Vísir - 17.11.1965, Síða 3
V í S I R . Miðvik idag’ir 17.
nóvombcr 1CG5.
—,~mii il
f LISTA-
MANNASKÁLA
í laugardaginn var mannmargt
og mikil þröng í Lista-
mannaskálanum. Þar voru komn
ir margir helztu listamenn þjóð-
arlnnar og f jöldi annars fólks tll
þess að vera viðstatt opnun mál
verkasýnángar Jóns Engilberts,
nýkomins heim með mikið lof
gagnrýnenda á Norðurlöndum
fyrir sýningar málverka sinna f
Danmörku og Svíþjóð.
Listamaðurinn tók á móti
gestum við dyrnar og þakkaði
ljúfmannlega fyrir hamingjuósk-
ir — og áritað eintak „Torgs-
ins“, sem Kristmann færði hon-
um að gjöf, er hann gekk f sal-
inn með hina nýju edginkonu
sér við hönd. Jón Engilberts
sýnir að bessu sinni tugi olíu-
málverka. sem hann hefur öll
unnið síðustu árin. Þau eru af
abstrakt gerð, mikiil litaróður,
og er ekki að efa, að margir
sem með listamanninum hafa
fylgzt, munu vera forvitnir að
sjá þróun verka hans og hyggja
að því hvemig honum tekst til
f nýrri landkönnun í veröld list
anna.
lY/Tyndsjá Vísis brá sér í heim-
A sókn á sýninguna, er hún
var opnuð, og má á sfðunni sjá
allmargar myndir frá opnuninni.
Frú Selma Jónsdóttir, forstjóri Listasafns rfkisins, ræðir við Sigurð
Briem, stjómarráðsfulltrúa og frú hans.
Jóhann Briem listmálari ræðir við Gunnlaug Haildórsson arkitekt.
Sendiherra Bandaríkjanna, James K. Penfield, virðir fyrir sér eina litasymfóníu Jóns, ásamt Geir
Hallgrímssyni borgarstjóra og frú Ernu.
Listamaðurinn, Jón Engilberts, býður frú Aðalheiði og Jónas G. Rafnar alþingismann og banka-
stjóra velkomin til sýningarinnar.
Bræðurnir Örlygur Sigurðsson, kollega Jóns, og Guðmundur Sigurðsson hrl. ásamt frúm sínum, líta
tll listaverkanna.
Þórbergur segir brandara. Magnús Kjartansson Þjóðviljaritstjóri og frú hans brosa við.