Vísir - 20.03.1965, Side 6
6
Sfðdegiskaffi Sfálfsfæðis
félaganna í endur-
bættum húsakynnum
I dag milli kl. 3—5 svo og næstu
laugardagseftirmiðdaga efna Sjálf-
stæðisfélögin, Vörður, Hvöt, Óðinn
og Heimdallur til síðdegiskaffis í
hinu nýja og glæsilega félagsheim-
ili Heimdallar, sem tók til starfa
nú í vikunni. Er hér um að ræða
íframhald á Varðarkaffinu svokali
iða, sem notið hefur mikilla vin-
sælda undanfarin ár, nema hvað
Sjálfstæðisfélögin standa nú öll
saman um þessa starfsemi. —
Vænta forráðamenn Sjálfstæðisfé-
laganna þess, að síðdegiskaffið
komi til með að njóta vinsælda
meðal Sjálfstæðisfólks og er það
hvatt til að líta inn og njóta ágætra
veitinga og notalegs húsnæðis.
Raddir lækna og
hjúkrunarkvenna
mamu bárust í gær tvær tilkynn
ingar önnur frá Læknafélagi Reykja
víkur og hin frá fundi hjúkrunar-
kvenna. f báðum þessum tilkynn
ingum var verið að mótmæla um-
mælum sem fram hafa komið í um
ræðum á Alþingi. Læknar voru að
mótmæla ýmsum staðhæfingum á
þingi í sambandi við læknaskip-
unarfrumvarpið svo sem því að
opinberir námsstyrkir við lækna-
deild háskólans séu svo ríflegir
að þeir nægi til að fleyta lækna-
stúdentum skuldlausum í gegnum
námið og „aðdróttunum vissra þing
manna“ um takmarkanir á lækna-
námi og „aðdróttunum í garð lækna
þess efnis að læknastarfið hér á
landi hafi verið gert að „business".
Hins vegar lýsa læknarnir yfir á-
nægju yfir læknaskipanafrumvarp-
inu og segja að það beri með sér
greinilegan vilja til þess að bæta
læknaþjónustu dreifbýlisins.
Fundur hjúkrunarkvenna sér á-
stæðu til þess að víta „þekkingar-
skort“ sem komið hafi fram í um-
ræðum á Alþingi um byggingu
hjúkrunarskóla. Hjúkrunarkonurnar
skora á ríkisstjórnina að hlutast til
um að ekki dragist lengur að full-
gera byggingu Hjúkrunarskólans.
SAGA-MINKUR
SÝNDUR Á SÖGU
Fjörutíu pelsar verða sýndir á
dansleik þeim sem Hringskonur
halda á Hótel Sögu 25. marz.
Loðskinnin eru frá fyrirtæki
Birger Christensen í Kaupmanna-
höfn og kemur ein stúlka frá fyr-
irtækinu t'il þess að sýna, en auk
hennar munu 6 íslenzkar stúlkur
sýna loðfeldina.
Þarna gefst tilvonandi loðskinna
framleiðendum og öðrum tækifæri
til þess að kynna sér nýjustu
Vestur-lsl. —
Framhald af bls. 1.
Sigurgeirsson, Jón Rögnvaldsson
garðyrkjumaður og Bjarni Jóns-
son úrsmiður. Endurskoðandi var
kjörinn Kristján Rögnvaldsson
garðyrkjumaður.
Ákveðið hefur verið að félagið
vinni að móttöku Vestur-íslend-
inganna, sem koma hingað i sum
ar. Verður reynt að greiða götu
þeirra til að komast í kynni við
ættingja eða vandamenn á Akur-
eyri eða grennd og á annan hátt
að aðstoða þá eftir föngum. Þá er
og í ráði að efna til sérstaks Vest
ur-íslendingadags á Akureyri á
meðan þeir hafa þar viðstöðu.
Neðri málstofan hefur sam-
þykkt að hafa næturfund i næstu
viku til þess að hraða afgreiðslu
frumvarpsins um breytingar á hegn
ingarlögunum. Miklar deilur eru
um ákvæðin um Iíflátshegningar.
Samþykktin var gerð með 299 at-
kvæðum gegn 229.
tízku í loðfeldum.
Þarna verður sýndur Saga-mink
ur, en það -er sameiginlegt heiti á
minkaskinnum, sem unnin eru á
Norðurlöndum. íslenzka selskinnið
en það er talið bezta selskinn, sem
völ er á að fá í flíkur, sportkápur
úr hrosshúð, chinchillafeldur, dýr
asta skinn sem til er o.fl. skinna-
tegundir. Auk tízkusýningarinnar
sýnir Camilla Hallgrímsson jazz-
ballett o. fl. verður til skemmtunar
Öllum ágóðanum verja Hr'ings-
konur til innbúnaðar barnadeildar-
innar, sem væntanlega verður opn
uð í vor, í einni álmu Landspítal-
ans. Dansleikurinn hefst kl. 19
með borðhaldi og að skemmtiat-
riðunum Ioknum verður dansað
fram eftir nóttu. Aðgöngumiðar
verða seldir í anddyri Súlnasalar-
ins í dag frá kl. 2-3 og á mánu-
daginn frá kl. 3-5. Borð verða tekin
frá á sama tíma.
Holræsið —
mikla botni, loftbora og önnur
slík tæki, en sprengingar hefur
orðið að framkvæma mikið.
Við Skerjafjörðinn er unnið
við enda ræsisins, í Fossvogs-
dal skammt fyrir innan skóg-
ræktarstöðina er unnið að því
að grafa og eins að slétta botn
inn og steypa botnplötuna undir
rörin. Og s er unnið við Ell-
iðaár. Þar þarf að leggja leiðs)
urnar undir árnar og er lögð á-
herzla á að því verki sé lokið
fyrir 1. maí, þegar laxveiðitím
inn gengur í hönd.
Skurðirrv’- eru víðast hvar
V1S I R . Laugardagur 20. marz 1965.
um 5 metra djúpir og víðir eft-
ir því, en sums staðar hafa þeir
orðið upp undir 7 metra>r á
dýpt. Rörin, sem notuð eru í
ræsið, eru víðust neðst eða
1.40 metrar, en fara mjókkandi
upp á við, fyrst 1,20, þá 1 metri
og efst 80 sentimetrar í hinu
nýja Árbæjarhverfi, en lögð er
áherzla á að ræsisgerðinni Ijúki
á sem stytztum tíma vegna
byggingarframkvæmdanna þar.
Æukin tækni —
Framh at bls. I
í tillögu, sem nefndin Iagði
fram, var lögð áherzla á það, að
íslenzk iðnfyrirtæki tile'inki sér nú
tíma tækni í framleiðslu og vinnu
hagræðingu og fylg'ist með þróun
þessara mála hjá nágrannaþjóðum
okkar. Ein leið til þess er að fá
erlenda sérfræðinga til ráðuneyt
is. En sakir hins mikla kostnaðar
sem þessu er samfara væri æski-
legt að stjórn félagsins leitaði til
stjórnvalda um milligöngu við út
vegun slíkra sérfræðinga t.d. á
vegum OECD
Sturfsfræðsln —-
• rainh -i 16 si?i
er fræðslu að fá á 42 fræðslu-
sýningum og vinnustöðum. Og
í stofu 401 í Iðnskólanum verð
ur sýnd kvikmyndin Bú er bú-
stólpi. Aðgöngumiðar að kvik-
myndasýningum fást í Land-
búnaðardeildinni á starfs-
fræðsludaginn.
Heimsóttir verða eftirtaldir
vinnustaðir: Barnaheimilið Haga
borg, Húsmæðrakennaraskólinn,
verkstæði Flugfélagsins, Volks-
wagenverkstæðið, loftskeyta-
stöðin á Rjúpnahæð, blikk-
smiðja .Bœi.íýBgík^jJU^s^
stæði Sigúrðair Svéinbjörnssoti
ar, radíóverkstæði I.andssim-
ans, Slökkvistöðin, Sjálfvirka
símstöðin, Dfgranesvegi 9, Stál
vík við Arnarvog.
Gervitungl —
Framhald af bls. 16
meðferðis útvarpstækið og ýmis
önnur tæki, sem notuð eru í
sambandi við það, svo sem sjón-
auka. Ken Fea er þrítugur að
aldri og hefur starfað við geim-s
rannsóknarstofnun Lundúnahá-
skóla í_ fimm ár Hann er stjörnu
fræðingur að menntun en hefur
starfað að eðlisfræðilegum við-
fangsefnum síðan. Blaðið ræddi
í gær við þá dr. Þorstein og
Ken Fea um þessar rannsóknir
og gáfu þeir eftirfarandi upp-
lýsingar:
— Útvarpstækið er stutt-
bylgjutæki af sérstakri gerð og
er notað til að taka við tíma-
merkjum sem send eru frá ýms
um geimrannsöknastöðvum, m.
a. í sambandi við ferðir gervi-
tungla. Með hjálp þessara tí'ma-
merkja og sjónauka er haégt að
tímasetja upp á sekúndubrot,
hvfenær gervitungl fara yfir at-
hugunarstaðina. Þær mælingar
eru síðan bornar saman við fyr
irfram gerða útreikninga á braut
um gervitunglanna.
Slíkar rannsóknir eru mjög
miklvægur þáttur í gervitungla
rannsóknum og það hefur lengi
vantað slíkar athuganir hér.
Ýmsar athuganir Eðlisfræði-
stofnunarinnar i jarðeðlisfræði
snerta svið gervitunglarann-
sókna en þetta er fyrsta athug-
unarsvæðið hér á landi, sem
beinlínis er vegna gervitungl-
anna. Frávik eru oft á milli fyrir
fram reiknaðrar brautar gervi-
tungla og raunverulegrar braut
ar og hafa þessar rannsóknir
því mjög mikið gildi. Nyrzti
hluti brauta margra gervitungla
er einmitt í nánd við ísland, svo
með þessum rannsóknum hér er
fyllt upp í stóra eyðu í þessum
rannsóknum.
Kan Fea starfar við Lundúna-
háskóla og hefur haft umsjón
með athugunum háskólans á
þessu sviði víðs vegar í Eng-
landi og einnig í Ástralíu. Tækin
eru hins vegar komin hingað á
vegum Konunglega brezka vís-
indafélagsins, sem kostar þessar
rannsóknir. Hjálmar Sveinsson
hefur á vegum jarðeðlisfræði-
rannsókna Eðlisfræðistofnunar-
innar tekið að sér að annast
tækin- og athuganirnar í sam-
bandi við þau. Athuganirnar eru
skráðar í sérstakar skýrslur,
sem jafnóðum verða sendar til
London.
1 fyrrinótt voru Ken Fea og
Hjálmar Sveinsson að prófa tæk
in. Sáu þeir þá og tímamældu
gervitunglið Explorer 24., þegar
það fór yfir Reykjavík, og virt-
ust þá öll athugunartækin vera
í lagi. I gærkvöldi fór Ken Fea
áleiðis til Englands, en þessum
rannsóknum verður haldið á-
fram hér og von er á fleiri tækj
um hingað til þeirra.
Engin hætto —
Framh. af bls. 1.
birgðir. Kom í ljós, að þær
voru allmiklar á öllum verzlun
arstöðunum, víðast þetta 30-40
daga birgðir og jafnvel meiri.
Þar kom m.a. fram að á Strönd
um svo sem í Drangsnesi,
Hólmavík og Borðeyri voru 42
daga birgðir, svo að ekki ætti
.tð vera nein sérstök hætta á
olluskorti þar. Fóðurbirgðír
v' Vorti ’víðast í góðu lagi, líka
víðast 30-40 daga birgðir.
Vísir átti í gær stutt sam-
tal við Þorgeir Guðmundsson
kaupfélagsstjóra á Hólmavík.
Hann sagði að Steingrímsfjörð
ur væri nú fullur af ís og ekk-
ert hægt að hreyfa báta, en
birgðir sagði hann að væru í
góðu lagi þar, a.m.k. 40 daga
birgðir af fiskmjöli og 40 daga
birgðir af maísmjöli. Landvegur
inn væri líka greiðfær eins og
á sumardegi. Þeir flyttu fóður
vörur sínar líka að jafnaði land
veginn. Þá sagði hann að vöru
bílar hefðu verið í gær að
sækja varning þann úr Skjald
breið, sem ekki komst til
Hólmavíkur en sk'ipað var upp
á Hvammstanga.
Hér er engin hætta á birgða-
skorti, sagði Þorgeir kaupfé-
lagsstjóri. Það versta vig ísinn
er, hvernig hann leikur útveg-
inn. Hér bundu margir góðar
vonir við hrognkelsaveiði eftir
að verðhækkun varð á hrognun
um. Veiðamar áttu að fara að
byrja núna, en nú er ekki hægt
að hreyfa bát og ekki viðlit að
koma netum í sjóinn. Það er
hætt v'ið að þetta valdi mönn-
um erfiðleikum og vonbrigðum.
Davíðssöfnun —
'-ramn af Dls 1
Söfnunarlistar hafa verið send
ir víðs vegar út um landsbyggð
ina og margir einstaklingar átt
frumkvæði að því að fá lista,
en til annarra hefur verið leit-
að. Sums staðar hefur frétzt af
því að menn hafa farið bæ frá
bæ innan síns söfnunarsvæðis
og leitað eftir framlögum. Og
’ enn annars staðar, eins og t. d.
í Kelduhverfi, hefur verið efnt
til sérstaks Daviðskvölds og
tekið þar við framlögum, eins
og hver og einn hefur látið af
hendi rakna.
Einna erfiðast hefur gengið
að skipuleggja söfnun í Reykja
vík vegna þess hversu stór hún
er. Þó hafa nokkrir menn syðra
söfnunarlista undir höndum, en
skilagrein ekki borizt frá þeim.
En eftir þeim undirtektum að
dæma, sem orðið hafa, væri
ekki annað sjáanlegt, en af húsa
kaupunum gæti orðið og að
Davíðssafnið yrði áfram í sfn-
um upprunalegu húsakynnum.
Kvaðst Þórarinn skólameistari
vonazt til að hægt yrði að
ganga frá kaupum í vor og opna
húsið til sýnis fyrir almenning
um það leyti sem ferðamanna-
straumurinn beinist norður, eða
ekki seinna en í júnímánuði.
Sjálfur kvaðst Þórarinn vera
þess hvetjandi, að bökasafn
Davíðs yrði notað innan ákveð-
inna marka, þannig að unnt
væri að leyfa fræðimönnum að
gang að því og vinna í húsinu
lengri eða skemmri tíma, enda
væri húsrými til þess nóg.
Jacqueline —
Frh. af bls. 9.
tók ég eftir því að fjölskyldu
Husteds kom þetta mjög á ó-
vart. Amma hans og frænka
komu til mín um líkt leyti til að
láta sauma kjóla og þær voru
áhyggjufullar og m'iður sín út af
þessu. Þrátt fyrir það er ég viss
um að engin alvarleg misklíð
eða illkvittni kom upp við skiln-
að þeirra og amma hans frú
Husted var meira að segja boð-
in í brúðkaup þeirra Jacqueline
og John Kennedys.
Frank Waldrop ritstjóri segir
frá því að það hafi verið ein-
hvern tíma á árinu 1953, sem
hann bað Jacqueline að fara og
leggja spurningu fyrir nokkra
þingmenn. Þar á listanum var
John Kennedy. Jacqueline varð
eitthvað undarleg þegar hún sá
hann á listanum, en hreyfði
samt engum mótbárum og kom
síðar með öll samtölin eins og
fyrir hana hafði verið lagt. —
Ég vissi ekki þá, segir Waldrop
að hún var orðin nákunnug
Kennedy og hún kærði sig ekk-
ert um að láta mig vita um það.
Drottningm —
Framhald aí bls. 16.
íslenzkir, sem eru gamlir kunn-
ingjar Drottningarinnar og vildu
kveðja skipið með því að vera
í síðustu ferðinni.
Einn þeirra Lundahl Nielsen
málflutningsmaður í Vejle sagði
við brottförina, að hann og kona
'"hans hefðu verið að ráðgera að
fara í skemmtiferð til Miðjarðar
hafsins, en þegar þau hefðu
frétt af síðustu ferð Drottning-
arinnar, hefðu þau ákveðið að
fara til íslands. Þau eru bæði
gamlir kunningjar Drottningar-
innar.
Bifreiðir til sölu
Nýr Ford Cortina De-Lux árg. 65 Ford árg.
’57 Renault R 8 árg. ’63 Til sýnis í dag Suður-
götu 14 Sími 11219.