Vísir - 19.06.1965, Qupperneq 2
SíÐAN
GINA LOLLOBRIGIDA neitaði
í fyrradag harðlega fyrir rétti
I Rómaborg að hún hefði lát'ið
kviktnynda sig nakta. „Ég not-
aði föt sem féllu þétt að mér
og voru í sama lit og hörundið"
var svar hennar við ákærunum
Vandræðin upphófust skömmu
eftir frumsýninguna á mynd-
'inni „Brúðumar." (The Dolls).
í myndinni leikur Gina hlut
verk hótelhaldara, sem flekar
frænda biskups nokkurs.
Þegar La Lollo birtist við
byggingu réttarins biðu hennar
meira en 50 blaðaljósmyndarar
sem börðust blóðugri baráttu
við að komast I færi við hana.
Fyrir réttinum hlustaði hún
á spum'ingaflóð dómarans í
meira en 20 mínútur. Síðan var
henni leyft að fara og mun dóm
arinn nú ákveða hvort, málið fer
lengra. Ef hann telur það, get
ur farið svo, að hún hljóti 3
mánaða til 3 ára fangelsi.
Darajane Barholomae — stúlkan með milljónabrosið er lika falleg.
Ríkasta fegurðar-
drottning í heimi
Sarajane Bartholomae, heitir
nýjasta fegurðardrottningin, —
og sú lang álitlegasta. Sarajane
hefur fallegt ljóst hár, sérlega
fallega vaxin og fyrir þetta ber
hún nú titilinn „Miss Newport
Beach, Cahfornia, 1965“.
EaiygfcBr ekki bar^þftta.sem^
Sarajarle hefur. Hún á' sinn' eig-
in bát, „smábát“, sem hún
kallar hann, sem kostar þó ekki
minna en 6 milljónir króna,
enda er þetta 90 feta snekkja
búin öllum þægindum og siglir
Sarajane um öll heimsins höf á
snekkjunni.
Þá á Sarajané 15 herbergja
villu, sem indverskur furstí átti
——
Gina Lollobrigida
gengur í réttarsalinn
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í hitaveitu-lagnir utanhúss
í eftirtaldar götur í Smáíbúðahverfi:
Alfurgerði, Grundargerði, Breiðagerði, Háa-
gerði, Hlíðargerði, Melgerði, Mosgerði,
Steinagerði, Hæðargarð og Hólmgarð, svo
og hluta af Sogavegi, Grensásvegi, Réttar-
holtsvegi og Bústaðavegi.
IJtboðslýsinga og uppdrátta má vitja í skrif
stofu vora Vonarstræti 8, gegn 3000, króna
skilatryggingu.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar
TIL SÖLU
3-4 herb. fokheldar íbúðir í fjórbýlishúsi við
Sæviðarsund nýtt og skemmtilegt hverfi.
Hitaveitusvæði. 2 svalir. Bílskúr fylgir
stærri íbúðunum.
Fasteigna- og lögfræðistofan
Laugavegi 28B - Sími 19455
Heimasími 18832.
Jón Grétar Sigurðsson, hdl. Gísii Theódórsson
á undan henni.
Þá er það þriðja heimili henn-
ar, höll úr rauðum múrsteini,
sem stendur við Kyrrahafið á
mjög dýrum stað svo ekki sé
meira sagt.
Hin 19 ára gamla fegurðar-
drottning getur sannarlega not-
ið lífsins, þvf hún er einka-
erfingi að miklum áuði, meira
en 120 millj. kr. Hún er án efa
ríkasta fegurðardrottning í
heimi. Auð sinn erfði hún eftir
föður sinn William Bartholomae,
sem lézt af slysförum í fyrra,
þegar hnífur stakkst í hann.
í framtíðinni hyggst Sarajane
nema innanhússskreytingar í
Kaliforníuhá'skóla. Hún er auð-
vitað umvafin af efnilegum,
ungum mönnum og segir sjálf
að hún eigi þrjá góða kunn-
ingja. „Sá sem mér líkar bezt
við er baseball-leikari", segir
hún.
Kári skrifar:
Það eru ekki nema fáir dagar
síðan að Reykvíkingur nokkur
fór í ökuferð með fjögurra ára
gömlum syn'i sínum. Maðurinn
þurfti að skreppa út, en skyldi
son sinn eftir í bflnum í nokk-
urri brekku. Þegar maðurinn
kom út aftur var bifreiðin kom
in stjórnlaus á fleyg'iferð niður
brekkuna og bamið í.
Þarna vildi það til láns í öllu
óláninu að önnur bifreið stóð
I veginum og tók á móti högg-
inu og stöðvaði bílinn. Það er
ekkj alveg víst að eigandi þess-
arar bifreiðar hafi verið jafn
lánsamur og faðir barnsins sem
átti h'ina bifreiðina. En svo mik
ið er þó víst að drengurinp
slapp ómeiddur og það var
vissulega fyrir mestu. Hitf
skipti minna máli þótt báðir
bílarnir skemmdust og viðgerð
in á þeim kostaði nokkur þús-
und, ef ekki tugþúsundir króna
En nú er á þetta minnzt hér
í dálkunum að áþekk atvik hafa
komið fyrir áður og hér er eng
an veginn um neitt einsdæmi
að ræða. Og það sem Kári
hefur til málanna að leggja er
þetta: Ef bifre'iðaeigendur og
ökumenn eru sér þess meðvit-
andi að fjögurra ára börn eru
óvitar, þá á ekki að skilja þau
ein eftir í bflum öðruvísi en
ganga svo tryggilega frá far-
artækjunum að þe'im verði ekki
haggað úr stað þótt krakkar
fari að fikta við hemla, gíra eða
stjórntæki. Til þess eru vítin
að menn vari sig á þeim.
Einn af góðkunnipgjum mfn
um hringdi tii mín og sagði að
það væri undarlega margt skrýt
ið í kýrhausnum þessa dagana.
Ég spurði hann hvað hann ætti
við, Hann spurð'i hkvort ég læsi
ekki blöðin. Jú, ég las sumt
í þeim, en hafði ekkert séð í
þeim um kýrhaus. Þá sagði
hann mér eitthvað um kýr-
haus í Hafnarfirði sem væri al
veg með einsdæmum. Ekki að-
eins það að slökkviliðsstjórinn
þ.e. aðal- og varaslökkviliðs-
stjóri lenda í hár saman, taka
hvorn annan fastan og kæra
hvorn annan fyrir brot á alls
konar reglum og fyrirmælum.
Það lyktaði að sjálfsögðu með
þeirri einu sjálfsögðu ráðstöfun
að báðir voru reknir. En hitt
sagði kunn'ingi minn að væri
hálfu verra þegar lögreglan þar
f borg þekkir ekki starfsbræð
ur sfna frá kanínum og skýtur
á þá í þeirri meiningu að þelr
séu að skjóta kapínur.
Það er líka til undarlegur kýr
haus í sjálfri Reykjavík, sagð'i
vinur minn. Hann sagðist hafa
verið að lesa bíóauglýsingar i
einu dagblaðanna, og sá þá svo-
látandi auglýsingu á bíósíðunni
frá kunnum fjármálamann'i f
höfuðborg íslands:
„Eitt getur létt lífsstríð og
það er að biðja föðurinn um fyr
irgefningu, og þiggja fyrirgefn
inguna af umboðsmönnum
guðs.“
Undir þessari auglýs'ingu stóð
fullt nafn og heimiligfang fjár-
málamannsins. Maðurinn, sem
hringdi í mig, kvaðst gjarnan
vilja vita hjá hverjum hann
ætti að þiggja fyrirgefningu
guðs. Hann kvaðst þurfa mjög
á henni að halda.