Vísir - 10.06.1965, Side 4
liaai
HfKI
V í S IR . Fimmtudagur 10. júní 1965.
Tánungar
Laugarvatni
T Tnglingaskarinn leitaði
austur yfir fjall um hvíta
sunnuna í uppsveitirnar.
Nokkrir úr hópnum höfðu á-
kveðið þetta áður — það
voru þeir, sem gefa tóninn
og Iáta hina hlýða, eins og
forustuúlfhundar, sem
stjóma heilu úlfapakki í leit
að æti. Tánungamir em að
reyna að gera það að hefð
að blóta hvítasunnuna með
frjálslegum athöfnum úti í
guðs grænni náttúrunni. Enn
þá hafa öræfin ekki orðið
fyrir þeim ágangi. í hitt-eð-
fyrra var Þjórsárdalur fyrir
valinu, í fyrra Hreðavatn og
nú í ár Laugarvatn, friðsam-
astur friðsamra staða á Suð-
urlandi. Var þeim fullorðnu
það rétt mátulegt, að þetta vé
væri notað til formlausra
gleðileikja af þeim, sem eiga
að erfa landið?
TILHLÖKKUN í FORBOÐINN
ÁVÖXT.
Svo mikil leynd var yfir ráða-
bruggi unglinganna, sem senni-
lega hafa komið saman á veit-
ingahúsi til þess að taka á-
kvörðunina og láta hana svo
berast hljóðlega til hinna og
gerjast og magnast eins og til-
hlökkun í forboðinn ávöxt, að
lögreglan í Reykjavík og á Sel-
fossi, hvað þá hreppstjórinn á
sjálfu Laugarvatni, höfðu ekki
fengið pata af þessu fyrr en sl.
fimmtudag eða jafnvel föstudag.
Laganna verðir höfðu þv£ ekki
mikinn tíma til að gera nauðsyn-
legar varúðarráðstafanir....
„Engispretturnar" byrjuðú að
leita á staðinn þegar á föstudags
kvöld — könnunarsveitin — en
EFTIR STEINGRÍM
SIGURÐSSON
hvítasunnu á
á laugardaginn upp úr hádeginu
fóru þeir að koma I hópum —
þeir beinlínis helltust yfir stað-
inn. Þeir komu einkum tvær leið
ir — ýmist um Grímsnesið eða
gegnum Þingvöll og þaðan leið-
ina sem almennt er kölluð Lyng-
dalsheiði. Veðrið var hvorki
vont né gott um daginn — stund
um dró fyrir sólu og svört regn-
ský birtust á himni. Um morg-
uninn og daginn áður hafði
rignt — og nú var hann farinn
að blásá af norðri.
FJÖRUTÍU KRÓNA
TJALDTOLLUR
Tánungarnir óku framhjá húsa
röðinni við aðalveginn og marg-
ir fóru mikinn. Þeir héldu eins
og leið liggur inn í dalinn og
innan við hliðið um 5-600 metra
frá útjaðri þorpsins, slógu þeir
upp tjöldum — þeir, sem nenntu,
í skóglendinu við rætur Laugar-
vatnsfjalls, sem tilheyrir Laug
arvatnsjörð. Þetta land átti
Böðvar Magnússon, þar til hann
gaf Héraðsskólímum það (,,ves-
gú“) fyrir nokkrum árum. Og
nú hefur landið verið tekið á
leigu af Þorkeli Bjarnasyni
(skólastjóra), Og hönum urðu
börnin að greiða toll — krónpr
fjörutíu á hvert tjald fyrir af-
not af því, sem þessi tveggja
— þriggja kílómetra spilda hef-
ur upp á að bjóða: fagurlimaðar
birkihríslur, góðar lautir og
þægileg hvörf og lækjarspræn-
ur. Jón fjósameistari Þorkels
bónda var tollheimtumaður og
gekk skelleglega fram í því að
láta gleðilýðinn gjalda fyrir keis
arans skegg.
STftÁHATTAR OG SVÖRT
BÓFAGLERAUGU.
Upphófst fagnaðurinn að
hætti aldursskeiðsins 13-18 ára.
Þessir vanabundnu tilburðir:
Stórum geneverbrúsum var
Svona komu þeir út úr skógarþykkninu. Eins og lítil dýr^ sem hópuðust saman.
hampað á loft — bítlatónar rufu
kyrrðina — öskur og vein fylgdu
í kjölfarið. Hljóðkútslaus trylli-
tæki spóluðu f forinni — hríslur
brotnuðu eins og eldspýtur —
brothljóð í gleri. Fáklæddar
hnákur rneð trippaklippingu
dillúðu sér undir "bít-t'órifalliliÖ
— stráhattar o'g svört' bófagler-
augu gægðust úr leyni í frum-
skóginum og kannski ekkert
annað á bak við — þetta var
algeng sjón, þegar ekið var
gegnum skógarrjóðrið. Einstaka
stimpingar, en enginn slasaður
enn. Þannig var umhorfs við
Laugarvatn um níu leytið á laug
ardagskvöldið.
Svo fór pinulítið að kárna I
ári.
Lögreglan hafði gætt staðar-
ins frá bví fyrr um daginn. Sel-
fosslögreglan hvarf fljótlega af
staðnum, og upp frá þvi tók
Reykjavíkurlögreglan alveg við
löggæzlunni. Páll Eiríksson ivarð
stjóri var þarna við þriðja mann
Tánungi negldur niður og sendur snður af reykvísku lögreglunni (myndir tók greinarhöfundur).
í jeppabifreið, og þarna var Arn
þór Ingólfsson í vegalögreglunni
á Volvo-Amazon með tveim
karbúratorum, ef ske kynni, að
þyrfti að hafa hraðan á. Skátar
úr Reykjavík höfðu siegið upp
tjaldbúðum niðri á flöt fyrir neð
an veg — þeir önnuðust sjúkra-
hjálp og veittu aðra aðstoð.
BLESSUÐ LITLU BÖRNIN
VERÐA ÞREYTT.
Dumbungur var — það hafði
sín áhrif: Þreytan tók að gera
vart við sig. 1 stað fjörs hlupu
óeðlilegir ölvunarkippir í tán-
ungana eins og hjá fiskum, sem
hanga á önglum'og berjast um
í vatninu. Blessúð litlu börnin
voru nú komin langt frá pabba
og mömmu — og lítið að borða
hjá sumum. Búðin — útibú
Kaupfélags Árnesinga var opin
en ungviðið hafði ekki rænu á
að kaupa sér harðfisk og brauð
þar: það fékk sér bara slikkerí
og sætakex og annað rusl og
svo náttúrulega blandara.
„TVÖ LÍK“ OG FIMMTÁN
VEGLAUSIR.
Nóttin seig yfir skóginn.
Það var komin þoka um lág-
nættið. Nokkur tjöld féllu niður
en seglið bærðist til og frá eins
og eitthvað lifandi væri þar
inni i. Skátarnir höfðu nóg að
gera — einn þeirra sagðist
ekki muna eftir öðru eins.
Það þurfti að gera að sárum —
tveir höfðu hreinlega rotazt.
Annar fengið spark í höfuðið.
Það voru ,líkin tvö‘, sem lögregi
an talaði um að þyrfti að hirða
og senda i bæinn að viðbættum
veglausum og villuráfandi sauð-
um, 15 talsins, sem höfðu gert
ýmislegt af sér eða áttu hvergi
höfði sfnu að að halla og voru
yfir komnir af armæðu vegna
ölvunar.
Einhverjir höfðu stolið bát og
farið út á vatn. Það kom ekki
fyrir oftar þessa daga — allir
bátar voru fjarlægðir og strangt
eftirlit haft með vatninu eins og
öðru' á siðmenningarsvæðinu
sem tilheyrir íbúum staðarins.
AÐG -ÐIR REYKVÍSKU
LÖGREGLUNNAR
Lögreglan lokaði fyrir allt ráp
inn í plássið fljótlega eftir að
kaupfélaginu var lokað kl. ellefu
Einar útibússtjóri seldi fyrir kr.
'32 þús. það kvöld.
Hvitasunnudagurinn rann upp
bjartur og fagur. Þá var vinið
þegar tekið að minnka — þó
höfðu nokkrir komið Krísuvíkur
leiðina með bannvöruna. Sumir
höfðu jafnvel haft önnur ráð —
þeir, sem komu hættulegu leið-
irnar —þeir höfðu t.d. verið svo
hugkvæmnir að geyma áfengið
í rúðupissbrúsanum í vélarhús-
inu. Nú fór verzlun að aukast
hjá K.Á. Um kvöldið hafði selzt
fyrir kr. 72 þúsundir. Þann dag
voru tveir fárveikir unglingar
fluttir suður í skyndingu —
annar þeirra þurfti súrefnisgjöf.
Óskar Ólason varðstjóri var
nú kominn með lið sitt, en um
kvöldið var hann leystur af
hólmi af Bjarka Elíassyni og
hans mönnum. Þessir lögreglu-
menn voru alltaf á sóli um svæð
ið og leystu skyldustörf af
hendi af einstakri lagni.
„MONDO CANE“
Mörgum Laugarvatnsbúum
varð lítt svefnsamt þessa hvíta-
sunnu. Þetta raskaði ró þeirra:
Þeir áttu ekki von á þessu frem
ur en skriðunni í hitt-eð-fyrra.
Og engir botnuðu £ þvi, að þetta
skyldi leyft. Spjöllin í skóginum
— friðlýstu landi — voru meiri
en orð fá lýst. Á mánudags-
kvöld voru engispretturnar
flognar af staðnum. 200 tjöld
voru felld — þar af sextíu i
Snorrastaðalandi — 700 ungling
ar héldu til síns heima, niður-
lútir flestir hverjir, flestir hnípn
ir og illa á sig komnir.
Um nóttina var ekkert kvikt
í skóginum nema litlu lömbin
með mæðrum sínum, sem gengu
á flöskubrotum, sem lágu þarna
eins og sprengjubrot á vígvelli.
Eitt úrbrætt tryllitæki, fölgrátt,
kúrði þarna ofan á brotnum
hríslum, viðskila við eigandann,
eins og fylgja við fóstur.
„Þetta var hálfgert Mondo
Cane,“ sagði skynugur menntl-
ingur.