Vísir - 25.09.1965, Síða 5
V1SIR . Laugardagur 25. september 1965,
5
Minningarorð
Frú Ellen Steindórsson
Þann 10. þ. m. andaðist á sjúkra
húsi i Kaupmannahöfn frú Ellen
Steindórsson.
Þessi kona var dönsk að ætt og
uppruna, en forlögin höguðu því
svo, að leið hennar lá til íslands.
Hingað kom hún árið 1947. Fáa
þekkti hún þá hér og lítið var
hún kunnug landsháttum, enda
stóð ekki til, að dvöl hennar yrði
nema nokkrar vikur. En hér bland
aði hún fljótlega geði við fólk og
festi hér rætur, enda urðu vikurn-
ar að sextán árum. Hér stofnaði
hún sitt heimili og hér eignaðist
hún tvo fallega og tápmikla drengi.
írland varð hennar annað föður-
Irnd og Islendingar urðu hennar
þjóð.
Ellen hafði ekki dvalið lengi á
Islandi, þegar við hjónin kvnntumst
henni, og heimilisvinur okkar varð
hún upp frá því.
Árið 1954 giftist hún Steini K.
Steindórssyni, sem í mörg ár var
starfsmaður í Sjúkrasamlagi Rvík-
ur Heimili sitt stofnuðu þau f mínu
húsi og voru leigjendur mínir í 9
ár. Þau eignuðust tvo drengi, sem
nú eru 6 og 8 ára. Ellen var fædd
28. des. 1916, og var því 48 ára
þegar hún andaðist Ellen var trygg
ur vinur vina sinna, hjálpsöm og
góðgjörn.
Eftir að Ellen giftist vann hún
alltaf nokkuð utan heimilisins og
þá að mestu við framreiðslustörf
hjá sendiráðunum í bænum, enda
var hún vel fær til þess. Hún tal-
aði fjögur tungumál. Þýzkan var
henni jafn töm og móðurmálið og
auk þess talaði hún vel íslenzku
og ensku. Við eigum margar minn
ingar um þessa konu og allar góð
ar, en þó mun ég síðast gleyma
því, þegar hún kom eitt sinn inn
til mín og sagði, að hún kæmi frá
lækni sem hefði sagt sér ,að hún
gengi með banvænan sjúkdóm og
það væri ekki hægt að komast hjá
því, að skera hana upp strax. Svo
bætti hún við. Öll eigum við ein
hvern tíma að deyja og ég veit,
að flestir, sem fá þennan sjúkdóm
deyja af hans völdum, en mig lang
ar að lifa lengur þó ekki væri
nema vegna drengjanna minna.
Þessi ósk hennar var ekki upp-
fyllt, og nú er hún látin.
Þegar sýnt þótti að læknarnir
gátu ekki hjálpað henni, fluttust
þau hjónin út til Danmerkur á ár-
inu 1963. Steinn sagði lausri stöðu
sinni hér og flutti til framandi
lands, til þess að konan hans gæti
verið í návist fjölskyldu sinnar
síðasta tímann, og nú stendur
hann þar einn uppi með litlu dreng
ina sína tvo. Ég vona að honum
veitist styrkur til þess að yfirstíga
þessa erfiðleika og við hjónin send
um þeim feðgum innilegar samúð
arkveðjur.
Aron Guðbrandsson.
Reynið nýju
Tempo
MADE-IN U.S.A
Smyglvarningur finnst
í skipi og kjötverzlun
Nýlega hefur tollgæzlan í myndi vera að ræða í umræddri
Reykjavík komizt á snoðir um veczlun. Við leit revndist þetta
smygl, annars vegar úr skipi, hins rétt vera og fundust þar 70 kg.
vegar i kjötverzlun. af innfluttu nautakjöti í frysti-
Þegar m.s. Gullfoss var hér á gevmslu verzlunarinnar. Seinna
ferðinni í vikunni sem leið urðu , var og gerð leit í frystigeymslu,
tollverðir varir við að skipverji sem sama verzlun hefur í einu
var að reyna að smvgla vörum í frystihúsi borgarinnar og þar
land. Komst hann undan með fannst nokkurt magn af inpflutt-
tösku, en málið var kært til lög- um fugli, sem ekki var innflutn-
reglunnar og taskan sótt. Fannst ingsheimild fyrir.
í henni allmikið magn af sund-! Unnsteinn Beck tollgæzlustjóri
skýlum. Við leit tollvarða í skipinu j tjáði Vísi að yfirdýralæknir hafi
fannst svo meiri smyglvarningur : skoðað kjötmetið, því alltaf má bú-
og tjáði Unnsteinn Beck tollgæzlu- j ast við sýkingarhættu af erlendu
stjóri Vísi í gær að alls hafi 400 | kjöti. Innflutningur á því er held-
sundskýlur, 187 sundbolir og 74 ur ekki heimill nema með hans
tylftir af barnafatnaði fundizt og samþykki.
Ekki er búið að grafast fyrir um
það hvemig á þessu kjötsmygli
stendur. Unnsteinn Beck sagði að
það væri af bandarískum uppruna.
en ýmislegt benti til að það væri
ekki af matvælabirgðum hersins
Annars er rannsókn málsins nú í
höndum rannsóknarlögreglunnar.
Frá Þorvaldi Guðmundssyni, eig-
anda verzlunarinnar Síld og fiskur,
hefur Vísi borizt tilkynning, þar
sem segir:
Við reglulega eftirlitsskoðun
Heilbrigðiseftirlitsins í frystiklef-
um verzlana minna hinn 3. þ. m.
kom f Ijós, að þar voru til staðar
um 70 kg. af erlendu nautakjöti.
Við rannsókn máls þessa fyrir
dómi hefir komið í ljós, að umrætt
kjöt hefir verzlunarstjóri viðkom-
andi verzlunar, sem algjörlega ann-
ast rekstur hennar, tekið til
vörzlu f eigin þágu, en ekki haft
það til sölu.
Þar sem hér er um endurtekið
brot að ræða af hálfu umrædds
starfsmanns hefir hann nú látið
af störfum sem verzlunarstjóri í
viðkomandi verzlun.
Þorvaldur Guðmundsson.
var lagt hald á það allt. Málið hef-
ur ekki verið afgreitt til sakadóm-
araembættisins enn sem komið er.
Þá hefur f einni kjötverzlun
borgarinnar — Sild og fisk —
fundizt talsvert magn af erlendum
kjötvarningi, sem ekki hefur verið
veitt innflutningsheimild fyrir.
Barst tollgæzlunni tilkynning
um að um smyglað nautakjöt
filter-sígaretturnar
fempo er með nýrri tegund af filter, sem veitir ySur
meiri ónœgju, mildara og betra bragð.
Tempo eru framleiddar úr úrvals tóbaki.
Tempo eru framleiddar af stœrstu sígarettu-
framleiðendum Bandaríkjanna.
BONDED DHARCQAL
actifilter.
FOR TASTE TDO GOOD TO MISS
nyju
Tempo
filter-sígaretturnar
Síldarbræðsla
í sumar
Um sfðustu helgi var búið að
brreða í sex verksmiðjum norð
an- og austanlands um 500 þús.
mál sem sildarverksmiðjunum
höfðu borizt beint úr veiðiskip
um og auk þess um 120 þús.
mál af síldarúrgangi frá söltun -
arstöðvunum.
Verksmiðjurnar sem hér eiga
hlut að máli eru Rauðka á Siglu
firði og Síldarverksmiðjur rík-
isins á Siglufirði, Húsavík,
Raufarhöfn, Seyðisfirð'i og Reyð
arfirði.
Bræðslan sundurliðast í eip-
stökum verksmiðjum sem hér
segir: Rauðka á Siglufirði 50.000
mál úr síldveiðiskipum, 30.000
mál úr flutn'ingaskipum.
Sfldarverksmiðjur rfkisins á
Siglufirði 61.840 mál úr veiði-
skipum, 44.739 mál úr flutninga
skipum og 3040 mál af síldarúr
gangi frá söltunarstöðvum.
S. R. á Húsavík 25400 mál
úr veiðiskipum og 3948 mál af
síldarúrgangi.
S. R. á Raufarhöfn 130.490
mál úr veiðiskipum og 52717
mál af síldarúrgangi.
S. R. á Seyðisfirði 196.193
mál úr veiðiskipum og 46.777
mál af síldarúrgangi. Frá þess
um málafjölda dragast svo 44.
739 mál sfldar sem flutt var frá
Seyð'isfirði til bræðslu í Sfldar
verksmiðjum rfkisins á Siglu-
firði.
S. R. á Reyðarfirði Hafa brætt
82.876 mál úr veiðiskipum og
11.671 mál af úrgangi.