Vísir - 17.08.1965, Síða 6
6
VlSIR . Þriðjudagur 17. ágúst 1965.
TÆKNISKÓLI
ÍSLANDS
tekur til starfa um mánaðamótin septem-
ber október n.k. og starfar í þrem deildum.
Inntökuskilyrði:
Forskóli. (undirbúningsdeild)
a) Umsækjandi hafi lokið iðnnámi eða
b) Umsækjandi hafi lokið fullgildu gagn-
fræðaprófi og fullnægi kröfum um
verklega þjálfun.
Millideild.
a) Umsækjandi hafi lokið misserisprófi
frá undirbúningsdeild Tækniskólans
1964—65 eða
b) Hafi lokið í það minnsta eins árs fram-
haldsnámi eftir gagnfræðapróf. Auk
þess þarf nemandi að fullnægja kröf-
um um verklega þjálfun.
Deild í Tækniskóla.
a) Umsækjandi hafi staðizt lokapróf und
irbúningsdeildar Tækniskólans eða
b) Umsækjandi hafi lokið stúdentsprófi
stærðfræðideildar menntaskóla og full-
nægi kröfum um verklega þjálfun.
(Nemandi tekur ekki þátt í öllum náms
greinum).
Nánari upplýsingar verða veittar og um-
sóknareyðublöð afhent á skrifstofu Tækni-
skólans í Sjómannaskólanum, Reykjavík, kl.
kl. 10—12 mánudaga, miðvikudaga og föstu
daga frá og með 18. ágúst n.k.
Á Akureyri verður starfandi ein deild; for
skóli (undirbúningsdeild) og mun herra Jón
Sigurgeirsson, skólastjóri, gefa nánari upp
lýsingar og afhenda umsóknareyðublöð.
Umsóknir um skólavist sendist Tækniskóla
íslands eigi síðar en 10. september n.k.
Tækniskóli íslands.
KONA - STÚLKA
Kona eða stúlka óskast til framleiðslustarfa
á veitingastaðnum Vegamótum, Snæfellsnesi,
Tilboð sendist augl.deild Vísis merkt „4184“.
LAUS STAÐA
Starfsmaður óskast að Ölduíúnsskóla í Hafn-
arfirði sem annast kyndingu, gangavörzlu og
fl. Laun samkvæmt kjarasamningi bæjar-
starfsmanna. Umsóknir sendist undirrituðum
fyrir 25. ágúst n.k.
Bæjarstjórinn Hafnarfirði
Atvinna óskast
Maður, vanur alls konar skrifstofu- og gjald-
kerastörfum svo og verzlunarrekstri, óskar
eftir atvinnu. Þeir, sem þurfa á slíkum manni
að halda, vinsamlegast sendi hugsanlegt
kaupt,, _ ..Atvinna
— 637“.
MSHaiiSllsfiöSflijaaJísnsnmn . >• i'lptnsihiiijjí “
w
Guðmundur As-
mundsson hrl.
Bézf uf slysförum
Maðurinn, sem Vísir skýrði frá
í gær, að hefði drukknað í Leir-
vogi í fyrrakvöld, var Guðmundur
Ásmundsson hæstaréttarlögmaður,
lögfræðingur Sambands íslenzkra
samvinnufélaga.
Guðmundur fæddist 8. júní 1924 !
á Eiðum, sonur Ásmundar biskups j
Guðmundssonar og konu hans!
Steinunnar S. Magnúsdóttur. Guð- j
mundur varð stúdent frá Reykja- \
vík árið 1942, tók lögfræðipróf við j
Háskólann 1948 og gerðist þá lög
fræðingur SlS, og síðar einnig
framkvæmdastjóri Vinnumálasam-
bands þess. Guðmundur var for-
maður Stúdentaráðs 1945-1946.
Hann var blaðamaður við Morgun
blaðið á háskólaárum sínum. Hér-
aðsdómslögmaður varð hann 1950
og hæstaréttarlögmaður 1955. For-
maður stjómar lánasjóðs stúdenta
var hann 1954-1960.
Kona Cuðmundar er Hrefna Sig
urlaug Magnúsdóttir, og eiga þau
þrjú börn.
Sfollenzlsur —
Framh. af bls 16
Þorsteinn Einarsson, fþrótta-
fulltrúi rkiisins.
Nefndin hefur unnið að gagna
söfnun innanlands og utan og
haldi ðallmarga fundi. Hún mun
væntanlega ljúka störfum á
þessu ári. Það var fyrir frum-
kvæði æskulýðslaganefndar að
hr. Ooms var boðið hingað til
lands.
Dvöl sérfræðingsins á íslandi.
Hr. Ooms hefur setið nokkra
fundi með æskulýðslaganefnd og
átt ítarlegar Viðræður við ýmsa af
meðlimum nefndarinnar. Þá hefur
hann m.a. rætt við eftirtalda að-
iia: menntamálaráðherra, dr.
Gylfa Þ. Gíslason, ráðuneytis-
stjóra menntamálaráðuneytisins,
Birgíi Thoriacius, fræðslumála-
stjóra, Helga Elfasson, kynnt
sér störf íbróttafulltrúa ríkisins,
Þorsteins Einarssonar, að fþrótta-
og félagsheimilamálum. Hann hef-
ur heimsótt bækistöðvar ÍSÍ und'ir
leiðsögn forseta ÍSÍ og fram-
kvæmdastjóra þess, Hermanns
Guðmundssonar, svo og verið
kynnt starfsemi Iþróttabandalags
Reykjavíkur af framkvæmdastjóra
þess, Sigurgeir Guðmannssyni.
j Hann hefur kynnt sér störf Æsku
lýðsráðs Reykjavíkur og félags-
málastarfsemi í skólum Reykjavík
ur. Hr. Ooms hefur átt Viðræður
við stjóm Æskulýðssambands Is-
lands og forseta UMFl. Hann hef-
ur skoðað ýmis félagsheimili í
nærsveitum Reykjavfkur, svo sem
að Aratungu og Flúðum, en að
Flúðum ræddi hann við forustu-
menn ungmennafélagsins þar í
svéit. Á Selfossi kynnti liann sér
starfsemi æskulýðsráðsins og
ungmennafélagsins á staðnum.
Hann hefur rætt við Sigurð Greips
son f Haukadal, formann Héraðs-
sambandsins Skarphéð'ins og
kynnt sér starfsemi Skátaskólans
á Úlfljótsvatni undir leiðsögn Jón-
asar B. Jónssonar og Hrefnu Tyn-
es og starfsemi Vinnuskólans þar.
Hr. Ooms hefur því fengið
tækifæri til að kynnast bæði starf-
semi hinna frjálsu æskulýðsfélaga
í borg og byggð og opinberri æsku
lýðsstaarfsemi á vegum rfkis- og
sveitarfélaga.
Sverrir —
Framhald at bls 1.
nú gerðist það meðan bíllinn
var í veltunni f háalofti, að
hinn ungi maður kastaðist út
úr bílnum. Hann féll á bakið
niður á svolitla grasflöt og rétt
í sama mund skall bíll hans inn
í grasbrekkuna með þvílíku
braki og brestum, að sýnilegt
var að hann var gereyðilagður.
Rykský lagði upp frá þess-
um atburði, en þegar rykinu
blés burt, sáu áhorfendurnir,
að hinn ungi, íslenzki maður
stóð upp eins og ekkert hefði
í skorizt. Hann færði sig nær
bílbrakinu, leit yfir það, hristi
höfuðið og gekk að því loknu
til svæðisins þar sem ökumenn
hvíla sig. Lustu áhorfendur upp
miklu fagnaðarópi, þegar þeir
sáu að hann var heill og ó-
meiddur og má segja, að Sverr-
ir hafi þarna áunnið sér aðdá-
un fólksins fyrir það hve vel
og óttalaust hann kom þarna
fram.
Strax á eftir varð Sverrir að
gangast undir læknisskoðun. En
það er skylda eftir slfkt atvik.
Læknirinn gaf út vottorð um
að hann væri með öllu ómeidd-
ur og þykir það ganga krafta-
verki næst. Annað var hins
vegar álit viðgerðarmannanna,
sem Iitu á kappakstursbílinn
hans. Þeir gáfu þann úrskurð
eftir nokkra skoðun, að bíllinn
væri svo gjörsamlega molaður
og ónýtur, að vart yrði hægt að
notast við nokkurn hlut úr hon-
um. Bifreið þessi var af svo-
kallaðri Brabham-tegund og
mun Sverrir hafa orðið fyrir
talsverðu tjóni við það að bif-
reiðin eyðilagðist, en hann
hafði sjálfur mikið unnið að því
að setja þessa bifreið saman
og annast viðhald á henni.
Síldin —
Framh. af bls. 1:
síldarbátar sem þar eru að fara
í var i morgun.
Fjórir bátar á veiðislóðum
þar tilkynntu s. I. sólarhring
síldarafla samtals 4250 mál, en
til Dalatanga tilkynntu sfldar-
afla 13 bátar samtals 3880 tunn
ur og mál, og veiddist sú síld
aðallega í Reyðarfjarðardýpi
og við Hrollaugseyjar.
Eitt síldarskip fékk 500 mál
út af Héraðsflóa og einn bátur
(Þórður Jónasson) mun hafa
fengið síld mjög djúpt, en blað
inu er ekki nánar um það
kunnugt.
IBUÐ OSKAST
2ja eða 3ja herbergja íbúð óskast nú þegar í
Reykjavík, Kópavogi eða Hafnarfirði. Sími
31212 eftir kl. 3
STÚLKA ÓSKAST
Rösk og ábyggileg stúlka óskast í matvöru-
búð. Vaktavinna. Sími 14161.
íbúðir í smíðum
við Hraunbæ
Höfum til sölu íbúðir í smíðum af flestum
stærðum. Góðir greiðsluskilmálar.
HÚS OG SKIP FASTEIGNASTOFA
Laugavegl 11, sími 2-1515. Kvöldsími 23608 — 13637.
IÐNSKÓLINN í
REYKJAVÍK
Innritun fyrir skólaárið 1965-1966 og nám-
skeið í september fer fram í skrifstofu skól-
ans dagana 23.-27. ágúst kl. 10-12 og 14-18.
Námskeið til undirbúnings inntökuprófum og
öðrum haustprófum hefjast miðvikudaginn
1. september.
Við innritun skal greiða skólagjald kr. 400 og
námskeiðsgjöld kr. 200 fyrir hverja náms-
grein.
Nýir umsækjendur um skólavist skulu leggja
fram prófvottorð frá fyrri skóla og náms-
samning.
Skólastjóri
I