Vísir - 24.08.1965, Qupperneq 1
I
55. árg. — Þriðjudagur 24. águst 1965. - 190. tbL
Stórkostleg sjón ú Skógnstmdi, er
hinn fronski eldhnöttur þout upp
Frönsku eldflauginni skotið upp
nokkru eftir miðnætti í nótt
Eldflaugarskotið yfir Skóga-
sandi í nótt. Flaugin leit út eins
og glóandi eldhnöttur, þar sem
hún hvarf upp í skýjaþykkniS.
Myndin efst á síðunni sýnir eld
flaugabækistöðina. Vinstra meg
in er skáli sá upplýstur þar sem
vísindamennimir dvöldust. Eld-
flaugin hefur verið reist upp og
sést hægra megin á myndinni.
Í nótt um 43 mínútum
eftir miðnætti var
frönsku eldflauginni
skotið af Skógasandi
Mjög mikið fjölmenni
hafði safnazt saman við
Skógaskóla og á þjóð-
veginn og fjallshlíðarn-
ar austur af Drangshlíð
til þess að horfa á þetta
áhrifamikla fyrirbæri.
Þegar eldflauginni var skotið
fór /
hæð
Næsta skot etv annað kvöld
Eldfluugin
406 km.
Vísir átti stutt samtal við
prófessor Blamont og spurði
hann um, hvort hann væri á-
nægður með eldflaugarskotið.
Hann svaraði: — Ég hugsa að
ég geti verið mjög ánægður
með það. En áður en ég get
sagt það endanlega á ég eftir
að athuga mælingar í samband’i
við eina hlið vísindarannsókn-
anna.
Prófessor Blamont var mjög
önnum kafinn eftir eldflaugar-
skotið og greinilegt að spenn-
unni hjá vísindamönnunum var
ekki lokið, þó eldflaugin hefði
þegar lokið för s’inni. Nú var
eftir hjá þeim að athuga áritun
mælitækjanna, sem segja til
um, hver vísindalegur árangur
verður af tilrauninni.
— Veðuraðstæður voru hin-
ar hentugustu sem hægt var að
fá, hélt prófessor Blamont a-
fram. — Það var logn á jörðu
svo að sérstaklega vel gekk að
koma veðurathuganabelgjunum
á loft. Skotið sjálft heppnaðist
mjög vel.
Við spurðum prófessor Bla-
mont, hvort það hefði skemmt
nokkuð fyrir að skýjaflókinn
var yfir skotstaðnum. Hann
sagði að það hefði engu máli
skipt. Eldflaugin sagði hann að
hefði kom’izt upp í 406 km. hæð
eða jafnvel nokkru hærra en
ætlað hafði verið.
— Hvenær verður seinni eld-
fiauginni skot’ið á loft?
— Kannski strax á miðviku
dagskvöldið ef aðstæður eru
góðar, svaraði prófessor’inn. Sá
dagur er einn sá allra hagstæð-
asti upp á segulmælingamar að
gera.
var himinn skýjaður með köfl-
um og eldflaugin fór upp í
gegnum mikinn skýjaflóka í
um 500 metra hæð. En síðar
mátti sjá eldflaugina halda ferð
inni áfram upp í stjörnubjartan
himin fyrir ofan þennan skýja-
flóka og var það furðuleg sýn,
að sjá eldflaugina halda áfram
að stíga hærra og hærra sek-
úndu eftir sekúndu unz hún
hvarf eins og stjörnglit lengst
í upphæðunum.
Komið að bækistöð-
inni í skýfalli.
Fréttamaður Vísis kom aust-
ur á Skógasand um kl. 8 í
gærkvöldi. Ók hann niður eftir
afieggjaranum frá þjóðveginum
n’iður að bækistöð Frakkanna.
Var þá heldur ömurlegt um að
litast þar. Rétt í því gekk yfir
úrhellisrigning, sem jókst stöð-
Framh á ols b
Yfirmaður vísindatilraunanna á Skógasandi. Prófessor Blamond
sést hér við endann á eldflauginni sem skotið var í gær.
Þessi mynd var tekin á Skógasandi um hálftíma áður en eldflauginni var skotið. Starfsmenn eru að
leggja síðustu hönd að verki við stillingu flaugari nnar.
VÍSIR
S VÍVIRÐILEG ÁRÁS Á 79 ÁRA
GAMLA KONU
Mjög frekleg og svívirðileg á-
rás var gerð á 79 ára gamla konu
síðastliðið laugardagskvöld, en
hún býr ein í húsi við Bergþóru-
götu. Árásarmaðurinn skildi kon-
una hjálparvána og stórmeidda
eftir í húsinu og þar fannst hún
morguninn eftir liggjandi marin
og blóðug og mjög miður sín.
Rannsóknarlögreglan hefur
skýrt Vísi svo frá að á laugar-
dagskvöldið hafi maður, rúmlega
sextugur að aldri, komið í heim-
sókn til gömlu konunnar. Þau
þekktust eitthvað frá fornu fari,
enda hafði hann búið áður í þessu
sama húsi. Hann mun hafa verið
undir áhrifum áfengis og hafði
vín meðferðis.
Eitthvert missætti mun hafa orð-
ið á milli konunnar og mannsins
og reiddist hann þá svo ofsalega
að hann réðist á gömlu konuna og
barði hana sundur og saman. En
áður var konan veil í fótum og
gat ekki gengið nema með hjálp
eða stuðningi. Þegar honum
fannst nóg að gert, yfirgaf
hann húsið og lét ekkert vita um
gömlu konuna, þótt hún væri m’ik-
ið slösuð.
Gamall maður, sem býr í nær-
liggjandi húsi, annast innkaup
fyrir konuna, þar sem hún er ekki
fær til þess sjálf sökum fótaveiki.
Hann kom til hennar um níuleyt-
ið á sunnudagsmorguninn og ætl-
Framh. * f síðu