Vísir - 19.06.1965, Page 5
VlSIR. Laugardagur 19. júní 1965
útlönd í TtEorg-un
utlönd 1 morgun
útlönd í morgun
utlönd £ morgun
TITAN 3-c skotið á loft
Mönnuð geimför útbúin sem rnnnsóknarstofur næstu skref
Titan-eldflauginni miklu
(Titan 3-c), sem sagt var
frá í frétt í blaðinu í
gær, var skotið í loft
upp í gær frá Kennedy-
höfða, eins og til stóð ef
skilyrði leyfðu, og tókst
vel. — Titan-3c er hern
aðarleg eldflaug og hef-
ir Bandaríkjjaflugherinn
ECínu býður
Vietnum
sjólfboðaliða
Utanríkisráðuneytið í Peking hef
ir birt tilkynningu þess efnis, að
gerðar hafi verið allar nauðsyn-
legar ráðstafanir til þess að senda
kínverska sjálfboðaliða til Vietnam
— og liðið verði sent undir eins
og „þjóðin í Vietnam sendi beiðni
um það.“ Það mundi þá berjast
við hlið hermönnum Vietnam
og þjóðinni, þar til hinir banda-
rísku ofbeldismenn eru hraktir
burt. 650 milljónir Kínverja skuld
binda sig til stuðnings við hina
hugdjörfu vietnömsku þjóð þar til
sigur er unninn.“
haft veg og vanda af
smíði hennar.
Eftir á kvað Robert McNa-
mara Iandvarnarráðherra svo að
orði, að flugherinn myndi nú
vinna að undirbúningi þess að
skjóta á loft mönnuðum geimför
um, sem útbúin væru sem rann
sóknarstofur. Flugherinn gengur
sem cé út frá því, að Titan 3-c
geti borið slíkt geimfar eða
„geim-verkstæði“ út f himin-
geiminn, og að þetta verði kleift
fyrir 1968. Gert er ráð fyrir, að
tveir menn starfi f slíkum verk
stæðum að hemaðarlegum við-
fangsefnum m. a. varðandi eld-
flaugaskot fjandsamlegra þjóða,
en vegna hinnar stórkostlegu
þrýstiorku eldflaugarinnar geti
hún borið út í geiminn geimfar
sem í eru tæki, sem vega tvö
og hálft tonn. Slík geimrann-
sóknastöð ætti að geta haldizt á
braut sinni í allt að 30 daga.
Eldflaugin bar 10 lesta gervi-
hnött út f geiminn.
Öryggis sfns vegna voru frétta
menn f 5 kílómetra fjarlægð frá
skotstaðnum. Þeir segja, að eld
urinn úr hliðarflaugunum tveim-
ur hafi myndað eins og risavax
inn eldhnött sem hefði sprung
ið. Þegar kveikiútbúnaðurinn
hafði verið settur í gang og
flaugin hófst voru drunurnar
svo miklar, þar sem fréttamenn
voru, að ekki var hægt að ræð-
ast við.
í hliðarflaugunum var fast
brennsluefni og er brennslan
stöðvaðist í 45 km. hæð duttu
þær niður, en úr heilum flota
herskipa og flugvéla var fylgzt
með þeim á hafsvæðinu utan
Kennedyhöfða til þess að eyði-
leggja þær áður en þær gætu
orðið skipum að grandi.
Þessar tvær hliðarflaugar ein
ar vógu 500 tonn og framleiddu
þrýstiorku sem nam 2.64 millj.
punda, og er það næstum tvöfalt
meiri orka en öflugusta sovét-
flaugarinnar (1.43 millj. punda).
► Hubert Humphrey varafor-
seti Bandaríkjanna og geimfar-
arnir Mc Divitt og White og kon
ur þeirra komu til Parísar í gær
í flugvél Bandaríkjaforseta i
þeim tilgangi að heimsækja Al-
þjóða flugvélasýninguna i borg-
inni. Couvé de Murville utan-
ríkisráðherra bauð þá velkomna
Humphrey ræðir við de Gaulle
forseta áður en hann fer frá
Paris.
► Eftir 4 ára samkomulags-
umleitanir hefir náðst eining
innan vébanda EBE um flutn-
ingamálin. Erfiðast hafði verið
að ná samkomulagi um flutn-
inga á fljótum og skipaskurð-
í STUTTU
MÁLI
Tito forseti Júgóslavíu kom
f gær til Moskvu í fyrstu heim
sókn sína þangað eftir fall Nik-
ita Krúsévs, Brjesnev flokks-
Ieiðtogi, Kosygin forsætisráð-
herra, Mikojan og aðrir helztu
leiðtogar voru viðstaddir komu
hans.
I
► Innflutningur á Bretlandi
nam 500 milljónum punda í mai
og rúmlega það og er allra tíma
met, enda varð greiðslujöfnuður
óhagst. um 49 millj og 20 milj.
meiri en í apríl. Hafði þetta óhag
stæð áhrif á gengi pundsins. —
Englandsbanki varar við kröf-
um um auknar tekjur, — slíkt
geti teflt öilu í voða.
► Neðri málstofa brezka þings
ins hefir sambykkt að ræða
frumvarp sem heimilar fóstur-
eyðingar við vissar aðstæður,
svo sem til bjargar lífi móður,
eða ef kona hefir orðið þunguð
vegna nauðgunar.
► Sex menn hafa skilað heið
ursmerkjum af þvi að Bítlarnir
brezku fengu heimsveldisorð-
Myndin er af sovézkri risaflugvél — ANATOV-22 — sem sýnd er á aiþjóðaflugsýningunni i París. Hún er sögð geta náð 800 km. flug-
hraða á klst. og útbúin til mannflutninga geti hún flutt 700 farþega. — í brezka útvarpinu var sagts að þeirri fullyrðingu (um 700
farþega) „sé tekið með varúð af vestrænum sérfræðingum".
STÍFNT Bl AÐ T0LLA-
BANDALAGl N-LANDA
Jens Otto Krng og Toge Erlander ræðn ^
framtíðarstarf á vettvangi viðskipta j
Tage Eriander
Tage Erlander forsætisráðherra
Svíþjóðar sem er nýkominn úr
heimsókninni til Sovétríkjanna býr
sig nú undir að taka á móti Jens
Otto Krag forsætisráðherra Dana,
sem væntanlegur er til Stokkhólms
í viku heimsókn.
Gert er ráð fyrir að Erlander
geri honum ýtarlega grein fyrir
Moskvuviðræðunum, en annars
verða það önnur mál, sem þeir
munu mest ræða sín í milli, Er-
Iander og Krag, framar öðrum
markaðsvandamálin í álfunni og
norrænt framtíðarsamstarf á vett-
vangi viðskipta innan vébanda
Fríverzlunarbandalagsins (EFTA),
og samræmingu tollaákvæða gagn
vart löndum utan bandalagsins
sem fyrsta skref f áttina til Norð
urlandatollabandalags, ef samkomu
lag næðist um stofnun þess. Út-
flutningur danskra landbúnaðaraf-
urða verður og ræddur, en úr hon
um hefir dregið mjög til EBE —
eða sammarkaðslandanna. Líklegt
er, að Erlander fallist á, að Svíar
auki innflutning sinn á dönskum
landbúnaðarafurðum.
Jens Otto Krag er væntanlegur
til Stokkhólms á mánudaginn kem
ur. \
Jens Otto Krag
Pierre Harmel
falin stjórn-
armyndun í
Belgíu
Baldvin konungur, nýkominn
heim úr Noregsferðinni, hefir falið
Pierre Harmel að gera tilraun til
stjórnarmyndunar. — Harmel er
54 ára og hefir áður gegnt ráð-
herrastarfi. Hann er úr Kristilega
sosíalaflokknum.
Stjómarkreppan kom til sög-
unnar eftir almennu þingkosning-
arnar, sem fram fóru 23. maí, þeg
ar samsteypuflokkamir, fyrmefnd-
ur flokkur og jafnaðarmannaflokk
urinn misstu 38 þingsæti, og gátu
því ekki komið fram stjórnarskrár
breytingu sem miðaði að því að
leysa deilur Flæmingja, en mál
þeirra flæmskan er hollenzk mál-
lýska, og Vallóna, sem tala
frönsku. Ríkisstjórnin hefir starf-
að áfram sem etnbættismanna-
stjórn en þegar fyrir kosningar
var Ijóst orðið, að forsætisráð-
herrann, Theo Lefevre, myndi ekki
vera forsætisráðherra áfram.
I