Vísir - 30.01.1965, Síða 5

Vísir - 30.01.1965, Síða 5
V1 S IR . Laugardagur 30. ianúar 1965, 5 KARDIMOMMU- BÆRINN Leikstjórinn, Klemens Jónsson, virðir fyrir sér senuna. Á hinni myndinni sjáum við ræningjana bíða úti í sal eftir því að fara inn á sviðið og eru þeir all skuggalegir ásýndum. * Þeir Kasper, Jesper og Jóna- tan eru aftur komnir á kreik og læðast um svið Þjóðleikhúss ins. Fyrirgefið, Kardimommu- bæjarins. Nú er kominn nýr hópur af krökkum á þeim aldr inum siðan leikritið var sýnt hér í fyrsta sinn fyrir fimm ár u siðan, sem mesta ánægju mun hafa af því að skemmta sér með öllum íbúum Kardi- mommubæjarins. Naut það þá fádæma vinsælda og var upp- selt á hverja sýningu. í Kardimommubrenum skeð- ur margt skemmtilegra atburða og íbúarnir eru nú flestum kunn ugir — hver kannast ekki við ræningjana Kasper, Jesper og Jónatan, Soffíu frænku, Bastian borgarstjóra og alla hina? 1 Myndsjánni í dag birtum við myndir úr Kardimommu- bænum en fyrsta sýningin verð ur núna á sunnudaginn. Á stóru myndinni sjáum við Kardi- mommubæinn í allri sinni dýrð. Vetram'ki á NorSurlandi i og fennti þá bæði fyrir dyr og j glugga. Undanfarið hefur nokkuð hlán- að, snjórinn hefur sjatnað og veg ir hafa verið ruddir á flestum höf Vetrarríki hefur verið meira á Norðurlandi það sem af er þess um vetri en um mörg undanfarin ár. Til sveita hefur verið illfært milli bæja á nokkru farartæki nema helzt skíðum, og jafnvel reynzt erfitt suma dagana að komast eft ir götum Akureyrar vegna fann- fergis og djúpra skafla. í mestu hríðunum gerði allt að 4—5 metra skafla við sum hús á Akureyri Andapollurinn á Akureyri. Enda þótt hann sé lagður að nokkru leyti, er hann samt að mestu auður og þar halda endumar sig í þéttum hnapp í hinu norðlenzka vetrarríki. í baksýn til vinstri er bamaskólinn. Ljósm. Sigurbjöm Bjamason. Nú er aðstaða fyrir Islendinga að komast langt í skíðalandsgöng- unni og að þessu sinni geta þeir ekki afsakað lélega þátttöku með snjóleysi. Ekki er sagt að þessir ungu Akureyringar séu að Ieggja af stað í skíðalandsgönguna, þegar myndin er tekin, en svo mikið er víst, að ekkert er til fyrirstöðu að þeir geri það, ef þeir eru ekki þegar búnir. Ljósm.: Sigurbjörn Bjamason. uðleiðum um byggðir Norður- lands. Samt er þar enn viða mik ill snjór, jafnt á láglendi sem til fjalla. BPá-.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.