Vísir - 25.09.1965, Qupperneq 11
I_____
NÝTT
HURRA
Nýlega kom í bókabúðir 2.
tölublað táningabls. „Húrra“.
Blaðið er 20 síður að stærð, hef
ur að geyma greinar og viðtöl
og ennfremur er í blaðinu opnu-
litmynd af Tónum.
Þátt um jazz, grein um
söngvarann Tom Jones, aðra
um Brian Poole og margt fleira
hefur blaðið inni að halda og
birtir auk þess nýjustu dans-
lagatextana. „Húrra“ kostar 30
krónur.
„Walker Brothers44 í fyrsta
sæti í BRETLANDI
Þeir heita „Walker Brothers",
eða „Labbakútamir", eins og
mætti kalla þá á íslenzku. Þeir
eru amerískir og kenna sig við
fyrirriðann, sem heítir John
Walker. Hinir þrír heita Gary
v, i , |. Leeds, Scott Engel, og Jimmy
Hvers á sauokmdm ONeffl
heyrt á götunni
AÐ „I can’t get no“ (Satisfaction) með Rolling Stones, sé enn
meðal vinsælustu laga í Bandaríkjunum, Bretlandi og víðar, og
salan á plötunni komin hátt á aðra milljón eintaka.
AÐ Rolling Stones komi í 10 daga hljómleikaför um Norðurlönd
í marzmánuði og haldi tvenna hljómleika i Kaupmannahöfn.
AÐ ný plata með „Walker Brothers“ sé komin til landsins. Lögin
á þessari plötu heita „What I do“ og „Make it easy on your
self“.
AÐ ,,HELP“, nýja kvikmyndin með Bítlunum verði sýnd í Tóna-
bíói um eða fyrir áramót.
AÐ Sonny & Cher, sem n'jóta mikilla vinsælda fyrir lagið „I got
you baby“ séu í þann veginn að senda frá sér tvær nýjar plötur.
nú að
Á hverju ári fer fram á landi
voru eitt dularfuilt rítúal, sem
kallast verðlagning landbúnað-
arafurða. Er það rítúal fram-
kvæmt af enn dularfyllri æðstu
prestum, sem kallast sex
manna nefnd eða fimm manna
nefnd — og þótt merkilegt
megi virðast um svo dularfullt
fyrirbæri, fer sú nafnbreyting
eftir því hvort fimm eða sex
menn eru I nefndinni. Er þar á
ferðinni hin æva forna her-
brella, að gera allt sem aug-
ljósast er litlu eða engu máli
skiptir, svo strangari reynd
megi ríkja varðandi aðalatrið-
in. Þá er og vitað, að nefnd
þessi á það sameiginlegt með
ýmsum dularfullum leynisam-
tökum fyrr og síðar, að hún
leggur einhverjar helgar tölur
til grundvallar sinu rítúali —
hitt er svo tímanna tákn, að
þær helgu tölur eru „sagðar"
tilkomnar fyrir útreikninga hag
stofunnar, jafnvel gerðar í raf
eindaheila — en grunur leikur
á um að þær séu fengnar að
allt öðrum leiðum, jafnvel frá
tunglspekingum í Tíbet, og sé
þama enn ein áróðursbrellan
á ferðinni. Þá er og talið, að
val æstu prestanna fari eftir
stjörnumerkjum — í sex
manna nefndinni hafi þrír ver-
ið fæddir undir hrútsmerki og
þrír undir nautsmerki, en í
fimm manna nefndinni hafi
hlutföllin raskazt þannig, að
nautsmerkingar urðu í meiri-
hluta. Til þessa megi svo rekja
það furðulega fyrirbæri, sem
æðstuprestar nefna tilfærslu —
er hún í einföldu máli í því
gjalda?
í'ólgin, að mjólk og mjólkuraf-
urðir hækka mun minna.í verði
en kjöt, og er nautpeningurinn
þannig gerður minna óvinsæll
nieðal neytenda en ella á kostn
að sauðkindarinnar. Aðrir, sem
ekki eru gæddir neinu ímynd-
unarafli ti! að gera sér hug-
myndir af öllum þessum leynd-
ardómum, halda því svo fram
a5 þotta stafi einfaldlega af
því að Hannibal hefur gerzt
fjárbóndi — en slíkt kemur vit
anlega ekki til neinna mála, ef
hann hefði viljað hækka kjöt-
verðið, mundi hanr, hafa skipu
lagt verkfall alls sauðfjár I
landinu. bannig að jafnvel
meinlausustu lambkettlingar
hefðu harðneitað að láta skera
sig niður við trog, fyrr en verð
hækkun á kjöti þeirra var feng
in . . . Enn eru þeir, sem álfta
að náttúrulækningafélagið
standi þarna á bak við, hvað
væri öllu sennilegra, en sú
skýring er einungis sprottin af
viðleitni til að sniðganga hið
dularfulla og óskýranlega . . .
hið furðulega alræðisvald
æðstuprestanna, sem hefur
jafn óumflýjanleg áhrif á allt
okkar líf, hvort sem þeir eru
fimm eða sex . . . svo gagn-
ger áhrif, að við getum yfirleitt
hvorki tekið okkar bita eða
sopa í munn, án þess að þeirra
gæti, jafnvel á bragðinu. Æðstu
prestanna, sem koma saman á
hverju hausti og framkvæma
dularfullt ritúal á grundvelli
hinna helgu talna, sem enginn
veit neitt um að þeim undan-
skildum — nema hvað þær fara
stöðugt heldur hækkandi.
„Walker Brothers“ hafa náð
miklum vinsældum upp á síð-
kastið og nýjasta platan þeirra
er í efsta sæti á vinsældarlist-
anum í Bretlandi, næst á und
an „Sat'isfaction".
Þeir voru á ferð í Bretlandi
fyrir skemmstu og fannst allt
undarlegt þar í landi og frá-
brugðið því sem var heima í
Kaliforníu. Það furðulegasta
fannst þeim þó, að bílamir
skyldu aka vinstra megin á veg
unum.
ef stu 10
- \
í gærkvöldi leit sölulistinn í Hljómplötudeilc >
Fáikans þannig út:
1 Satisfaction .................... Rolling Stones
2 Lock through any window ............... Tollies
3 Catch up if you can .................Dave Clark
4 Don’t make my baby blue............The Shadows
5 I want candy ....................... Brian Poole
6 Wheneever you’re ready.............The Zombier
7 To know you is to love you......Peter and Gordon
8 Cry to me......................The Pretty things
9 If you gotta go, go now ......... Manfred Mann
10 Ju Ju Hand ..................... Sam the Sham
Kári skrifar:
TTúsmóðir hér í borginni
hringdi til mín í gær í til-
efni hins nýja verðs á landbún
aðarafurðum.
2. flokks kjöt.
Kvað hún megna óánægju
ríkjandi vegna þess ástands,
að ekki væri fáanlegt 2. flokks
kjöt í kjötvöruverzlunum borg
arinnar. Hvað eftir annað væru
birtir verðlistar yfir kjöt, og
alltaf nefnt verð á 2. flokks
kjöti, en það væri sama hvert
leitað væri, — það fehgist ein
göngu fyrsta flokks kjöt. Ann-
aðhvort væri allt kjöt sett í
fyrsta verðflokk eða búðir vildu
ekk; selja 2. flokks kjöt.
Vjll hún fá skýringu á þessu,
og er því hér með beint til við
komandi aðila.
Orsök drykkju-
skaparins?
Þá er hér eitt bréf um unga
fólk'ið og danshúsin:
„... Það er staðreynd, að oft
er stúlkum, 18 ára gömlum
hleypt inn í Glaumbæ, en svo
kemur það líka fyrir, að ald-
urstakmarkið er 21 árs, og hvað
á þá unga fólkið á aldrinum 17-
21 ára að gera af sér um helg
ar? Það er of gamalt til að
skemmta sér i Lídó, og það er
of ungt til að fara ínn á vín-
veitingastaðina, og „vínlausu"
danshúsin í bænum eru sjálf
fræg fyr'ir mikil fyllerí. Þá eru
bara sveitaböllin eftir. Er það
ekki kaldhæðni að í 90 þúsund
manna borg skuli unglingamir
þurfa að leita út fyrir borgar
takmörkin til að skemmta sér?
Það skyldi þó aldrei vera, að
þetta ástand hafi orði? til þess
að unglingar á þessum aldri hafi
gerzt skilríkjafalsarar og farið
að drekka — af þvl að vínlaus
ir skemmtistaðir fyrir þá voru
ekki til...“
Móöir.
Fyrstadagsfrímerki.
Frímerkjasafnari hringdi til
mín og bað mig að koma því
til skila að hann vildi gjaman
að blöðin segðu frá útkomu
nýrra frímerkja einum tiJ tveim
dögum áður en það væri, svo
safnarar ættu auðveldara með
að fylgjast með útkomu frí-
merkja og ná sér f fyrstadags
stimplun. Kári vill benda blaða
mönnum á þetta.
sswsft"wr----?wi