Vísir - 19.06.1965, Page 16
VISIJR
Laugardagur
senn
J6n SigurAsson formaður bygginganefndar að sýna gesti bygginguna.
• •
Nýja Umferðarmiðstöðin í
Reykjavík á að vera fullgerð fyr
ir næstu verzlunarmannahelgi,
sem er fyrsta helgin í ágúst.
Fréttamenn Vís'is fóru til að skoða
bygginguna í gær í fylgd með
Jóni Sigurðssyni formanni bygg-
inganefndar.
Byggingin er 1300 ferm. eða
8000 rúmmetrar. Stærsti salurinn
er 600 ferm. og á hann að vera
i móttökusalur fyrir farþega og veit
ingasalur. Á salnum er gluggi, sem
snýr á móti suðri og er glugginn
250 ferm. að stærð. Umhverfis hef
ur verið steyptur hluti af bílastæð
inu, en ætlu. er að steyptir
eða malbikaðir verði í sumar 7000
ferm., þar af verða 4000 ferm. fyr
ir langferðabifreiðir e'ingöngu.
í byggingunni verður rekin
margvísleg starfsemi eins og t.d.
matsalur, út'ibú Verzlunarbankans,
útibú póstsins, en þarna verður
næst stærsta póststofa á landinu
Ætlunin er að flokka niður póst-
inn, sem/kemur utan af landi þama
og verður því pósturinn sendur það
an aftur en þarf ekk'i að fara á
aðalpóststofuna.
Jón Sigurðsson taldi, að Um-
ferðarmiðstöð þessi mundi auka
mjög á ferðamenninguna hérlendis
Kristjón Kristjönsson umsjónar
maður byggingarnefndar og
nefndarmaður.
Farþegar kæmust ekki upp með
það að mæta á seinustu stund og
tefja þannig brottför. Einnig gæti
þessi miðstöð orðið til þess að
flýta fyrir samræmingu einstakra
sérleyfishafa á ferðum sínum til
hagsbóta fyrir þá sem og farþega.
MJ0G G0ÐUR HAGUR AB
Almenna bókafélagiö 10 ára á bessu ári
Hnífstungumálið:
Hæstiréttur staðfesti
undirréttardóminn
Þann 16. júní var haldinn aðal-
fundur Almenna bókafélagsins og
styrktarfélags þess Stuðla h.f., en
rétt 10 ár eru nú liðin frá því, að
AB hóf starfsenii sína og mun af-
mælisins verða minnzt á síðari
hluta þessa árs.
Á fundinum gáfu formaður fé
lagsins dr. Bjami Benediktsson,
ráðherra og framkvæmdastjóri
þess, Baldvin Tryggvason, lög-
fraeðingur yfirl'it um starfsemi fé-
lagsins á sl. ári. í upphafi fundar
ins var dr. Alexander Jóhannes-
sonar minnzt, en hann var einn af
frumkvöðlum félagsins og sat í
stjóm þess frá upphafi.
Samkvæmt skýrslu framkv.stj.
kom í ljós, að hagur AB á sl. ár'i
var mjög góður. og sala bóka þess
hefur aukizt um 50%. Varð heild
arsala útgáfubóka AB á árinu rúm
ar 12 millj. kr.
1 ræðu sinni rakti Baldvin
Tryggvason framkvstj., tildrögin
að stofnun AB, en ávarp'ið um
stofnun félagsins var gefið út 17.
júní 1955. Kvað hann stofnendur
eðlilega hafa verið misjafnlega
bjartsýna á framgang félagsins í
upphafi, en vonir hinna bjartsýn-
ustu hefðu meir en rætzt, og mættu
þeir nú vel við árangurinn una.
Ber þar ekki sfzt að þakka hinum
mikla fjölda félagsmanna, sem nú
eru orðnir 7000 talsins. Á þessu
tíu ára tímabili hefur AB gefið
út samtals 135 bækur, sem hafa
selzt í um 350.000 eintökum sam-
tals. Af þessu bókum eru 83 eftir
íslenzka höfunda, Qn 52 eftir er-
lenda höfunda. Að gerð þeirra
hafa unnið 130 íslenzkir rithöfund-
Framh. á bls. 6.
Þann 16. þ. m. var í hæstarétti
staðfestur undirréttardómur í svo-
kölluðu hnífsstungumáli. Það var
höfðað með ákæru saksóknara rík
isins nokkru fyrir s. 1. áramót fyrir
Enginn
fundur
Er blaðið hafði tal af Torfa
Hjartarsyni sáttasemjara seint í
gærkvöldi, hafði enginn fundur
verið boðaður í vinnudeilu Dags-
brúnar og annarra verklýðs-
félaga á Suðvesturlandi við
vinnuveitendur.
AAAAAAAAAAAAAAAAAAA,
íslenzku þátttakendumir á heimsmeistaramótinu við aðra sviffluguna, sem þeir fluttu með sér.
Talið frá vinstri: Ásbjöm Magnússon, Þórður Hafliðason, Þórmundur Sigurbjamason, Þórhallur
Filippusson, Gísli Sigurðsson, Elíeser Jónsson, Lúðvik Karlsson, Leifur Magnússon, Hákon Pálsson,
Sigurður Þorkelsson og Pétur Eggertsson.
morðtilraun og líkamsárás þann 12.
maí 1964 að Hraunteigi 18 í Reykja
vík.
Frá gangi þessa máls var skýrt
ítarlega í Vísi á sínum tíma og því
ekki ástæða ti lað rekja það hér
Þess skal þó getið til glöggvunar
að sakborningur, Lárus Stefánsson
rennism.nemi til heimil’is að Hring
braut 84 réðist með skeiðahníf á
Guðríði Erlu Kjartansdóttur Hraun-
Framh. á bls. 6.
Syrtling-
ur vex
í gær var Syrtlingur farinn að
sækja í s'ig veðrið. Hann var þá
orðinn myndarlegasta eyja, 50 m.
hár og skeifulaga og með opið í
austur. Þar rennur sjór inn, en bú
ast má við, að opið lokist þá og
þegar, einkum ef austanáttin hætt
ir. Er lagið á Syrtlingi nú mjög
svipað og var á Surtsey, þegar hún
hafði nýstungið upp kollinum.
Sprengingar voru tfðar í Syrtlíngi
í gær og gufumökkur mikill.
Hörð keppni en lélegar aðstæður
á svifflugsmótinu í ENGLANÐI
íslenzku þáttfakendurnir komnir heim
íslendingar þeir sem tóku
þátt í heimsmeistarakeppninni
í svifflugi sem fór fram í Eng-
landi fyrir nokkru komu heim
daginn fyrir þjóðhátíðina. Það
voru þeir Leifur Magnússon og
Þórhallur Filippusson en farar
stjóri var Ásbjörn Magnússon.
Blaðið hitti Þórhall að máli.
Hann lét nú ekki sérlega vel
yfir ferðinni. Keppnin hefði ver
ið mjög hörð. í standard flokkn
um, sem þeir tóku þátt í kepptu
45 og varð Þ.órhellur 36. og
Leifur 43. Það er enginn vafi
á því að það sem okkur vantar
fyrst og fremst er einfaldlega
meiri æfing. í þessu er harðasta
samkeppni. En fleira kemur
til, skilyrði til svifflugs voru
slæm alla þá sex daga sem
keppt var. Þgð hamlar og svif
fluginu að ekki má fara inn á
vissar flugrásir innanlandsflugs
ins í Bretlandi nema undir vissri
Framh. á bls. 6.