Vísir - 25.09.1965, Blaðsíða 3
Ti
VÍSIR . Laugardagur 25. september 1965.
|*tneitanlega var dálítið fram-
^ andlegt andrúmsloft ríkjandi
að tjaldabaki í Þjóðleikhúsinu
upp úr hádegi í gær, þar sem
franski ballettflokkurinn —
Grand Ballet Classique de France
— undirbjó aðaiæfingu undir
fyrstu sýninguna hér. Flokkur-
inn kom ekki tii landsins fyrr en
seint í nótt; æfingin fyrir há-
degið fórst fyrir svo að dansend-
umir gætu notið hvfldar — enda
var ekki að sjá annað en þeir
væru prýðilega útsofnir og í
bezta skapi, þegar æfing átti að
hefjast.
—Vlð sýnum einungis sígildan
„ALLTAF DÁLÍTIÐ KVÍÐANDF
ballett, segir ein af fjórum
„prima ballerinum“ þelm, sem
flokkurinn hefur á að skipa —
hln dökkhærða, smávaxna Liane
Dayde. Dökk augun og fegurðin
er franskt, en framkoman róleg
og hlédræg. Liane Dayde var áð-
ur ein af þekktustu prima baller-
inum frönsku óperunnar, en hefur
starfað með þessum ballettflokki
r/idanfarin tvö ár, eða frá stofn-
un hans og endurskipulagningu
undlr þessu nafni.
— Franskur ballett er, fræðl-
lega séð, elztur f Evrópu, segir
hún, og frá Frakklandi breidd-
ist hann út til annarra landa
Evrópu — t.d. Rússlands, Dan-
merkur og Bretlands. ítalski
ballettinn væri ef til vill eldri,
ef unnt væri að tala um ítalskan
ballett nú órðið. Sá sígildi ballett,
sem við sýnum, byggir því á fom-
um erfðum. Ég mundi segja, að
hann færi bil beggja, þess brezka
og rússneska — stæði þar mitt á
milli, ef svo mætti segja. Ég vii
taka það fram, að danski ball-
ettinn er mjög góður. Eitt sinn
dansaði ég undir stjórn hins
danska ballettmeistara, Harold
Landers — hann var frábær.
— Hvað um nýtizku ballett
franskan?
— Hann stendur einnig mjög
framarlega. En við einbeitum
okkur, sem sagt, að þeim sígilda.
Þessi flokkur hefur farið mjög
víða um lönd — m.a. til Kína
— og hvarvetna hlotið beztu við-
tökur.
Tvær brezkar dansmeyjar eru
með flokki þessum. Önnur
þeirra, ungfrú Gielgaud, hefur
verið með honum síðustu tvö
árin sem „prima ballerina". Hún
er uppalin á Frakklandi frá
fjögurra ára aldri og hefur num-
ið ballett þar. Hin hefur einung-
is verið með flokknum í nokkra
mánuði. Einnig er með í hópnum
þýzkur ballettdansari, — var áð-
ur í baliettflokki óperunnar í
Stuttgart. Að öðru leyti er flokk-
urinn eingöngu skipaður frönsk-
um dansendum.
Fréttamaðurinn vék sér að
nokkrum dansmeyjum og spurðl
þær hvort þær hefðu kviðið fyrir
förinni hingað. Það fór hrollur
um þær. — Við héldum að hér
væri ákaflega kalt, ískait-------
en svo er mun hlýrra hér, en
við gerðum ráð fyrir.
— Hvemig segir ykkur hugur
um kvöldið?
Enn fer hrollur um þær. —
Við gerum áreiðanlega okkar
bezta, en vitaniega erum við alit
af dálítið kvíðandi. Annars getur
maður ekki heldur gert sitt bezta
... það heyrir hvað öðru til ...
Ein af aðaldansmeyjunum, Liana Daydé, og mótdansari hennar á æfingu.
Rætt við frönsku ballettdansarana
á æfingu í Þjóðleikhúsinu í gær