Vísir - 31.05.1965, Síða 6

Vísir - 31.05.1965, Síða 6
6 V í SIR . Mánudagur 31. maí 1965. Bækur þekkingar .. — 2 Framh. af bls. 9. s. frv. Hefur slikur listi sáralitla -þýðingu. Bókin hefst á birtingu stjórn- arskrárinnar í heild og f henni eru margir sérstakir kaflar fullir af fróðleik, sem hvergi er hægt að fá annars á einum stað. Hér er t. d. skrá yfir alla sem fengið hafa fálkaorðuna innlenda og erlenda menn, og innlenda menn sem fengið hafa erlend heiðurs- merki, hér er fyrsta landabréf sem ég hef séð yfir alla hreppa- skiptinu landsins, hér er skrá yfir alla opinbera sjóði nærri þúsund talsins, ýtarlegt yfirlit yfir bæjarstjómarkosningar i Reykjavík á þessari öld, hér er öll launaflokkaskipting opin- berra starfsmanna, skrá yfir alla setudaga alþingis frá því það var stofnað, skrá yfir alla doktorá við Háskólann og svona mætti lengi telja. Er vafasamt hvort nokkur bók inniheldur þvilikt tonnatal af fróðleik um hina 6- líkustu hluti. 'C’g sagði að útgáfa slíkra bóka sannaði það, að nú væri hægt að takast á við verkefni eins og alfræðiorðabók. Allur frágangur þeirra og sú vand- virkni sem á bak við liggur sýnir það og sannar og sama mátti segja að gerði íslenzka orðabókin sem Menningarsjóð- ur gaf út í fyrra. Enda er nú að því komið, að fyrsta íslenzka alfræðiorðabók- in hlaupi af stokkunum. Er nú verið að vinna að henni af full- um krafti, hjá Menningarsjóði. Áætlað er að hún verði í tveim- ur bindum, samtals nærri 2 þús. blaðsíður og komi út á næsta ári. Það er óhætt að segja, að við bíðum með eftirvæntingu eftir þeirri bók. Þ.Th. TRILLUBATA- EIGENDUR ! Hjarta bifreiðarinnar er hreyfiiiinn andlitið — er stýrishjólið Bæði þurfa að vera í góðu ástandi, en stýr- ishjólið þarf ekki að- eins að vera í góðu ástandi, það þarf einn ig að líta vel út. vm-í Það er margt hægt að gera til að fegra stýris- hjólið yðar, en betur en við gerum það, er ekki hægt að gera. Og er það hagkvæmt? - Já, hagkvæmt, ódýrt og endingargott og . . . . Viljið þér vita meira um þessa nýjung? — Spyrjið einfaldlega viðskiptavini okkar, hvort sem þeir aka einkabifreið, leigubifreið, vöru- bifreið, eða jafnvel áætlunarbifreið. Allir geta sagt yður það. — Eða hringið strax í síma 21874, við gefum yður gjaman nánari upplýsingar. Aðalfundur / V’-- ■ ••: Sölusambands ísl. fiskframleiðenda verður haldinn í Sigtúni Reykjavík föstudag- inn 18. júní n. k. og hefst kl. 10 f.h. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Stjórn Sölusambands ísl. fiskframleiðenda. Laxveiðimenn Nokkrir veiðidagar lausir í Hallá í Vindhælis- hreppi í A-Húnavatnssýslu í sumar. Verð kr. 1600,— dagurinn fyrir 2 stengur Uppl. í síma 17642 kl. 4—6 þriðjudag og miðvikudag. Verkamenn Verkamenn vanir mótauppslætti óskast strax eða sem fyrst. Sími 17642. IJí Hin sívaxandi smábátaútgerð hér á landi hefur staöfest nauðsyn þess, að trillubátaeigendur gætu tryggt báta sína. Samvinnutryggingar hófu þessa tegund trygginga fyrir nokkrum árum og var fyrsta trygginga- félagið, sem veitti þessa þjónustu. Með trillubátatryggingunum hafa skapazt möguleikar á, að lánastofnanir gætu lánað fé út á bátana og þannig hafa fleiri getað hafið þessa útgerð. Margir bátar hafa gjör- '"lagzt undanfarin ár og hafa Samvinnutryggsnar með þessu forðað mörgum frá þvs að missa átvinnufcæki sitt óbætt. Við viljum því hvetja alla trillubátaeigendur til að tryggja báta sína nú þegar. SAMVI rv NU T RYG GIN GAR ÁRMÚLA 3, SÍMI 38500 - UMBOÐ UM LAND ALLT

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.