Vísir - 08.05.1965, Síða 3

Vísir - 08.05.1965, Síða 3
V I SI R Luugard., h1úi luúúi ■ yzitrmvx* 3 mm í dag verður einn af merkari borgurum Reykjavfkur níræður. Jön Ólafsson einn af fyrri eig- endum og stofnendum fyrirtækis- ins Jón Halldórsson & Co., sem í daglegu tali manna hefur verið nefnt Gamla kompaníið og er eitt af elztu húsgagnaverkstæðum, sem starfað hafa í Reykjavík og eitt- hvað Kveðið að. Sagt hefur verið að mestmegnis hafi þar verið smíðað úr hinum dýrari efnum svo sem rauðaviði, eik, hnot og birki og húsgögnin voru í endurreisnar-1 stíl. Tíðindamaður hitti Jón á heimili sonar hans, Sörlaskjóli 12, þar sem Jón dvelur nú, til þess að eiga við hann stutt afmælisrabb. Pað var hátíðarblær í húsinu, góðir gestir höfðu komið langleið- ina frá Vesturálfu til þess að sækja afmælisbarnið heim, Ólafur, annar ÞAKKIR Hugheilar þakkir öllum þeim, skyldum og vandalausum, er heiðruðu mig á einn eða annan hátt, ljóst og leynt, á og í sambandi við 80 ára afmæli mitt 3. maí sl. og gerðu mér þessi tímamót hátíðleg. „Guð borgar fyrir hrafninn“. Steindór Björnsson, frá Gröf Bifvélavirki — Raf- vélavirki Óskum eftir að ráða mann vanan viðgerðum á rafkerfi bifreiða. Bílastilling, Hafnarbraut 2 Kópavogi. Sími 40520. Skrifstofuhúsnæði óskast Skrifstofuhúsnæði óskast ca. 100-150 ferm. frá 14. maí á góðum stað í bænum. Uppl. í síma 13760 eða 32560. Atvinna óskast Áreiðanlegur 20 ára menntaskólanemi óskar eftir góðri atvinnu í sumar. Vanur akstri. Upplýsingar í síma 12036 í dag og á morgun. VINNUSKÓLI REYKJAVÍKUR Vinnuskóli Reykjavíkur tekur til starfa um mánaðamótin maí — júní og starfar til mán- aðamóta ágúst — september. í skólann verða teknir unglingar, sem hér segir: Drengir 13 — 15 ára, og stúlkur 14 — 15 ára, miðað við 15. júlí n. k. Einnig geta sótt um skólavist drengir, sem verða 13 ára og stúlkur, sem verða 14 ára fyrir n.k. áramót. Umsækjendur á þeim aldri verða þó því aðeins teknir í skólann, að nem- endafjöldi og aðrar ástæður leyfi. Umsóknar- eyðublöð fást í Ráðningarstofu Reykjavíkur- borgar Hafnarbúðum v/Tryggvagötu, og sé umsóknum skilað þangað fyrir 20. maí n.k. Ráðningarstofa Reykjavíkurborgar. mræour af tveim sonum Jóns, ásamt konu og barni. Látleysi Jóns, ásamt glettnu og vökulu augnatilliti varð til þess að allur sá virðuleiki, sem tíðindamað- ur hafði lagt sér til í þessu tilefni fór skjótt af. Jón var fyrst spurður um uppruna sinn og uppvaxtarár. — Ég er fæddur þann 8. maí — En þínir eigin smíðisgripir? Hvað villtu segja um þá? — Það er ekki gott að segja, jú húsgögnin tsem voru í skrifstofu Matthíasar* Þórðarsonar voru eftir mig og eru nú á safninu. — Hvað myndirðu segja um smíðisgripi þá, sem gerðir eru í dag? Finnst þér þeir standa hinum á sporði?, — Ég vil ekki játa, að þeir séu fallegri núna; húsgögn voru dálítið misjöfn áður en það var alltaf svipur á þeim, en nú orðið eru þau sviplítil að mér virðist. — Hvað finnst þér annars um nútímann og unga fólkið? — Ungt fólk nú á dögum er miklu frjálegra en það var og er það sjálfsagt að nokkru leyti vel- meguninni að þakka. Já, mér lízt vel á æskuna. — Og þegar þú lítur yfir farinn vég? — Það hefur allt gengið að ósk- um. Ég er ánægður með lífið. 1875 í Lágadal á Langadalsströnd við ísafjarðardjúp, þessi sveit er alveg í eyði núna. Ólst þar upp til fermingaraldurs hjá foreldrum mínum þeim Salvöru Kristjánsdótt- ur og Ólafi Jónssyni. Árið 1890 flutti faðir minn frá Lágadal til Reykjafjarðar, Vestfjarðarsveit, þar var ég hjá föður mínum til ársins 1896 er ég fór út til Kaupmanna- hafnar til þess að nema húsgagna- smíði. — Það hefur verið óvenjulegt á þeim tíma? — Sumir vilja halda að það hafi verið djarft af sveitastrák en löng- unin til þess að nema smíðar hafði lengi búið í mér. Þarna 1 Kaup- mannahöfn dvaldist ég í níu ár og stundaði smíðar á ýmsum stöðum. Manni fannst þetta skemmtileg dvöl. Ég bjó hjá íslenzkri konu. Þar bjuggu margir I’slendingar, sem urðu góðir vinir mínir og hjálp- samir að mörgu leyti. Aldamóta- árið giftist ég í Kaupmannahöfn Guðrúnu Jónsdóttur og eignuð- umst við synina tvo þá Ottó og Ólaf. Guðrún sem var ættuð úr Axarfirðinum var þarna við verzl- unarstörf en þá var það ekki ó- algengt að ungar stúlkur íslenzkar færu til Kaupmannahafnar til dvalar um skemmri tíma. Þarna vorum við til ársins 1905, þá flutt- um við heim. — Heimþráin hefur verið farin að segja til sín? — Já, heimþráin er nú alltaf við hendina. Þrem árum eftir að heim kom var ég með að stofna firmað Jón Halldórsson & Co. með þeim Jóni Halldórssyni og Bjarna Jóns- syni frá Galtafelli, síðar kom Kol- beinn Þorsteinsson inn í fyrirtækið. Húsgagnaverkstæðið var þá á Skólavörðustíg 6, þar sem nú er Breiðfirðingabúð. Þar rákum við fyrirtækið um 40 ára skeið. Rekst- urinn gekk hægt framan af, getan var ekki mikil hjá fólki í þá daga, en jókst svo smám saman. Margir lærðu hiá okkur á þessum árum og samstarfið ,við félagana var skemmtilegt. — Hvað tók svo við eftir að fyrirt.ikið var selt? — Ég vann töluvert við Þjóð- minjasafnið við viðgerð á fornum gripum eftir að ég hætti. Ljóð laugardagsins Bjarni Ásgeirsson, sendiherra, 1891-1956: Ef ég mætti yrkja, yrkja viidi ég jörð. Sveit er sáðmanns kirkja, sáning bænargjörð. Vorsins söngvaseiður sálmaiögin hans. Blómgar akurbreiður blessun skaparans. Musterisins múra marka reginfjöil. Giitvef gróðurskúra geislar skreyta höll. Gólf hins gróna vallar grænu flosi prýtt. Hvelfing glæstrar hallar heiðið blátt og vítt. Vígjum oss í verki vorri gróðurmold, hefjum hennar merki hátt á móðurfold. Hér er helgur staður, hér sem lífið grær. íslands æskumaður, — íslands frjálsa mær. Íslandsglíman á morgun Islandsglíman verður háð á Há- logalandi á morgun og hefst hún kl. 16. Þátttakendur verða 9 frá þrem félögum og eru það flestir beztu glímumenn landsins. Þessir menn taka þátt í glím- unni: Ármann J. Lárusson, Yngvi Guðmundsson og Kristján Heimir Lárusson úr Breiðabliki, bræðurn- ir Guðmundur, Sigurður og Stein- dór Steindórssynir úr héraðssam- bandinu Skarphéðni og KR-ingarnir Sigtryggur Sigurðsson og Garðar Erlendsson. Sumarbúða- starf KR KR mun í sumar hafa sumar- búðanámskeið fyrir unga drengi á aldrinum 8S—12 ára. Eru námskeið- in tvö og stendur hvort námskeið í 2 vikur. Fyrra námskeiðið hefst 18. júní en hið síðara 2. júlí. Forstöðu- maður námskeiðsins, sem haidið er í skiðaskála félagsins í Skála- felli, er Hannes Ingibergsson, íþróttakennari. Áherzla er lögð á alls konar íþróttaiðkun, útilif, létta vinnu og gönguferðir. Nánari upplýsingar er hægt að fá í síma 13025 og 24523. V'iðavangshlaup / Kópavogi á morgun: BEZTU ÞEIR MEÐ Á morgun fer fram í Kópa- vogi keppni beztu hlaupara landsins. Það er víðavangshlaup, sem þar fer fram og er einn lið- urinn í hátiðahaldi í tilefni af 10 ára afmæli kaupstaðarins. Hlaupið hefst kl. 16.30 við gagnfræðaskólann á Digranes- vegi og endar þar, en hlaupa- leiðin er um 1700 metrar. Hlaupararnir verða 12 talsins, m. a. Kristleifur og Halldór Guðbjömssynir, Agnar Leví, Ól- afur Guðmundsson, Halldór Jó- hannesson og hinn efniiegi Kópavogsmaður Þórður Guð- mundsson. •STT" ' 'IJP V.IJ»I'IU,JJVSWWJ

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.