Vísir - 10.06.1965, Blaðsíða 4

Vísir - 10.06.1965, Blaðsíða 4
liaai HfKI V í S IR . Fimmtudagur 10. júní 1965. Tánungar Laugarvatni T Tnglingaskarinn leitaði austur yfir fjall um hvíta sunnuna í uppsveitirnar. Nokkrir úr hópnum höfðu á- kveðið þetta áður — það voru þeir, sem gefa tóninn og Iáta hina hlýða, eins og forustuúlfhundar, sem stjóma heilu úlfapakki í leit að æti. Tánungamir em að reyna að gera það að hefð að blóta hvítasunnuna með frjálslegum athöfnum úti í guðs grænni náttúrunni. Enn þá hafa öræfin ekki orðið fyrir þeim ágangi. í hitt-eð- fyrra var Þjórsárdalur fyrir valinu, í fyrra Hreðavatn og nú í ár Laugarvatn, friðsam- astur friðsamra staða á Suð- urlandi. Var þeim fullorðnu það rétt mátulegt, að þetta vé væri notað til formlausra gleðileikja af þeim, sem eiga að erfa landið? TILHLÖKKUN í FORBOÐINN ÁVÖXT. Svo mikil leynd var yfir ráða- bruggi unglinganna, sem senni- lega hafa komið saman á veit- ingahúsi til þess að taka á- kvörðunina og láta hana svo berast hljóðlega til hinna og gerjast og magnast eins og til- hlökkun í forboðinn ávöxt, að lögreglan í Reykjavík og á Sel- fossi, hvað þá hreppstjórinn á sjálfu Laugarvatni, höfðu ekki fengið pata af þessu fyrr en sl. fimmtudag eða jafnvel föstudag. Laganna verðir höfðu þv£ ekki mikinn tíma til að gera nauðsyn- legar varúðarráðstafanir.... „Engispretturnar" byrjuðú að leita á staðinn þegar á föstudags kvöld — könnunarsveitin — en EFTIR STEINGRÍM SIGURÐSSON hvítasunnu á á laugardaginn upp úr hádeginu fóru þeir að koma I hópum — þeir beinlínis helltust yfir stað- inn. Þeir komu einkum tvær leið ir — ýmist um Grímsnesið eða gegnum Þingvöll og þaðan leið- ina sem almennt er kölluð Lyng- dalsheiði. Veðrið var hvorki vont né gott um daginn — stund um dró fyrir sólu og svört regn- ský birtust á himni. Um morg- uninn og daginn áður hafði rignt — og nú var hann farinn að blásá af norðri. FJÖRUTÍU KRÓNA TJALDTOLLUR Tánungarnir óku framhjá húsa röðinni við aðalveginn og marg- ir fóru mikinn. Þeir héldu eins og leið liggur inn í dalinn og innan við hliðið um 5-600 metra frá útjaðri þorpsins, slógu þeir upp tjöldum — þeir, sem nenntu, í skóglendinu við rætur Laugar- vatnsfjalls, sem tilheyrir Laug arvatnsjörð. Þetta land átti Böðvar Magnússon, þar til hann gaf Héraðsskólímum það (,,ves- gú“) fyrir nokkrum árum. Og nú hefur landið verið tekið á leigu af Þorkeli Bjarnasyni (skólastjóra), Og hönum urðu börnin að greiða toll — krónpr fjörutíu á hvert tjald fyrir af- not af því, sem þessi tveggja — þriggja kílómetra spilda hef- ur upp á að bjóða: fagurlimaðar birkihríslur, góðar lautir og þægileg hvörf og lækjarspræn- ur. Jón fjósameistari Þorkels bónda var tollheimtumaður og gekk skelleglega fram í því að láta gleðilýðinn gjalda fyrir keis arans skegg. STftÁHATTAR OG SVÖRT BÓFAGLERAUGU. Upphófst fagnaðurinn að hætti aldursskeiðsins 13-18 ára. Þessir vanabundnu tilburðir: Stórum geneverbrúsum var Svona komu þeir út úr skógarþykkninu. Eins og lítil dýr^ sem hópuðust saman. hampað á loft — bítlatónar rufu kyrrðina — öskur og vein fylgdu í kjölfarið. Hljóðkútslaus trylli- tæki spóluðu f forinni — hríslur brotnuðu eins og eldspýtur — brothljóð í gleri. Fáklæddar hnákur rneð trippaklippingu dillúðu sér undir "bít-t'órifalliliÖ — stráhattar o'g svört' bófagler- augu gægðust úr leyni í frum- skóginum og kannski ekkert annað á bak við — þetta var algeng sjón, þegar ekið var gegnum skógarrjóðrið. Einstaka stimpingar, en enginn slasaður enn. Þannig var umhorfs við Laugarvatn um níu leytið á laug ardagskvöldið. Svo fór pinulítið að kárna I ári. Lögreglan hafði gætt staðar- ins frá bví fyrr um daginn. Sel- fosslögreglan hvarf fljótlega af staðnum, og upp frá þvi tók Reykjavíkurlögreglan alveg við löggæzlunni. Páll Eiríksson ivarð stjóri var þarna við þriðja mann Tánungi negldur niður og sendur snður af reykvísku lögreglunni (myndir tók greinarhöfundur). í jeppabifreið, og þarna var Arn þór Ingólfsson í vegalögreglunni á Volvo-Amazon með tveim karbúratorum, ef ske kynni, að þyrfti að hafa hraðan á. Skátar úr Reykjavík höfðu siegið upp tjaldbúðum niðri á flöt fyrir neð an veg — þeir önnuðust sjúkra- hjálp og veittu aðra aðstoð. BLESSUÐ LITLU BÖRNIN VERÐA ÞREYTT. Dumbungur var — það hafði sín áhrif: Þreytan tók að gera vart við sig. 1 stað fjörs hlupu óeðlilegir ölvunarkippir í tán- ungana eins og hjá fiskum, sem hanga á önglum'og berjast um í vatninu. Blessúð litlu börnin voru nú komin langt frá pabba og mömmu — og lítið að borða hjá sumum. Búðin — útibú Kaupfélags Árnesinga var opin en ungviðið hafði ekki rænu á að kaupa sér harðfisk og brauð þar: það fékk sér bara slikkerí og sætakex og annað rusl og svo náttúrulega blandara. „TVÖ LÍK“ OG FIMMTÁN VEGLAUSIR. Nóttin seig yfir skóginn. Það var komin þoka um lág- nættið. Nokkur tjöld féllu niður en seglið bærðist til og frá eins og eitthvað lifandi væri þar inni i. Skátarnir höfðu nóg að gera — einn þeirra sagðist ekki muna eftir öðru eins. Það þurfti að gera að sárum — tveir höfðu hreinlega rotazt. Annar fengið spark í höfuðið. Það voru ,líkin tvö‘, sem lögregi an talaði um að þyrfti að hirða og senda i bæinn að viðbættum veglausum og villuráfandi sauð- um, 15 talsins, sem höfðu gert ýmislegt af sér eða áttu hvergi höfði sfnu að að halla og voru yfir komnir af armæðu vegna ölvunar. Einhverjir höfðu stolið bát og farið út á vatn. Það kom ekki fyrir oftar þessa daga — allir bátar voru fjarlægðir og strangt eftirlit haft með vatninu eins og öðru' á siðmenningarsvæðinu sem tilheyrir íbúum staðarins. AÐG -ÐIR REYKVÍSKU LÖGREGLUNNAR Lögreglan lokaði fyrir allt ráp inn í plássið fljótlega eftir að kaupfélaginu var lokað kl. ellefu Einar útibússtjóri seldi fyrir kr. '32 þús. það kvöld. Hvitasunnudagurinn rann upp bjartur og fagur. Þá var vinið þegar tekið að minnka — þó höfðu nokkrir komið Krísuvíkur leiðina með bannvöruna. Sumir höfðu jafnvel haft önnur ráð — þeir, sem komu hættulegu leið- irnar —þeir höfðu t.d. verið svo hugkvæmnir að geyma áfengið í rúðupissbrúsanum í vélarhús- inu. Nú fór verzlun að aukast hjá K.Á. Um kvöldið hafði selzt fyrir kr. 72 þúsundir. Þann dag voru tveir fárveikir unglingar fluttir suður í skyndingu — annar þeirra þurfti súrefnisgjöf. Óskar Ólason varðstjóri var nú kominn með lið sitt, en um kvöldið var hann leystur af hólmi af Bjarka Elíassyni og hans mönnum. Þessir lögreglu- menn voru alltaf á sóli um svæð ið og leystu skyldustörf af hendi af einstakri lagni. „MONDO CANE“ Mörgum Laugarvatnsbúum varð lítt svefnsamt þessa hvíta- sunnu. Þetta raskaði ró þeirra: Þeir áttu ekki von á þessu frem ur en skriðunni í hitt-eð-fyrra. Og engir botnuðu £ þvi, að þetta skyldi leyft. Spjöllin í skóginum — friðlýstu landi — voru meiri en orð fá lýst. Á mánudags- kvöld voru engispretturnar flognar af staðnum. 200 tjöld voru felld — þar af sextíu i Snorrastaðalandi — 700 ungling ar héldu til síns heima, niður- lútir flestir hverjir, flestir hnípn ir og illa á sig komnir. Um nóttina var ekkert kvikt í skóginum nema litlu lömbin með mæðrum sínum, sem gengu á flöskubrotum, sem lágu þarna eins og sprengjubrot á vígvelli. Eitt úrbrætt tryllitæki, fölgrátt, kúrði þarna ofan á brotnum hríslum, viðskila við eigandann, eins og fylgja við fóstur. „Þetta var hálfgert Mondo Cane,“ sagði skynugur menntl- ingur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.