Vísir - 19.08.1965, Blaðsíða 5

Vísir - 19.08.1965, Blaðsíða 5
5 VI S IR . Fimmtudagur 19. ágúst 1965. heims- horna milli © Þúsundir manna fóru 1 gasr um götur Jerúsalem og mót- mæltu að stofnað hefur verið til stjómmálatengsla milli Isra- els og Vestur-Þýzkalands. © Tíu manns biðu bana og 25 meiddust er árekstur varð milli hraðlestar og flutningalets- ar í gær nálægt Gador á Suð- ur-Spáni. ► Óeirðir urðu í gær í blökku- m.hverfi í L. Angeles, er lögregl an fór inn í byggingu, þar sem er bænahús mohameðanskra blökkumanna, og fór hún þang að vegna gruns um, að þar væru skotfærabirgðir og vopn. Seg- ir hún að skothríð hafi verið hafin og lögreglan svarað henni. — 40 blökkumenn voru hand- teknir. ► Indverjar segja 230 „flugu- menn“ frá Pakistan hafa fallið og 80 verið tekna höndum í Kashmir, en manntjón Indverja sé 107 faiinir og særðir. — Kashmirmálaráðherra Pakistan segir, að „baráttumenn frelsis- ins“ í Kashmir muni í neyð sinni fá fullan stuðning Pak- istan. ► Shastri forsætisráðherra Indlands hefur frestað fundi utanríkisráðherra Pakistan og Indlands sem halda átti í Dehli. Orsökin er versnandi horfur i sambúð landanna. ► Malraux menntamálaráð herra Frakklands sem fyrir nokkru fór tii Kína og ræddi við Mao tse Tung gerð' de Gaulle grein fyrir viðræðun um í gær. Þær eru taldar hafa verið hinar mikilvægustu, en ekki „beinlínis fjallað um að leiða Vietnamstyrjöldina tii Iykta með friðsamlegu sam- komulagi“. ► Averill Harriman sérlegur sendimaður Johnsons forseta sagði í gær 1 ræðu í New York að mark sovézkra og korrwjún istaleiðtoga sé enn heimsbylt- ing — svo og kinverskra, og báðir hafi vakandi augu á vest- rænum leiðtogum, til þess að geta notað sér það, ef nokkur bilbugur skyldi á þeim finnast. ► Súdanskar herþotur hafa gert sprengjuárásir á 3 bæki- stöðvar uppreisnarmanna i Suð ur-Súdan. manmt HS Vietcong viö Chu Lai Vietcong veitir betur við DuCo Fjölmennu, bandarisku land- gönguliði tókst i gær að umkringja um 2000 Vietcong-hermenn, er það var að hrekja þá til sjávar í grennd við flugstöðina Chu Lai. í NTB-frétt frá Saigon segir, að þetta sé mesta hernaðaraðgerð í landhernaði í S.-Vietnam, sem bandarískar hersveitir hafa fram- kvæmt. — Landgönguliðarnir réð- ust á Vietcongliðið úr þremur átt um og beið það mikið manntjón — að sögn svo nemur hundruðum. Árásirnar hófust í gærmorgun. Vietcongliðið hafði búizt til vam- ar f frumskógi um 16 km, frá Chu Lai, en þessi flugvöllur, sem er 500 km. norðaustur af Saigon, er fyrir skömmu fullgerður. Ein sveit landgönguliðanna var flutt á vettvang í þyrlum, en önnur flutt sjóleiðis og flutt til lands í sér- staklega útbúnum lendingarbátum. Orustan um Du Co. Við Du Co nálægt landamærum Kambodja er aðra sögu að segja. Þar er ur. undanhald og hrakfar- ir að ræða ,en þangað var sendur liðsauki fyrir nokkru, stjórnarher- menn og bandarfskir hermenn, og er þeim veittur stuðningur með árás um flugvéla. Við Du Co er varnar stöð, þar sem aðþrengt setulið hafði; varizt vikum saman. Leið- ángurinn því til' hjálpar hefur nú endað með hrakförum og þorpið Du Co algerlega á valdi Vietcong og nokkur hluti varnarstöðvarinn- ar. ► Singapore-ríki hefur sent framsveit herdeildar til Borneo tii varnar sambandsríkjum Malajsíu þar. Með þessu hefur Singapore-stjóm sýnt, að hún ætlar að standa við skuldbind- ingar sínar við Malajsíu um sameiginlegar vamir. Á uppdrætti þessum em ýmsar helztu strandstöð var, þeirra meðal Chu Lai, en þar í grennd er 2000 manna lið Vietcong umkringt. — Skástrikuðu svæðin em þau, sem em á valdi Vietcong. útlönd: í Fiorgun ' útlönd mornim útlönd í morgun útlönd morgrni Gemini V skotið á ioft í dng? Stjómarmyndun í Grikklandi Geminigeimfarið með geimför unum Conrad og Cooper verður skotið á loft frá Kennedyhöfða síð degis í dag, ef eklti verður tekin önnur ákvörðun á seinustu stundu. Konstantin Gríkkjakonungur fól í gær Tsirimokosi stjómarmynd- un. Vinnur stjóm hans með hann í fararbroddi Konstantin konungi hollustueiða í dag, en í næstu viku gengur Tsirimokos fyrir þjóðþing ið og fer fram á traust þess. Konungur ræddi í gær og fyrra dag við hann og Stefanaopolos um stjómarmyndun og var talið að hann mundi frekar leita til hins sfð amefnda, en á seinustu stundu á- kvað konungur að fela hlutverkið Tsirimokosi, og segja fréttaritarar að það muni hafa ráðið úrslitum að hann sé lfklegri til að fá me'ira fylgi hins róttækari arms Miðfl.- ins en Stefanaopolos. Báðir eru þeir í MiðflokHnum en sneru baki Ráðgert er að geimfarið verði 8 sólarhringa á braut kringum jörðu eða jafnlangan tíma og það mundi taka að fljúga geimfari til við Papandreou. Stefanopolos var tunglsins og aftur til jarðar. I varaforsætisráðherra og Tsirimo kos innanríkisráðherra f stjóm hans. Ekki var þess getið í fréttum í gær, að neinar nýjar kröfugöng- ur hefðu verið far^ar í gær í Aþenu

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.