Vísir - 20.11.1965, Blaðsíða 5

Vísir - 20.11.1965, Blaðsíða 5
VI S IR . Laugardagur 20. nóvember 1965. um út af Rhodesiu Mikillar ókyrrðar gætir í ýmsum Afríkujöndum vegna viðburðanna í Rhodesiu og hefir víða komið til uppþota og Bretum og öðrum hvít um mönnum sýndur fjandskapur. Eru hvítir menn í þessum löndum nú víða uggandi um sinn hag. I Zambiu — fyrr Norður Rhodesiu — hefir Kaunda forseti hvatt hina blókku íbúa landsins, *■” þess að láta ekki hvíta menn i landinu gjalda þess, sem er að gerast í Rhodesiu. íbúar Zambiu eru 3.6 milljónir blakkra manna og 70.000 hvitra. 1965 Magnús E. Baldvinsson Laugavegi 12 Sími 22804 Hafnargötu 49 Keflavík I í Daar-es-Salaam, höfuðbarg | Tanzaniu, sem er Austur-Afríku- í lar.d og nálægt Rhodesiu, hófst í gær ráðstefna Einingarsamtaka Afríku. Ríki hefndarhugur þar yf ir vötnunum er hætt við, að hatur á hvítum mönnum blossi upp. Með fylgjandi mynd sýnir, að þegar hef ir hitnað í kolunum þar. Hún sýnir blakka stúdenta, sem brotið hafa rúður í bíl fulltrúa Bretlands, vera að velta um bílnum. Og þeir brenndu brezkan fána. Kopar Zambia er auðugt land. Aðal- útflutningur frá Zambiu er kopar. Og nú er verð á kopar hátt. Birgð ir takmarkaðar. Svo er ávallt þegar styrjöld geisar og enginn veit nema áfram yri barizt árum sam- an i Vietnam og svo er spurt hvort enn válegri átökum verði afstýrt. Og á þessum tíma smástyrjalda og óvissunnar um hvað verða muni er keppzt vi ðað framleiða vopn og skotfæri. Og til þess þarf kopar. í Bandaríkjunum hefir stjórnin orð ið að láta hergagnaiðnaðinn fá kopar af birgðum sínum. 1 Zambiu á að gera tilraun til að flytja kopar loftleiðis, hefur til þessa verið fluttur yfir Rhode- siu til sjávar, og er það lífsskilyrði fvrir Zambiu, að koma þessari framleiðslu á markað. Það er dagskrá áð" leýáá þ'éssil'már me lagningú nýrrar járhbrautar ecja nýs vegar, til hafna í Tanzaniu. Viðskipti haldast enn og samgöng ur milli Zambiu og Rhodesiu og Malawi og Rhodesiu, annars ná grannalands, en Rhodesia nýtur ekki lengur samveldistollfríðinda í þessum löndum. Súezskurður — Olíubannið. Nasser forseti lætur drýginda- LAGERPLÁSS Viljum taka á leigu nú þegar gott lagerpláss, sem næst Kjörgarði, 100—150 ferm. S K Ó K A U P Kjörgarði . Sími 16930 Húsnæði óskast Mig vantar 2ja—3ja herbergja íbúð nú þegar. Aðeins tvennt fullorðið í heimili. Pétur Thomsen Ijósmyndari. Sími 10297 Bílskúr óskast til leigu nú þegar eða fljótlega. Uppl. í síma 19828. lega, segist líta svo á, að styrjáld arástand ríki milli Egyptalands og Rhodesiu og hafi hann því rétt til að leggja hald á allar vörur í skip um á leið um Suezskurð til og frá Rhodesiu. Ekki er vitað hvort þetta eru bara „stór orð“, sem strikað verður yfir, eða vörur til Rhodesiu eða þaðan verða gerðar upptækar, — en þess má geta að verulegur flutningur á sjó til Rhodesiu og frá fer allt aðra leið, nefnilega Höfða- borgarleiðina. Að því er olíubannið áhrærir er bent á það, að Rhodesia hefir til þessa fengið mestalla sína olíu frá Iran og hefur enga olíu fengið um Suezskurðinn. Taki Iran og önnur Asíulönd þátt í olíubanni versna horfurnar fyrir Rhodesiu, — en mönnum ber saman um, að olíu- bann eins og aðrar viðskiptalegar aðgerðir í kúgunarskyni, þurfi tima til þess að ná tilgangi sínum — verði honum þá náð, bæta marg ir við. Þær eru I fyrsta lagi ávallt tvíeggjað sverð, bitna á þeim, * ■ . ’ ujlcnd. i morgtm. sem að banninu standa — og mörg urr. fleiri en þeim sem það á að fá til undirgefni. Olíubann myndi til dæmis koma einna harðast nið ur á blökkufölkinu í Rhodesiu, því að steinolía er það eldsneyti, sem allur almenningur notar til eldun ar Og áhrif viðskiptabanns í hvers konar mvnd myndi bitna á fólki í nágrannalöndum Rhodesiu einnig. Suður-Afríka og Portúgal. Þegar um olíubann og önnur bönn er að ræða veltur að sjálf- sögðu mikið á afstöðu Suður-Af- ríku og landa portúgölsku land- anna í Austur Afríku og hefir verið -ið því vikið áður í fréttum. Ráðizt var á bil brezka fulltrúans, rúður brotnar í honum og honum velt um og kveikt í var nóg að gert — og var svo tekinn brezkur fáni og brenndur. honum, en ekki BIFREIÐASTÖÐ ÍSLANDS — Afgreiðsla sérleyfishafa flytur d morgun í UMFERÐARMIÐSTÖÐINA við Hringbraut sími 22 300 Næsta strætisvagnastöð er fyrst um sinn neðan við gamla Kennaraskól- ann, og þeir sem koma þaðan eða gangandi annars staðar að, fara stig, sem liggur að stöðinni frá Hringbraut gegnt enda Smáragötu. BIFREIÐASTOÐ ISLANDS Sími 22 300 Sími 22 300 Sími 22 300

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.