Vísir - 15.07.1965, Side 2
VI S IR . Fimmtudagur 15. júlí 1969.
RITSTJÚRI ■' JÓN BIRGIR PETURSSON
FH — meistarar
ár samfleytt
Meistarar 10. áriB í röi?
FH sigurstranglegast á Islandsmótinu i útihandknattleik er hefst á mánudag
18 íslandsmót karla í handknattleik (utanhúss),
verður háð að Hörðuvöllum í Hafnarfirði á tímabilinu
frá 18. júlí til 28. júlí. Fimleikafélagi Hafnarf jarðar hef-
ur verið falin umsjón mótsins eins og undanfarin ár.
Að þessu sinni taka 6 lið þátt í mótinu, en þau
eru Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar, og Reykjavíkur
félögin Valur, Ármann, Þróttur og ÍR. Leiknir verða
2 til 3 leikir hvern leikdag og leika allir við alla.
Frá upphafi hafa eftirtalin lið sigrað í mótinu:
Árið 1948 sigraði Ármann í Reykjavík
— 1949 — Ármann á Akureyri
— 1950 — Fram á Akureyri
— 1951 — . Valur á Leirvogsbakka
— 1952 — KR í Engidal'
— 1953 — Ármann á KR-vellinum
— 1954 — Fram f Engidal
— 1955 — Valur á KR-vellinum
— 1956 — FH í Engidai
— 1957 — FH á Leirvogsbakka
— 1958 — FH á Akureyri
— 1959 — FH á Hörðuvöllum
— 1960 — FH á Ármannsvellinum
_ 1961 — FH á Hörðuvöllum
— 1962 — FH á Ármannsvellinum
_ 1933 — FH á Hörðuvöllum
— 1964 — FH á Hörðuvöllum
Dregið hefur verið um hverjir
leiki saman hvert kvöld, og skýrir
eftirfarandi tafla það:
Mánudagur 19. júlí kl. 7,30:
FH — Haukar.
Þróttur — Ármann.
Valur — ÍR.
Miðvikudagur 21. júlf kl. 8:
Haukar — Þróttur.
Ármann — ÍR.
Föstudagur 23. júlí kl. 8:
FH — Ármann.
Haukar — Valur.
Laugardagur 24. júlí kl. 2,30:
Haukar — ÍR.
Valur — Ármann.
•..................... ,..íj4-——í---:
KR í Evrópubikar-
keppni í körfubolta
Áfráðið er að KR sendi lið f Evrópubikarkeppni meistara
iiða f körfuknattleik, sem hefst f nóvember næstkomandi.
Að undanförnu hafa verið stanziausar æfingar hjá meist-
araflokki félagsins undir handleiðslu bandarfska þjálfarans
Philip Bonzing. Æft hefur verið tvisvar í viku í KR-húsinu
og jafnframt farið einu sinni í viku suður á Keflavikurflugvöll
og æft í íþróttahúsinu þar.
Tilhögun keppni þessarar er þannig háttað að leikið er heima
og heiman og er það liðið úr leik sem færri stig hlýtur eftir ’
báða leiki, en sigurvegarinn heldur áfram f næstu umferð.
Eins og menn minnast er þetta sama keppni og ÍR tók þátt
í síðast liðið haust, unnu írlandsmeistarana og lentu f annarri
umferð gegn Frökkum og urðu þar úr leik.
Evrópumeistari er Spánska liðið Real Madrid, þeir unnu
nauman sigur yfir Sovéska liðinu TS.S.K.A. frá Moskvu. í fyrri
umferð sigraði Moskvuliðið 88—81, en f seinnl umferð tóku
Spánverjar sig á og unnu Rússana 76—62, og urðu þar með
Evrópubikarmeistarar 1965. Svo eins og sjá má eru þeir lið-
tækir f fleiru en knattspyrnu.
FH — Þróttur.
Mánudagur 26. júlí kl. 8:
FH — IR.
Valur — Þróttur.
Miðvikudagur 28. júlí kl. 7,30:
Þróttur — ÍR.
Haukar — Ármann.
FH — Valur.
☆
mm
Víkiag 4:3
Breiðablik vann Víking í
gærkvöldi í leik liðanna í
2. deild, sem fram fór í
Kópavogi með 4 mörkum
gegn 3. Hefur Breiðablik
því enn möguleika á að
vinna B-riðilinn í deildinni
og þannig að komast í úr-
slitin gegn Þrótti eða Siglu
firði.
Fyrri hálfleikur var mun
meira eign heimamanna, Breiða-
bliks, sem áttu hvert færið á fæt-
ur öðru, en ekki tókst þeim þó að
skora fyrr en á síðustu sekúndum
hálfleiksins. Markið skoraði Jón
Ingi Ragnarsson upp úr auka-
spyrnu.
1 seinni hálfleik skoraði Breiða-
blik 2:0 snemma úr vftaspyrnu,
sem Jón Ingi skoraði örugglega úr.
yn—...................... i
Þriðja markið skoraði Breiðablik
Framh á bls. 8
r
m
KERUNGARFJÖLLUM
Sumarskfðamót verður haldið i Kerlingarfjöllum
laugardaginn 24. og sunnudaginn 25. júlf elns og áð-
ur hefur verið auglýst. Mótsstjóri verður Sigurjón
Þórðarson Í.R. Skíðafæri er gott f Kerlingarfjöllum
um þessar mundir og nemendur frá skfðaskólanum f
Kerlingarfjöllum hafa komið útiteknir og ánægðir f
bæinn að lokinni dvöl þar. Mótsstjórinn minnir kepp-
endur á að panta næturgistingu f skála Ferðafélagsins
(sími 13171, Hinrik Hermannsson) og far í Kerlingar-
fjöllin hjá Ferðafélagi íslands. Lagt verður af stað
föstudagskvöldið 23. júlí og komið aftur til bæjarins
á sunnudagskvöld. Tilkynningar um þátttöku f móti
þessu verða hjá mótsstjóranum eftir komu keppenda i
Kerlingarfjöllin. Það er mjög árfðandi að allir kepp-
endur séu mættir á mótsstað á föstudagskvöld, þar
sem keppni hefst um hádegi á laugardag. Allar nán-
ari upplýsingar varðandi mót þetta eru veittar f síma
13171.
íslandsmeistarinn Kristlnn Benediktsson frá
Isafirði sveiflar sér niður 1 Kerllngafjöllum.
FRÁMARAR HVERFA UR NAUT-
HÚLSVÍKAÐ SÓLARLAGSBRAUT
Verðn nágrcinnar ICR-inga við æfing-
arnar fyrir iokaáfökin í 1. deild
Framarar hafa fengið svæði
til að æfa sig á fyrir 1. deildar-
lið sitt. Við skýrðum frá því
mánud. að lögreglan hefði
rekið Framara burtu með æf-
ingar sínar úr Nauthólsvíkinni
og þar með voru þeir „á göt-
unni“ með æfingar sínar.
Þetta bar þann árangur að
ágætismaður einn, Meyvant
Sigurðsson á Eiði á Seltjarnar-
nesi hringdi í einn af framá-
mönnum i Fram og sagði að
félaginu væri heimilt að nota
tún hans á grandanum þar sem
Sólarlagsbraut liggur. „Aðeins
eitt skilyrði“, sagði hann, „þið
megið ekki falla f 2. deild“.
Og staðurinn var skoðaður
og í ljós kom, að þetta var hið
hentugasta æfingasvæði. Og nú
miinu Framararnir geta byrjað
að æfa aftur á grasi og vonandi
verður þetta til þess að nokkur
stig í viðbót fást til að verjast
fallinu. Verða þeir að nota bún-
ingsklefana í félagsheimilinu
fyrir neðan Sjómannaskólann,
en aka á bílum sfnum vestur
eftir, framhjá bækistöðvum KR
inga og æfa f nokkur hundruð
metra fjarlægð frá þeim, örlftið
nær hinu fallega sólarlagi. Von-
andi geðjast Austurbæjarliðinu
vel að andrúmsloftinu f Vestur-
bænum!