Vísir - 07.05.1965, Qupperneq 3
V1 S IR . Föstudagur 7. maí 1965.
3
\í
Snjólfur Pálsson í einni af jafnvægisæfingunum. Ljósm. Vísis B.G.
armm-— "—
Umferðarlöggæzlan aukin og bættl
„Það er ekki hægt að loka augunum fyrir því,
að slysum og óhöppum í umferðinni hefur fjölgað
mikið á undanförnum árum, enda hefur bílum
fjölgað og umferðin vaxið stöðugt ár frá ári. Ein
leiðin til þess að vinna gegn slysum og gera um-
ferðina greiðari er aukið og bætt umferðareftirlit
af hálfu lögreglunnar og er nú stefnt að því, að
auka þennan þátt í starfsemi lögreglunnar.
Þannig komst Ólafur Jónsson
lögreglufulltrúi m. a. að orði,
þegar blaðamaður Vísis ræddi
við hann um þær ráðstafanir
sem lögreglan í Reykjavík hef-
ur þegar gert og hyggst gera á
Ólafur Jónsson, lögreglufulltrúi
næstu árum varðandi aukið og
bætt umferðareftirlit í höfuð-
borginni.
Hófst með stofnun
Umferðardeildar.
— Það er hægt að segja að
með stofnun sérstakrar umferð-
ardeildar innan lögreglunnar
hafði verið stigið stórt skref
fram á við. Deildin var stofnuð
1960 og eins og nafnið gefur til
kynna fæst hún einkum við
umferðarmál, þó svo að lög-
reglumennirnir, sem starfa í
deildinni sinni hverfalöggæzlu,
sem við teljum einnig mjög þýð
ingarmikla. Næsta skrefið var
svo að vinna að eflingu þessarar
deildar m. a. með því að fjölga
lögreglumönnum og tækjum og
síðast en ekki sízt, að veita þess
um mönnum sem f deildinni
starfa sérstaka þjálfun varðandi
sitt starf.
— En, hvað um aðra lögreglu
menn?
— Þó svo að umferðardeild
hafi verið stofnuð þá starfar auð
vitað allt lögreglulið borgarinn
ar meira eða minna að umferð
armálum og sama má segja um
umferðadeildarlögreglumenn,
þeir verða auðvitað að sinna
almennri löggæzlu.
17 menn og 9 bifhjól.
— Hvað starfa margir lögreglu
þjónar f Umferðardeildinni?
— Þegar deildin tók til starfa
Frá fyrsta sérnámskeiði lögregluskóla ríkisins. Magnús
urður E. Ágústsson varðstjóri fylgist með.
Einarsson flokksstjóri á b»*hjólinu, en Sig-
skömmu. Var þetta fyrsta sér-
námskeið lögregluskólans og
vænta yfirmenn lögreglunnar
mikils árangurs.
— Og efling deildarinnar á
næstu árum?
-attöiðíiöiiHRWin,sð, hægt yerðj,
-möT.
bIbíííV
Rætt við Ólaf Jónsson, lögreglufulltrúa m. a.
um umferðarfræðslu fyrir gangandi vegfarendur,
umferðardeild lögreglunnar, og aukið umferðar-
eftirlit í Reykjavík.
voru þar yfirleitt 8—9 menn,
og starfstími deildarinnar frá kl.
10 á morgnana til 7 á kvöldin.
Núna höfum við fjölgað mönn-
unum upp f 17 og nýlega tekið
í notkun 2 ný bifhjól. Starfs-
tíminn hefur lengst og starfar
deildin yfirleitt til 12 á kvöldin
og einnig um helgar. Þá hefur
deildin 2 til 3 bíla til afnota.
Eitt það mikilvægasta, að okkar
áliti, sem gert hefur verið til
þess að efla deildina er sérnám-
skeið, sem lögregluskóli ríkisins
hélt fyrir bifhjólamenn en
þessu námskeiði lauk nú fyrir
áð fá a. m. k. tvö ný bifhjól á
þessu ári og ef til vill einn til
tvo nýja bíla fyrir deildina, en
að sjálfsögðu er þetta allt háð
fjárveitingum. Hins vegar ef-
umst við ekki um góðan skilning
þeirra er um þá hlið málanna
sjá. Eitt bifhjól kostar t.d. eins
og meðalstór nýr bíll og talstöð
á bifhjóli kostar sennil. um 30
þús. krónur. Hvað önnur tæki
snertir bindum við miklar vonir
við komu ,radarsins“, en ekki
er ólíklegt að hægt verði að taka
hann í notkun á þessu ári.
Um bifhjólin er hægt að segja
það, að þau eru mjög hentug til
margvíslegra löggæzlustarfa,
einkum þó til þess að koma í
veg fyrir afbrot, eða varnaðar-
löggæzlu, eins og við nefnum
það, en sú löggæzla er ekki hvað
þýðingarminnst. Hins vegar er
akstur á bifhjólum stundum
erfjður á veturna og verður því
umférðaráeildin að hafa bíla til
umráða, að einhverju leyti.
Aukin umferðarfræðsla
og samstarf við
almenning.
— Er ekki umferðarfræðsla
ofarlega á dagskrá?
— Jú. umferðarfræðsla er
orðin mjög aðkallandi mál og
nauðsynlegt að auka hana. 1
mörg undanfarin ár hefur lög-
reglan farið i skólana og nú á
sl. ári var efnt til reiðhjóla-
námskeiðs fyrir börn og ungl-
inga og ráðgert er að halda slfkt
námskeið aftur nú í þessari
viku. Þá er einnig í undirbún-
ingi leiðbeiningarstarfsemi fyrir
gangandi vegfarendur, sem ætl-
unin er að hafa nú í vor. Ætlun
lögreglunnar með þessari starf-
semi er að leita samstarfs við
hinn almenna borgara og vón-
umst við til að þessi starfsemi
beri skjótan og góðan árangur.
Framh. á 4. síðu.