Vísir - 10.06.1965, Qupperneq 6
»
VÍSIR . Fimmtudagur 10. júní 1965.
Bókouppboð —
Framh. af bls. 16
Hallgrímur Thomsen býr i mestu
bókagötu Kaupmannahafnarborgar,
Fiolstræde, þar sem hver fornbóka-
verzlunin er við hliðina á annarri.
Það hefði þvl verið hægt um vik
fyrir hann að selja bækurnar þar,
en hann sagði að þær ættu heima á
fslandi og yrðu þangað að komast.
Þess vegna bað hann Sigurð Bene
diktsson að selja þær fyrir sig, og
bað gerði hann í gær.
Flestum sem staddir voru á upp-
boðinu í gær ber saman um það
að bækur hafi farið þar á jafn
hærra verði heldur en dæmi eru
til á fslenzkum bókamarkaði áður,
og varla nokkur bók 'farið þar und-
ir sannvirði, sem stundum kemur
þó fyrir á bókauppboðum.
Því miður voru sum hin dýrustu
og merkustu rit, sem þarna voru
á boðstólum ekki heil og í sum vant
aði meira eða minna. Meðal þess-
ara rita voru Lærdómslistafélags-
ritin sem seld voru á 20 þús. kr.
íslenzkt fornbréfasafn (aðeins til
1907) á 5 þús. kr. Sýslumannaævir
(3 fyrstu bindin) 11500 kr. Árbók
hins fsl. fomleifafélags (til 1904)
5 þús. kr. Ný félagsrit (vantaði all
ar myndir) 10.500,00 kr. Ferðabók
Olavfusar (vantaði kort og 2 töfl-
ur) 12 þús. kr. Ferðabók Eggerts
og Bjama (vantaði kortið) 9 þús.
kr. Hirðir I-m, (vantaði framan og
aftan af og auk þess titilblað á 2.
bindið) 5.500.00 kr. Klausturpóstur
kr. 4.500,00.
Verð á öðmm tímaritum og safn-
ritum sem þarna vom til sölu var
yfirleitt nokkuð hátt m.a. var Sunn
anfari seldur á 7500 kr. Heimdallur
á kr. 5900. Iðunn I-VII 2800 kr. Al-
manak Þjóðvinafélagsins (til 1908)
5100 kr. Árbækur Espólíns 12 þús.
kr. Vinagleði Magnúsar Stephensen
5 þús. kr. Sunnanpósturinn 4000,
Reykjavíkurpósturinn 3200, Búnað-
arrit Suður amtsins 1550 kr. Bóndi
kr. 1600.
Á uppboðinu var margt ferða-
bóka, sem flestar fóru á dýru verði,
tiltölulega dýrast þó blaðagreinar
og úrtök. Þannig fór t.d. úrtak úr
tímariti með grein eftir Horrebow i
á hvorki meira né minna en 3300
kr., tímaritsgrein eftir Karl Sapper
á 1100 kr. og fuglagrein eftir A.
Newton á 1500 kr.
Verzlunar- og hagfræðibæklingar
fóm yfirleitt dýrt, dýrastnr þó sá
sem minnst snerti Island „PhUocos
mus“ á 4500 kr., en f þvf riti er að-
eins kafli um Island.
Útvarpshús —
Framhald af bls. 1.
rannsókn og atfiugun á hentugu
húsnæði fyrir íslenzka sjónvarp
ið. Hafa mörg hús verið skoðuð.
Nú er líklegt að ákvörðun verði
tekin eftir fáeina daga í málinu
og er það stórbygging innarlega
við Laugaveginn sem helzt kem
ur til greina. Þar verður sjón-
varpið til húsa fyrst um sinn að
minnsta kosti.
— Og hvenær teljið þér að
íslenzka sjónvarpið geti hafið
starfsemi sína?
— Á næsta ári. Og það er von
okkar að það geti orðið fremur
fyrri hluta ársins en síðari. Und
irbúningur allur gengið vel,
tæknihjálp og vélar yerið fengn
ar frá Norðurlöndum og þaðan
hafa komið sérfræðingar okkur
til ráðuneytis.
— Hvað verður dagskráin
löng?
— Tveir tímar til að byrja
með, eða rúmlega það.
— Hvenær ráðið þér sjón-
varpsstjóra, þ.e.a.s. dagskrár-
stjóra og starfsfólk sjónvarps-
ins?
— Það verður nú á næstunni,
alls um 30 manna starfslið. í
athugun er nú um launaflokka-
skipun hins íslenzka sjónvarps-
fólks en senn verða stöðurnar
auglýstar lausar. til .umsóknar.
n,^íðan verður starfsliðið sfint ut-
an til Norðurlanda til þjálfunar
og öflunar reynslu í sjónvarps-
málum.
— Og hvernig haldið þér að
íslenzka sjónvarpið standi sig
í samkeppninni við það banda-
ríska? Viljið þér láta loka því?
— Við skulum bíða með það
í bili að ræða það efni.
Aukaaðalfundur K.D.R.
verður haldinn á Hótel Skjaldbreið miðvikudaginn
16. júní og hefst kl. 20.30.
DAGSKRÁ:
L Kosinn fundarstjóri og fundarritari.
2. Stjómarkreppa
3. Gefið yfirlit yfir fjárhag fráfarandi stjórnar.
4. Kosinn formaður og 4 menn í aðalstjórn og 2
menn í varastjóm.
5. önnur mál.
ADk dómarar innan K.D.R. velkomnir.
Knattspyrnuráð Reykjavíkur
Notað timbur
Til sölu gott notað timbur mjög ódýrt. 2x4 og
2.5x6, panel, þakjárn o.fl. Uppl. í síma 24954
og í síma 21673 eftir kl. 7 á kvöldin.
NÝTT AflAMET
Um 200 skip komin ó miiin
Um 200 skip eru nú komln á síld
armiðin, en að minnsta kosti álfka
mörg og I fyrra munu stunda veið
amar (þá 233).
Nýtt síldveiðimet var sett sein-
asta sólarhring — 52 skip fengu
samtals 58.550 mál. Miðað er við
sólarhringinn frá kl. 7 f gærmorgun
til kL 7 f morgun. Aflinn reyndist
þannig öllu meiri en sólarhringinn
næsta á undan, en hann vaf bezti
afla-sólarhringurinn frá upphafi síld
arvertíðarinnar við Austurland.
Aflinn fékkst svo til á sömu veiði
slóðum, út af Langanesi, aðeins
vestar og norðvestar þó.
Gott veður var á síldarmiðunum
sl. sólarhring og góð veiði 140 míl-
ur austur frá Rauðanúp. Allar þrær
sfldarverksmiðja á Austurlandi eru
nú fullar og halda nær öll skipin
til Eyjafjarðarhafna eða Siglufjarð
ar. Samtals voru 52 skip með 58.
550 mál.
Sólfari 1200, Svanúr ÍS 800, Hilm
ir 450, Gjafar 1450, Björn Jónsson
100, Hafrún NK 600, Gnýfari 200,
Hannes Hafstein 1700, Björg NK
900, Bára SU 900. Náttfari 1000,
Grótta 1400, Eldborg 1500, Ásbjörn
1500, Akraborg 1400, Snæfell 1500,
Mummi 900, Vonin 1250, Pétur Sig
urðsson 1200, Halldór Jónsson 950,
Stígandi OF 350, Súlan 1500, Pétur
Jónsson 500, Fróðaklettur 1600,
Sunnutindur SU 900, Arnfirðingur
1200, Halkion 1500, Baldur EA 700,
Straumnes 500, Gunnhildur 500,
Haraldur 1600, Björgvin 1650, Guð-
björg OF 850, Bjarmi II. 1700, Sigl-
firðingur 1650, Björgúlfur EA 600,
Skírnir 800, Bjartur 1800, Hrafn
Sveinbj. III. 1300, Gylfi II. 400, Ás-
þór 1200, Þorbjörn II. 1450, Hafrún
1800, Hamravík 1450, Guðbjörg GK
1300, Guðm. Péturs 1500, Oddgeir
1300, Eldey 1100, Fagriklettur 900,
Runólfur 1000, Guðrún GK 1600,1 Guðrún Guðlaugsd. 1600.
Loftíeiðir bjóða hingað
bandarískum blaðam.
Fimmtán bandarískir blaðamenn,
karlar og konur, koma hingað 16.
þ.m. að morgni í boði Loftleiða og
fara héðan 20. þ.m.
Loftleiðir hafa sem kunnugt er
margsinnis á undanförnum árum
boðið hingað gestahópum, m.a.
blaðamönnum frá Ameríku og
Evrópulöndum, til þess að kynna
þeim starfsemi félagsins, landið og
þjóðina. Blaðamennirnir eru frá víð
kunnum blöðum og fréttastofnun-
um.
Blaðamennirnir sem koma að for
fallalausu, eru þessir (nafn hvers
Róleg hvítasunnuhelgi
t gp irP!
íiiéfna <r á*I ifignibnsl --luíasV illim
Hvítasunnuhelgin var hin róleg
asta i BorgarfirÖi og þar fór allt
fram með hinni mestu ró og spekt
að því er Ásgeir Pétursson sýslu-
maður í Borgarnesi tjáði Visi í
gær.
Tíðindamaður Vísis innti frétta
hjá sýslumanni m.a, út af þeim
orðrómi sem komst á kreik að
unglingar úr Reykjavík hefðu gert
sér ferð upþ í Borgarfjörð til að
grafa áfengi í jörð ,er síðan yrði
nótað til að gæða sér á um hvíta-
sunnuna.
Sýslumaður svaraði því • til að
hvítasunnuhelgin hefði á allan hátt
farið friðsamlega fram og hvergi
nokkurs staðar verið kvartað und-
an ölvun, óspektum eða ágangi
fólks. Hins vegar sagði hann að
geysimikil umferð hefði verið víðs-
vegar I héraðinu, þangað hafi
streymt urmull aðkomufólks, en
það hafi allt verið aufúsugestir
sem í. einu og öllu hafi komið vel
og kurteislega fram, sjálfu sér og
byggðinni til sæmdar.
n3
hf*> 1 msrt'-
blaðs í sviga fyrir aftan nafnið).
1. Howard Apter (Travel Agent
Magazine). 2. Joseph Carter (Aviat
ion Week Magazine). 3. Mfs. de
Furia, Barbara Belford (New York
Herald Tribune.) 4. Larry Fried
(Parade Magazine). 5. Albert Hugh-
es (Christian Science Monitor). 6.
Nick Karas (True Magazine). 7.
Mrs. Melissa McLaird-Mcgowan
(aðstoðarmaður Fried nr. 4.) 8. Ed-
ward T. Majeski (United Press
Newspictures), 9. M. Maury Nort-
on (New York Post). 10. Miss Franc
es Shemanski (New York Journal
American). 11. Miss Mary Strass-
meyer (Cleveland Plain-Dealer). 12.
James H. Vinehester (Readers- Dig-
est New York Times). 13. Miss
Nancy Winters (Today’s Secretary
Magazine). 14. George E. McGrath
(Loftleiðir U.S. kynningarstjóri). 15.
Jofin,J. Loughery (Loftleiðir U.S.
sölustjóri).
Farsklpia
unhald at bls. I.
í dag og lestar síðan saltfisk á
Austfjarðahöfnum og víðar til
Englands. M. a. fer skipið inn
ttl Grindavikur, en það mun
vera fyrsta íslenzka fraktskip-
ið sem fer þar inn. Herjólfur
er eina sl...j Ríkisskip í Reykja
víkurhöfn og fer skipið kl. 21
í kvöld til Vestmannaeyja og
Hornafjarðar.
Iðnaðarhúsnæði
150 ferm. iðnaðarhúsnæði á jarðhæð til leigu,
tilvalið bílaverkstæði. Sími 23942 kl. 7-8
í kvöld.
LÓAN tilkynnir
Nýkomnar amerískar eftirtaldar vörur í úrvali:
Telpna- og drengjajakkar og blússur — Ny-
lonúlpur á 1—6 ára — Sólföt fyrir telpur og
drengi — Skriðbúxur — Sokkabuxur —
Pólóbolir.
Höfum einnig telpnakjóla, aldur 1-14 ára
í úrvali o.fl. vörur.
BARNAFATAVERZL. LÓAN
Laugavegi 20B (gengið inn frá Klapparstíg
móti Hamborg).
Reiðhjól
Ný ódýr reiðhjól fyrir drengi og telpur.
LEIKNIR s/f Melgerði 29, Sogamýri. Sími
35512.
MIÐSTÖÐVAKATLAR
Miðstöðvakatlar 3-4-6 ferm. að stærð með tilheyrandi kynditækjum
óskast. Uppl. í síma 50449.
íi*íSl
a