Vísir - 26.02.1965, Qupperneq 7
V í S IR . Föstudagur 26, febrúar 1965.
7
FÖSTU D AGSG REININ
Framhald bls. 9.
að fara að sækja um inngöngu
í Efnahagsbandalagið. Þá er Uns
verjaland næst á listanum og er
verið að undirbúa samninga við
vestræna auðhringa þar. Er lík-
legt að þeir verði byggðir á því,
að auðhringarnir reki fyrirtækiri
á ódýru vinnuafli í þessu komm
úníska þjóðfélagi. Er það þá m a
til mikils öryggis og tryggingar
fyrir hina vestrænu auðjöfra að
ekki þurfa þeir að óttast verk
föll þar, því að verkföi! eru
bönnuð í ríkjum kommúnis-
mans. Finnst auðjöfrunum það
ákaflega mikill kostur, það er
nokkuð verkfallagrýlan sem a!lt
af vofir yfir þeim í lýðræðisríkj
unum.
Það er líka dálítið einketini-
legt að erlendir gestir sem heim
sækja nú kommúnistaríkin reka
fljótlega augun í alþekktar vör-
ur og merki frá Vesturlöndum,
sem að eru i sjálfu sér einnig
tákn auðhringanna. Til dæmis
er svaladrykkurinn Pepsi Cola
nú orðinn ákaflega vinsæli :
kommúnistaríkjunum. Lengst
gengur þetta allt í Póllandi, þar
er nú meira að segja farið að
setja upp auglýsingaskilti á vest
rænan hátt, þar glampar merki
Pepsi Cola í neon-ljósum. Allt
sýnir þetta að kommúmstarnir
-----------------------------«>
HUSMÆÐUR!
1001, eldhúsrúllan er fram-
leidd sérstaklega fyrir notkun
í eldhúsum ykkar og hjálpar
ykkur viö dagleg stör,^.M,firr,l.i.
ELDHUSRULLAN BEGNIR 1001 HLUTVERKI
austur þar virðast hugsa al!t
öðru vísi en kommúnistarnir hér
sem fyrirfram afneita samning-
um um erlenda stóriðju, þó þeir
samningar séu mun hagkvæmari
en þeir sem félagar þeirra í
Austur Evrópu gera.
U'mbreytingin í kommúnista-
blökkinni er þó vissulega
meiri en þetta. Þar eru nú aö
gerast svo stórfurðulegir atburð
ir, að það er engu líkara en að
verið sé að afneita sósialisman-
um. Þessi umbylting er kennd
við rússneskan hagfræðing, sem
heitir Libermann, hann er geð-
ugur gamall háskólakennari í
borginni Kharkov f Uln-ainu. En
því er þessi hreyfing kennd við
hann, að hann fékk fyrstur að
setja fram hugmyndir sínar um
þetta í blaðinu Pravda fynr 2
árum. Kenningar hans eru í
stuttu máli í því fólgnar, að
kerfi áætlunarbúskaparins hafi
mistekizt í Sovétríkjunum og að
nú verði að hverfa aftur til nýs
grundvallar efnahagslífsins. Það
verði að byggja efnahagsiífið í
framboði og eftirspurn og sér-
staklega á ágóðasjónarmiðinu.
Þær hugmyndir að það sé
fyrst og fremst nauðsynlegt að
reka fyrirtæki á ágóðagrund-
velli finnst okkur hér svo sjálf
sagt, en austur f ríkjum komm
únismans má segja að slíkar
hugmyndir séu alger Dylting.
Þar er allt í eigu ríkisins, sem
að sér um að reisa fyrirtæki
og verksmiðjur og sifkar fram
kvæmdir ákveðnar eftir vissri
áætlun alveg án tillits tii þpss
hvort hver framkvæmd sé ábata
söm. Öll laun eru greidd út úr
hinum sameiginlega sjóði ríkis
ins án tillits til þess hvort fyrir
tækið ber sig.
Jgn nú kom Libermann fram
með hugmyndir sinar um
ágóðann. Það er kannski bara
tilviljun, að hann kom fram með
þær, þegar allt efnahagskerfið
var að komast í strand og hung
ursneyð virtist yfirvofandi í
Rússlandi nú fyrir tveimur ár
um. En Libermann fordæmdi
áætlunarbúskapinn eins og liann
væri nú orðinn. Hann væri orð
inn haft á framtak og fram
kvæmdir í landinu, enda er nú
talið, að yfir 10 milljónir manna
í Sovétríkjunum vinni að skrif
stofuVinnu aðeins í sambandivið
áætlunargerðirnar. öllu í fram-
leiðslulífinu á að stjórna með
áætlunum. Það er ákveðið fyrir
fram, hvað hvert hérað á að
framleiða mörg tonn af hverj
um varningi, síðan hvað hver
verksmiðja og vinnustofa á að
framleiða, þá hvað hver vél og
hver einstaklingur á að skila
miklu á dag. Og þá er skrifað
niður í áætlanir hvað mikið af
karföflum á að koma upp úr
hverjum kartöflugarði og hvað
mikil mjólk á að koma úr júgri
hverrar kýr, jafnvel úr hverjum
spena. Hugmyndin hefur síðan
verið að allar þessar áætlanir
fælu í sér slíkan eldmóð hinnar
sósíalfsku byltingar að það kæmi
í staðinn fyrir ágóða hugsunina
og menn gætu stritað og
sveitzt í þvf að uppfylla þessar
áætlanir, em venjulega voru þó
settar alltof hátt. En því mið-
ur, kýrin reyndist ekki hafn ti'
að bera þann eldmóð sósíal-
ismans, að júgur hennar fyllt-
ust, jafnvel ekki verkamennirn
ir heldur, að þeir hrifust mjög
af þessum áætlunum, þvert á
móti, það þurfti beinlínis að
hneppa þá í lögregluofsókn til
þess að fá þá vil að skila verk-
inu.
Það eru að vísu liðnir tfmar,
sem Libermann er ekkert að
rifja upp. Hins vegar heldur
hann því fram, að þjóðlíf og
framleiðsla séu nú orð'in svo
fjölbreytt í hinum víðu Sovét-
ríkjum, að það sé óðs manns
æði, að ætla sér að skipuleggja
allt þjóðlífið með áætlunargerð.
Tjað þarf ekki að taka fram,
” að eftir að hugmyndir Lib
ermanns komu fram, hófust upp
miklar umræður um þetta á æðri
og lægrj stöðum. Margir sáu,
hve geysilega praktíska þýðingu
þetta gat haft, en aðrir áttu
erfitt með að kyngja því, þar
sem að þeim virtist að hér væri
með öllu horfið frá hugmynd
um sósíalismans. Karl Marx
hafði algerlega hafnað ágóða-
sjónarmiðinu. Þetta var því al-
gert brot á helztu grundva'.'ar
reglu sósíalismans.
En það var úr vöndu að ráða.
Það er nú komið í ljós, að ár-
leg framleiðsluaukning i iðnaði
Sovétríkjanna er nú ekkj orð
in meira en 6—7%. Það er að
vísu tala sem þætti sæmileg '<
hinum háþróuðu vestrænu ríkj
um, en þetta er fjarri því að
vera nógu mikið í landi eins og
Sovétríkjunum, sem enn eru
tiltölulega skammt komin í iðn-
aðarframleiðslu.
Svo að það er ákveðið
skömmu eftir að Libermann
hafði sett fram kenningar sínar,
að gera smávegis tilraun með
hugmyndir hans. Það var ákveð
ið að það skyldi tekið upp að
reka tvær fataverksmiðjur í
Moskvu á grundvelli ágóðasjón
armiðsins, en verksmiðiur þess
ar skyldu selja vörur sínar til
22 klæðaverzlana í borginni.
Verksmiðjur þessar heita Bolsé
vika og Majak. Rekstri þeirra
var nú komið á hreinan kapital
fskan grundvöll. Höfuðstóll
þeirra, sem rfkið lagði til var
ákveðinn og skyldu þær greiða
ákveðnar vaxtaprósentur af hon
um. Svo var forstjórum þeirra
gefin fyrirmæli um að reka fyrir
tækin upp á eigin spýtur en til
raun'in var um leið heiðarleg,
að séð var um að þær fengju
klæðavörur frá vefnaðai verk-
smiðjum með eðlilegum hætti.
'C'orstjórar þessara tveggja kap
italísku fyrirtækja fó-u nú
öðru vísi að en tíðkazt hefur
í hinum sovézka áætlunarbú-
skap. Þeir fóru fyrst þá leið að
kanna markaðinn, athuga hverj
ar væru óskir neytendanna og
síðan höguðu þeir framleiðsl-
unni eftir því. Árangurinn varð
svo glæsilegur að furðu sætti, af
framleiðslunni varð stórfelldur
hagnaður og annað sem Rússum
þótti einkennilegra, að fram
leiðsluvaran seldist nærri því
alveg upp og hurfu kvartanir
og skil á vörunni vegna galla.
í samræmi við þetta ákvað fyrir
tækið, að hækka laun starfs-
fólksins, það skyldi fá að taka
þátt í ágóðahlutanum. Og eftir
fyrsta starfsárið nam nettohagn
aðurinn 7%.
Það hefur mikið verið bolla-
lagt um það, hver hefði verið
ástæðan fyrir falli rússneska ein
ræðisherrans Krúsjeffs. Meðal
ýmissa ástæðna hefur nú verið
bent á þennan atburð, en svo
virðist sem Krúsjeff hafi lítinn
áhuga haft á þessum málum. Sá
háttsetti maður, sem talinn er
hafa átt frumkvæðið að því að
þessi tilraun var gerð er einmitt
Alexei Kosygin, en svo vill til,
að hann valdist til að taka að
sér stjórnarforustuna eftir fall
Krúsjeffs.
Og eftir að Kosygin tók við
völdum hefur ýmislegt fleira
einkennilegt verið að gerast inn
an Sovétríkjanna, sem að vísu
hefur farið lágt. En þegar það
kemur allt saman, gætu menn
fengið þá hugmynd, að Sovét-
ríkin væru smám sjman að ger
ast kapitalískt ríki.
Tj’itt fyrsta verk Kosygins var
að fá bændur aftur til einka
ræktunar Iand, sem Krúsjeff
hafði tekið frá þeim og er.nfrem
ur er auðsætt að nann er að
gera ráðstafanir til að halda
áfram í miklu stærra mæli til
rauninn; úr Bolsévika og Majak
verksmiðjunum. I síðasta mán
uði tilkynnti hann að 400 k'æða
verksmiðjur og 78 vefnað.irverk
smiðjur i Sovétríkjunum yrðu nú
settar á rekstursgrundvöil ágóða
sjónarmiðsins og lýsti því þá
yfir um leið að svo gæti farið
að þessum rekstursumbótum
yrði komið á í öllum iðnaðinum.
Eftir slíkar yfirlýsingar virð
ist heldur Iítið eftir af sósíal-
ismanum. Það er ekki anrað að
sjá, en sósíalisminn sé hruninn
til grunna í sjálfu forysturíki
hans, Sovétríkjunum. Nú er tek
ið upp á að reka fyrirtækin þar
algerlega eftir kapitalískum regl
um, sem hafa verið fordæmd-
ar já, taldar hreinn glæþur. Má
því segja að atburðir þessir séu
hreinustu furðuverk. Það mætti
fljótlega draga af þessu þá á-
lyktun, að kommúnisminn sé
búinn sem stefna.
Þó er enn um sinn rétt að
fara varlega í að draga ályktan
ir af þessu. Það má segja að
kommúnisminn sé búinn að
vera sem stefna og kraftur. En
öll þessi fyrirtæki eru þó enn
eign ríkisins þó að þau séu rek
in á sjálfstæðum grundvelli. Og
enn sem komið er, þá nær þetta
til svo sáralítils hluta framleiðsl
unnar. Ekki er ólíklegt að aftur
kippur komi í þetta, einfaldlega
vegna þejrrar andúðar sem þetta
nýja kerfi mætir hjá því stóra
og áhrifamikla milljónaliðí á-
ætlunarskrifstofanna, sem vill
ekk; missa þá pólítíku aðstöðu
sem fylgir áætlunarvaldinu.
Þorsteinn Thorarensen.
SKYNDISALA
á slatta á fisksvunt-
um, sjóstökkum og öðr-
um regnklæðum, næstu
daga.
ÞRIÐJUNGS
AFSLÁTTUR
VOPNI
Aðalstræti 16 — við
hliðina á bílasölunni
% BlLABÓNUN A
HREINSUN
► BÓNUN OG HREINSUN VÖNDÚÐ
^ VINNA • PANTIÐ TfMA
BT bilabónun, hvassaleiti n
r^SIMI 33948 >
FLUG
Sími 22120 • Reykjovík
Sími 1202 • Veslm.eyjum