Vísir - 26.02.1965, Qupperneq 11
V í S IR . Föstudagur 26. febrúar 1965.
FH er enn tnplaust eftir sjö leiki
í gærkvöldi hinn öruggi sigurvegnri
KR tufði fyrir, en FH vur ullun leikinn
Enn heldur siglingin áfram — sigling FH að hinum
eftirsótta íslandstitli í handknattleik — 7 leikir allir
unnir — eftir eru Fram, Ármann og Víkingur — segja
má að liðið sé á „ytri höfninni“ og bíði þess að öld-
umar lægi til að geta komizt að hafnargarðinum.
KR var ein af hindrununum sem rutt var úr vegi.
Það gerðist í gær í hörðum leik þar sem dómarinn
sendi 5 leikmenn af velli um stundarsakir til að kæla
skap þeirra.
F.H. byrjaði mjög vel í þessum
leik og yfirleitt má segja að fyrri
hálfleikur hafi verið vel leikinn af
þeirra hálfu op allan tímann var
enginn í vafa um að þeir voru mun
sterkari aðilinn, en K.R.-ingar ógn
uðu samt á sinn hátt, ákveðnir og
baráttuglaðir frá fyrstu mínútu til
sextugustu. En það nægðj samt
ekki og 25:19 var markatalan að
leik loknum, en fimm víti K.R.
annað hvort varin, f stöng eða yfir
markið.
F.H. skoraði 4 fyrstu mörkin í
leiknum en K.R.-ingar minnkuðu
bilið en forystan var áfram f hönd-
um F.H. og varð bilið smám saman
meira, 9:4, 11:5 mest bilið, en í
hálfleik var staðan 14:9.
K.R. byrjaði með að skora tvö
mörk í byrjun seinni hálfleiks og
hleypti það fjöri í leikinn. Það var
Heins Steinmann, sem skoraði bæði
þessi mörk af miðri línunni mjög
laglega. K.R. komst næst F.H. í
15:13 og 16:14, en þá var Karli
Jóhannssyni vísað út af fyrir gróf-
an leik og Öm skoraði á meðan
17:14 Þá var röðin komin að Birgi
Bjömssyni og hann var settur út
í 2 mín. en þegar hann kom inn
aftur var eins og meiri ró kæmi
yfir leik liðsins og hvert áhlaupið
á fætur öðm heppnaðist, og staðan
var orðin 20:14 fyrir F.H. og Hjalti
hélt áfram a ð verja vftaköstin.
Eftir þetta var vart um annað að
ræða en sigur F.H. og mismunur-
inn varð 25:19.
Leikur F.H.
oftast óg K.R. gat ekki fylgt með í
þessum darraðardansi fremur en
Axel Kristjánsson
kjörinn form. FH
Sunnudaginn 31. janúar var að-
alfundur F.H. haldinn í Góðtempl-
arahúsinu. Fundurinn var fjölsótt-
ur og sýnir það hinn mikla áhuga
sem nú ríkir innan félagsins. Fund-
arstjóri var kjörinn Ragnar Magn-
ússon. Fráfarandi formaður Val-
garð Thoroddsen flutti skýrslu
stjórnar og kom þar fram að starf
deilda félagsins hefur verið með
ágætum. Knattspymudeildin sá um
æfingar í knattspymu hjá yngri
sem eldrj félögum. Þátttaka var
mÍöB góð ekki sfzt hjá þeim yngri
og má nefna sem dæmi að piltar
yngri en 10 ára voru um 150 tals-
ins. Félagið sendj lið til keppni í
ölium flokkum ísl.mótsins.
Þegar hausta tók, hófust fim-
leikaæfingar fyrir yngri piltana í
Kaþólska skólanum og eftir ára-
mót var tekið að iðka knattspymu
úti og inni og áhugi mikill um að
standa sig vel á sumrj komandi.
Stjórn knattspyrnudeildar F.H.
skipa: Form. Árni Ágústsson,
Ragnar Magnússon, Bergþór Jóns-
son, Ævar Harðarson og Ingvar
Viktorsson.
Handknattleiksdeildin sá um æf-
ingar allra flokka í handknattleik
og var áhugi mikill að vanda.
Flokkar félagsins tóku þátt í Is-
landsmótinu og gekk vel, I. fl.
hlaut íslandsmeistaratitil innan-
húss. I Islandsmóti karla utanhúss
sigraði F.H. í 9. skiptið í röð, sem
er einstætt afrek. Þá áttj félagið
5 menn f liði íslands f heimsmeist-
arakeppninni siðustu og 3 stúlkur
á Norðurlandamótinu, og einnig 2
pilta í unglingalandsliðinu. Hand-
knattleiksdeildin gaf út smekklegt
almanak og seld; í fjáröflunarskyni.
Stjóm handknattleiksdeildar F.H.
skipa: Form. Gísli H. Guðlaugsson,
Ragnar Jónsson, Geir Hallsteins-
son, Indriði Jóhannsson og Ámi
Guðjónsson.
Valgarð minntist á íþróttasvæði
F.H.. og skýrði reikninga þess og
kom í ljós að engin skuld hvílir nú
á svæðinu og skuldlaus eign nem-
ur kr. 198.000.00.
Að lokinni skýrslu formanns,
fluttj Finnbogi F. Amdal gjaldkeri
yfirlit um reikninga félagsins og
kom f ljós að fjárhagur félagsins
er allsæmilegur eftir atvikum.
Síðan var gengið til stjómar-
kjörs og hafði fráfarandi formaður
orð fyrir uppstillingamefnd og
kvað hann hana hafa komizt að
samkomulagi um að setja fram
eftirtalda menn, sem kosnir yrðu
til eins ...'S.
Form.: Axel Kristjánsson, vara-
form.: Hallsteinn Hinriksson, ritari:
Valgeir Óli Gíslason, gjaldkeri:
Finnbogi F. Arndal. Meðstjórnend-
ur: Kristófer Magnússon, Árni
Ágútsson og Gísli H. Guðlaugsson.
Vom allir þessir menn samþykktir.
I varastjórn voru kosnir: Birgir
Bjömsson, Bergþór Jónsson, Val-
garð Thoroddsen. Endurskoðendur
voru kosnir Guðmundur Ámason
Framh. á bls. 6
Tólf mörk fyrstu 14 mín.
gerðu út uf viB Víkingunu
— en jboð sem eftir var af leik var jafnt
Tólf mörk í röð í byrjun
leiks án þess að geta svar-
að fyrir sig. Það var þetta
sem gerðist í leik Fram og
Víkings í gær. Tólf mörk á
14 mínútum, 12:0 fyrir
Fram, sem keyrði Víking
niður í upphafi. Það var
eins og fyrir hnefaleikara
að fá ,knock-out“ í fyrstu
lotu. Þær 48 mínútur sem
eftir voru af leik voru jafn-
ar og Framarar virtust hafa
tapað tökunum á leiknum,
enda var markatalan þær
mínútur 20:19, — fyrir Vík
ing!
Það voru aðallega Gunnlaugur
og Guðjón, sem voru ábyrgir fyrir
þessu mikla markaflóðj fyrstu
mínúturnar, ásamt ráðaleysi í sókn
Víkinganna að Fram-vörninni.
I hálfleik var staðan 15:5, en í
seinni hálfleik var leikur liðanna
svipaður, enginn glans lengur yfir
íslandsmeistunum, en Vikingarnir
börðust þótt við vonleysi væri að
að strfða. Fram vann 'með 31:20.
Beztu menn Fram voru Gunn-
laugur Hjálmarsson, Guðjón Jóns-
son, Gylfi Jóhannsson en hjá Vík-
ing bar Sigurður Hauksson af, en
Ólafur Friðriksson sæmilegur.
Björn Kriptjánsson gerði þarna sitt
„come-back“ ' og virtist óbanginn.
Hann hefur áreiðanlega lagt hand-
knattleikinn. of snemma á hilluna
og ætti nú að taka hann fram og
þurrka ryklagið af honum, því í
honum getur verið góður kraftur
fyrir liðið.
Dómari var Valur Benediktsson
og dæmdi agætlega fremur rólegan
leik og prúðan. — jbp —
STAÐAN
í 1. DEILD
F.H. 7 7 0 0 192-139 14
Fram 7 5 0 2 161-131 10
K.R. 7 2 2 3 132-139 6
Ármann 6 2 0 4 128-155 4
Haukar 6 1 1 4 115-138 3
Vfk. 7 1 1 5 140-166 3
önnur lið sem hætta sér út í þann
leik Ragnar Jónsson, oftast stjarna
liðsins var mjög miður sfn vegna
meiðsla sem hann er ekki orðinn
góður af. Hjalti varði vel enda þótt
hann hafí undanfarið verið veikur,
en bezti maður liðsins og Iangbezti
leikmaður kvöldsins var Örn Hall-
steinsson, sem hreinlega skilaði
liðinu sigrinum í hendur. Ekki að
eins að hann skoraði 10 mörk, held
ur var hann mjög jákvæður f leik
sínum í sókn og vörn.
K.R.-liðið barðist vel og leikur
liðsins er öruggur. Karl Jóhannsson
og Gísli Blöndal voru beztu menn
ásamt Sveini Kjartanssyni mark-
verði sem varði ótrúlegustu skot.
Ágætan leik áttu þeir Ifka Heins
Steinmann og Hilmar Björnsson.
Magnús Pétursson dæmdi skfn-
andi vel í fyrri hálfleik. En hvernig
stendur á þvf, að Magnúsi mistekst
ævinlega f seinni hálfleik? Það er
sennilega æfingaleysi. Dómara-
starfið er erfitt starf, sem heimtar
einbeitingu og eftirekt í alllangan
tíma við erfiðustu skilyrði. Það
tekur á þrekið og þegar það endist
ekki nema í 30 mínútur þá er ekki
við góðu að búast. — jbp —
Næstu leikir verða leiknir næst-
komandi sunnudagskvöld þá mæt-
ast Ármann—Haukar og F.H.—
Víkingur.
Öm Hallsteinsson, bezti maðurinn f leiknum milli FH og KR
í gær að skora í gegnumbroti á línu.