Vísir - 15.12.1965, Blaðsíða 6
6
V í S IR . Miðvikudagur 15. desember 1965.
Jólaumferð —
Framh. af bls. 16
Reglur þær sem lögreglan
setur nú fyrir jólin eru þessar
og eru lesendur sérstaklega
beðnir um að kynna sér þær
vandlega svo að þeir lendi ekki
í erfiðleikum í jólaösinni:
Efnstefnuakstur.
Þ6 Frakkastígur sé mestmegn
is einstefnuakstursgata hefur
mátt aka hann báðar leiðir fyr
ir neðan Hverfisgötu. Nú verð-
ur hann einstefnuakstursgata
alla leið norður að sjó. Þá verð
ur Vatnsstígurinn einstefnuakst
ursgata, má einungis aka niður
hann.
Hægri beygja bönnuð.
Hægri beygjur bifreiða eru
oft mikið vandamál, bifreiðir,
sem þannig ætla að aka stöðv
ast vegna umferðarinnar sem
kemur á móti og stöðva þá um
leið aila umferð fyrir aftan sig.
Nú verða hægri beygjur batmað
ar úr Tryggvagötu á Kalkofns-
veg, úr Snorrabraut á Lauga-
veg, úr Snorrabraut á Njáls-
götu og úr Laufásvegi á Hring-
braut.
Bifreiðastöður bannaðar
eða takmarkaðar.
Bifreiðastöður verða bannað-
ar norðan megin á Skólavörðu- í
stíg frá Týsgötunni og u'pp úr I
að Njarðarg. Þá verða bifreiða-
stöður takmarkaðir við 30 mín.
á Hverfisgötu þaðan sem stöðu
mælum sleppir og inn að
Snorrabraut. ennfremur á eyjun
um á Snorrabraut frá Hverf-
isgötu að Njálsgötu, á Baróns-
s'tígnum milli Skúlagötu og
Bergþórugötu, á öllum Frakka
stíg, Vitastíg og Klapparstíg og
ennfremur á Garðastræti milli
Túngötu og Vesturgötu. Frekari
takmarkanir verða settar ef þörf
krefur.
Göngugötur á annatíma.
Öll bifreiðaumferð verður
bönnuð á nokkrum mestu við-
skiptagötunum, þegar ösin er
, mest kl. 20—22 næsta laugard.
og eftir kl. 20 á Þorláksmessu.
Göturnar sem verða þannig
göngugötur eru Austurstræti,
Aðalstræti og Hafnarstræti og
ennfremur ef þurfa þykir
Bankastræti og Laugavegurinn
alla leið inn að Snorrabraut.
Kennorar —
Framh. af bls. 16
sbr. háskólamenntaða kennara
hingað til. í þessu sambandi tekur
Svía sér til fyrirmyndar, en eftir 1
að háskólamenntaðir menn þar í |
landi stofnuðu með sér samtök og I
fengu samningsrétt hafa kjör þeirra l
batnað til muna.
í baráttu sinni vilja háskóla-
menntaðir kennarar stefna að því
að laun kennara hætti að fara eft-
ir skólastigi sem þeir kenna á
heldur fari eftir þeirri menntun,
sem kennarinn héfur hlotið, þannig
að kennari með cand. mag. próf
hljóti sömu laun hvort sem hann
kennir í gagnfræðaskóla eða
menntaskóla, og kennari með
kennaraskólapróf hljóti sömu laun
hvort sem hann kenni í bama-
skóla eða unglingaskóla. Verði ekki
hægt að koma þessu á, vilja þeir
að tekið verði upp einhvers konar
námslánakerfi, því að þeir vilji
ekki við það búa lengur, að ævi-
laun þeirra séu miklu lægri en
annarra þegna þjóðfélagsins.
Rækjuverksiniðja -
FramHþ'-- >t bls 16
hvern tíma höfðu afgangs, unnu
einnig að henni. Þó er þetta of
lítill liðsafli ef veiðin heldur
áfram, sem naumast þarf að
efa, sagði Hans oddviti.
Við höfum ekki reiknað með
þessari nýju atvinnugrein, sagði
oddvitinn. En atvinnuvegir hafa
verið hér í kaldakoli undanfar-
ið, aflabrestur síðustu árin og |
hafís í fyrra. Vonleysi hafði grip
ið um sig meðal fbúanna, og
sumir eru þegar fluttir á brott. i
Bátamir í kauptúninu eru allir ]
auglýstir til sölu, og sem stend 1
ur eru a. m. k. horfur á að tveir
ann með 71.154 málum og
tunnum, en bilið milli hans og
næstu báta hefur minnkað
dálítið. Hann hefur hækkað
um 5.500 mál og tunnur síð-
ustu tvær vikumar. Næstur
honum er Hannes Hafstein
frá Dalvík með 68.542 og hef
ur hækkað um 9.000 á sama
tfma. Þriðja skipið er Bjarmi
II. einnig frá Dalvík, með 63.
758, og hefur hækkað um
7.000 á þessum tveimur vik
um. Fjórði er Dagfari frá
Húsavík með 62.726 og hefur
hækkað um rúm 7.000. Næst-
ur er Heimir frá Stöðvarfirði
með 58.755, þá ísleifur IV
frá Vestmannaeyjum með
58.636, Keflvfkingur með 56.
043, Þorsteinn frá Reykjavík
með 54.671. Gullver frá Seyð
isfirði með 54.043, Súlan frá
Akureyri með 52.712, Höfr-
ungur III. frá Akranesi með
52.418, Lómur frá Keflavík
með 52.363, Sigurður Bjama-
son frá Akureyri með 52.328,
Ingiber Ólafsson II frá Kefla
vík með 52.267, Barði frá Nes
kaupstað með 51.574, Snæfell
frá Akureyri með 50.397 og
Akurey frá Reykjavík með
50.219 mál og tunnur.
Drukknuðu —
ft.. I aI a •
Sjo bnar / ein-
um árekstrí
Framhald af bls. 1.
ur gestkomandi í togaranum, og
þeirra verði seldir, hvað sem mun hann vera utanbæjarmaður.
hinum líður_ Að því er Vísir fregnaði í morgun,
En nú al'lt í einu brevtast mun maðurinn hafa ætlað í land
öll viðhorf hér í kauptúninu ef I en varð Mtaskortur og féll í sjóinn
héðan verða stundaðar rækju-1 skiPverjar sáu til hans og steyptu
veiðar í stórum stíl. Og hráefnin 1 sér f si'óinn á eftir honum l\að
eru nægfyTír hendi, það^r
ár búið að sannai Viðhöfum- |^t|ð ftans en
bara ekki skilyrði til að taka á
móti aflanúm eins og sakir
standa, okkur vantar meira og
betra húsrými, breytt fyrir-
komulag á ýmsan hátt, og vafa
laust aukna tækni í þokkabót.
Það sem mest á skortir er þó
fjárhagslegur máttur til að
koma upp rækjuverksmiðju í
Hólmavíkurkauptúni, en að því
verður að stefna.
Síld —
Framh. af bls. 16
hafa 402.365 tunnur farið í
salt, 49.799 í frost og 3.662.
284 mál í bræðslu.
Jón Kjartansson frá Eski-
firði leiðir enn síldveiðiflot-
Stálvörur í úrvali
Stálvörur í úrvali, krómaðar kaffikönnur
mjólkurkönnur, hitakönnur, ölglös, vatnsglös
vínglös og kaffi- og matarstell.
NOVA Barónsstíg 27
Raðhús — Kópavogi
Höfum til sölu raðhús í Kópavogi, kjallara og 2 hæðir.
í kjallara, sem er lítið niðurgrafinn eru 2 herb. þvotta-
hús og 2 geymslur. Á 1. hæð er eldhús og 2 stórar
samliggjandi stofur, hol og W.C. Uppi eru 4 herbergi
og bað. Húsið er 65 ferm. hvor hæð. Selst fokhelt
með tvöföldu gleri og fullklárað að utan. Mætti gera
2 íbúðir. Verð kr. 650 þús. Útborgun kr. 500 þús.
Allir veðréttir lausir. Bílskúrsréttindi fylgja. Teikning
ar liggja fyrir á skrifstofu vorri.
TRYGGINGAR OG FASTEIGNIR
Austurstræti 10A. 5. hæð. Sími 24850. Kvöldsími 37272.
tilraunir til að ná honúm reyndust
árangurslausar og sást maðurinn
sökkva við homið á Faxagarði. Var
björgunartilraunum þá hætt, enda
óhægt um vik vegna náttmyrk-
urs. En með birtingu í morgun kaf-
| aði Andri Heiðberg froskmaður til
Lað leita líksins og fann það á 11.
tímanum f. h.
Konan sem drukknaði, var rosk-
in, eða nokkuð á sjötugsaldri.
Barst lögreglunni tilkynning um
það á 9. tímanum í morgun að
konu þessarar væri saknað.
Mjmdi hún hafa farið úr rúmi sínu
fáklædd síðari hluta nætur eða
snemma í morgun að talið var.
Þar sem kona þessi gekk ekki
heil til skógar, var strax óttazt, að
hún myndi hafa farið í sjóinn og
voru menn sendir til að ganga á
fjömr.
Skömmu siðar barst tilkynning
frá starfsmanni f Fiskifélagshúsinu
að hann hefði séð lík af konu í
flæðarmálinu fyrir framan húsið.
Reyndist það vera líkið af konunni
saknað
sem
var.
Togari —
Framh. af bls. 1
korti. Þórarinn Bjömsson, skip
herra kom fyrir réttinn oa flug
menn gæzluvélarinnar. ”
Maurice Edward Call er „gam
all vinur“ Landhelgisgæzlunn-
ar, var tekinn að ólöglegum
veiðum fyrir ári. — Hann
mætti ekki fyrir dómi í morgun
en hafði sagt varðskipsmönnum
að hann hefði verið að veiðum
á Halamiðum en veður hefði
versnað mjög og hefði hann því
ekki búlkað veiðarfæri en siglt
f betra veður með aflann á þil-
farinu, aðallega ufsa, sem er
ódýr siskur á markaði í Bret-
landi.
í flughálku sem myndaðist á
Hafnarfjarðargötum í gærmorgun
lentu sjö bílar í einum og sama
árekstrinum vegna þess að þeir
runnu stjómlaust hvor á annan,
án þess að ökumennimir fengu
nokkuð að gert.
Það mun hafa verið á áttunda
tímanum í gærmorgun að bíll sem
var á leið niður Reykjanesbraut
rann stjómlaust á hálkunni og j
lenti loks út á vegbrúnina og stöðv
aðist þar. Fyrir næstu bílum fór
síðan á sömu leið, þeir runnu
stjómlaust áfram og ökumennirn
ir gátu ekkert aðhafzt. Bflamir
höfnuðu síðan hver á öðrum, sam
tals 7 að tölu og þ.á.m. var einn
strætisvagn.
Þrír bílanna skemmdust allmik
ið, og meðal þeirra strætisvagninn
Hinir bílarnir skemmdust minna.
Slys varð ekki á fólki.
Lögreglan sagði að malarbomir veg
ir hafi allir verið flughálir fram eft
ir degi í gær, en hins vegar hafi
ekki gætt neinnar hálku á malbik-
uðum vegum. 1 morgun voru allar
götur auðar orðnar og hvergi hálka
Allir ölvaðir, þau sem óku
bílnum og só er ekið var á
Aðfaranótt sunnudagsins varð
ölvaður maður fyrir bifreið í Aust
urstræti um kl. 2, meiddist hann á
fæti og hruflaðist nokkuð. En sá
sem á hann ók hafði ekki fyrir því
að nema staðar heldur ók á brott.
Nokkru síðar um nóttfna náði
lögreglan bifreið þeirri sem hér
hafði komið við sögu og var þá
undir stýri hennar ölvuð stúlka, en
með í bifreiðinni var einnig eig-
andi bílsins og var hann ölvaður.
Stúlkan neitaði að hafa ekið bif
reiðinni, þegar slysið varð og eig-
andinn kvaðst ekki geta gert sér
grein fyrir því sakir ölvunar-
ástands, hver hefði verið við stýr-
ið. Annað fólk sem var í bifreið-
inni bar þó, að það hefði verið eig-
andinn sjálfur og játaði hann það
að lokum.
Þessa nótt voru' fjórir aðrir öku
menn teknir fastir vegna ölvunar
við akstur.
mm
tí
®. ip\ 'ÞiJkkukt' aHðsýflda sámúð við andlát og útför móður
okkar og tengdamóður
RANNVEIGAR HJALTESTED
Margrét og Olrich Richter.
AUKIINi HESTORKA
EIIMGOIMGU 4-GIRA -=r^; ",
MtJ MEÐ ÞREIVi „CARBORATORUM
GÆÐIN SKÝJUM OFAR - ÖRYGGI FRAMAR ÖLLU
GERIÐ HÆRRI KRÖFUR VIÐ BIFREIÐAKAUP YÐAR
ÞVÍ FYRR SEM þÉR PANTIÐ
- ÞVÍ FYRR ERUÐ þ ÉR ÖRUGG
SVEIl BJÖlSSei & co.
LANGHOLTSVEGI 113 - SÍMI 30530
VIÐGERÐARÞJÓNUSTAN SÍMI 31150
/