Vísir - 25.06.1965, Qupperneq 8
8
V í S I R . Föstudagur 25. júní 1965,
VÍSIR
Otgetandi: Blaðaútgátan VISIF
Ritstjóri: Gunnar G. Schram
Aðstoðarritstjóri: Axe) Thorsteinson
Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson
Þorsteinn Ö. Thorarensen
Ritstjórnarskrifstoíur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald er 80 kr ð mánuði
1 Iausasölu 7 kr eint. — Simi 11660 (5 línur)
Prentsmiðja Vísis - Edda h.f
Félagsréttindi vanvirt
Samtakafrelsi hefur hér á landi sem annars staðar
verið talið til hinna sjálfsögðustu félagslegu mann-
réttinda. Engum kemur til hugar að reyna að hindra
það að launþegar gangi í stéttarfélög sín og reki
hagsmunabaráttu sína á grundvelli heildarsamtaka
sinna. Því meiri furðu gegnir að nú skuli kommún-
istar í íslenzku þjóðfélagi blása til refsiaðgjörða
vegna þess að tvö stór atvinnufyrirtæki, Mjólkur-
samsalan og Mjólkurbú Flóamanna hafa gengið í
félagsskap vinnuveitenda. Ekkert er þó eðlilegra en
þessi fyrirtæki marki sér samstöðu með öðrum
vinnuveitendum á grundvelli samtakafielsisins. En
þegar það gerist hrópar Þjóðviljinn hátt um að hér
sé um árásir á verklýðinn að ræða. Að dómi blaðsins
virðast þau sjálfsögðu mannréttindi að bindast félags
samtökum aðeins eiga að gilda fyrir fylgismenn þess
flokks sem blaðið styður af ráð og dáð. Þannig er
lýðræðisástin og virðingin fyrir mannréttindum þeg-
ar á reynir. Verkfall það sem í næstu viku á að gera
hjá stofnunum þessum í refsiskyni fyrir að þær kjósa
að ganga í samtök vinnuveiténda er lítið dæmi um
það hvernig ráðskazt yrði í þjóðfélaginu ef kommún-
istar fengju vilja sínum framgengt og valdastöður til
að stjórna úr. Sem betur fer sitja þeir ekki við völd
og áhrif þeirra fara þverrandi með hverjum deginum
sem liður.
Nauðsynlegt spor
j>að má undrun sæta að enn skuli engin sú stofnun
upp risin hér á landi sem annist rannsóknir á því
hvernig unnt sé að lækka byggingarkostnað, byggja
íbúðir á sem hagkvæmastan hátt og leiðbeina hús-
byggjendum í fjölmörgum tækniatriðum. Þó eru hús-
byggingar einn stærsti iðnaðaratvinnuvegur þjóð-
arinnar, áhuga og áhyggjumál þúsunda fjölskyldna
um land allt og fjármagnsatriði upp á fleiri hundruð
milljónir króna árlega. Það er jafnframt viðurkennd
staðreynd að íbúðir eru hér miklu dýrari í bygg-
ingu en samsvarandi íbúðir erlendis. Flestir viður-
kenna að starfsaðferðir og háttalag í byggingamálum
sé hér bæði gamaldags og óhagkvæmt, en það hvort
tveggja orsakar hið fyrrnefnda. Fálmkenndar tilraun-
ir til þess að innleiða nýjungar í íslenzkum bygging-
ariðnaði hafa venjulega endað á þá leið að bygging-
arkostnaðurinn hefur sízt lækkað, svo sem við til-
komu skriðmótanna. Og sjálfsagðar nýjungar, eins og
notkun málningarrúlla, hækkar kostnaðinn í stað
þess að lækka hann. Húsnæðismálastjórn hefur ekki
rækt þetta hlutverk af höndum, þótt lög mæli fyrir
um slíka starfsemi til lækkunar byggingarkostnaðar
og hagræðingar á vegum hennar, enda er meginhlut-
verk hennar á öðru sviði. En hér má úrbót ekki leng-
ur dragast. Uppbygginga slíkrar rannsóknarstofnun
ar er brýnt hagsmunamál þúsunda og stórfellt fjár-
hagslegt sparnaðarmál.
sflm* ■■■■■■■
,, Sameiginlegur kjarnorkufloti
hugsanlegur frá herfrœðilegu
sjónarmiði"
Moorer aðmíráll
— segir T. H. Moorer, aðmiráll, yfir-
maður flota NATO - rikjanna
Yfirmaður flota Atlantshafs-
bandalagsins, Thomas H. Moor-
er ræddi i fyrradag við blaða-
menn. „Hvalfjörður verður að
eins notaður mjög takmarkað,
sem birgðastöð fyrir flota okk-
ar og engar breytingar fyrirhug
aðar. Á Keflavikurflugvelli er
heldur engra breytinga að
vænta í framtíðinni á stöðu
vamarliðsins."
Moorer kvað hinn sameigin
lega kjamorkuflota NATO-ríkj-
anna vel framkvæmanlegan frá
herfræðilegu sjónarmiði, en mál
ið væri nú á pólitfsku stigi og
ákvörðun um stofnun hans yrð'i
tekin af stjórnmálamönnum
ríkjanna. Tilraun í þessa átt
þar sem tundurspillirinn Olaude
V. Rieketts var notaður í gekk
mjög vel. Var skipið mannað
316 mönnum frá 6 NATO-lönd
Um átökin í Vietnam sagði
Moorer aðmíráll, að þau hefðu
ekki veikt vamarmátt og styrk
leika Atlantshafsflotans. Hefði
flotinn ekki verið færður til af
þessum sökum, nema hvað flug
vélamóðursldpið Independence
var sent til SA-Asíu.
Moorer kvaðst mjög ánægður
með heimsóknina til íslands.
Hann hefur átt viðræður við for
sætisráðherra og utanríkisráð-
herra. 1 gærkvöldi sat hann
veizlu Weymouth, yfirmanns
varnarliðsins á Keflavlkurflug
velli. Fyrr um daginn hafði
hann farið til Þingvalla. Héðan
hélt Moorer aðmíráll til aðal-
bækistöðva NATO f Norfolk í
Virginíu.
Afhending nafnskírteina
hefst í nœstu viku
í byrjun næstu viku hefst af
hending nafnskírteina þeirra,
sem samþykkt voru Iög um á
síðasta alþingi.
Hefur Hagstofan géfið út'
nafnskírtéini til allra 12 ára og
eldri, sem skráðir eru hér á
landi og er tala nafnskírtein-
anna um 140.000.
Tilgangur lagasetningarinnar
er í fyrsta lagi sá að skapa
grundvöll fyrir framkvæmd
gildandi ákvæða um takmörkun
á athafnafrelsi bama og ung-
menna. Hefur reynslan sýnt að
þessi ákvæði eru ekki fram-
kvæmanleg nema gefin séu út
persónuskilríki til ungs fólks
allt að 25 ára aldri. I öðru
lag'i er talið, að með útgáfu
nafnskfrteina til allra einstakl
inga á starfsaldri séu möguleik
ar á að nota nafnskírteini með
évinriingi á gyo að segja ijllum
sviðunj'' >Siiran© starfraðtslu,
jjar semTum er áð ræða sam-
skipti borgara og opinberra að
ila.
I þriðja lagi á nafnskírtéinið
að fullnægja almennri þörf fyr
ir persónuskilríki, sem menn
nota til að sanna aldur sinn og
hverjir þe'ir séu.
Ekki er skylda að hafa mynd
á nafnskírteininu, en þegar
þarf að framvísa því í sambandi
við opinber fyrirmæli um að t'il
tekinn aldur sé skilyrði fyrir
komu eða dvöl á stað, er skír
tein'ið því aðeins sönnunar-
gagn um aldur, að á því sé
mynd skfrteinishafa, með em-
bættisstimpli lögreglustjóra.
Þetta þýðir að böm og ungling
ar geta ekki notað nafnskfr-
te'inið til að sanna aldur sinn,
þegar þess er krafizt, nema á
því sé mynd.
Menn éru ekki skyldif til að
bera skírteinið á sér, en þeir
sem hafa það ekki tiltækt njóta
ekk'i þeirra réttinda og þess
hagræðis, sem skfrteininu fylg
ir, auk óþæginda, sem þeir
kunna að verða fyfir.
Jafnframt afhendingu nafn-
skírteina fer fram afhending
nýrra sjúkrasamlagsskirteina,
sem Sjúkrasamlag Reykjavíkur
hefur gefið út og koma f stað
núgildandi skírteina. Verða
bæð'i skírteinin afhent á sama
stað, Vonarstræti 1.
Áttatíu sinnum á „rauðu" í Iðnó
- og nú fer Leikfélagiö
Um helgina lýkur leikári Leik
félags Reykjavfkur. Þetta er
algjört metár hjá okkur,“
sagði Sveinn Einarsson, leikhús
stjóri í viðtali við blaðamenn
í gær. Sveinn var heldur Iltil-
látur og kallaði árangur félags
ins í vetur „Heppni,,.
Leikfélagið hefur aldrei fyrr
sýnt jafnmargar sýningar og í
vetur 218 f allt og leikrit'in sem
tekin voru til sýninga alls 9 og
hafa þau heldur aldrei verið
fleirí en nú. 1 fyrra voru leikrit
in 6 og sýningarnar 150.
Hagur félagsins í vetur hefur
verið ágætur, enda oftast upp-
selt á þessum 218 sýningum,
„rautt ljós“ á öllum 80 sýning-
um á Ævintýri á gönguför eftir
Hostrup, þeim létta og sindr-
andi leik, sem alltaf virðist
vera jafn vinsæll.
Og á mánudag'inn fer leikfólk
ið úr ,,Ævintýrinu“ út á þjóð-
vegina með leikrit sitt. Það á
að sýna leikinn 35-40 sinnum
og stendur leikförin allan júlí-
mánuð. Leikaramir fljúga fyrst
með Ævintýrið út á land
til Hornafjarðar, _n þar verður
sýnt á þriðjudagskvöld. Þar
verður bíll flokksins kom'inn
með ný leiktjöld sem varð að
mála, heldur minni en þau, sem
notuð eru í Iðnó. Hópurinn er
skipaður 10 leikurum, þeim
sömu og le'ika í Iðnó nema að
Komin er út hjá Almenna
bókafélaginu bókin „12 konur“
eftir Svövu Jakobsdóttur. Er
þetta fyrsta bók Svövu, en eft
ir hana hafa áður birzt smásög
ur í tfmaritum og blöðum.
Eins og nafn bókarinnar ber
með sér er hér um að ræða
sögusafn, frásagnir af tólf nú-
timakonum og vandamálum
þeirra, og f sumum tilfellum
bama þeirra. Bókin er þvf skrif
Gísli Halldórsson mun ekki
fara í leikförina og tekur Jó-
hann Pálsson við hlutverki Ver
mundar, skógarfræðings, þá er
með í ferðinn'i, Guðmundur
Pálsson, sem er fararstjóri og
Guðrún Kristinsdóttir undirleik
ari.
„Ævintýrið" mun ferðast um
Austfirðina, siðan um Norður-
land og vestur um land.
uð af konu um konur. Sögurn
ar gerast sitt í hverju um-
hverfi, og þótt þær séu ekki
efnislega samstæðar myndr
þær þó innbyrðis eins konar
heild.
Svava Jakobsdóttif hefur
lagt stund á bókmenntanám
Bandaríkjunum og Svíþjóð
Bókin er prentuð og bundin '
Prentsmiðju Hafnarfjarðar.
M-
TÓLF KONUR
Smásögusafn eftir Sv'óvu Jakobsdóttur komið út