Vísir - 10.06.1965, Page 5
V í SIR . Fimmtudagur 10. júní 1965,
útlönd í
morgiin
utlönd 1 áorgun
utlönd i raorgun
utlönd í morgun
Yeríhrun í Wall Street vegna
orðróms um hjartabilun Johnsons
Ný tilkynning um „nýju stefnunu" —
ný óföSI í Vietnumsty rjöldinni
Birt ■ var tilkynning í morgun
ftá George Buridey einkalækni
Lyndon B. Johnsons forseta, þess
efnis, að orðrómur um að forsetinn
hefði fengið hjartaslag eða snert
af hjartaslagi, hefði ekki við
neitt að styðjast. Forsetinn væri
við beztu heilsu. Um þetta sann-
færðust fréttamenn, er þeir sáu
forsetann ganga hressilegan í
þragði til skrifstofu sinnar.
Orðrómurinn vakti vitanlega
gífurlega athyglí, en eins og kunn
ugt er hefir forsetinn kennt hjarta
bilunar fyrr, en náði sér fyllilega.
Alltaf hafa -menn þó haft nokkum
beyg af þvi síðar, að m'ikil á-
reynsla í forsetaembættinu kynni
að hafa alvarleg áhrif á heilsu for
setans.
Þegar er fréttin barst varð nokk
ur lækkun á verðbréfum í kaup-
höllinni í Wall Street, en þegar
tilkynning Burkleys var birt hækk
uðu þau aftur.
Nærri samtímis og þetta var að
gerast var birt ný tilkynning frá
Hvíta húsinu, grein'ilega til þess
að draga úr áhrifum tflkynningar-
innar sem áður var birt og gaf til
efni til þess, að almennt var litið
svo á, að ný stefna væri kominn
til sögunnar f Vietnam, — þ. e.
að Bandaríkjaherliðið myndi nú
taka sér stöðu við hlið stjómar-
hersins í Vietnam. Var þetta köll-
uð hin nýja stefna.
í tilkynningunni segir, að ekki sé
um breytta stefnu að ræða — meg
inhlutverk bandaríska liðsins sé að
verja herstöðvar og aðrar stöðvar
Bandaríkjkmanna, líf og eignir, en
koma til liðs við stjórnarhersveitir
þegar þær séu slíks stuðnings
þurfi og um slíka aðstoð sé beðið.
Fyrri tilkynning, sem skilin var
svo að um víðtækari hernaðarað-
gerðir yrði að ræða hér eftir og
nánara samstarf, var frá utanríkis
ráðuneytinu. Var mikið rætt um
allan heim um hina nýju stefnu, og
var tilkynningin talin staðfesting á
því, að hún væri komin til sögunn-
ar. Hún gaf og öldungadeildarþing
manninum Wayne Morse ástæðu til
að lýsa yfir, að nú væri háð banda-
rísk styrjöld í Vietnam. Heimsblöð
in birtu um þetta allt hverja frétt-
ina af annarri.
VIETCONG 1 SÓKN.
Það hefur verið búizt við mikilli
sókn Vietcong að undanförnu og
var litið svo á að fyrri bandaríska
tilkynningin hefði einmitt verið birt
nú í byrjun regntímans, er vænta
mátt sóknar Vietcong, til þess að
sannfæra kommúnista um, að nú
yrði sameiginlegum herafla Banda-
ríkjanna og Suður-Vietnam að
mæta.
Neðan á Gemini IV voru sjálfvirkar myndatökuvélar, sem notaðar voru er White var á geimgöngu sinni.
Kvikmynd af ; henni hefur verið sjónvarpað.
Judy Holliday er látin 42 ára að
aldri. Henni var falið hlutverkið
Billie Dawn í „Fædd í gær“, er það
var frumsýnt í Fíladelfíu, og fékk
hlutverkið vegna veikinda Jean Art
hurs. Judy lærði hlutverkið á 3 dög
um og hóf það til aukins vegs og
vinsælda. — Judy Holliday hlaut
Oscarsverðlaun 1951. Hún lék í
allmörgum kvikmyndum. — Mikla
athygli vakti, er Judy var kvödd
fyrir nefnd f öldungadeildinni 1952,
nefnd þá, sem rannsakaði „óamer-
fska starfsemi". Hún neitaði, að
hún væri kommúnisti.
Johnson forseti
SÓKNIN HAFIN?
Ef til vill er þessi sókn þegar
hafin. Fréttir í morgun hermdu, að
Vietcong-lið hefði vaðið yfir bæ
nokkurn 90 km. fyrir norðan Saig-
on og hluta af bandarískri herstöð
skammt frá. Flugbraut munu Viet-
cong-liðar einnig hafa náð á sitt
vald. Líklegt er, að báðir aðilar hafi
orðið fyrir miklu manntjóni.
LIÐ ÁSTRALÍUMANNA
OG NÝSJÁLENDINGA.
Það vakti ekki litla athygli er
Robert Menzies, forsætisráðherta
Ástralíu, sagði við fréttamenn I
Washington, nýkominn af fundi
með Johnson forseta, að Ástralíu-
menn myndu berjast við hlið stjórn
arhermanna f Vietnam, tók sem sé
alveg „sömu línu“ og var í tilkynn-
ingu utanríkisráðuneytisins sem
fyrr var um getið. Ástralfa hefir nú
900 manna lið í grennd við Saigon.
Hins vegar hefir Holyoke forsæt
isráðherra Nýja Sjálands lýst yfir,
að stórskotaliðið, sem komið er til
Suður-Vietnam frá Nýja Sjálandi,
muni ekki taka þátt f sóknaraðgerð
um, nema samkvæmt beinum fyrir
skipunum frá stjóm Nýja Sjálands.