Vísir - 20.02.1965, Síða 16
Laogardagur 20. febrúar 1965,
/ notkun
Við opnunarathöfn nýja sendisins. Frá vinstri Vilhjálmur Þ. Gíslason, útvarpsstj. Gylfi Þ. Gíslason
menntamálaráðherra, Þorvaldur Garðar Kristjánsson alþm. Baldur Jónsson, Benedikt Gröndal form.
útvarpsráðs og Þorsteinn Hannesson.
Utvarpssendingar betri og öruggari
— Leysir þó ekki vanda Austf jarða
í gær var tekinn í notkun
nýr útvarpssendir í sendistöð
Ríkisútvarpsins á Vatnsenda-
hæð. Er hann 100 kíiówött og
er aðalsendir útvarpsins, um
land allt.
Útvarpsstjóri, Vilhjálmur Þ.
Gíslason gat þess við opnunar
athöfnina að hinn nýi sendir
myndi leysa marga erfiðleika
varðandi dreifingu útvarps-
efnis.
Vonaðist Ríkisútvarpið til
þess að framkvæmdin mætti
verða hlustendum um land
allt til gagns og ánægju. Út
sendingin yrði betri og örugg
ari og auk þess væri veruleg-
ur raforkuspamaður við til-
komu hins nýja sendis. Ekki
mun hann þó megna að leysa
úr vandkvæðum hlustenda á
Austurlandi. Þar verður að
byggja nýja langbylgjusendi-
stöð til þess að vel heyrist
þar í útvarpinu.
1 Vatnsendastöðinni voru
ýmsir gestir viðstaddir í gær
kl. 5 er sendirinn nýi var tek
inn í notkun. Þar var mennta
málaráðherra, Gylfi Þ. Gísla-
son útvarpsráðsmenn póst- og
símamálastjóri. Gunnlaugur
Briem, og tæknimenn útvarps
Frh. á bls. 6.
SJOMENN KROFÐUST
NÆR 75% HÆKKUNAR
Útvegsmenn telja að útgerðin eigi að fú stærri
hlut með stærri skipum og fullkomnari tækjum
kröfugerð fyrir verkfallið farið I til þess að mæta auknum útgerð
• flrkn.QtnarSí na var haft
Landssamband íslenzkra út-
vegsmanna hefur gefið út grein
argerð varðandi sjómannaverk-
fallið langa í janúar s. 1. þar
sem m. a. er skýrt frá því að
samninganefnd sjómanna hafi í
Konudagur
ó morgun
Vísir vill leyfa sér að minna
eiginmenn um land allt á, að
á morgun er fyrsti sunnudag
ur í Góu. Venja hefur verið
að dekra þann dag sérstak-
lega við veikara kynið með
blómum, uppþvottum og öðru
því sem þessum ágætu verum
þykir fengur 1. 1 dag er sein-
asti dagur þorra, þorraþræll.
fram á 38 — 74% hækkun og stað 1 arkostnaði og var það ástæðan
ið á þessum kröfum fram á síð-
ustu daga verkfallsins. Þessar
miklu kröfur segir LÍÚ að hafi
verið ástæðan til þess hve verk-
fallið stóð lengi. Segir LlÚ, að
hinn almenni sjómaður hafi enga
vitneskju haft um það, hvað var
verið að fara fram á fyrir hans
hönd.
Þá er rætt allmikið um hluta
skiptin í greinargerð LlÚ. Segir
þar m. a. að á undanförnum ár-
um hafi átt sér stað svo stórfelld
ar endurbætur á bátaflotanum,
að til byltingar geti talizt.
Breytingar þessar eru aðallega
fólgnar í stórfelldri stækkun bát
j anna og gerbreytingu á aðbúnaði
j þeirra. Telur LÍÚ eðlilegt að
í stærri c;, dýrari bátar þurfi að
!fá meira í sinn hlut af aflanum
fyrir kröfum útvegsmanna, þeg-
ar þeir óskuðu eftir stærri hlut
á síldveiðum.
Þau hlutaskipti sem gilt hafa
á síldveiðum með hringnót eru
miðuð við 40 — 50 rúmlesta báta
og því eðlilegt að þau hluta-
Framh. á bls. 6
Vilhjálmur Þ. Gislason heldur ræðu við opnun nýja sendisins.
UTAN AF LANDI, BEINT
TIL ÚTLANDA MEÐ F.Í.
Tilkoma hinnar nýju flugvélar
Flugfélags íslands, Fokker Friend-
ship, gerir kleift nýja þjónustu við
farþega úti á landi fyrir utan hina
bættu þjónustu, sem felst í bætt-
um flugvélakost. Vegna flughraða
°g öryggi þeirrar flugvélar er
mögulegt að skipuleggja ferðir utan
af landi þannig, að farþegar þaðan
geta samdægurs komizt með flug-
vélum F.i. til útlanda.
Ferðir þessar til útlanda verða
eftir hádegi, ýmist klukkan 14 eða
16, en Fokker Friendship-vélin
verður þá búin að ná í farþega út
á land. Á sama hátt verður hægt
að komast samdægurs út á land
þegar farþegar koma að utan. Þeir
taka þá flugvél, sem fer kl. 9 f.
h. t.d. í Höfn, ná hingað skömmu
eftir hádegi og fljúga samdægurs
út á land.
Flugfélagið væntir þess að þetta
verði vinsælt hjá fólki úti á lands-
byggð'inni. Oft er erfitt að fá inni
f hótelum á sumrin og auk þess
aukakostnaður, ef fólk á ekkert
erindi í höfuðstaðinn. Reikna má
með að aukakostnaður sé um 1000
kr. í dvalarkostnað, mat og annað.
SÍÐASTA FERÐIN
- Nú hefur fólk ekki leng-
ur tima til þess að ferðast
með skipi, við erum um borð
í Drottningunni og það er
skipstjórinn Oskar Djurhus,
sem segir þetta. - Hann
er að leggja upp í síðustu
ferð sína sem skipstjóri á
Drottningunni en hún á eftir
að fara tvær ferðir ennþá frá
íslandi áður en henni verður
lagt upp og hættir siglingum.
Drottningin er 38 ára, byggð
árið 1927 og hóf siglingar til
íslands sama ár. Þá höfðu
Danir tvö skip í siglingum til
íslands og í byrjun fór Drottn
ingin til Vestfjarða og Norð-
urlandshafna en þær siglingar
lögðust niður á stríðsárunum,
þegar Drottningin var ekki í
siglingum til íslands og voru
ekki teknar upp aftur eftir
stríð.
- Það er viss sjarmi' að
sigla til íslands, ég verð
aldrei leiður á því, sérstak-
Framh. á bls. 6
Oskar Djurhus, skipstjóri
Á blaðsíðu 11 er birt sumar-
áætlun Flugfélags íslands fyrir
sumarið 1965.
Bana-
slys í
Keflavík
í fyrradag varð alvarlegt um-
ferðarslys f Keflavík sem hefur
nú leitt til dauða 6 ára telpu.
Atburðurinn gerðist með þeim
hætti, að stór fullhlaðinn vöru-
bfll ók eftir götunni fyrir fram-
an húsið Lyngholt 9. Lítil telpa,
Ása Ingþórsdóttir, varð fyrir
bílnum, hún mun ekki hafa orð-
ið undir bílnum, heldur slegizt
á einhvern hátt utan í hann án
þess að bílstjórinn yrði þess
var. Bifreiði.: var á hægri ferð.
Telpan var þegar flutt á
sjúkrahús Keflavíkur, en þar
andaðist hún i gærdag.______