Vísir - 19.08.1965, Blaðsíða 11
SÍÐAN
ÞAÐ ER
ALDREI
AÐ VITA...
Hjónaband ársins í Hollywood verður að öllum líkindum þeirra
Frank Sinatra, sem er orðinn 49 ára gamall, og ungu leikkonunnar
Miu Farrow, sem er hins vegar ekki nema 19 ára gömul.
Það er alræmt, að þau muni taka saman áður en langt um líður, jp
enda hefur hvorugt þeirra tekið fyrir við fréttamenn, að þau séu
í þeim hugleiðingum. Eins og áður hefur verið sagt frá hér á síð-
unni fóru þau nýlega saman í skemmtisiglingu ásamt hópi vina
og mynd þessi er tekin af þeim, hjónaleysunum, áður en þau lögðu
af stað í snekkjunni frá Edgartown.
Að vísu er Frank Sinatra örlítið hræddur við presta og gift- |
ingar, enda hefur hann tvívegis áður verið kvæntur, og dóttir hans,
Nancy, er nýskilin við söngvarann Tommy Sands. En hver veit.
Sinatra hefur oft leikið sér að eldinum, og Mia litlá er jafn rauð-
hærð og móðr hennar, Maureen O’Sullivan, og fyrsta hlutverk> henn-
ar í kvikmynd var í myndinni „You Never Can Tell“, eða „Það er
aldrei að vita“. Svo það er aldrei að vita hvað gerist á snekkjunni
.Southem Breeze".
Upptíningur
Nú eru allar horfur á að breyta
verð'i fyrirkomulaginu á smygl-
leit hér í skipum sökum mann-
ekiu, ef þeir hjá Interpol halda
áfram að senda tollurum hérna
skýrslu um heildsölukaup skip
verja á Hulskamp og Camel er-
lendis ... hefur heyrst að skip-
verjar verði sjálfir látriir leita
uppi smygl sitt, ef saman geng
ur með þeim og tollþjónustunni
um kaupið — en -sagt er að sjó-
mennirnir krefj'ist fagmanns-
kaups samkvæmt uppmælingar-
texta, auk þess fái þeir þessar
venjulegu tuttugu-þrjátíu þús-
und krónur á mann fyrir að taka
verkið að sér og loks megi þeir
sjálfir ákveða hve mikið af fag-
vinnulaununum verði gefið upp
til skatts, en að sjálfsögðu verð
ur reiknað nætur- og helgidags
álag á allt saman ... og mun
nú í athugun hvort ekki borgi
sig betur fyr'ir alla aðila að
skeytin frá Interpol verði ekki
lesin — sökum manneklu —
fyrr en viðkomandi skip hefur
látið aftur í haf . .. Sagt er að
í uppsiglingu séu víðtækustu
barnsfaðernismál sem um get-
ur hér í bæ, auk þess sem þau
munu einsdæmi, ekki einungis
hér, heldur þótt víðar væri leit-
að . .. Það hefur sumsé komið
á daginn. að skýrsluvélar borg
arinnar hafa gripizt annariegri
frjósemi og reynst ekki síður
afkastamiklar við barneign'imar
en skattareikningana . . . Hafa
sumir skattborgarar fengið á sig
þrjú til fjögur skýrsluvélar-
börn — sumir eftir að hafa bú
ið í bamlausu hjónabandi f ára-
tugi — og lætur nærri hvemig
konur þeirra muni bregðast við
... Að sjálfsögðu krefja vélam
ar viðkomandi um full meðlög,
og standa nú fyrir dymm rétt-
arhöld, blóðrannsóknir og e.t.v.
svardagar í þessu sérkennilega
máli, og verður engu spáð um
dómsniðurstöður að svo stöddu
en sagt er þó, að ekki horfi
vænlega fyrir skýrsluvélabams
feðurna, sem f rauninn’i standi
berskjaldaðir fyrir þessum véla-
brögðum... Getur þetta uppá-
tæki skýrsluvélanna orðið tals-
vert vandamál þegar fram í sæk
ir, takist ekki að venja þær
af lauslætinu, þær eru ungar
enn og ógerlegt að segja fyrir
um viðkomuna — ekki heldur
hvort að slíkar vélsniftir komist
yfirleitt nokkumtíma úr barn-
eign ... En eitt er staðreynd —
börnin eru komin á skýrslur og
skrá, og gerist einhverjir aðilar
svo djarfir að freista þess að
má þau á brott af þeim, gerast
þeir sekir um útburð ... því að
það, sem komið er á skrá ,er
þar með orðið skýrslulega til,
hvort sem það er til eða ekki
til ..
Kári skrifar:
TVTýlega varð hér í borg alvar-
1 ’ legt slys, er strætisvagn og
langferðabíll óku saman á gatna
mótum Ægisgötu og Öldugötu.
Hættulegt hom
Þetta götuhom hefur langa
lengi verið afar hættulegt, þar
sem bifreiðir er fara upp Ægis-
götuna virða ekki sem skyldi
akstursrétt þeirra, er aka Öldu
götu í vestur. Þarna á horninu
er einnig erfitt að sjá í fljótu
bragði hvort bifreið nálgast á
vinstri hönd og hafa margir bú-
izt við að þarna yrði stórslys.
Það hlýtur að vera nauðsyn-
legt að merkja þesi gatnamót á
þann þátt, að annað hvort fái
önnur gatan aðalbrautarrétt eða
sett verði rækileg aðvörunar-
merki.
Ofhleðsla
Hitt var þó öllu furðulegra,
að ekki skyldu fleiri en þrir
slasast í strætisvagninum. Það
er alkunna að strætisvagnar
borgarinnar eru á ýmsum tím-
um sólarhrings svo yfirhlaðnir,
að nærri stappar brjálæði. Það
væri fróðlegt að vita hvað trygg
ingarfélögin segja um slíkar yf
irhleðslur. Strætisvagn með á
annað hundrað farþega innan-
borðs þarf ekki mikið högg til
að úti sé um lff fjölda manna.
Þetta er eitt af þeim fáu atrið-
um, sem Strætisvagnar Reykja
víkur þyrftu að reyna að bæta.
Of seint að byrgja
brunninn...
Það sem bjargaði í þetta sinn
var hversu fáir farþegar vom
f strætisvagninum. En þrátt fyr
ir það slösuðust þó þrfr. Hefði
vagninn verið fullur af farþeg-
um og lent í svipuðum árekstri
væri eflaust fjöldi þeirra lát-
inn. Þetta er ekki gamanmál og
þarf að lagast. Það er slæmt ef
alltaf skal þurfa banaslys tíl að
einhverjar endurbastur ver*i á
umferðarmálum.
’.y. Ki>'Tin