Vísir - 20.03.1965, Síða 5
V' 1SIR . Laugardagur 20. marz 1965.
5
útlönd í
morgun
útl'.önd í*morgun útlönd í morgun
utlönd
rnorgim
Geimfdramir sovézku vom 26 klst
á lofti og fóru 17 hriugi um jörBu
í gær síðdegis var birt
opinber tilkynning um það
í Moskvu, að geimfararnir
hefðu lent heilu og höldnu.
'I'eir lentu nálægt bænum TERM
vestan Uralfjalla. í tilkynningunni
var sagt, að Beljajev ofursti hefði
stjðrnað lendingunni og hefði hún
£ öllu heppnazt svo sem bezt varð
kosið og líðan geimfaranna sögð
ágæt.
Þeir voru 16 klst. á lofti og fóru
17 hringi um jörðu.
Hin opinbera tilkynning var ekki
birt fyrr en 4 y2 klst. eftir lend-
ingu og var sagt í brezka útvarp-
inu, að drátturinn kunni að hafa
stafað af því, að tafsamt hafi ver-
ið að komast á lendingarstaðinn
eða ákveðið hafi verið, að tilkynna
ekki lendinguna fyrr en að afstað-
inni fyrstu læknisskoðun.
Fyrstu fréttir um lendinguna bár-
ust £ morgun, eins og getið var £
blaðinu i gær, en voru óstaðfestar,
en haft eftir áreiðanlegum heim-
ildum £ Moskvu, að þeir hefðu lent
heilu og höldnu. En það stóð ekki
á þvi, að ýmsar getgátur komu
fram £ fréttum, sem lýstu beyg
manna, að eitthvað hefði orðið að,
en svo kom hin opinbera tilkynn-
ing, og menn þurftu ekki að efast
lengur.
Rúmeníu-forseti
lézt
í gær
Gheorghlu-Dej, ríkisforseti Rúm
eniu, er látinn, 64 ára að aldri.
Fréttir bárust um það f fyrradag
að hann væri lffshættulega veikur.
Var birt tilkynning þá um veiki
hans og liðan, undirrituð af heil-
brigðismálaráðherra landsins og 8
læknum. Forsetinn fékk gulu fyr-
ir nokkru, en hún kom i kjölfar
lifrarbólgu og er hann þar á ofan
fékk lungnabólgu var honum vart
líf hugað.
Forsetinn var formaður Kommún
istaflokks Rúmeníu.
Gheorghiu-Dej
Hvarvetna, þar sem til hefir^
spurzt, hefir verið farið þéim orð
um um geimferð þessa, að vísinda-
mönnum og mönnum almennt
finnst mikið til um, og geimferðin
talin stórkostlegt afrek.
Shell olíufélögin brezk-hol-
lenzku hafa tekið tilboði um smíði
fjögurra stórra olíuskipa i Japan
og Vestur-Þýzkalandi. Hvert skip
um sig verður 165.000 lestir og
verða þetta lang stærstu skip í
heimi. Áætlaður kostnaður við
smíði hvers skips er 4y2 miilj.
stpd. — Tilboð bárust frá brezkum
skipasmíðastöðvum og öðrum, en
öll voru þau tilboð mun hærri en
þau frá Japan og V-Þýzkalandi.
Vestur-Þýzkaland hefur lánað
Perú 9 milljónir sterlingspunda til
kaupa á brezkum vörum. Er þetta
fyrsti árangurinn sem í ljós hefur
komið af viðræðum Wilsons for-
sætisráðherra og Ludwigs Erhards
kanslara V.Þ. á dögunum ,en Wil-
son fór á þeim fundi fram á, að
Bonnstjórnin létti undir með Bret-
um vegna gjaldeyrisbyrða þeirra,
sem stafa af dvöl Rínarhers þeirra
f V. Þ.
Gæzlulið
úfram á Kýpur
Það er nú fullvíst talið, að sam-
þykkt verið í Öryggisráði, að fram
lengja dvöl gæzluliðs Sameinuðu
þjóðanna á Kýpur um þriggja mán-
aða skei ðeða hartnær til júnfloka
Fyrir skömmu kom til átaka milli
þjóðabrotanna norðvestan til á
eynni og allt verið æsingasamt og
ótryggt þar síðan. Fulltrúi Breta
sagði á fundi Öryggisráðsins 1 gær,
að óvænlega horfði um framtíðar-
lausn Kýpurmálsins. Fulltrúar
Grikkja og Tyrkja fóru í hár saman
bæði á fundinum í fyrrakvöld og
þar áður. — Bretar hafa boðizt til
að hafa 1000 menn í gæzluliðinu
næstu 3 mánuði og leggja fram
jafnhátt tillag til gæzlunnar á þeim
tíma og þeir hafa gert að undan-
fömu.
jBridgeþáttur VÍSISi
Ritstj. Stefán Guðjohnsen "
Bridgefélag Reykjavíkur og Tafi-
og bridgeklúbbur Rvíkur standa
um þessar mundir fyrir sameigin-
legri sveitakeppni. Fimm sveitir
frá hvoru félagi taka þátt i keppn-
inni og eru spilaðir 20 spila leikir
Að fjórum umferðum loknum er
staðan þessi:
1. Sv. Jóns Magnúss. TBK 22 st.
2. — Bened. Jóhannss. BR 22 —
3. — Guðj. Tómass. BR 19 —
4. — Steinþ. Ásg.ss. TBK 18 —
5. — Ól. Þorsteinss. BR 15 —
Eftirfarandi spil kom fyrir í sið-
ustu umferð og er athyglisvert að
þvf leyti, að hægt er að vinna út-
tektarsögn I báðar áttir Norður
gefur, allir utan hættu.
♦ G-8-6-4
V ekkert
♦ G-10-8-6-3
♦ D-10-8-6
4 K-l 0-7-5 | 4 2
V Á-K-5-2 ! N 4 D-10-9
♦ K-9-7-4 'V A 7-6-4-3
«9 C ♦ Á-D-5
i ........ * 7-4
♦ Á-D-9-3
♦ G-8
♦ 2
4. Á-K-G-5-3-2
N-s eiga fimm lauf í spilinu og
a-v eiga fimm hjörtu. Við annað
borðið gengu sagnir þannig, að
austur opnaði á þremur hjörtum,
• suður sagði fjögur lauf, vestur fjög
ur hjörtu, norður fimm lauf og
sögnum lauk með dobli vesturs.
Við hitt borðið opnaði austur á
tveimur hjörtum, suður sagði þrjú
lauf, vestur fjögur hjörtu, norður
pass, austur pass, suður f jóra spaða
og aftur lauk sögnum með dobli j
vesturs. Suður fékk að vinna fjóra í
spaða vegna mistaka vamarínnar. !
þvf það er engan veginn uppiagt að
hnekkja þeirri sögn.
♦
, Um síðastliðna helgi var spilað
Norðuriandsmót í bridge og var
spilað í Landsbankasalnum á Akur-
eyri. Islandsmeistararnir, sveit
Benedikts Jóhannssonar og félags
meistarar Bridgefélags kvenna, 1
sve'it Elinar Jónsdóttur, fóru norð-
ur til keppninnar. Spiluðu Islands-
meistararnir í fjögurra sveita
keppni með Siglufirði, Akureyri og
Húsavík. Sveit Benedikts hlaut 14
stig, sveit Óla Kristinssonar, Húsa-
vík, 12 st'ig, Sveit Ragnars Stein-
bergssonar, Akureyri, 8 stig og
sveit Harðar Arnþórssonar, Siglu-
firði 2 stig. í 15 sveita hraðkeppni
vann sveit Mikaels Jónssonar, Ak-
ureyri, sveit Benedikts var í öðru
sæti og jafnar í þriðja sæti voru
sveitir Elínar og Baldvins Ólafs-
sonar Akureyrí. Ennfremur spilaði
sveit Elínar Jónsdóttur einvfgi við
sveit Soffiu Guðmundsdóttur Ak-
ureyri. Missagt var í frétt hér £
blaðinu, að sveit Soffíu hefði unn-
'ið alla leikina þrjá, sem spilaðir
voru, en hún vann tvo þeirra með
6 vinningsstigum gegn engu og
tapaði einum með 1 vinningsstigi
gegn 5.
Gest'imir rómuðu mjög allar mót
tökur nyrðra, sem voru gestgjöfun-
um til mikils sóma.
^ % % STJÖRNUSPfl
Sjonvarpio
Laugardagur 20. marz
10.00 Þáttur fyrir börn.
12.00 Kúrekaþáttur Roy Rogers
12.30 My Little Margie
13.00 Wrestling
13.30 Keppni í akstri
14.00 Ford Sstar Anthology
14.30 íþróttaþáttur
17.00 Efst á baugi: Viðtal
17.30 Spurningaþáttur háskóla-
nema.
18.00 Lög unga fólksins
18.55 Chaplain’s Corner
19.00 Fréttir.
19.15 Encyclopedia Britannica
19.30 Perry Mason
20.30 Leikhús Des'ilu
21.30 Gunsmoke
22.30 King of Diamonds
23.00 Kvöldfréttir.
23.15 Leikhús norðurljósanna.
Sunnudagur 21. marz
12.00 Chapel of the Air
12.30 Star and the Story
13.00 This is the life
13.30 Pro Bowlers Tour
15.00 The Christophers
15.30 Wonderful World of Golf
16.30 Armed Forces Military
Report.
17.00 The Big Picture
17.30 Sky King
18.00 Disney Presents
19.00 Afrts News
19.30 Bonanza
20.30 Sunday Special
21.30 The Ed Sullivan Show
22.30 Grindl
23.00 Afrts Final Editions News
23.15 N.L. Playhouse
FUNDAHOLD
Barnaverndarfélag Reykjavík-
ur heldur aðalfund næsta mánu-
dagskvöld 22. marz kl. 8.30 i
Tjarnarbúð, uppi. Félagar eru
hvattir til að fjölmenna og taka
með sér gesti. — Stjórnin.
Bessastaðasókn: Aðalsafnaðar
fundur í Bessastaðakirkju þriðju
dagskvöldið 23. marz kl. 8. —
Sóknarnefnd.
Bræðrafélag Bústaðasóknar
Fundur í Réttarholtsskóla, mánu
dagskvöld kl. 8.30. — Stjórn'in.
Tilkynning
Langholtssðfnuður: Síðasta
kynningar- og spilakvöld safnað-
arins verður i Safnaðarheimil-
inu, sunnudag'inn 21. þ. m. kl. 8.30
Vetrarstarfsnefnd
Spáin gildir fyrir sunnudaginn
21. marz.
Hrúturinn, 21. marz til 20.
apríl: Þú verður í því skapi að
' talsvert gengur undan þér, þar
í sem þú beitir þér fyrir alvöru.
Haltu þó heldur aftur af þér
svo kapp þitt b'itni ekki á öðr-
um.
Nautið, 21. apríl til 21. mai:
Farðu gætilega í peningamál-
um. Láttu maka, eða þína nán-
ustu hafa stjórn hlutanna
á hendi í dag og farðu að ráð-
um þeirra. Hvíldu þig eftir á-
sfeæðum.
Tvíburarnir, 22. maí til 21.
júní: Þú átt um ýmis tækifæri
að velja, sem líkleg eru t'il
frama eða ágóða þegar frá líð-
ur. Láttu ekki hik eða áhyggjur
draga úr ákvörðunum þínum.
Krabbinn, 22. júní til 23. júlí:
Þú ættir að slaka á um helg-
ina og helga þig sem mest fjöl-
skyldu þinni og ástvinum. Ef
um ferðalög verður að ræða,
skaltu við hafa varúð.
Ljónið, 24. júlí ti! 23. ágúst:
Beittu athygli þinni að því, sem
gerist á vinnustað og heima
fyrir, láttu aðra hafa frum-
kvæðið, en hafðu gát á öllu
og hönd í bagga með.
Meyjan 24. ágúst til 23. sept.:
Þú fáerð að líkindum löngun til
ferðalaga eða þá til þess að
undirbúa iangt ferðaiag á næst-
unni, og er dagurinn hentugur
til þess á margan hátt.
Vogin, 24. sept. til 24. okt.:
Ekkj er óhugsandi að þú verðir
fyrir e'inhverju happi í dag, og
þá einkum í peningasökum.
Farðu þó gætilega í öllum kaup
um og sölum.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.
Það er eins og þfnir nánustu
ætlist til þess af þér að þú tak
ir forystuna í vissu máli eða
málum. Vertu jákvæður í af-
stöðu þinni og vongóður.
Bogmaðurinn, 23. nóv. til 21.
des.: Láttu þá löngun þína ráða
að njóta nokkurrar hvíldar og
næðis umfram það, sem venja
þín er. Leitaður þér aðstoðar
vinar af gagnkvæma kyninu.
Steingeitin, 22. des. til 19.
jan.: Ekki er ólíklegt að þér
bjóðist aðstoð kunn'ingja, sem
betur mega, til þess að hrinda
í framkvæmd fyrirætlunum
þínum áður en langt um liður.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19.
febr.: Þú nýtur vaxandi álits
fyrir dugnað þinn. Ræddu við
samstarfsmenn þína og þfna
nánustu um þær framkvæmd-
ir, sem þú hefur £ hyggju á
næstunni.
Fiskarnir, 20. febr. til 20.
marz: Aukin fjárráð auðvelda
þér ýmislegt, sem þig hefur
lengi langað til að veita þér.
Farðu gætilega I umferðinni, ef
þú stjórnar farartæki.