Vísir - 11.12.1965, Síða 6
6
VlSIR . Laugardagur 11. desember 1965.
Athugasemdir vegna
Almennu bílaleigunnar
Herferð —
Framh. af bls. 16
hversu ung fólk hefur látið sig
málið miklu varða.
yíða í sveitum landsins þar
sém nefndir voru ekki starfandi
hófu kvenfélög, ungmennafélög
skólar ellegar hreppsnefndir ó-
tilkvödd söfnun með góðum
árangri.
Börn í skólunum hafa sýnt
skemmtilega framtakssemi með
framkvæmd ýmiss konar fjáröfl
unarleiða. Þannig er vitað að
börn hafi efnt til ekki færri en
20 hlutavelta Þá liggja og fyr
ir upplýsingar um 15 skemmt-
anir til ágóða fyrir herferðina
auk bazara, bögglauppboða,
safnana á vinnustöðum o.s.frv.
Þegar fyrsta söfnunardaginn
þótti ljóst hvern stórhug ís-
lenzka þjóðin hugðist sýna her
ferðinni. Söfnuðust þá tæpar
2 millj. kr. í Reykjavík. Mjög
góður árangur náðist víðast
hvar utan Reykjavíkur. Víða
söfnuðust um 100 kr. á hvert
mannsbarn og fór hæst upp í
tæpar 200 kr.
Að gefnu tilefni vill fram-
kvæmdanefnd herferðarinnar
koma því á framfæri að ekkert
af söfnunarfénu mun renna í
kostnað. Nánast allur kostnað
ur, sem nefndin hefði ella orð
ið að leggja út í svo sem hús-
næði, símar, prentun, mynda-
mót, dreifingarkostnaður o.
s. frv. hefur nefndinni verið lát-
inn í té endurgjaldslaust. Hafa
að því staðið u.þ.b. 50 fyrirtæki
og stofnanir.
Bþrótfir —
Framh. af bls 2.
ofnum brauðgerðar G. Ólafsson
& Sandholt á Laugavegi voru
jólakökumar fullbakaðar og
vitanlega máttu þær ekki
brenna við.
Ég byrjaði 13 ára í hand-
bolta“. sagði Stéfán okkur.
Hann byrjaði reyndar með ÍR
í 3. flokki, en eins og títt er
um unga menn hafnaði hann
í öðru félagi, Val, og þar hefur
hann leikið stórt hlutverk sem
einn af beztu línumönnum
landsins. „Ég var með strákum,
sem allir voru í Val og einhvem
veginn flaut ég með“, sagði
Stefán . jbp —
Jurta —
Framh. af bls. 16
því miður hefði vegna mistaka
hjá erlendri feitihreinsunarstöð,
bragð „Jurta“-smjörlíkis ekki
verið eins gott undanfarið og
þeir hefðu kosið, en nú væri
ráðin á því full bót og fullyrtu
þeir að nú væri „Jurta“-smjörlíki
betra en það hefði nokkurn tíma
verið og er það ætlun þeirra að
þannig verði það framvegis.
Miklar breytingar hafa verið
gerðar á vélakosti verksmiðjunn
ar, og er nú svo komið að manns
höndin þarf hvergi að snerta
smjörlíkið fyrr en það kemur
fullpakkað úr hinum sjálfvirku
pökkunarvélum.
Pólýfón —
Framh. af bls. 16
rún Tómasdóttir, Sigurður
Björnsson og Halldór Vilhelms
son. Stjómandi verður Ingólfur
Guðbrandsson, en hann hefur
verið stjórandi kórsins frá stofn
un hans
Jólatónleikar Pólýfonkórsins
verða 26., 27. og 28. desember
og hefjast kl. 18 alla dagana.
Aðgöngumiðar verða seldir í
Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds
sonar, hjá Lárusi Blöndal og
hjá Ferðaskrifstofunni Otsýn.
Bækur —
Framh. af bls. 1
þær hafa enn sem komið er ekki
náð verulegri sölu. Telja bók-
salarnir að línurnar skýrist betur
í næstu viku og þá fvrst megi
marka hvemig salan verður.
Samkvæmt könnuilinni hjá
bóksölunum í gær verður niður-
staðan sem hér segir (innan sviga
stigin sem hver bók fær, eftir röð-
inni sem bóksalamir selja hana):
1. Skáldið frá Fagraskógi (35).
2. Churchill eftir Thorolf Smith
(21 y2).
3. —4. Torgið eftir Kristmann
Guðmundsson (7).
3.—4. Árin sem aldrei gleymast, |
Gunnar M. Magnúss (7).
5. Leitið og þér munuð finna (5) |
Kári B. Helgason hefur sent
Vísi eftirfarandi yfiriýsingu
vegna Almennu bflaleigunnar:
Vegna blaðaskrifa, sem orð
ið hafa að undanförnu um
mig og fyrirtæki mitt, Al-
mennu bifreiðaleiguna h.f., vil
ég biðja yður að birta eftirfar
andi:
Þann 21. október s.l. fór ég
til Bandaríkjanna, þeirra er-
inda að fara með 7 ára son
minn til uppskurðar, sem ekki
var hægt að framkvæma hér
á landi.
Þegar ég fór þessa ferð,
sem var með mjög stuttum
fyrirvara, þá stóð ég í óbætt-
um sökum við firmað Kr.
Kristjánsson h.f., vegna Al-
mennu bifreiðaleigunnar h.f.,
en þó átti ég ekki von á þeirri
aðgangshörku, sem raun varð
á, og sízt átti ég von á, að
Borgarfógetaembættið heim-
ilaði þá aðgerð, að leyfa Kr.
Kr. að rífa út peninga, kr.
500.000,00 sem ég persónu-
lega átti hjá opinberri stofn
un, og það án þess að leyfa
lögfræðingi mínum að fylgj-
ast með því sem gerðist. —
Þetta athæfi hefur nú verið
kært til Hæstaréttar.
Þegar ég frétti þessar að-
farir, þar sem ég var í Banda
ríkjunum, og það með, að Kr.
Kr. hefði látið taka 15 bifreið
ir Almennu bifreiðaleigunn-
ar h.f. fjárnámi, þá var ég, til
þess að forða öðrum lána-
drottnum mínum tjóni, til-
neyddur að lýsa yfir gjald-
þroti fyrirtækisins.
Það er ekkert einsdæmi, að
fyrirtæki verða gjaldþrota, en
ég fel að ekki hefði þurft að
koma til þess í þessu tilfelli,
nema vegna hörkulegrar að-
farar Kr. Kr., sem þegar hefur
valdið mér miklu tjóni, m. a.
með því að láta selja áður-
nefndar 15 bifreiðir á upp-
boði, en ég vona samt, að mér
takist að greiða öllum lána-
drottnum Almennu bifreiða-
leigunnar, því enda þótt til
skuldanna sé stofnað í nafni
fyrirtækisins, þá lít ég á þær
sem mfnar persónulegu skuld
ir og er það metnaður minn,
að enginn verði fyrir tjóni af
viðskiptum við mig.
Þvættingi um flótta minn
úr landi, ferð á þing trúfélags,
viðskipti við okrara og ann-
að þess háttar, legg ég mig
ekki niður við að svara.
Kári B. Helgason.
í tilefni af þessari yfirlýsingu
hefur Jón Arason, lögfræðingur
Kr. Kristjánsson sent blaðinu
þessa athugasemd:
Þar sem mér hefur verið gef
inn kostur á að lesa yfirlýs-
ingu Kára B. Helgasonar
vegna málareksturs míns á
hendur Almennu bílaleigunni
h.f. fyrir hönd umbjóðanda
míns, Kr. Kristjánsson h.f.,
þykir mér rétt að eftirfarandi
atriði komi fram:
Þegar hafizt var loks handa
hinn 14. október s.l. um að
stefna Almennu bílaleigunni,
voru m.a. greiðslur vegna bíla
kaupa Kára vegna nefndrar
bílaleigu gjaldfallnar, nánar
tiltekið 15. ágúst s. 1. auk
annarra áfallinna skulda
vegna vöruúttekta hjá fyrir-
tækinu, sem honum var stöð
ugt veittur frestur á að
greiða. Þegar Kr. Kristjáns-
son h.f. hinn 12. október varð
kunnugt um, að bílarnir
hefðu þá fyrir alllöngu verið
teknir úr kaskotrygging'u al-
gjörlega án vitundar þess,
sem þeir þó áttu skilyrðislaust
að vera í samkv. samningi,
var Kára gefinn kostur á, þar
sem mikil verðmæti voru í
húfi, að afhenda bílana til
geymslu þar til frekari samn
ingar næðust um greiðslur.
Boði þessu hafnaði Kári, þrátt
fyrir að honum væri kunnugt,
að málsókn mundi að öðrum
kosti-þá þegar hafin, og hafði
bílana í stöðugri notkun.
Kára var því fullkunnugt um
málsókn þessa, áður en hann
fór til Bandaríkjanna, enda
bæði undirrituðum og Kr.
. Kristjánssyni h.f. ókunnugt
um fyrirhugaða för hans og
sízt í hvaða tilgangi hún væri
farin. Kári aðhafst ekkert í
málinu, áður en hann fer,
þótt dómar væru þegar að
birtast á Almennu bílaleig-
una, og lágu engar upplýsing
ar fyrir um það, meðan á
málarekstrinum stóð, hvenær
hann væri væntanlegur aftur.
Þegar sýnt þótti samkvæmt
mati, sem fram fór á bflunum
í sambandi við fjámám, að
þeir mundu hrökkva skammt
upp í skuldir, hófst ég handa
um að reyna að tryggja þær
kröfur, sem hann var persónu
Iega ábyrgur fyrir, í eignum
hans, eins og til stóð og eðli
legt var.
Ummæli hans um það, að
lögfræðingur hans hafi ekki
átt kost á, eða verið gefinn
kostur á, að fylgjast með mál
inu eftir vild, eru algerlega
út í hött. Varðandi hraða
málsins hjá fógetaembættinu
vil ég taka það fram ,að ég
lagði mikla áherzlu á og bað
sérstaklega um í fjámáms-
beiðninni, að fjárnáminu yrði
hraðað eftir föngum, þar sem
ég taldi bílana í hættu eins og
á stóð, og reyndar átti eftir
að koma í ljós, með áfram-
haldandi notkun þeirra.
Því aðeins þykir mér rétt
að gefa þessa yfirlýsingu, þar
sem mér virðist sem Kári
Borgfjörð vilji sýnilega vekja
samúð almennings á kostnað
fyrirtækis, sem sýnt hefur
honum velvilja og lipurð í hví
vetna, og kemur mér ofan-
greind yfirlýsing harla ein-
kennilega fyrir sjónir frá
manni og Kári Borgfjörð
öðrum eins drengskapar-
kveðst vera. Jón Arason hdl.
ÍSAFOLD
Spennan cli óLdfdáög-ur
d bóLamarLaÉi 1965.
Dœgradvö! diplomata
Éftir Roger Peyrefitte
205 bls. Kr. 230.OO
Segja má að þessi skáldsaga hafi blátt áfram
vakið uppnám, þegar hún kom út fyrst fyrir
nokkrum árum. Peyrefitte var um langt skeið
háttsettur embættismaður í utanríkisþjónustu
Frakka, og sá grunur hefir leikið á, að bókin
Dægradvöl diplomata sé byggð á reynslu hans
sjálfs. Þykir Peyrefitte meir en alllítið ber-
orður um líf og starf, ástir og áhugamál diplo-
mata. I sumar varð Peyrefitte frægur á nýjan
leik, er bók-.hans Gyðingurinn kom út, en í
þeirri bók heldur hann því fram, að menn
eíns og Kennedy forseti, de Gaulle, Eisen-
hower forseti o.fl. séu Gyðingaættar. Dægra-
dvöl diplomata er spennandi skáldsaga og
verður sjálfsagt mörgum íhugunarefni.
Hinir vammlausu
(THE UNTOUCHABLES)
Eftir Paul Robsky.
Ásgeir Ingólfsson þýddi.
162 bls. Kr. 220.oo
Ekki þarf að kynna hina vammlausu fyrir
íslenzkum lesendum. Þeii' þekkja bókina Þá
bitu engin vopn, sem kom út í fyrra, og hina
vammlausu þekkja þeir úr sjónvarpinu. Höf-
undurinn, Paul Robsky segir um þessa bók
sína:
Hér er sögð í fyrsta sinn sagan af grun-
semdum, sem ríktu í röðum hinna vamm-
lausu — um þrjá þeirra, sem sviku félaga
sína — um óhugnanlegar hefndir glæpafor-
^ingja Chicago.
Gúró og Mogens
Eftir Anitru.
Stefán Jónsson, námsstjóri þýddi.
220 bls. Kr. 220.oo
Norska skáldkonan Anitra varð alkunn hér á
landi, er skáldsagan ,Silkislæðan“ kom út.
Ekki minnkuðu vinspeldir hennar er skáldsag-
an Gúró kom út í fyrra. Gúró og Mogens er
algerlega sjálfstæð saga, ættarsaga og ástar-
saga — góð skáldsaga sem menn munu ekki
leggja frá sér fyrr en hún er lesin öll.
tauerzlun
J^óaj^oldar
Bifreiðaleiga
Getum tekið nokkra nýja eða nýlega Volks-
wagen bíla til útleigu. Mikil vinna, sanngjarnt
afgreiðslugjald. Tilboð sendist Vísi merkt
Bifreiðaleiga 2867 fyrir miðvikudagskvöld.
-----------------1--------------------
Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar
SIGFÚS ÁGÚST GUÐNASON
varð bráðkvaddur á vinnustað 9. þ. m.
Jóna S. Jónsdóttir
og börn.