Vísir - 20.11.1965, Blaðsíða 6

Vísir - 20.11.1965, Blaðsíða 6
6 Borgarbyggingar - Framh. af bls. 16 Birgir spurði hana þá hvort hún teldi rétt að ganga að hinu háa tilboði í leikskólana tvo og fékk það svar, að það ætti að ganga að næstum hvaða tilboði sem væri, fremur en að láta byggingu bamaheimila dragast. Kvað Birgir gott að fá slíkt veganesti frá borgarstjórnar minnihlutanum. Síðan snerust umræðumar um erfiðleikana í byggingarmálum borgarinnar. Það er rétt að bygging barna- heimila hefur nokkuð tafizt en það stafar ekki af því að borg- aryfirvöldin hafi ekki fjár- magn eða áhuga á að flýta þeim málum heldur rekst þetta á tvö vandamál og þau eru: 1) Hinn almenni vinnuafls^kort ur, 2) Skorturinn á tæknimennt uðum mönnum og arkitektum til að ganga frá teikningum og vinna úr hugmyndum sem ber ast í hugmyndasamkeppnum. Þetta tvennt er fjötur um fót í framkvæmdum. En þegar talað er um vinnuaflsskort, þá sýnir hann, að hér á landi er sannar lega líf og fjör í framkvæmd- um undir þeirri ríkisstjóm sjálfstæðismanna og Alþýðu- flokksins, sem hér hefur nú verið mörg ár við völd og skipt ir þar í tvö horn eða frá því að hin alræmda vinstri stjóm var við völd og benti borgarstjóri, Geir Hallgrimsson, á það við umræðumar, að þetta væri ein mitt ein sterkasta sönnunin fyr ir þvi að hrakspár og árásir vinstri flokkanna á núverandi ríkisstjóm hefðu verið alrangar Alfreð Gíslason borgar- fulltrúi kommúnista vildi, að þegar áætlanir væru gerðar um húsbyggingar væri vinnuafls- skorturinn tekinn fyrirfram inn f áætlanirnar. Kristján Benediktsson borgar fulltrúi Framsóknar sagði að það væri óhæfa að láta vinnu- afisskort tefja fyrir og vildi hann frekar að fjárfestingareft- iriiti yrði komið á með líkum ætti og var á dögum fjár- agsráðs. Skyldi flokka hús nið ur f þörf og óþörf hús og þau síðarnefndu bönnuð. Undir þetta tók Guðmundur Vigfús- son fuiltrúi kommúnista Báðir réðust þeir og einnig Adda Bára á arkitektana og héldu því fram að arkitektamir létu verk fyrir | einstaklinga alltaf ganga fyrir. verkum fyrir borgina. Ætti að taka fastara á arkitektunum og sjá um það að þeir arkitektar, sem hefðu feikna tekjur af borg inni Iétu borgarverkin sitja í fyrirrúmi. Geir Hallgrímsson svaraði ræðum þeirra minnihlutamanna með góðri ræðu, þar sem hann varaði við þvi að fara að koma á aftur nýju fjárhagsráði, menn hefðu fengið sig fullsadda á slíku valdi og það hefði m.a. orðið Reykjavfkurborg mjög dýrkeypt. Kvaðst hann geta nefnt mörg dæmi um, að fjár- festingarvaldið hefði þá með furðulegum hætti bannað áríð- andi framkvæmdir í Reykjavík, en tilnefndi þó aðeins þá furðu legu ráðstöfun þegar fjárhags- ráð neitaði Reykjavíkurborg um ieyfi í nokkur ár að leggja hita- veitu Hlíðahverfið. Borgarfull- trúamir væm æði gleymnir ef þeir væru búnir að glejnna því vandræðaástandi. r Arekstrar — Framhsld af bls. 1 um, þar sem stórslys og jafn vel banaslys hafa orðið, fyrir utan meiriháttar bótatjón á bif- reiðum. Að fengnum upplýsingum hjá Kristmundi Sigurðssyni hjá umferðardeild rannsóknarlög reglunnar hafa 2665 bifreiðaá rekstrar verið skráðir hjá lög- reglunni í Reykjavík til dagsins í gær. Er það rösklega 100 fleiri en orðið höfðu á sama tíma í fyrra. En heildarárekstra fjöldinn þá var nálægt 3000 á öllu árinu. Þá urðu 8 bana slys i umfreðinni í Reykjavik, en hafa orðið 7 það sem af er þessu ári ' / ' 11. síðan — beltið sem verður að boga. Þetta er ekki það eina, sem að skilur Modesty frá öðmm kon um. hún þambar rauðvín, reyk ir sterkustu sígarettur, þessi amazona er ómóttækileg fyrir öllu æði ástarinnar. Hún elskar hinn virðulega lífvörð sinn Willie hnifakastarann þó án ást r/ðu og án trúnaðartrausts. TIL LEIGU Stórt einbýlishús í úthverfi Hafnarfjarðar er til leigu frá 1. desember. Góð aðstaða fyrir ca. 400 hænsni getur fylgt. Einnig 2ja hektara tún. Símar 50299 og 92-2303. SKERPTIR SKAUTAR Óðinsgata 14 Faðir okkar ÓLAFUR KVARAN ritsímastjóri lézt 1 Landsspítalanum 19. þ. m. Bömin. V í S I R . Laugai dagur 20. nóvember 1965. FlugvöBlur — f-ra.nh af bls. 16 Fjórtán ræðumenn töluðu yf ir borðum í veizlunni, þar af 6 þingmenn kjördæmisins, ráð- herrar, oddvitar og fleiri og var , fögnuður allra mikill yfir þess- j um nýja flugvelli í Sauðlauks ; dal í landi sr. Björns Halldórs j sonar, sem fvrstur manna rækt j aði kartöflur til manneldis. Flugmálaráðherra, Ingólfur ; Jónsson, sagði í ræðu sinni að eins og málin stæðu í dag væri nauðsyn á að varið yrði 50—60 , milljónum króna til malbikunar ; á flugbrautum næstu 2 árin til að verja hin dýru tæki Flug- félagsins skemmdum. Örn Johnson forstjóri Flug- félagsins undirstrikaði þetta og sagði það brýria nauðsyn að bregða við hart og skjótt að koma flugvallarmálunum í betra horf. Eins og flugvellirnir væru nú væri ekki hægt að nota dýr tæki eins og Fokker Friendship- vélarnar. Flugvöllurinn í Sauð- lauksdal sagði hann að væri svipaður og hús sem væri orð ið fokhelt, það ætti eftir að verða tilbúið undir tréverk og málast. Við þetta yrði ekki búið til lengdar. Þeir sem töluðu voru þessir: Ásberg Sigurðsson, sýslumað- ur, Þorvaldur Garðar Kristjáns son, Sigurður Bjarnason, alþing ismaður, Matthías Bjarnason, al þingismaður, Hannibal Valdi- marsson, alþingismaður, Sigur- vin Einarsson, alþingismaður, Bergur G. Gíslason, forstjóri og flugráðsmaður, Snæbjörn Thor oddsen oddviti og sýslunefndar maður, Örn Johnson, forstjóri F. í., Birgir Finnsson, alþingis- maður, Ingólfur Jónsson, ráð- herra og Haukur Claessen, sett ur flugmálastjóri, Friðþjófur Jóhannesson, forstjóri og Gfsli Jónsson, fyrrv. alþingismaðut1 þeirra Barðstrendínga, en hariri vann á sínum tíma mikið og gott starf í samgöngumálum héraðsins. Eins og áður hefur verið get ið í fréttum verður fyrst um sinn flogið þrisvar í viku til Pat reksfjarðar, og mun F. I. fljúga eina ferð með DC-3 en Flugþjón ustan 2 ferðir. í sumar mun F.í. hins vegar sjá um alla þjónustu við Patreksfjörð, og munu DC-3 flugvélarnar að öllum likindum notaðar f þessar ferðir, í ræðum manna í gær var mikil bjartsýni og jafnvel gáski. Sumir vildu jafnvel að flugvél amar yrðu sem stærstar, en greinilegt er að farþegafjöldinn verður fyrst um sinn ekki mikill, enda eru íbúar þeirra bvggðar , laga, sem sækja að vellinum að- j eins um 2000, þar af þúsund á | Patreksfirði. Gfsli Jónsson, fyrrverandi al- i þingismaður sagði í sinni ræðu í að hann teldi ekki ólíklegt að með tímanum yrði þessi flugvöll ur án efa fjölfarinn. Þá mundu ferðamenn hafa uppgötvað hina I fögru náttúru og fara í ferðalög | fram á Látrabjarg. „Hver veit I nema þarna eigi eftir að f rfsa flugstöð með fallegum bygg ingum og hóteli", sagði þessi aldni þingmaður. Og hver veit nema framtíðin beri eitthvað þessu lfkt í skauti sér. Séra Bjarni — Framh. af bls. 1 doktor við Háskóla íslands árið 1941. Hann var sæmdur mörgum heiðursmerkjum innlendum sem erlendum og árið 1961 var hann gerður að heiðursborgara Reykjavíkur. Sr. Bjarni skrifaði allmargar prédikanir og ritgerð ir í blöð og tímarit. Eiginkona sr. Bjarna, Áslaug Ágústsdóttir, lifir mann sinn. NYR SENDIHERRA Brezka utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að skipa Basil Boothby sem verið hefur sendi herra á íslandi síðan 1962 sendi herra hjá Evrópuráðinu i Strass borg. Mun hann taka við því starfi sínu eftir næstu áramót. I stað hans hefur verið skip aður nýr sendiherra á íslandi Aubrey Halford Macleod, sem verið hefur aðalræðismaður Breta í MUnchen. Sauöfjársjókdómar — Framh. at bls. 16 Skagafjörður vestan Héraðsvatna í hættu, heldur og að jnestu leyti báðar Húnavatnssýslurnar ef illa til tekst Veruleg fyrirstaða er engin fyrr en við svokallað Mið- fjarðarhólf en þar er vörnum hald- ið uppi með fjársjúkdómagirðingu. Austan Héraðsvatna hefur garna veikin herjað í allmiklum mæli að undanförnu, sagði Guðmundur Gíslason. Og hann sagði ennfrem ur að það væri fyrst og fremst al- mennu sinnuleysi bæda á þessu svæði að kenna. Þeir hafa — marg ir hverjir — ekki bólusett fé sitt svo árum skiptir gegn \^eikinni og heldur ekki framkvæmt aðrar nauðsynlegar varúðarráðstafanir Þeir hafa ekki hirt um að forðast dreifingu á fé m.a. milli bæja og byggðarlaga. En það er stórhættu legt, því að jafnvel þótt ekkert beri á veiki í fé og það sé jafnvel bólusett, getur það engu að síður borið veikina í sér og smitað ann að fé. Bændur bregðast jafnan hart við sagði Guðmundur, þegar sauð fjársjúkdó.mum skýtur einhvers staðar óvænt upp. Þá eru þeir reiðubúnir til margháttaðra varn ar- og varúðarráðstafana. En þetta er eins og bóla sem hjaðnar — úthaldið vantar og þrautseigjuna Þegar lítið fer að bera á sjúk- dómstilfellum eru allar varnir og varúðarráðstafanir gefnar upp á bát inn. Guðmundur Gíslason sagði að lokum, að þessa sama fyrirbæris gætti einnig hjá bændum í Mýra- hólfi, þar sem mæðiveiki kom upp í haust. Stórt svæði og fjár- margt er þar nú í mikilli hættu vegna þess að bændur hirða ekki nóg um að hindra dreifingu á fé milli bæja. BALLETTSKÖR -DANSKIN- æfingarfatnaður fyrir BALLET, JAZZBALLET LEIKFIMI FRÚARLEIKFIMI Búningar. í svörtu hvítu rauðu, bláu. SOKKABUXUR með og án leista, svartar, bleikar, hvítar. ALLAR STÆRÐIR VERZLUNIN REYNIMELUR Bræðraborgarstíg 22 Síml 1-30-76 Framn. af bls. 1 við undirbúning að lagningu '•"ir’n ■ en G.sla Halldórssyr- arkitekt verið falið að teikna tollvörugeymsluna. Lauk borunum í gærdag, en boraðar voru þrjár holur, ein við Tryggvagötuna vegna tollvöru- i geymslunnar fyrirhuguðu og tvær neðar á bakkanum I þeirri línu, sem Geirsgatan liggur. Á þessum þrem stöðum var borað niður í allt að 24 metra dýpi, en klöpp varð fyrir á þessu svæði á 20 — 24 metra dýpi. Niðurstaða borunarinnar er ekki enn komin og eru rann- sóknir enn á frumstigi. Eftir er að ákveða hvers konar bygging- arlag verður haft á nýja veg- , inum og verður ákvörðun um það ekki tekin fyrr en niður- stöður borunarinnar liggja fyrir einnig athugun á grunninum og rannsókn á styrkleika hans. KEHHSIA Kenni unglingum og fullorðnum Uppl. í síma 19925. ____ Ökukennsla — hæfnisvottorð. Kenni á nýja Volvobifreið. Símar 24622, 21772 og 35481. Kcnni íslenzku, reikning, dönsku ensku o.fl. Uppl. í síma 19925. Vélritunarkennsla. Kenni vélrit- un, upþsetningu og frágang verzl- unarbréfa, kenni í fámennum ■flokkum, einnig einkatímar. Innrit un og allar nánari uppl. í síma 38383 á skrifstofutíma. Rögnvald ur Ólafsson Ökukennsla — hæfnisvottorð. Kenni á nýja Volvobifreið og Volks wagen. Símar 24622, 21772 og 35481. ATVINNA Í BOÐI Vanar saumakonur geta fengið vinnuvettlinga í heimasaum. Nafn og heimilisfang leggist inn á augl.d Vísis merkt „Dugleg 7998“ fyrir mánudagskvöld. Stúlka óskast við kjólasaum, seinni part dags. Uppl. í síma 19531 TAPAÐ — Armband úr víravirki með gyðjumyndum tapaðist frá Góð- templarahúsinu, Pósthússtræti, Laugaveg að Skeggjagötu. Uppl. í síma 18449. Tapazt hefur gullhringur með plötu sem á er ritað H.S.J.. Finn andi vinsamlega láti vita í síma 33798_,gegn fundarlaunum. BíIIyklar töpuðust við Njálsgötu Vinsamlegast hringið í síma 17856. ÞJÓNUSTA Húsaviðgerðir. Tökum að okkur ; innan- jDg utanhússviðgerðir. Van- ir menn, vönduð vinna Sími 20806 ATVINNA ÓSKAST Tveir nemar vilja taka að sér málningavinnu. Uppl 1 síma 33898 Gevmið auglýsinguna. Stúlka með 3 ára dreng óskar eftir ráðskonustöðu í Reykjavík. Tilboð sendist augl.d. Visis með uppl. um fjölskyldustærð merkt: „Reglusemi 7696“________________ Tvítug stúlka óskar eftir atvinnu Uppl. á mánudag í síma 31017. Ráðskonustaða. Stúlka með barn óskar eftir ráðskonustöðu í Reykja vík eða nágrenni. Tilboð merkt „Strax 8370“ sendist Vísi.______

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.