Vísir - 07.05.1965, Side 5
H :r
i : jlf;!
Bandarískur herniaður á verði fyrir utan sendiráðið í Santo Domingo.
VÍSTR . Föstudagur 7. maí 1965.
; O
útlönd í inorgun "útlönd í in.orgun útlönd í morgun útlönd í morgun
Líklegt að Vesturálfuríkin
stofui friSargæzlusveitir
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
frestaði í gær fundi sínum um
Dominikanska lýðveldið þar til í
kvöld, meðan frekar eru athugað-
ar gerðir sáttanefndar Vesturálfu-
ríkja, sem m.a. fjalla um stofnun
friðargæzluliðs Vesturálfuríkja,
sem taki við af Bandaríkjaliðinu í
Santo Domingo.
Ráðið hafði til umræðu tillögu
Sovétríkjanna um að ráðið fordæmi
;,hernám Bandaríkjanna í Domini-
kanska lýðveldinu“ og krefjist
þess að liðið fari burt tafarlaust.
Féllst fulltrúi Rússa á frestunina.
Til nýs áreksturs kom í gær í
Santo Domingo milli bandarísks
yarðflokks og uppreistarmanna.
'éll einn Bandaríkjahermaður og
tveir voru handteknir, en var sleppt
aftur. Bandaríkjamenn segja, að
flokkurinn hafi villzt inn á svæði
á valdi uppreistarmanna. Alls hafa
Bandaríkjamenn nú misst 10 menn
síðan þeir settu liðið á land, en
nokkrir særzt.
Bandaríkin virðast nú hafa tekið
þá afstöðu, að Vesturálfuríkin
stofni varanlegt friðargæzlulið, sem
verði haft til taks, þar sem komm-
únistar seilast til yfirráða með of-
beldi. Mun þetta verða tekið fyrir
á fundi utanríkisráðherra Vestur-
álfu-samtakanna (OAS) sem kemur
saman á fundi í Rio de Janeiro 20.
maí. Þetta var gefið í skyn, eftir
að OAS hafði samþ. að blandað
Vesturálfulið tæki við friðargæzl-
unni í Dominikanska lýðveldinu af
Bandaríkjunum.
Piltur — sfúlka
Afgreiðslustúlka og afgreiðslupiltur óskast
strax. Þurfa að vera vön.
SÍLD OG FISKUR
Hjarðarhaga 42 . Sími 19385
Símanúmerið
er 13645
Bólstrun Kristjáns Sigurjónssonar
Klapparstíg 37.
BRAUÐHUSIÐ
SNACK BAR
Því er haldið fram, m. a. til
stuðnings tillögunni um fast frið-
argæzlulið OAS, að Johnson for-
seti hafi ekki átt annarra kosta
völ en senda lið til Dominikanska
lýðveldisins, vegna þess að OAS
hafi ekkert lið haft tiltækt til þess
að hindra ofbeldi í Dominikanska
lýðveldinu I tæka tíð.
Sími 24631
Wilson
hélt
velli
Iain McLeod fyrrverandi ráð-
herra var aðalræðumaður af
hálfu íhaldsflokksins í neðri
málstofunni f gær, er umræðan
fór fram um hina hvítu bók krata-
stjórnarinnar um þjóðnýtingu stál-
iðnaðarins.
' Hann lýsti yfir þvi, að I’halds-
flokkurinn mundi fá félögum og
einstaklingum stáliðnaðinn i hend-
;tir á nv. með, sama fyrirkomulagi
óg nú undiV' eins og hánn
iæmist til valda á ný. Það yrði
eitt hans fyrsta verk að fella þjóð-
nýtinguna úr gildi, ef hún kæmist
til framkvæmda í stjórnartíð Verka
lýðsflokksins.
Það var ekki frumvarp um þjóð-
nýtingu, sem um var rætt, eins og
að ofan greinir, heldur hina opin-
beru greinargerð fyrir ákvörðun-
uninni um þjóðnýtingu. En grein-
argerðin var samþykkt með 310 at-
kvæðum gegn 306 og hélt
stjórnin þannig velli með 4 at-
kvæða mun og því mjög dregið
úr líkunum fyrir nýjum kosn-
ingum f bráð.
Wyatt, einn af „uppreistarmönn-
unum“ í flokki krata, þ.e. þeirra
sem andvígir eru stefnu stjórnar-
innar í málinu, sagði við umræð-
una f gær að ef frumvarpið yrði í
öllu í samræmi við hvítu bókina,
myndi ekki geta greitt þvf at-
kvæði
Þess er að geta, að lávarðadeildin
getur tafið framgang málsins í heilt
ár.
Segja má að Wilson hafi sigrað
í orrustu, en ekki f styrjöld. Og
um það hversu styrjöldinni um
þjóðnýtingu lyktar er enn óvissa.
Þar sem Frjálslyndir (Liberalar)
eru móti stjórninni í þessu máli
getur hún vart komið málinu fram
nema með því að allir flokksmenn
standi með henni eða þá með enn
naumari meirihluta en nú, en auka-
kosningar geta líka haft mikil á-
hrif á gang málsins. Ein aukakosn-
ing fór fram í gær, f Hall Green
kjördæmi í Birrhingham. fhalds-
flokkurinn hélt þingsætinu. Sigraði
frambjóðandi flokksins með 8.150
atkvæða meirihiuta. Hann hlaut
17.130 atkvæði, frambj. krata
8.980 og iiberala 5.122 — Miðað
við kosningaþátttöku, sem iafnan
er minni f auka- en aðalkosningum
eru íhaldsflokkurinn og Frjálslyndi
flokkurinn taldir hafa bætt að-
stöðu sína, en Verkalýðsflokkur-
inn raunverulega farið verr út úr
þeim en hinii.
Mjmdin er frá bardagasvæðinu f Santo Domingo og sýnir, að einnig
konnrnar hafa tekið sér vopn í hönd.
Atvinna óskast
Áreiðanlegur 20 ára menritaskólanemi óskar
eftir góðri atvinnu í sumar. Vanur akstri. —
Uppl. í síma 12036 í dag og á morgun
Lítil íbúð óskast
2 reglusamir bræður óska eftir 2 herbergjum
og eldhúsi. Sími 12319.
Mft hfiti ðllöidgirýtsi rt*» ,»!»*>«♦».'• «<-V
Ford Mercury '58
til sölu á tækifærisverði, ef samið er strax.
Uppl. í síma 32476 eftir kl. 7.
Aukavinna
Stúlku vantar til að gera hreinan stigagang
í fjölbýlishúsi við Sólvallagötu. Uppl. í síma
16343 eftirkl. 18.
Frá Brauðskálanum
Langholtsvegi 126
Köld borð, smurt brauð og snittur.
Sími 37940 og 36066.
Reykvíkingafélagið
heldur 25 ára afmælisfagnað að Hótel Borg
sunnudaginn 9. maí kl. 20,30.
Séra Bjarni Jónsson, forseti félagsins:
Minni Reykjavíkur.
Ýmis skemmtiatriði.
Dans. 1
Félagsmenn, fjölmennið og takið gesti með.
Stjóm Reykvíkingafélagsins.
uUUtJOl