í morgun fór að draga úr kuldanum í Noregi, en síðastlið- in nótt var hin kaldasta á vetr- inum i Austur-Noregi. Komst frostið í 34 stig. í Röros var 33 stiga frost og ★ 1 útvarpi frá Yemen var hótað að halda áfram hryðjuverkum og árásum á Breta í Aden þar til þeir sæju sitt ráð vænst að hrökklast burt úr nýlendunni, en Harrington, brezk'i hershöfðinginn hafði áður sagt, í ávarpi til brezka liðsins, að það mundi gera þar skyldu sína hvað sem á gengi. ★ Bandaríkjastjórn hefir boðizt til þess að láta Somaliu fá 7000 lestir korns. Þar vofir hungursneyð yfir um 700.000 manns. ^•Indonesiustjórn segist hafa kom- izt fyrir samtök gegn sér á eynni Celebes. Áður hafði verið sagt frá handtökum þar. ★ Uppþot varð i fyrradag nálægt bandarískri flugstöð á Filipþseyj- :pm. Þax nálægt höfðu ;tveir Filipps æyingar verið drepnir skömmu áð- ur. Johnson Bandarikjaforseti hefir fyrirskipað að gripið skuli til ráð- stafana — og róttækra ef annað dugi ekki — til þess að uppræta með öllu kynþáttamisrétti í banda- rískum herbúðum hvarvetna, en einkum hafa verið brögð að því, að blakkir hermenn nytu ekki sömu réttinda og hvítir í herbúðum í V- Þýzkalandi og Austur-Asíu, en það aftur leitt til þess að á opinberum stöðum utan herbúða hafa blökku- hermennirnir orðið að búa við, að vera settir skör lægra en hvítir og jafnvel með öllu meinaður að- gangur að skemmtistöðum. ic Tvö þorp í Suður-íran eru í rústum eftir mikinn landskjálfta. Þorp þessi eru skammt frá Persa- flóa. Þarna urðu miklir landskjálft- i Nesbyen 1 Hallingdal 25 stiga frost. Sennilega mun hiti verða nálægt frostmarki við strendur Suður-Noregs, en frost og fann- koma inni í landi, en allmiklu vægara en í nótt. ar 1960. Um tjón í landskjálftun- um nú er ekki vitað. ► Sjö manns fórust á Grænlandi um helgina. Á jólanóttina brunnu 4 smábörn inni í Kutdligssat, en þau voru ein heima. Elzta barnið var 4. ára drengur. ★ Saknað er fiskiskútunnar Mar- en frá Egedeesminde á Grænlandi, og er talið að hún hafi farizt með áhöfn, 3 mönnum. ★Sallal forseti Yemen ræðir bráð- lega við Nasser forseta Egypta- lands um stjórnmálaástandið i Yemen. Tveir varaforsætisráðherr- ar hafa beðizt lausnar. Hundruð fór- ust um jólin uf slysum Hundruð manna biðu bana af völdum umferðarslysa um jólin — f Bandaríkjunum einum 555 manns og í Kanada 78. Árið 1955 létu yfir 600 manns Iífið af völdum banaslysa í Banda- ríkjunum og er það hámark. Á fimm sólarhringum, frá mið- nætti á Þorláksmessu að telja biðu 108 menn bana af völdum b'ifreiða slysa á Bretlandi eða 12 færri en • 1963. Fraser samgöngumálaráðherra sagði í gær, að gott væri að nokk- uð hefði áunnizt, en banaslysa- talan væri enn skelfileg. ERLENDAR FRÉTTIR I STUTTU MÁLI Reykjavfk stærsta ver- stöð landsins Siglufj'órður hrapaði úr fyrsta sæti í niunda Þal5 er ekki á allra vitorði, að Reykjavík er stærsta verstöð landsins. Reykjavíkur minnast menn frekar sem stjórnarseturs og skrifstofumannabæjar, en staðreyndin er sú, að í Reykja- vfk er lagður upp miklu meiri fiskur en annars staðar á land- inu. Hins vegar standa margir fámennir bæir sig mjög vel á þessu sviði, 0g er þar Raufar- höfn fremst í flokki. í nýútkomnum Hagtíðindum eru töflur um fiskafla, sem tek inn hefur verið til hagnýtingar í einstökum höfnum landsins ár in 1962 og 1963. Ef tekið er ár- ið í fyrra, er Reykjavfk hæst með rúmlega 112 þúsund tonn, en næst koma Vestmannaeyjar með rúm 75 þúsund tomj. Báð- ir staðirnir höfðu aukið mikið við sig, en þó enn meira Seyðis fjörður, sem var f þriðja sæti með tæp 47 þúsund tonn. Fjórða höfnin var Neskaupstað- staður með tæp 46 þúsund tonn, þá Keflavík með tæp 43 þús- und tonn, Raufarhöfn með rúm 41 þúsund tonn og Hafnarfjörð ur nokkrum tonnum neðar. í áttunda sæti er Akranes með tæp 31 þúsund tonn og Siglu fjörður með tæp 28 þúsund tonn og má hann muna tvenna tímana, því árið áður var hann með 114 þúsunþ tonn og var langstærsta verstöð landsins. Hefur hann fallið úr fyrsta sæti niður f níunda, en Reykjavík tekið forustuna í staðinn. Nokkrar verstöðvar eru með 20—21 þúsund tonn eða Grinda vík Vopnafjörður og Eskifjörð ur. Yfir 10 þúsund tonn hafa Sandgerði, Fáskrúðsfjörður, Ak ureyri með Krossanesi, Reyðar- fjörður og Ólafsvík en 47 ver- stöðvar hafa fengið innan við 10 þúsund tonn á land í fyrra. íþróttir — Framhald af bls. 2. New York en sá háskóli telur um 4000 nemendur. Lið skólans hefur löngum haft viðumefnið „Fljúgandi Hollendingar" og hefur gengið mjög vel f skólakeppninni. Bezti maður liðsins er Steve Nissensen, 21 árs, 1.88 m á hæð, en hann setti á síðasta ári met í vítaköstum fyrir Bandaríkin, skoraði 230 af 252 eða 91.3%, en alls skoraði hann 776 stig á leikárinu. Annars er Hofstra e’itt af sterkustu liðun- um sem íslenzka landsliðið mætir í ferð sinni og ekki að vænta sigurs f þeim leik.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.