Vísir - 25.09.1965, Blaðsíða 8

Vísir - 25.09.1965, Blaðsíða 8
8 V í S I R . Laugardagur 25. september 1965. VISIR Útgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR Framkvæmdastjóri: Agnar Ólafsson Ritstjóri: Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóran Jónas Kristjánsson Þorsteinn Ó. Thorarensen Auglýsingastj.: Halldór Jónsson Sölustjóri: Herbert Guðmundsson Bitstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald: kr. 80,00 á mánuði innanlands í lausasölu kr. 7,00 eintakið Prentsmiðja Vísis — Edda h.f. Línurnar skýrast Línumar em nú farnar að skýrast í afstöðu Þjóð- viljans til ágreinings Sovétríkjanna og Kína. Ritstjór- amir em greinilega á bandi Kínverja, a. m. k. nú sem stendur. Þetta kom m. a. fram í skrifum Þjóð- viljans um ófriðinn milli Indlands og Pakistan, þar át hann allt upp, sem Kínverjar sögðu. Er helzt svo að sjá sem ritstjórar Þjóðviljans meti þá mest, sem lengst ganga í ofbeldi og ósvífni. Kommúnistar hafa hvergi í heiminum unnið svo viðbjóðsleg hryðjuverk, að Þjóðviljinn hafi ekki lagt blessun sína yfir þau, ef hann hefur getið þeirra á annað borð. Síðasta dæmið um þetta er klausa, sem birtist þar núna í vikunni: „Tíbetbúar hljóta nú sjálfsstjóm". Segir þar að „borgarablöð um heim allan“ hafi öðru hverju verið að „reka upp óp“ um þjóðarmorð Kín- verja í Tíbet og sé ekki kostur að rekja þá sögu að neinu ráði. Þó skuli þess getið, að Tíbet hafi til skamms tíma verið eitt „viðurstyggilegasta þjóðfé- lag heims“ unz Kínverjar komu og lögðu það undir sig. Síðan kvað, að sögn blaðsins, öllu fleygja þar fram, og landið er hvorki meira né minna en að „fá sjálfsstjórn innan Kínverska alþýðulýðveldisins“. Já, hvílík náð og blessun! Áður er kínverksir kommúnistar réðust inn í landið voru Tíbetbúar sjálfstæð og friðsöm þjóð, sem hvorki hafði löngun né bolmagn til þess að ýfast við nágranna sína. Meðferð Kínverja á þeim eftir her- námið er einhver sú hryllilegasta, sem um getur í veraldarsögunni. Hlutlaus, alþjóðleg nefnd lögfræð- inga, sem falið var að rannsaka þetta mál fyrir nokkr- um árum, komst að þeirri niðurstöðu, að viðbjóðs- legri kúgunaraðferðir en Kínverjar beittu þessa litlu þjóð mundu vart eiga sinn líka a. m. k. á síðari öldum. Þetta kalla ritstjórar Þjóðviljans'„frelsun“ og öðr- um álíka fögrum nöfnum. Þannig er þeirra skilning- ur á mannúð og réttlæti. Svipað sögðu þeir um þjóð- armorðin í smáríkjunum þremur við Eystrasalt, þeg- ar Rússar innlimuðu þau og gengu milli bols og höf- uðs á menningu þeirra og þjóðerni. Allt eru þetta hlutir, sem ritstjórum Þjóðviljans þykir með öllu ástæðulaust „að reka upp óp um“. Góðu börnin attur! þjóðviljinn hefur verið að segja leiðtogum Fram- sóknarflokksins til syndanna undanfarið, setja ofan í við þá, eins og óþæg börn. Kommúnistum þykir stefna þeirra reikui og oft erfitt að átta sig á, hvað þeir vilja, og lái þeim það hver sem vill. Þetta hefur sín áhrif og ritstjórar Tímans reyna að sýna að þeir vilji nú þrátt fyrir allt vera góðu börnin. Því til sönn- unar þótti þeim vel hlýða í fyrradag að láta blað sitt éta upp þvætting Þjóðviljans um skólabygging- amar í Reykjavík. ({ i ALBERT SCHWEITZER Nú slokknað er eitt leiðarljós, er lýsir þó. Hann lifði fyrir ást til alls, sem aldrei dó. Með ævi sinni sýndi hann oss sálarmátt, hve trúin styrkir starf til góðs, ef stefnt er hátt. í tímans myrkri tendrar ljós hans tigna starf. 7 Oss vantar mikla menn, sem hann og marga þarf. Einar Markan. Tónleikar TOM KRAUSE Tom Krause. Finnski óperu- og ljóðasöngv- arinn Tom Krause kemur hing- að til Reykjavíkur á vegum Tónlistarfélagsins um næstu helgi og ætlar aö halda hér tvenna tónieika. Tom Krause er fæddur árið 1934. Hann stundaði tónlistar- nám í Helsinki og að því loknu hélt hann til Vínarborgar til framhaldsnáms. Árið 1959 var hann ráðinn til Berlínar og söng þar ýms óperuhlutverk, auk þess sem að hann hélt fjölda 'tónleika í ýmsum löndum. Árið 1962 var hann ráðinn til að syngja með Filharmonisku hljómsveitinni í Hamborg og að því loknu réðist hann til óper- unnar þar í borg og þar hefir hann verið búsettur síðan og sungið ýms óperuverk bæði í Hamborg og öðrum borgum Þýzkalands. Þá hefir hann hald ið fjölda tónleika. Nú er Tom Krause á leið til Bandaríkjanna, er ráðinn þar til að syngja við Metropolitanóperuna, einnig muri hann halda fjölda tónleika í ýmsum borgum þar í landi. Landi hans Pennti Koskimies píanóleikari er með í ferðinni og annast undirleik á tónleik- unum. Tom Krause heldur tvenna tónleika hér, á þriðju- dagskvöld og miðvikudagskvöld 28. og 29. þ. m. Verða þeir í Austurbæjarbíói kl. 7 bæði kvöldin. Á efnisskránni sem er mjög fjölbreytt, eru lög eftir Hugo Wolff, Rich. Strauss, Ravel og Sibilius. Tónlistarfélag ið hefir gefið út mjög vandaða efnisskrá þar sem allir frum- textar ljóðanna eru prentaðir. Þorsteinn Valdimarson skáld hefir þýtt þá alla í bundið mál og eru þær þýðingar einnig prentaðar í efnisskrána. Þetta verða aðrir tónleikar Tónlistarfélagsins á þessu hausti, en þeir áttundu £ röð- inni þetta ár. Förstermann leikur í Sunnudaginn 26. sept. kl. 6 síðdegis verða orgeitónlelkar haldnir í- Skálholtsdómkirkju. Listamaðurinn, Martin Giinther Förstermann, er einn hinna við urkenndustu orgeísnillinga nú á tímum, er prófessor við tón- iistarháskólann í Hamborg. Prófessor Förstermann er ís- lendingum að góðu kunnur, frá því er hann hélt hér tónleika fyrir nokkrum árum. Það er ekki nóg með að hann hafi farið í tónleikaferðir um gjörvalt föðurland sitt, Þýzkaland, held- ur hefir hann einnig haldið tón leika í flestum Evrópulöndum .'.•.«awtE8 og Ameríku, auk útvarps- og sjónvarpssendinga. Efnisskráin hefst með þvi að leikin verður Tokkata, Variati- on og Fuga (quasi Improvisati- on) eftir Förstermann við sálm- inn: „Vakna Zions verði kalla“. Þá koma verk tveggja gamalla orgelmeistara, Preludíum og Fuga í g dúr eftir lærisvein Buxtehudes, Nikolaus Bruhns, og tilbrigði eftir Georg Böhms, er eitt sin var orgelleikari við Tóhannesarkirkjuna í Liineburg. En verk þau, sem fyrst og fremst bera tónleikana uppi, eru orgeltónverk Jóhanns Skálhoiti Sebastian Backs. Preludíum og Fuga f f moll, og einnig Preludí um og Fuga í a dúr. Hin stór- brotna Passacaglia og Fugá í c moll er svo síðasta viðfangs efnið á tónleikunum. Förster- mann mun einnig spila á öðrum stöðum á landinu. Á undan tónleikunum, kl. 4,30, messar séra Guðmundur, Óli Ólafsson, sóknarprestur í Skálholti. Ferð verður frá Bifreiðastöð íslands kl. 2. ☆

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.