Vísir - 26.02.1965, Síða 16
VÍSIR
Fðstudagur 26. febrúar 1965
140 fluttu frú
Siglufirði
Á árinu sem leið fluttu 140
manns alfarið úr Siglufjarðar-
kaupstað.
Ekki eru tiltækar tölur um
aðflutning fólks til Siglufjarðar
á árinu né fæðingar, en fullvíst
má telja, að um verulega fólks-
fækkun sé að ræða.
Þessi fækkun verður fyrst og
fremst rakin til aflabrests á síld
veiðivertíðinni i fyrra og til ann
arra erfiðleika í atvinnumálum.
Þykir Siglfirðingum þetta að
vonum ískyggileg þróun og telja
að þetta sé ein mesta mann-
fækkun í sögu kaupstaðarins á
einu ári.
F.L TRYGGIR FORKAUPSRÉTT
AÐ ÞRIÐJU FQKKERS- VÉLINNI
Samriingar undirritaðir i gær um kaup á nr. 2
t gær kl. 17.30 undirrituðu
samninga um kaup á nýrri
Fokkers-Friendship flugvél þeir
Örn O. Johnson forstjóri Flug-
félags Islands h.f. og hr. Switzer
frá útflutningsdeild Fokkers-
smiðjanna í Amsterdam. Flugfé-
lagið hefur fengið forkaupsrétt
að þriðju flugvélirfni og sagði
Örn að ákveðið yrði fyrir ára-
mót hvort af þeim kaupum yrði.
Færi það m. a. eftir því
hvernig hún Iíkaði f Færeyja-
flugi.
Flugfélagið fær fyrstu Fokk-
ersvél sína í maí n.k. en vél þá
sem samið var um í gær, fær fé-
lagið í marz 1966. Kaupverð
beggja vélanna er sama, 40
milljónir hvor vél. Ríkisábyrgð
hefur fengizt fyrir 80% af verði
vélanna.
Örn O. Johnson kvaðst þess
fullviss, að Fokkers Friend-
ship mundi henta aðstæðum hér
vel og mundi hún verða vinsæl.
Vélin verður notuð á aðalflug-
leiðir innanlands, til Akureyrar,
ísafjarðar, Egilsstaða og Vest-
mannaeyja. Flugtíminn til Ak-
ureyrar verður um 50 mínútur
f stað 80 mínútna áður. Flug-
tíminn til Eyja verður rúmur
stundarfjórðungur. Einnig eru
Framh. á bls. 6
Rauði krossinn
kaupir blóðbíl
Rauðj kross íslands minnist 40
ára afmælis síns sem var 10. des.
s.L með þvf að vekja þessa dagana
athygli ahnennings f landinu á
starfsemi sinni, en framundan er
hinn árlegi fjáröflunardagur fé-
lagsins — eða á miðvikudaginn
kemur öskudaginn.
1 tilefni af þessu ræddu formað-
ur félagsins og Ólafur Stephensen
framkvæmdastjóri þess, við frétta-
menn síðdegis í gær um starfsemi
félagsins fyrr og síðar og fram-
tíðarverkefni.
Eitthvert merkasta viðfangsefnið
nú er kaup og rekstur á blóðbíl,
sem notaður verður við bióðsöfnun
í samstarfi við Blóðbankann. Hann
hefir oft vantað blóð, þegar mikil
slys hefur borið að höndum, og sú
hætta vofir jafnan yfir að ekki sé
til nægilegt blóð þegar slíkt ^erist
eða miklar skurðaðgerðir eiga sér
stað f sjúkrahúsunum. Reykjavík
ein getur ekki lengur séð landinu
fyrir blóði. Þess vegna þarf að
skipuleggja blóðsöfnun úti um
landið með stuðningi Rauða kross
deildanna. Á fundinum las dr. Jón
Sigurðsson upp bréf frá Valtý
Bjarnasyni blóðbankastjóra, þar
sem gerð er grein fyrir þörfinni á
blóðsöfnun. Rauði krossinn hefir
nú pantað sérstakan blóðbíl sem
sendur verður um landið til blóð-
söfnunar. Bíllinn er af Mercedes
Benz-gerð. Sérstakt fyrirtæki ann-
ast innréttingu hans, uppsetningu
tækja í honum o.s.frv. Blóðbank-
inn leggur til þjálfað starfslið til
blóðsöfnunarinnar Kæliklefi verður
í blóðbílnum og sérstakur hreyfill
tengdur frystikerfinu til þess að
unnt sé að halda blóðinu á réttu
kuldastigi hvort sem bíllinn er í
gangi eða ekki. Með komu blóð-
bílsins fást skilyrði til framleiðslu
á blóðvatni, sem geyma má óá-
kveðinn tíma.
Framh. á bls. 6
•/■*. • •• í #•<■ mstsfíMífííf
Við undirritun samninganna. Frá vinstri: Kjartan Thors, Bergur Gíslason, Guðmundur Vil-
hjálmsson. allir í stjóm F. 1., Swietzer sölustjóri og Öm O. Johnson forstjóri.
Starfsfræðsludagur sjávar-
útvegsins verður um helgina
Á sunnudaginn verður haldínn
Starfsfræðsludagur sjávarútvegs
ins í Sjómannaskólanum og verð
ur opið milli kl. 14 og 17. Þessi
dagur er nú orðinn að árlegri
venju, og er fræðslan að þessu
sinni mjög ýtarleg.
í sambandi við daginn verða
heimsótt nokkur fyrirtæki og
ganga strætisvagnar milli Sjó-
mannaskólans og vinnustað-
anna. Skoðuð verða Fiskverkun
arstöð B. Ú. R., Faxaverksmiðj
an nýja, skip í höfninni, vélasal
ur Vélskólans, Vélsmiðja Sigurð
ar Sveinbjörnssonar og Hamp-
iðjan
Á fyrstu hæð Sjómannaskól-
ans fræðir Fiskmatið um gæði
og útlit fisks og störf við gæða
mat. og þar verða einnig fulltrú
ar frá Matsveina- og veitinga-
þjónaskólanum, fulltrúar mat-
sveina, framreiðslumanna og
bryta. Þá verða þar sýnd sjó-
vinnubrögð á vegum Æskulýðs
ráðs og Lindargötuskólans.
Á annarri hæð eru fulltrúar
frá jámiðnaði, jám- og málm-
steypu, ketil og plötusmíði, renni
smíði og vélvirkjun, fulltrúar
löítskéytamanna, fulltrúar í
tæknifræði, skipatæknifræði, vél
tæknifræði, skipasmíði, fulltrú-
ar Vélskólans og vélstjóra. Þá
eru fulltrúar frá Eimskipafélagi
íslands, Skipadeild S.Í.S., Sölu-
miðstöðinni, S. í. F. og Stéttar-
sambandi fiskiðnaðarins.
Á þriðju hæð eru fulltrúar há-
seta, stýrimanna, skipstjóra og
kafara Þá em sýnd siglingatæki,
sýning Fiskifélags íslands, sýn-
ing Landhelgisgæzlunnar, sýning
um veiðarfæragerð og loks sýnir
Tækniskóli íslands.
Ólafur Gunnarsson sálfræðing
ur sér um þennan starfsfræðslu
dag að venju.
fslenzk útgáfa af
Kennedy-kvikmynd
frumsýnd í kvöld
I kvöld verður Kennedy-kvik-
myndin i íslenzkri útgáfu frum-
sýnd samtímis í Háskólabíói og
Borgarbíó á Akureyri. Myndin
nefnist „Years of Lightning Day of
Drums“. Myndin var frumsýnd í
nóvember s.l. samtímis í Washing-
ton, Reykjavík, Róm, Beirut og
Mexico City að viðstöddum gest-
um. Var þar um enska útgáfu
myndarinnar að ræða, en sfðan
Framh. á bls. 3
Hinn árlegi bókamarkaður
opnaður í dag
Bókunum raðað upp á bókamarkaðinum.
Að undanförnu hefir verið
unnið af kappi að undirbúningi
hins árlega bókamarkaðar i
Listamannaskálanum, og verður
hann opnaður 1 dag.
Það er Bóksalafélag Tslands
sem að honum stendur og ann-
ast allan undirbúning sem áður
þeir Lárus Blöndal og Jónas
Eggertsson.
Þarna verður mikill fjöldi
bóka — titlar skipta vafalaust
þúsundum, en ekki verða þarna
bækur yngri en 4 ára.
Bókaverð hefir hækkað og
eldri bækurnar raunverulega
orðnar mjög ódýrar.
Reyndin hefir ávallt orðið sú,
að eftir að slíkur bókamárkaður
hefir verið haldinn, seljast upp
seinustu leifar einhverra upp-
laga, en þarna bjóðast sem sagt
ýmis tækifæri fyrir bókavini.