Vísir - 30.01.1965, Page 6

Vísir - 30.01.1965, Page 6
.V.V.V.W.V.V.V.V.V. V J s P/'ó/. Hálldór Halldórsson: Því að þekking vor er # molum Poul Möller, De islandske hándskrifter i dokumentarisk belysning Fjórði kafli bókarinnar ber nafnið „Med speidende 0ie“. Hándskrifterne i nyere for- skning. Þar er fremur tætings- lega fjallað um útgáfur handrita í Árnasafni og áhrif þeirra á danska menningu. Sem dæmi þess, hve norræn goðafræði hafi náð djúpstæðum áhrifum í Danmörku („Hvor dybt den nordiske mytologi trods alt er gáet“_ bls. 49) er þess getið, að fjöldi sumarbústaða þar í landi heiti Gimli („Girnle") og mörg veitingahús Valhöll (,,Valhal“). Gott eitt skal ég segja um hinn mikla danska málfræðing Rasmus Kr. Rask og hina stór- merku íslenzku málfræði hans. Övarlegt er þó að segja, að hún „stadig kan kaldes uover- truffen“ (bls. 49), athuga- semdalaust. Vel má halda því fram, að aldre’i hafi verið sam- in betri íslenzk málfræði miðað við sinn tíma. En það er eðli vísindanna að þróast. Rask átti veigamikinn þátt í þróun mál- vísinda, en eftir hans daga tóku aðrir við og þokuðu þessari þróun áfram. Það er ekki Rask til hnjóðs, þótt menn vit'i nú margt um Islenzka tungu og sögu hennar. sem honum var hulið. Og það er ekki honum til heiðurs að gera hann að eins konar endapunkti í þróun íslenzkra málvísinda. Á bls. 52 er þess gétið, að 1939 hafi ríkisframlag til Árnanefndar verið aukið og þá hafizt handa um samningu ,,fornnorrænnar“ (,,oldnordisk“) orðabókar. Síðan segir, að áður og fram að þessu hafi menn orðið að láta sér nægja orða- bók þá, sem Jón Ólafsson Grunnvíkingur hafi samið og ekki verið prentuð („Tidligere og hidtil har man máttet (sic!) nojes med den af Jón Ólafsson efterladte"). Þó eru á eftir taldar orðabækur Guðbrands Vigfússonar og Fritzners. Orða- bóka Björns Halldórssonar og Eiriks Jónssonar er ekki getið. hvað þá að minnzt sé á Lexicon poeticum eftir Sveinbjörn Egils son og síðar Finn Jónsson. 'Orðabókarhandrit Jóns Grunn- víkings er merkileg málsöguleg heimild, en fáir munu þeir vera, sem notað hafa það á sama hátt og menn nota venju- legar orðabækur. Nú er unnið úr þessu handriti við Orðabók Háskóla íslands, og þar kemur það að miklu gagni. Æskilegt hefði verið, að höf- undur hefði kynnt sér betur þessi orðabókarmál, áður en hann fann hjá sér hvöt til að fræða aðra um þau. Á bls. 53 er fjallað um út- gáfustarf Árnastofnunar eftir 1941. Einkennileg tilviljun er það, að þar er ekki minnzt á, að nokkur íslendingur annar en Jón Helgason hafi komið nærri þessu útgáfustarfi. En skylt er að geta þess, að nokkru síðar (bls. 5-6) vitnar höfundur til Einars Ól, Syeins- sonar um það hverra þjóða menn hafi útgefið og samið téð- ar bækur. Þar er einnig .viður kennt, að þetta verk sé ekki einvörðungu danskt („at det ikke er rent danskt" (bls. 55)) Fimmti kafli nefnist Hánd- skrifteme kræves udleveret. Þetta er á ýmsan hátt greina- gott yfirlit um kröfur fslend inga og fleiri um afhendingu handrita úr Árnasafni. Kaflinn er þó engan veginn hlutlaus. því að ávallt er gert meira úr rökum andstæðinga afhending- ar en hinna, F°m viljað hafa líta með sanngirni á málin. En ég skal ekki elta ólar við slíkt. Islendingar eiga skýrt yfirlit um þessa sögu fram til 1959 í Handritamálinu eftir Einar Ól. Sve'insson (bls. 12—29), og um það, sem síðar hefir gerzt má bæði fræðast af grein dr Gylfa Þ. Gíslasonar í Áfanga I. 1, bls. 5—21, um handritamálið, og grein minni um sama efni i Vísi 8. og 9. des. 1964. Ég læt mér nægja að vísa til þessara heimilda til samanburðar fyrir þá, sem vilja líta hlutlaust á málið. Við eitt atriði vil ég þó leyfa rnér að gera athugasemd. Á bls. 78 segir, að rætt hafi verið um nýskipan Árnanefndar í dansk-íslenzku ráðgjafarnefnd- inni. Tími er ekki tilgreindur, en samkvæmt ís^pþeimildi gerðist þetta á árurmm 193 36. Nýskipanin átti að fólgin í því, að Islértzklr’fúÉ ar fengju sæti í nefndinni. Síð- an segir: „íslenzkir fulltrúar hafa þó aldrei verið tilnefndir." Hér sýnir höfundur enn ókunn- leika sinn á íslenzkum heimild- um, sem virðast geta komið að haldi um nútíð eins og um for- tíð. Á fundi háskólaráðs Há- skóla Islands 7. ágúst 1936 var um málið fjallað og kjörnir þrír fulltrúar (prófessorarnir Árni Pálsson og Sigurður Nordal og Einar Arnórsson hæstaréttar- dómari) af íslands hálfu. Þetta gerðist að vísu ekki mótat- kvæðalaust og allt háskólaráðið gerði svo felldan fyrirvara: „að þessi afskipti þess af stjóm safnsins að' sjálfsögðu eru gerð að áskildum óskertum öllum rétti Islands bæði lagalegum og siðferðilegum til að fá skilað íslenzkum handritum úr safni þessu. Háskólaráðið lítur svo á, að það sé afar mikilsvert fyrir íslenzkt menntalif, að ís- Ienzk handrit, sem nú eru i opinberum söfnum í Danmörku, ANNAR HLUTI fiytjist sem fyrst h’ingað til lands, og felur fulltrúum slnum i stjórn Ánasafns að vinna eftir frekasta maptti að því að fá sem mestu af jslenzkum handritum úr safni þessu skilað hingað heim.“ . . r : Nöfn hinna íslenzku fulltrúa stóðu 'á ritum útgefnum af Árnanefnd' um nokkurra ára skeið, en raunveruleg afskipti þeirra féllu niður við upphaf síðari heimsstyrjaldar. Þetta er veigamikið atriði i sögu handritamálsins, þvi að með þessu viðurkenndu opin- berir danskir aðiljar rétt ís- lendir-a til afskipta af stjórn safnsms. Þetta er I samræmi berling, en það hafi líkzt starfi rannsóknarlögreglu („et næsten detektivisk arbejde", bls. 90). Um starf ritstjórans mætti ýmislegt segja. Hann er vafa- laust dugandi blaðamaður. En segja mætti almennt — án þess að hr. Larsen sé sérstak- lega hafður í huga —, að starf blaðamanna almennt er fólgið I þvl að afla frétta og að til eru þeir blaðamenn, sem mættu 'Mynd þessi var tekin i desember, þegar danskir þingmenn komu í heimsókn í Ámasafn. Þar sést Poul Moller höfundur bókarinnar Iengst t. v., en með honum Poui Nílsson formað- ur þingnefndar og K. B. Andersen menntamálaráðherra. við, að þeir, sem sömdu erfða- skrá Árna, ætlast greinilega til, að andleg og veraldleg yfirvöld á íslandi fylgist með stjórn safnsins, Ég væni höfund ekki um að víkja hér af götu sannleikans af ásettu ráði. Trúlega stafar skekkjan af ónógum kunnleika af sögu málsins. En hvað sem öðru líður, sýnir þetta, að hr. Moller hefir ekki grandskoðað fremstu síðurnar af útgáfum Árnanefndar frá þessum tíma, hvað sem vera kann um efni þeirra að öðru leyti. Sjötti kafli bókar kallast Den store gave. Lovforslagets tilblivelse og behandling. Þar er rakinn ga^gur handritamáls- ins eftir 1951 og birt margvís- leg vitneskja, sem áður hefir ekki verið kunn á íslandi, t. d. er stuðzt við plögg danska þingsins, sem ekki hafa birzt hér, að minnsta kosti ekki nema I ófullkomnum útdráttum. Mér þykir leitt, að ég á erfitt með að treysta frásögninni til hlítar,’ með þvl að ýmislegt, sem ég hefi frumheimildir um, er ekki I samræmi við þær. Höfundur segist nú geta betur en áður greitt úr flækjunnj um tilraun frumvarpsins um hand- ritamálið vegna starfs Dans Larsens, ritstjóra við Kvöld- vera vandari að meðulum og grandvarari I skiptum sínum við sannleikann. Um ritstjórann sérstaklega mætti hins vegar segja. að útdrættir úr skýrslum, sem hann hefir gert, hafa gefið aðrar hugmyndir en skýrslurnar sjálfar, þegar þær hafa verið birtar I heild. Því mætti einnig bæta við, að sumt af því, sem Kvöldberlingur hefir gert að æsifréttum nú, hafði birzt á prenti á íslandi fyrir nær fjór- um árum. Til þess að afla slíkra frétta þurfti aðeins að kynna sér íslenzkar heimildir, öll „rannsóknarlögreglustörf" voru óþörf. Á nokkrum stöðum er vikið að leyniskránni svo nefndu. Svo er að sjá, að ávallt sé átt við sömu skrána, þ.e. skrá, sem runnin er frá þeirri, sem sér- fræðinganefnd Dana og íslend- inga kom sér saman um 19. apríl 1961 á fundi I Sendiráði íslands I Kaupmannahöfn. Mér er ekki ljóst, hvort þetta er rétt. Við samanburð á skrán- um, sem birtust I Kvöldberlingi 5. nóv. 1964 (Árnasafn) og 14. nóv. 1964 (Konungsbókhlaða), við þá í'-rá, sem íslendingar hafa af áðurnefndum fundi, hefir komið I ljós, að þær eru ekki samhljóða. Mér er spurn, er skráin, sem danska þing- nefndin 1961 fékk, skráin i Kvöldberlingj og skráin, sem danska þingnefndin 1964 fékk, samhljóða? Ef svo er ekki, hverjar breytingar hafa verið gerðar, hvenær og af hverjum? Skráin í sinni réttu mynd er grundvöllur samkomulags'ins, sem varð á ráðherrafundinum 21. apríl 1961, sem Poul Moller minnist á (bls. 92). Hann viður- kennir gildi skrárinnar, þar sem hann segir, að ef raunsætt sé litið á málið, verði að gera ráð fyrir, að hún verði lögð til grundvallar, þegar skipting safnsins verði gerð („Men det er s'ikkert realistisk at regne med, at den fortrolige liste i alle tilfælde vil blive lagt til grund“, bls. 103). og síðar segir hann: „en með því að skráin er niðurstaðan af þeim samningaviðræðum milli Dana og íslendinga, sem lýst er I VI. kafla, verður vart talið senni- legt, að miklar breytingar verði gerðar“ („Men da listen er et resultat af de i kapitel VI beskrevne dansk-islandske forhandlinger kan det næppe anses for sandsynligt, at store fravigelser vil finde sted“, bls. 124). Þetta eru merkustu setn- ingar bókarinnar. Eitt af því, sem sagt er af fundinum 19. apríl 1961, gæti valdið misskilningi. Þess er getið, bls. 92, að viðstaddir á fundinum hafi verið Birkelund ríkisbókavörður og prófessor Skautrup af danskri hálfu og af íslenzkri prófessoramir Sigurð- ur Nordal og Einar Ól. Sveins- son og sömuleiðis (,,samt“) próf. Helgason. Flestir mundu skilja svo, að Jón Helgason hefði verið tilkvaddur af Is- lend'ingum en svo var ekki. Hann sat fundinn að ósk dönsku nefndarmannanna, en auðvitað með fullu samþykki Islenzku fulltrúanna. Sýnir þetta, að báðir aðiljar báru traust til hans. Um það, sem gerðist I danska þinginu vorið 1961, skal ég ekk- ert segja. Um það hefi ég ekki nægileg gögn til samanburðnr. En kaflanum lýkur með því, að sagt er (bls. 109), að 16. des. 1964 hafi þingnefndin, sem nú fjallar um handritamálið, leng- ið svar frá fræðslumálaráð- herra Dana um gagnrýni dr. Ole Widdings á þeirri trúnaðar skrá (fortrolige liste), sem feng in hafi verið I hendur þjóð- þingsnefndinni frá 1961. Síðan segir, að Peter Skautrup og Palle Birkelund hafi svarað, að skráin væri ekki söm („iden- tisk“) þeirri, sem þeir hefðu gert fyrir fundinn 19. apríl 1961 og Skautrup talið það sök Jóns Helgasonar. En spyrja mætti: Til hvers var fundurinn hald- inn? Var það ekki til þess, að samkomulag næðist milli dönsku og íslenzku fulltrú- anna? Er þá nokkuð undarlegt við það, þó að skráin breyttist á fundinum? Peter Skautrup segir I greinargerð til fræðslu- málaráðuneytisins danska, sem birt var sem kjallaragrein I Kvöldberlingi 17. des. 1964, eft irfarandi: „Ég hefi þó aldrei haft þessa skrá [þ.e. þá skrá, sem afhent var ráðuneytinu eft Framhald á bls. 10 !

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.