Vísir - 19.08.1965, Blaðsíða 13
VÍSIR . Fimmtudagur 19. ágúst 1965.
13
Skansinn —-
Framta. af bls. 9.
mikla.
Og var sérstaklega eftir
þetta síðara atvik, sem menn
fóru að skelfast sjóræningjana.
Stöðugur ótti var nú um að ó-
kunnug skip væru að læðast að
eyjum og þá var tekið til við
að reisa Skansinn í þeirri mynd
sem leifar hans sýna nú allvel.
Skansinn var öflugur grjót-
veggur sem var hlaðinn £ fer-
hyming umhverfis verzlunar-
húsin. Svæðið innan hans var
um 32 metrar á lengd og um
15 metrar á breidd. Hæð grjót-
veggsins var um 2 metrar og
þykktin um 5 metrar. í homun-
um var komið fyrir fallbyssum
og auk þess var garðurinn góð-
ur til vamar fyrir skyttur. Þar
var löngum hafður varðmaður
til að hirða um vopnin og æfa
menn í vopnaburði. En stund-
um þegar óttinn var mestur við
ræningjaferðir var vörður á
toppi Helgafells og skiptust
bændur á um þann starfa. Ef
grunsamlegt skip nálgaðist
Eyjar skyldi hringja klukkum
Landakirkju.
Úrval af bílum - ÚRVALSBÍLUM
EK 74/64
ÞÉR getið válið úr 4 gerðum af Opef Kadett: Kadett fólksbíllinn með 46 ha vél,
fjórskiptan gírkassa, þægileg skálariaga framsæti, sparneytinn, rúmgóður og lipur.
Kadett "L" Deluxe-bíllinn með alla Kadett eiginleika og auk þess 24 atriði til þæg-
inda og prýði, s. s. rafmagnsklukku, vindlakveikjara, teppi, hjóldiska........
Kadett Coupé, sportbíllinn með 54 ha. vél, útlitseinkenni sportbíla og deluxe útbúnað.
J Vestmannaeyjum hefur eins
og víða annars staðar í
kaupstöðum verið komið upp
byggðasafni og hefur safnazt
til þess ógrynni af ýmsum
gömlum munum. Lifið og sálin
í þessu safnastarfi hefur verið
Þorsteinn Þ. Víglundsson skóla-
stjóri. Er þetta safn meðalhinna
stærstu byggðasafna hér á
landi.
Eitt af því sem Þorsteinn hef-
ur beitt sér fyrir er að hann
hefur látið gera lfkan af
Skansinum gamla og Garðs-
kaupstað eins og þau litu út
áður en farið var að hrófla við
þeim. Er lfkan þetta nú til sýn-
is á safninu og gefur ákaflega
góða hugmynd um þessa miklu
virkisgerð, og hvemig hún varð
veitti innan veggja sinna það
sem Danimir töldu verðmætast,
verzlunarhús og íbúð danska
kaupmannsins £ Garðinum.
Likanið er miðað við útlit
Garðsverzlunar árið 1842, en þá
var gerð þar úttekt og er út-
tektarlýsingin enn varðveitt
svo mjög glöggar heimildir em
til um það hvemig verzlunar-
staðurinn leit út. Þessa úttektar
Iýsingu sendi Jóhann Gunnar
Ólafsson bæjarfógeti Þorsteini
fyrir nokkmm ámm með til-
mælum um að likan yrði gert
af verzlunarstaðnum. Var þá
gripið til þess .ráðs að leita
samskota til að gera llkanið og
gengu þau samskot sérstaklega
vel. Kostnaðurinn var um 42
þúsund krónur og kom það fé
inn á skömmum t£ma með sam-
skotum. Þeir Eggert Guð-
mundsson listmálari og dansk-
ur listamaður Aage Nilsen
Edwen gerðu lfkanið og þar geta
menn séð glögglega hvemig
hinn danskj verzlunarstaður og
skansinn litu áður út.
T leiðinni er svo margt annað
að skoða við heimsókn f
byggðasafn Vestmannaeyja. AI-
veg sérstakt fyrir það er hið
mikla fiskasafn, sem Þorsteinn
Þ. Víglundsson hefur unnið að
því að koma upp með alveg sér
stökum áhuga. Er það mjög
stórt og fullkomið og þar að
finna margar sjaldgæfustu
fiskategundir hér við land.
Á safninu eru nú um 80 teg-
undir af fiskum ýmist útstopp-
aðir eða geymdir í formalfni.
Merkasti gripurinn er kannski
hinn svokallaði silfurbrami, en
það er fiskur sem mjög fá ein-
tök eru til af í heiminum. Áður
var ekki vitað um nema 13 ein-
tök af honum, sem flest hefur
rekið á land í Noregi og voru
þá ekki í sérlega góðu ástandi
Hér er þá 14. eintakið sem
veiddist f net og f sérstaklega
góðri varðveizlu.
Hér er tegund eins og kólgu
flekkur, aðeins vitað um tvo
þeirra, sem veiðzt hafa við Is-
land. Hér er að sjálfsögðu sá
einkennilegi og fágæti fiskur
sem kallast vogmær. Það þykir
kannsk'i ekki í frásögur færandi
að hér sé til sá ófrýn’ilegi fisk
ur, sem kailast skötuselur því
að nóg er til af honum hér við
land. Hitt er meira að safnið á
hvorki meira né minna en 5
stk. af fiski sem kallast Lúsi-
fer og er mjög sjaldgæfur. Hann
er stundum kallaður Ijótasti
fiskur hafsins, Iifir í myrkrum
undirdjúpanna og hefur þá að
ferð við öflun fæðu að bregða
upp Ijósi til að ginna fómar
dýrin til sín. Nefna má ennfrem
ur að á safninu má sjá átta
tegundir af háfum og eru sum
ar þær tegundir mjög sjaldgæf
ar. Þessar átta tegundir nefn-
ast: Venjulegur háfur, loðháf-
ur, rauðháfur, gráháfur, brand-
háfur, flatnefur, svartháfur og
gljáháfur.
Allir þessir fiskar hafa veiðzt
á miðum Vestmannaeyinga,
enda er dýralíf fjölbreyttara í
sjónum við suðurströndina en
annars staðar. Sumar þær teg-
undir sem Þorsteinn hefur
þannig náð í eru mjög sjald-,
Caravan iOOO, station bíllinn fyrir a) 2 farþega og 50 rúmfet. af farangri b) 4-5 far-
þega og stóra farangursgeymslu c) 6-7 farþega (með barnasæti aftast).
Auk þessa má velja úr litum, litasamsetningum og fjölda aukahluta til þæginda
og prýði. *
Hringið, komið, skrifið, - við veitum ailar upplýsingar.
ÁRMÚLA 3, SÍMI 38900.
gæfar og eftirsóttar af náttúru-
gripasöfnum.
Margt fleira er þar að sjá, m.
a. byssa úr hinni sögufrægu
varðsveit Vestmannaeyja og
þar eru munir og myndir er
sýna starfið við sjávarútveg
fyrr á tíð, þegar aðstaðan var
hin báglegasta og þurfti m. a.
að seila allan fisk í land upp
á klappir því að um bryggjur
var vart. að ræða.
þar eru einnig minjar þess,
að Vestmannaeyingar urðu
fyrstir manna til að koma sér
upp fullkomnu varðskipi til að
verjast ágangi erlendra tog-
ara. Eru í safninu varðveitt
nafnskilti og klukka úr varð-
skipinu Þór, sem varð fyrsta
fslenzka varðskipið en það var
áður danskt rannsóknaskip og
hét. Thor. Þannig varðveita
Vestmannaeyingar sjálfir sfna
sögufrægð með gömlum minj-
um.
RÖNNING H.F.
Sjávarbraut 2, við IngóIfsgarS
Siml 14320
Raflagnir, viðgerðir á heim-
ilistækjum, efnissaia
ÍVmtun p
prcnfsmlðja & gámmlstimplageré
Elnholtl 2 - Sfmi 20760
ÞJÓNUSTA - ÞJÓNUSTA
GÓLFTEPPA OG HÚSGAGNAHREINSUN
Hreinsum i heimahúsum — sækjum sendum. Leggjum gólfteppi —
Söluumboð fyrir Vefarann h.f. Hreinsun H.F. Bolholti 6 Sfmar 35607
og 41101.
HEIMILIST ÆK J A VIÐGERÐIR
Þvottavélai — hrærivélar — rafkerfi oliukyndinga og önnur raf-
magnsheimilistæki — Sækjum og sendum. — Rafvélaverkstæðið
H. B Olafsson, Sfðumúla 17. Sími 30470.
VIÐGERÐIR Á STEINRENNUM
Bakið ykkur ekki tugþúsunda tjón með þvi að vanrækja nauðsyn-
legt viðhald á steinrennum. Við lagfærum með þýzkum nylonefnum
skemmdar rennur, ennfremur þéttum við steinþök og svalir. 5 ára
reynsla hérlendis. Aðeins fagmenn vinna verkið. Pantið tímanlega
Símar 37086 og 35832, (Geymið auglýsinguna).
TEPP AHR AÐHREIN SUN
Hreinsum teppi og húsgögn i heimahúsum. Fullkomnar vélar. —
Teppahraðhreinsun, sfmi 38072.
Gólfteppa- og húsgagnahreinsun
Vönduð vinna, fljót afgreiðsla. Nýja teppahreinsunin, Simi 37434.
ÍSETNING — ÞÉTTING
Isetning á bognum fram- og afturrúðum, þétti einnig lekar rúður
Pantið tíma 12-1 og 6-8 e.h. í síma 38948. (Geymið auglýsinguna)
TREFJAPLASTVIÐGERÐIR
Ryðbætum með trefjaplasti gólf og ytra byrði bifreiða, gerum við
báta. Setjum trefjaplast f þvottahús o. m. fl. Plastval Nesvegi 57
sími 21376.
VINNUVÉLAR — TIL LEIGU
Leigjum út litlar steypuhrærivélar. Ennfremur rafknúna grjót- og
múrhamra með borum og fleygum. Steinbora — Vibratora — Vatns-
dælur. — Leigan s.f. Sfmi 23480.
LEGGJUM GANGSTÉTTIR
SÍMI 36367