Vísir - 20.11.1965, Blaðsíða 11

Vísir - 20.11.1965, Blaðsíða 11
 Einn daginn kom ný kven- hetja fram á sjónarsviðið. Modesty Blaise, heilsum henni. í maí árið 1963 hófst frægðar ferill þessarar konu, þar sem hún birtist fyrst sem persóna i ammkm teiknimyndafrásögn enska blaðs ins Evening Standard. 1 októb. létu Frakkar ekki lengur bíða eftir sér og dagblað í París fylgdi fordæmi Bretanna og síð an komu þrettán blöð um víða * ' * 'p f'" MeS öngulinn að vopni. veröld f kjölfanð með teikni myndafrásögnina af Modesty Blaise. Og síðan slógust kvikmynd- imar f leikinn og í stað kven eru teknaðar með bleki kem- ur lifandi kona, sem tekur að sér hlutverk Modesty Blaise. Og það hefur breytt Monica Vitti, „hinni ljúfu Vitti“ f einskonar yfimáttúrulega kvengerð í James Bond stælnum. Kvenhetja ársins 1965 er f brezku leyniþjónustunni, hún kann skylmingar, er sérfræðing ur í glímu og notar skamm- byssu gegn karlmönnum fyrir utan aila sína kvenlegu töfra. Og Modesty Blaise ekur í föl- bláum Bentley alveg eins og maðurinn, sem fann upp á henni Peter O’Donnell, áður fyrr hlé- drægur teiknari og rölti um göt ur Lúndúnaborgar en í dag eig andi Upphitaðrar sundlaugar meðal alls annars. Og kvenréttindakonunum ungu ljær hann til liðs við sig f viðskiptunum við sterka kynið, ný tfzkuvopn, sígarettukveikjara sem eru einskonar eldvörpur, falskar neglur beittar sem rak vélablöð, öngla f stálkeðju, Framh. á bls. 6 v, as*M, m 1 fyrstu myndinni tekur Modesty að sér að gæta demanta, sem era mllljarða virði og afhenda á arabískum höfðingja. Kári skrifar: síðan James Bond búinn að vera Moýesty Blaise tekin v/ð Terence Jtamp leikur hnífakastarann hennar. Ur nokkrum áttum Jj'rá því var skýrt í fréttum að um áttatíu manns telj- ist nú í leikarastéttinni — og eru þá ekki meðtaldir leikarar, sem beita hæfileikum sínum og kunnáttu „á öðrum sviðum“ t. d. þeir sem starfandi eru í póli tfskum leikflokkum ... Sagt er að hrossakjötsát færist nú mjög f vöxt í landinu, og fer nú svo um flestar þær sakir aðrar, sem áður vörðuðu fjörbaugsgarð. Kvað nú svo komið, að jafnvel smábörn eru gersamlega hætt að blóta á laun en bölva og ragna á almannafæri, og láta sig einu gilda þó að of fullum strætisvagni af vitnum verði við komið ... og munu nú engir framar blóta á laun nema góð- templarar. Nú er það komið á daginn að Elísabet drottning og Filipus eiga hvalveiði alla í elfinni Thames . . . er ekki laust við að framámen hér séu famir að hlakka eitthvað minna til þess en áður, þegar drottn- ingarmaður býður þeim heim til endurgjalds fyrir komu sína hingað og allan beina er hann hlaut... þar á meðal veiðigam anið í Norðurá. Er jafnvel í bí- gerð að þeir fari þess á leit að Loftur í Hafnarfirði Ijái þeim snekkju til fararinnar ef til kem ur. Tekjur íslenzka sjónvarpsins nema þegar tugmilljónum áður en það er tekið til starfa, og mun það að öllum líkindum bezta afkoma hjá opinberu fyr irtæki hér á landi — og þó víðar sé Ieitað. Vekur það þá spumingu hvort ekkj mundi ráð að láta allar opinberar stofnan ir í landinu heyra undir útvarp og sjónvarp. Nú hefur hið væntanlega leikrit Þjóðleikhúss ins eftir Ustinoff, fengið skæð an keppinaut hvað nafngift snertir, þar sem er mjög um- rætt hjónaband og frægt þessa dagana... • Haustslátrun • mun nú langt komið víðast á • landinu, sumstaðar lokið með 2 öllu fyrir nokkru. — Lokaþátt • ur haustslátrunar sumstaðar á • landinu er slátrun hrossa. Ekki 2 verður sagt með vissu hvort • hrossaslátrun verði meiri í ár 2 en f fyrra, en líklegt að hún • verði að minnsta kosti ekki • minni, jafnvel heldur meiri. 2 Talsvert er enn um heimaslátr • un hrossá að ræða og mun enn • koma talsvert af hrossakjöti á 2 markaðinn af heimaslátruðum • hrossum. 2 Heimaslátrun — • heilbrigðiskilyrði • Það virðist svo augljóst mál, 2 að ekki ætti að þurfa að ræða • um það, að neytendur getí með • sanngirni gert kröfu til þess, 2 að kjötafurðir þær, sem settar • eru á markað fyrir þá, séu af 2 skepnum, sem slátrað er við • beztu skilyrði, þ.e í sláturhús- • 1 um við eftirlit dýralæknis. Gef 2 ur það auga leið, að þar sem • dýralæknir er við hendina til c þess að skoða kjötið og stimpla, 2 og hefur skilyrði til þess að • skoða innýfli hinnar slátruðu 2 skepnu, telji hann eitthvað grun • samlegt við heilbrigði hennar, er það til stórmikils öryggis, og þess öryggis sem krefjast verður. Stimplar sem annars flokks kjöt Mér skilst, að allt heima- slátrað hrossakjöt sé stimplað sem annars flokks kjöt — vegna þess að ekki getur tal- izt nema fyrsta flokks kjöt annað en það, sem er af grip um slátrað við fyrsta flokks skilyrði (sbr. það, sem áður var sagt). Margra skoðun er að heimaslátrun ætti að banna af þeim augljósu ástæðum, sem að ofan um greinir, en heimild er fyrir henni í 20-30 ára gamalli reglugerð, þ. e heimilað sé að slátra hrossum heima til kjöt sölu, þer sem óhagstæð skilyrði eru til að koma afurðunum á markað, og í skjóli þessarar greinar sé slátrað enn f dag miklu meira af hrossum heima á bæjunúm, en ella myndi. Þessu þarf að breyta þannig, að ekki megi slátra heima hrossum nema til heima notkunar, og að allt kjöt sem sett sé á markað sé af skepn- um sem slátrað er við eftirlit dýralæknis. Hér má minna á, að þetta ætti að gera ekki að- eins vegna almennra krafa um heilbrigði, heldur og vegna þess að komið getur fyrir, að slátr að sé grip, sem eitthvað grun samlegt sé við með titlrti til heilbrigði, og þörf úrskurðar dýralæknis, án þess heimamenn geri sér það ljóst. Hættulegir sjúkdómar geta gosið upp í skepnum, pg jafnvel sjúkdóm ar Iífshættulegir mönnum, eins og miltisbrandur, og allur er varinn góður. Áhugamál kjötsala finnst manni að það ætti að vera að fá aðeins 1. flokks kjöt til sölu og vinnslu, — en ekki verður þess vart, að boðið sé nema fyrsta flokks hrossakjöt í búðum? Fer þá allt kjötið af heimaslátruðu f vinnslu? Spyr svo mörg húsmóðirin. Nú verð ur að játa, að kjöt af heima- slátruðu stimplað sem annars flokks kjöt getur í einstöku til fellum jafnast á við það sem stimplað er sem fyrsta flokks, að minnsta kosti hvað bragð- gæði snertir, en sú trygging er ekki fyrir hendi sem ástæða er til að krefjast og á að vera fyr ir hendi með fyrsta flokks kjöt ið og vafalaust er.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.