Vísir - 30.10.1965, Page 3
VISÍtv . Laugardagur 30. október 1965.
yfir nokkum hluta uppboðssalar. í fremstu röð frá vinstri: Björn Þorsteinsson, Friðjón
Stefán Rafn, Þorsteinn
Frá er Sigurður Benedikts
son fyrrum Diaðamaður hóf upp
boðsferil sinn eru liðin ein 13
ár. Fyrsta uppboðið mun hann
hafa haldið árið 1952 og úr því
mörg á hverjum vetri, þannig að
nú eru uppboðin alls orðin 118
að tölu.
Sigurður kallar þessi uppboð
sin „Iístmunauppboð" sama
hvort um bóka- eða málverka
uppboð er að ræða eða þá um
skrautgripi og fommenjar sem
stundum kemur fyrir. Á fyrsta
uppboðinu sem Sigurður hélt
bauð hann upp bæði bækur og
málverk. En hann kvaðst hafa
séð fljótt að það átti ekki sam
an og hefur síðan haldið þess
um flokkum greinilega aðskild-
um.
Fyrstu uppboðin, eða jafnvel
fyrstu árin sem Sigurður hélt
uppboð, voru þau framin i
trássi við löggjafarvaldið og átti
hann í talsverðu stappi eða þrefl
út af þessu fyrst í stað. Seinna
hlaut Sigurður löggildingu hjá
Alþingi fyrir uppboðum sínum
og eftir það hefur hann verið
látinn í friði.
Það er sín hver manntegundin
að mestu leyti, sem sækir bóka
uppboð Sigurðar og málverka
uppboð. Þau fyrmefndu sækja
bókhneigðir menn, fræðimenn,
grúskarar og bókasafnarar, en
þau síðamefndu listunnendur,
málverkasafnarar og ríkir menn
sem munar ekki um að snara út
nokkrum tugum þúsunda króna
fyrir málverk.
Myndsjáin í dag er helguð síð
asta bókauppboði Sigurðar Bene
diktssonar. Það fór fram í Þjóð-
leikhússkjallaranum 21. okt. Þar
vom seldar um 160 bækur og rit-
Jósepsson, Böðvar Kvaran. í næstu röð fyrir aftan: Skúli Skúlason, Einar Guðjohnsen, Haraldur Bjömsson, Jón Steffensen og Jón
Ingvarsson. Á bak við þá sér í Svein Sæmundsson ,Harald Sigurðsson og Eggert Steinþórsson meðal annarra, en allt em þetta kunnir og
miklir bókamenn
Bókamenn bjóða
verk, allt frá 100 krónum og upp
í 15 þúsund krónur, eftir fágæti
og öðru verðmæti. Lægsta boð
sem Sigurður tekur til greina er
100 krónur, lægsta yfirboð er
25 krónur allt að 500 krónum,
úr því 50 krónur udd í 1 þúsund
krónur. En fari bók yfir 1000
krónur er ekki tekið til greina
lægra yfirboð en 100 krónur.
Uppboð Sigurðar eru oft og
elnatt skemmtileg og jafnvel
spennandi þegar margir girnast
sama hlutinn og vilja ekki
vægja. v
Eitt skemmtilegasta atvik, sem
Sigurður segir sjálfur að hafi
komið fyrir á uppboði hjá sér,
skeði fyrir nokkrum árum þeg
ar hann var að bjóða upp sögu
Einars H. Kvaran „Hvorn eið-
inn á ég að rjúfa“ Slokknuðu
þá ljós öll i salnum á meðan
bókin var boðin upp, svo notast
varð við kertaljós, en rétí eftír
að bókin hatði verið slegin
kviknuðu rafljósin aftur. Þótti
ýmsum sem atburður þessi væri
Fremst á myndinni frá vinstri sjást þeir Haraldur Bjömsson, Jón Steffensen, Jón Ingvarss. og bak
við þá m. a. Sveinn Sæmundsson, Haraldur Sigurðsson og Eggert Steinþórsson.
næsta dularfullur og í nokkru
samræmi við kenningar viðkom-
andi bókarhöfundar.
Fremst á myndinni sitja þau Ólafur Þórarinsson og Anna Guðmundsdóttir, en á bak við þau sjást
þelr Lárus Fjeldsteð, Sigurður Líndal, Þorvaldur Ari Arason, Hafsteinn Bergþórsson og Stefán
Bjömsson.
LÖGTAK
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að
undarigengnum úrskurði verða lögtökin látin
fara fram án frekari fyrirvara, á kostnað
gjaldenda en ábyrgð ríkissjöðs, að átta dög
um liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar,
fyrir eftirtöldum gjöldum.
Áföllnum og ógreiddum skemmtanaskatti.
og miðagjaldi, gjöldum af innlendum toll-
vörutegundum, matvælaeftirlitsgjaldi og
gjaldi til styrktarsjóðs fatlaðra, útflutnings-
og aflatryggingasjóðsgjöldum, skipulags-
gjaldi af nýbyggingum, söluskatti 3. árs-
fjórðungs 1965 og hækkunum á söluskatti
eldri tímabila, svo og tryggingaiðgjöldum af
skipshöfnum ásamt skráningargjöldum.
Yfirborgarfógetinn í Reykjavík 28. okt. 1965
Kr. Kristjánsson